Morgunblaðið - 03.07.1999, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 03.07.1999, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999 59 < ERLENDAR Skúli Helgason skrifarum nýjustu plötu Red Hot Chili Peppers, Californication. Ævinlega! ÞETTA er ekki sagan endalausa eins og hjá Stones, en Red Hot Chili Peppers er orðin 16 ára gömul sveit og getur meira að segja montað sig af því í ellinni að hafa verið braut- ryðjaridi fyrir stefnu sem reyndar féll saman áður en ættmóðirin gat sagt: Viltu nammi, væni? Eða man einhver eftir Living Colour og Faith No More, sem tóku upp eftir Red Hot ChOi Peppers þennan fönk- metal-bræðing, sem rejmdar sleikir utan í pönk og jaðarpopp þegar svo ber undir? Reyndu aftur Red Hot Chili Peppers varð til í Los Angeles og gaf út fyrstu plöt- una 1984, en sú sem nú kemur á markaðinn 15 árum seinna er hin sjöunda í röðinni þegar safnplötum er sleppt. Þetta er fyrsta plata sveitarinnar síðan 1995 og það sem meira er, hún markar endurkomu gítarleikarans frækna John Frusci- ante, sem hætti eftir að sveitin gaf út sína bestu og vinsælustu plötu, Blood sugar sex magic, árið 1991. Rick Rubin sér líka um upptöku- stjórn eins og þá. Hér er því komin gullaldaruppstilling sveitarinnar átta árum síðar. Blessuð platan Ég get fúslega játað að það var á mér hálfgerður fýlusvipur þegar ég fékk þessa plötu í fangið og ég reikn- aði alveg eins með að finna af skapn- aðinum stæka peningalykt með til- heyrandi skammti af málamiðlunum og niðurlægingu. Hér væri komin gamla sagan um „miðaldi-a“ poppar- ana sem reyna að lífga við gull- kálfinn frá í gær. Já, en hvemig er blessuð platan? (innskot-óþekkti les- andinn) Fyrst er frá því að segja að hún er betri en ég óttaðist. Mínusamir fyrst: Platan er óþarflega löng. Það er nú gallinn við þessa geisladiska að það kemst Don Johnson faðir á ný RÓLYNDISDAGAR hjónakorn- anna Dons Johnsons og Kelley Phleger eru senn á enda því þau eiga von á sínu fyrsta barni. Don sem er 49 ára giftist Kelley í aprfl en hún er 31 árs barnaskólakennari. Hann á fyrir tvö börn; með Patti D’Ar- banville á hann Jesse sem er sextán ára og með leikkonunni Melanie Griffith á hann dóttur- ina Dakota. f 9\(ctturgalinn *| Smiðjuvegi 14, ^ópavogi, sími 587 6080 í kvöld leikur danssveitin Cantabile frá Akureyri Opið frá kl. 22—3 Munið opið sunnudagskvöld Næturgalinn þar sem stuðið er og alltaf lifandi tónlist alltof mikið efni á þá og eftir eina umferð líður manni álíka vel og þeg- ar maður hefur þrælað sér í gegn- um „king size“-flögupoka frá Amer- íku. Þessa plötu hefði mátt stytta um svona 4 lög mér að meinalausu. Annað: Sumir textanna eru frómt frá sagt helber bjánaskapur og slagorðasull um margþvæld mál eins og gerviveröldina í Hollywood, dóp og dömur. Dæmi: Titillagið Californication, sem er með slakari lögum plötunnar. Þumall til himins Plúsarnir: Platan er býsna fjöl- breytt og bandið er í mun betra formi en á síðustu plötu, stemmn- ingin smitar út frá sér og sums staðar koma drengimir m.a.s. á óvart þrátt fyrir háan aldur. Frusci- ante kemur eitursterkur inn og samleikur hans við Flea bassaleik- ara er víða magnaður. Platan er gegnumsneitt mjög áheyrileg og sérstaklega eru eftirtektarverð lög þar sem gamli fönkmetalstíllinn er kvaddur. Þar er fyrst að telja jazzlagið angurværa Porcelain, um hvíta krakk-neytendur, sem er hreinasta perla, Savior, nýstárlegt lag með flottri raddsetningu, og kassagítarballöðuna Road trippin. Svo er auðvitað smellurinn Scar Tissue, sem flestir hafa heyrt, fínt popplag sem eltir mann úr öllum út- varpstækjum þessa dagana. Auðvit- að eru þarna kraftmeiri lög og mörg góð, eins og upphafslagið All around the world og Parallel Uni- verse. Bjóðum þeim heim! Gegnumsneitt er Califomication beinskeytt og mjög áheyrileg plata sem ætti að gleðja flesta Red Hot Chili Peppers aðdáendur og virðist gera það, a.m.k. hér heima þar sem platan fór beint á topp breiðskífu- listans. Má ég að lokum biðja um það að einhver bjóði drengjunum hingað til tónleikahalds. Þeir ku vera að springa úr orku og leikgleð- in frussast af þeim á þessari plötu. Yilji menn krefja mig um stjömur fyrir plötu þessa segi ég þrjár. MICHAEL Douglas horfir aðdáunaraugum á Cath- erine Zeta-Jones er þau mættu saman til frumsýn- ingar á Svikamyllu í Bret- landi á dögunum. Michael er 25 árum eldri en Catherine. Eiga í sér- stöku vináttu- sambandi LEEKKONAN Catherine Zeta-Jones hefur staðfest að eiga í „sérstöku vináttusam- bandi“ við leikarann Michael Douglas. „Hann er sú mann- gerð sem auðvelt er að láta sér líða vel nálægt,“ sagði hún í viðtali við tímaritið Hello!. „Michael hefur alltaf reynst mér mjög vel. Hann hefur stutt mig þegar ég hef þamast vinar og hann er töfrandi persóna og mikill herramaður.“ Catherine sem fer með aðalhlutverkið á móti Sean Connery í Svikamyllu segist hafa kynnst Michael á kvikmyndahátíð á síðasta ári. Miðasala opin frá kl. 16.30-23.15 Sífni 530 1919 MED 5 SESTASTJORNUM FRÁ EISTLANDI HATItJARSYNINS FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA 1100 kr. fyrir fullorðna 700 kr. fyrir börn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.