Morgunblaðið - 03.07.1999, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 03.07.1999, Blaðsíða 46
:6 LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR JON SIGURÐSSON + Jón Signrðs- son fæddist í Ólafsvík 8. desem- ber 1941, en ólst upp í Borgamesi. Hann iést á hjarta- deild Sjúkrahúss Reykjavíkur hinn 9. júní síðastliðinn og var útför hans gerð frá Bústaðakirkju 21. júní. „Vantar þig eitt- hvað?“ „Nei, ekkert elsku drengurinn minn.“ „Þá sjáumst við á morgun.“ Það er undarlegt til þess að hugsa að þetta skuli hafa verið síð- ustu orðin okkar feðganna, töluð eftirmiðdags þann dag er pabbi lést. Ég heimsótti hann á hjarta- deildina ásamt afastrákunum hans, Guðjóni Bjarka og Jóni Axeli, og stönsuðum við hjá þeim gamla í rúman hálftíma. Það lá vel á hon- um og við spjölluðum um daginn og veginn, fátt merkilegt, enda ekkert ^sem benti til að þetta yrði okkar síðasta samverustund. Pabbi ræddi aðeins um brúðkaup systur minn- ar, en það var honum hjartans mál að ég myndi tala til hennar í veisl- unni í hans stað og ég sá að honum var rórra við það að vita að ég var búinn að hugleiða hvað ég ætlaði að segja. Fyrr um daginn hafði ég farið til að máta föt og sagði ég honum af því að ég hefði talið drengjunum mínum trú um að ég yrði að vera í brúðarkjól í brúð- kaupinu, en það hafði þeim ekki lit- á. Afastrákamir sögðu afa síðan stuttlega af hversdagsævintýrum sínum, en það mátti merkja að þeir voru ögn feimnir við þann gamla, enda ekki vanir því að sjá hann hggjandi í fleti að degi til nema ef væri í Berjanesi þar sem honum þótti gott að fá sér kríu að degi til og þá sérstaklega þegar vömbin hafði verið kýld. Þegar frásögninni var lokið var lagt á ráðin um næstu ferð í Skorradalinn, en þangað voru drengimir alltaf viljugir að fara. Gömul afrek úr æsispennandi fótboltakappleikjum vom rifjuð upp og síðan vora lögð drög að smíði fleiri sverða, en drengjunum ^Jþótti afi vera fremstur sverða- smiða. Þegar þessari ráðstefhu var lokið spjölluðum við pabbi stuttlega saman aftur og spurði hann mig hvemig gengi. „Bæriiega," var svarið eins og venjulega. Við töluðum síðan aðeins um þau verkefni sem framundan vom hjá mér og að venju réð hann mér heilt og hvatti mig til dáða. Því næst fór hann aðeins yfir það sem í vændum var hjá honum, en hann beið þess að komast í aðgerð eftir nokkra daga. Þegar hér er komið sögu brestur mig minni og kem ég ekki fyrir mig hvað rætt var um næst, en ég reikna með að það hafi ekkd verið neitt merkilegt, enda ekki tilefni til að reyna að kryfja til mergjar öll þau mál sem okkur snertu, nægur yrði tíminn til þess seinna. Altént kom nú að kveðju- stund og við strákamir kvöddum afa með kossi eins og venja er til í okkar fjölskyldu. Þegar við gerðum okkur líklega til að fara kallaði afi til litlu afastrákanna sinna: „Þið vitið að þið þurfið að vera í bleikum kjólum í brúðkaupinu eins og pabbi, er það ekki?“ en hann sá tækifæri til að stríða þeim og lét það svo sannarlega ekki úr greip- um renna. Stærri afastrákurinn ramdi, setti undir sig hausinn og bjó sig undir að stanga stríðnis- púkann en sá minni ranghvolfdi augunum og virtist vona að það leyndist nú ekki sannleikskom í þessu. Afi hafði augsýnilega gaman af þessu og viðbrögð fómar- lambanna ýttu enn frekar undir kátínu hans. En nú snerumst við á hæli og ég spurði: „Vantar þig eitthvað?" „Nei, ekkert elsku drengurinn minn.“ „Þá sjáumst við á mprgun.“ Ólafur Jón. „Æi! Komdu og kysstu mig,“ segir Jón kankvís á svip og með glettnisblik í augum. Hlær lágum hlátri - og skellir svo á mann rembingskossi - hreppstjórakossi eins og við kölluðum hann. Jón var ávallt hress og kátur, eins og hann var þegar við, Harald- ur bróðir minn og ég, hittum hann óvænt á göngu í Kringlunni. „Viljið þið kaffi og tertu? Ég býð,“ segir Jón snöggt. Og þegar við voram ekki nógu fljótir til svars hélt hann áfram: „Já eða nei? Boðið stendur ekki til eilífðar drengir." „Já! Já!“ svömðum við einum rómi. Við sátum góða stund saman í kaffistofunni. Sötraðum kaffi og hámuðum í okkur rjóma-súkkulaði- tertur, stundum kallaðar stríðstert- ur vegna stærðar sinnar og ómæl- anlegrar orkugjafar, og áttum við skemmtilegar umræður saman um menn og málefni. Jón að vanda var vel upplýstur um gang dægurmála og fróður um mannfólk í sviðsljósi líðandi stundar, sem og fólk er hef- ur dregið sig í hlé frá aðalsviði dag- legs vafsturs. Þannig var Jón ávallt í fasi. Snöggur upp á lagið, fljótur að taka ákvarðanir, skemmtilegur og fróður í samræðum, og með kímnigáfu vel yfir meðallag. Vinskapur okkar óx með árunum og varð kærari, jafnvel eftir að við hjónin fluttum utan. Þó að sam- verastundum fækkaði, þeim mun betur nutum við að eiga stund sam- an ef færi gafst, hvort sem það var er Jón kom við hjá okkur í stuttar heimsóknir þegar hann átti erindi vestur um haf, - og var þá mikið spjallað, íhugað og áformað, og á stundum teknar ávarðanir er réðu um stefnur teknar fyrir framtíðina, svo sem í atvinnumálun og öðra, - eða við veisluhöld í Rituhólum 3 í tilefni heimsókna okkar til föður- landsins, þegar þau hjónin Ollý og Jón smöluðu saman öllum gömlu vinunum til mannfagnaðar og gleð- skapar. Rausn og myndarbragur þeirra hjóna á sér engan samjöfn- uð, og á fáum heimilum er maður eins velkominn gestur og á heimili Ollýjar og Jóns. Jón var vinmargur og hélt tryggð við vini sína og kunningja, örlátur á tíma sinn og ósínkur á ráðgjöf og heimsóknir. Hann var maður samtíðarinnar, honum var umhugað um samfélagið og hann var óspar á þátttöku sína í félags- málum. Sem þiggjandi hafði Jón hæfi- leika sem fáum era gefnir. Hann kunni að hlusta. Ekki einungis til þess að heyra, heldur einnig til þess að meðtaka skoðanir annarra, íhuga þær og skilja, og alltaf opinn íyrir nýjum hugmyndum og tilbú- inn að brjóta málefni til mergjar. Ollý mín, við elskum ykkur Jón af sönnu hjarta og biðjum almættið að vaka yfir þér og börnum ykkar, Ólafi Jóni, Ásgeiri og Elísu, svo og Blómabúðin öarðskom v/ Fossvogski^kjwgarð Sími; 554 0500 Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Áralöng reynsla. Svem'r Olsen, útfararstjóri Sverrir Einarsson, útfararstjóri Utfararstofa Islands Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 ^AUan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ Aðsendar greinar á Netinu v^mbl.is THELMA RUN SIG URGEIRSDÓTTIR + Thelma Rún fæddist á Akra- nesi 16. júní 1999. Hún lést á Landspít- alanum 17. júní síð- astliðinn. Foreldrar hennar eru Sigurgeir Ragnar Sigurðsson f. 29.10. 1964 og Herdís Jónsdóttir f. 4.4. 1969. Systkini Thelmu Rúnar eru Anna Ósk f. 8.10. 1986, Thelma Hrund f. 23.1. 1992, d. 14.9. 1992 og Daníel Aron f. 19.3. 1994. Utförin fór fram frá Akranes- kirkju þriðjudaginn 22. júní 1999. \LLTAf= e/7T«MÓÐ A/ý7~7~ Okkur langar í örfáum orðum að kveðja litla sólargeislann okkar, hana Thelmu Rún, sem lést á Landspítalanum 17. júní. Þú veittir okkur öllum mikla gleði þann stutta tíma sem þér auðnaðist að vera á meðal okkar en nú ert þú komin til systur þinn- ar, hennar Thelmu Hrundar, svo nú leikið þið tvær systumar ykkur saman hjá Guði. Hafðu þökk fyrir þann tíma sem þú náðir að vera hjá okkur og fylltir þann tíma ást og ham- ingju. Vertu sæl, elsku sólargeislinn okkar, við elskum þig öll. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesú þér ég sendi, bæn frá mínu bijósti sjáðu, blíði Jesú að mér gáðu. (Ásmundur Eiríksson.) Kveðja, pabbi, mamma, Anna Ósk og Daníel Aron. í dag kveðjum við elsku litlu frænku okkar og sonardóttur, hana Thelmu Rún. Hún fæddist á Sjúkrahúsi Akraness 16. júní og lést á Landspítalanum 17. júní. Stuttur var sá tími sem við feng- um að hafa þig á meðal okkar en sá tími var yndislegur og mikil var gleðin og hamingjan hjá foreldram þínum og systkinum. Gleðin skein úr augum þeirra þegar þú fæddist í þennan heim. Um hádegi 17. júní var okkur tilkynnt að flytja þyrfti þig til Reykjavíkur og nokkram klukkustundum síðar var hringt og tilkynnt um lát þitt. Kom þessi tengdabömum, bamabömum og öðram vandamönnum, og að gefa ykkur styrk og þrek á sorgar- og saknaðarstundu. Lífið heldur alltaf áfram hvort sem það er á jarðríki eða í himna- ríki, og ef hann Jón okkar er samur við sig, þá er hann sjálfsagt í hrókasamræðum við Sánkti-Pétur og er að ráðleggja honum um hag- ræðingu við gæslu Gullna hliðsins. Að lifa í fjarlægð frá föðurlandi og foðurhúsum kennir manni að meta og varðveita minningamar betur en ella. Og þó að sárt sé að sjá á eftir góðum dreng og söknuður fylli hjartað, þá eigum við eingöngu góðar og ljúfar minningar um Jón, sem verða varðveittar í gleðibanka hugans til upprifjunar um alla framtíð. Með ást og virðingu. Aðalsteinn S. Ólafsson, Margrét Ágústsdóttir. Sú harmafregn barst mér að morgni fimmtudagsins 10. júní að Jón væri dáinn. Við þessi sorgartíð- indi flugu í gegnum hugann margar góðar minningar um einstakan mann, mann sem var alltaf tilbúinn að rétta öðram hjálparhönd, sama hvað bjátaði á. Ég á honum svo óendanlega mikið að þakka fyrir öll þau skipti sem hann og Ollý opnuðu heimili sitt fyrir mér. Alltaf var manni tekið með hlýju og var vel- kominn í Rituhólana. Ég kynntist Jóni á unglingsárum mínum þegar ég og Elísa dóttir hans urðum vinkonur. Það var svo sérstakt að kynnast Jóni því mann- gæskan var svo mikil og heimilið alltaf opið fyrir vini og vandamenn. Og alltaf hafði hann tíma. Mér er minnisstætt þegar ég og Elísa vor- um að vinna í Miklagarði, þá fékk ég far með Jóni heim og maður var nú svolítið upp með sér þegar framkvæmdastjórinn gaf sér tíma til að bíða eftir kassadömunni svo hún gæti fengið far. Eða þegar það var brjálað að gera á föstudegi, þá gerði Jón sér lítið fyrir og skokkaði niður af skrifstofunni og fór að raða í poka fyrir viðskiptavinina. Þetta lýsir Jóni svo vel. Hann var alltaf til staðar og alltaf tilbúinn að hjálpa til og aldrei fór hann í manngreinarálit. Seinna varð ég heimagangur hjá þeim hjónum og enn í dag líður mér eins og ég sé komin heim að koma í Rituhólana. Það var svo ómetanlega gott að eiga Ollý og Jón að og er ég þakklát fyrir að hafa notið þeirra forréttinda að kynnast Jóni. Ég mun alltaf varð- veita minninguna um góðan mann í hjarta mínu og ætla ég að verða sonum mínum eins gott fordæmi og hann var sínum bömum. Elsku Ollý, Elísa, Óli Jón, Ás- geir, Valtýr, Gerður, Ásgeir Ingi, Vignir Daði, Guðjón Bjarki, Jón Axel og fjölskylda, megi góður guð styrkja ykkur í sorginni. Ingibjörg Salóme. Jón Sigurðsson var öflugur liðs- maður hvar sem hann fór. Áhuga- samur og heill, kraftmikill og holl- ur þeim hagsmunum og málstað sem hann kaus að verja hverju sinni. Hann var meðalmaður á hæð, þéttvaxinn en kvikur í hreyf- ingum, snareygður og bar með sér áhuga á mönnum og málefnum. Honum var lagið að umgangast fólk og stofna til kynna; hann var félagsmálamaður í þess orðs bestu merkingu. Erfiðleikum mætti hann af einurð og karlmennsku. Leiðir okkar lágu fyrst saman fyrir nærfellt tuttugu árum og brautirnar skárast oft eftir það. Við sátum um skeið saman í skóla- stjórn Fjölbrautaskólans í Breið- holti. Jón bjó þar og hafði einlægan metnað fyrir hönd hverfísins og skólans. Hann hafði glöggan skiln- ing á því hversu mikilvægt væri að efla metnað í skólastarfinu og bæta aðbúnað og árangur svo skólinn gæti betur búið némendurna undir kröfur morgundagsins. Jón réðst til Landssímans fyrir rúmu ári og starfaði þar sem stjórnandi á markaðssviði. Hann var vakinn og sofinn í því að gæta hagsmuna fýrirtækisins, bæði í og utan vinnu. Á landsfundi Sjálfstæð- isflokksins nú í marsmánuði var hann manna virkastur í umræðu Um framtíðarþróun fjarskipta, rök- fastur en hpur í vörninni þegar honum þótti óhóflega sótt að Sím- anum. Hann var enda þátttakandi í mótun framtíðarstefnu og skipu- lags Landssímans og öflugur tals- maður viðskiptamanna og nýrra viðhorfa á því sviði. Samtarfsmenn hans hafa því misst góðan félaga, sem var öðram fyrirmynd um já- kvæða afstöðu til samferðamanna og daglegra viðfangsefna. Jón Sigurðsson lést langt um aldur fram aðeins 57 ára gamall. Hann skilur eftir sig minningu um góðan dreng, sem ævinlega var reiðubúinn þegar eftir var leitað, mann sem auðgaði umhverfi sitt með glaðværð og góðvild. Þórarinn V. Þórarinsson. fregn sem reiðarslag yfir okkur öll. Elsku Sigurgeir, Herdís, Anna Ósk og Daníel Aron. Við biðjum algóðan Guð að vaka yfir ykkur og styrkja. Hugur okkar og bænir era hjá ykkur á þessum erfiðu tímum. Dóttir, í dýrðar hendi Drottins, mín, sofðu vært, hann, sem þér huggun sendi, hann elskar þig svo kært. Þú lifðir góðum Guði, í Guði sofnaðir þú, í eilífum andarfriði ætíð sæl lifðu nú. (Hallgrímur Pétursson.) Amma, afi, Magnús, Björg, Óm- ar, Jórunn, Elínborg, Ásgeir, Hugrún, Eyjólfur, Marteinn, Kristin og börnin. Vertu sæl, vor litla ljúfan blíða, Lof sé Guði, búin ertu’að stríða. Upp til sælu sala Saklaustbamándvala. Lærðu ung við engla Guðs að tala. (M. Joch.) Hann var sólríkur, morgunninn sem þú komst í heiminn, elsku litla vina. Tilhlökkunin og gleðin yfir komu þinni var svo mikil, enda varstu dásamleg, falleg og virtist vera svo heilbrigð. Þess vegna varð næsti dagur hræðilegur, þú varst flutt í skyndi á Barnaspítala Hringsins en þar var ekkert hægt að gera fyrir þig, ástin mín, ekki einu sinni hægt að skíra þig, en foreldrar þínir voru búin að gefa þér nafn systur þinnar sem þau misstu líka fyrir sjö árum. Maður spyr hvað hægt sé að leggja á eina fjölskyldu. Að missa eitt barn þyk- ir hverjum og einum nóg, en tvö, Guð minn, það er of mikið. Þeir sem fylgst hafa með Herdísi, Sidda og börnunum geta ekki ann- að en dáðst að æðruleysi þeirra, styrk og dugnaði í þessari miklu sorg. Hvað getum við gert fyrir þau? Þetta er sú spurning sem all- ir ástvinir þeirra hugsa um. Ekk- ert? Jú, ást okkar, hana eiga þau óskipta, vináttu og alla þá hjálp sem við getum veitt. Okkur langar sérstaklega til að þakka starfsfólki Sjúkrahúss Akraness fyrir ómet- anlega hlýju og dásamlega umönn- un, ekki bara við foreldrana heldur alla sem komið hafa í heimsókn til þeirra. Elsku hjartans Herdís, Siddi, Anna Ósk og Daníel Aron. Við biðj- um algóðan Guð að senda ykkur styrk í sorginni. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesú þér ég sendi bæn frá mínu brjósti sjáðu, blíði Jesú að mér gáðu. (Asm. Eiríkss.) Blessuð sé minning þín, litla vina. Alma amma og Jón afi. Garðar, Ólína og börn. Ósk, Torfi og börn. Guðmundur og sonur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.