Morgunblaðið - 03.07.1999, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ er komið að ögurstund í kvótaruglinu, niðurtalningin er hafín.
Hátt boðið í Miðfjarðará
VEL var boðið í
veiðirétt í Mið-
fjarðará, en tilboð
í réttinn næstu
þrjú árin voru
opnuð á lög-
mannastofu í
Reykjavík í gær-
dag. Alls bárust
sex tilboð í ána og
var fyrirtækið
Lax-á ehf. með
langhæsta boðið,
31.850.000 krónur.
Næsthæsta boðið
var frá Stanga-
veiðifélagi Reykja-
víkur sem bauð
27.100.000 krónur
og þriðja hæsta
boðið var frá þeim
Hjalta Björnssyni,
Sigmari Björns-
syni og Ævari
Hallgrímssyni sem
buðu 26.900.000
krónur. Lón sf., sem leigir Viði-
dalsá og Laxá í Dölum, bauð
25.400.000 krónur, Einar Sigfús-
son og Guðmundur Á. Pétursson
buðu saman 25 milljónir sléttar og
Friðbert Pálsson bauð 24 milljónir.
Landeigendur Miðfjarðarár leggj-
ast nú undir feld og grandskoða
tilboðin, en samkvæmt framan-
BÖÐVAR Sigvaldason, formaður Veiðifélags
Miðfjarðarár, lengst t.v. ásamt tveimur kátum
viðskiptavinum.
skráðu má búast við því að Lax-á,
sem er fyrirtæki Árna Baldursson-
ar, hreppi hnossið.
Auk þessa var boðið í silunga-
svæðið, sem er tveggja stanga sjó-
bleikjuverstöð fyrir neðan brú.
Árni Baldursson bauð 720.000
krónur, en þremenningamir Æv-
ar, Hjalti og Sigmar buðu 800.000
krónur. Friðbert bauð 600.000
krónur og Lón sf. 100.000 krónur.
Auk þess kom boð frá sænska fyr-
irtækinu Vulkan Reiser upp á
550.000 krónur, en fyrirtækið
kaupir þegar stóran hluta veiði-
leyfa á silungasvæði Víðidalsár.
Einar Sigfússon og Guðmundur Á.
Pétursson og SVFR buðu ekki sér-
staklega í bleikjuveiðina.
Miðfjarðará hefur ekki verið á
útleigumarkaðinum í mörg ár,
veiðifélagið um ána hefur sjálft séð
um sín sölu- og markaðsmál og
hefur formaðurinn, Böðvar Sig-
valdason, borið þar þyngstu byrð-
arnar.
Bæjarlækirnir
Það er frekar dræm veiði í El-
liðaánum þessa dagana og kenna
menn um sól og blíðu. Vatn er
minnkandi í ánni og þótt slatti sé af
laxi í henni tekur hann nú illa.
Bergur Steingrímsson hjá SVFR
sagði í gær að 69 laxar væru komn-
ir á land og væru menn nokkuð
sáttir við það. Nú fer annars í hönd
besti veiðitíminn í ánni og margir
bíða spenntir eftir að sjá hvað
verður úr göngum í ána.
42 laxar voru komnir á land úr
Leirvogsá í gærmorgun og er lax
að veiðast um alla á. Menn sjá lax-
inn víða og sums staðar talsvert
magn, en besti tíminn er þó allur
Morgunblaðið/SÁM
ÞÓTT stór orð hafi fallið um
ástand Elliðaánna síðustu miss-
eri halda menn þó enn þangað
til veiða, m.a. Einar G. Harðar-
son (t.h.) og hollenskur vinur
hans, Hans Mensink, sem var
svo hrifinn af ánni að hann
lagðist á magann og drakk
nægju sína ... án þess að
verða meint af.
eftir. Heldur hefur gengið rólega
allra síðustu daga, enda afleitt
veiðiveður. Þó er vatnið í ánni mjög
„gott“.
Vel á fjórða tug laxa hafa veiðst í
Úlfarsá, eða Korpu, eins og margir
kalla hana, en veiði hófst þar 20.
júní. Þetta er að mestu leyti smá-
lax eins og venjulega í Korpu. Enn
er gott vatn í ánni, en hefur minnk-
að nokkuð síðustu daga.
Hörkuholl
„Fjaðrafokið“ veiddi 89 laxa í
Norðurá á dögunum, lauk veiðum á
háedgi á fimmtudag. Grunur leikur
á að það sé hæsta einstaka hollið í
íslenskri á á þessu sumri. Þar með
voru komnir 483 laxar á land úr
ánni. Það stefndi í að hollið ryfi 100
laxa múrinn, en veðurguðirnir fóru
í sparifötin og komu í veg fyrir það.
Herrifflasýning og -keppni
Arlegt mót
Byssuvina-
félagsins
IDAG klukkan 10
verður opnuð
herminja- og byssu-
sýning. Hún er haldin
samhliða herrifflakeppni
sem er árlegt mót Hins
íslenska byssuvinafélags.
Sýning er haldin í húsi
við hliðina á útisvæði
Skotfélags Reykjavíkur í
Leirdal sem er fyrir neð-
an hitaveitugeymana við
Vesturlandsveg í ná-
grenni Hafravatns. Skot-
keppnin hefst líka klukk-
an 10 og eru keppendur
beðnir að mæta ekki
seinna en klukkan 9.30.
Steinar Einarsson, for-
maður Skotfélags Kópa-
vogs, er einn af forvígis-
mönnum sýningar Hins
íslenska byssuvinafélags.
Hvers vegna var henni
komið á laggirnar?
Hún var sett upp sem forsýn-
ing að stórri sýningu sem haldin
verður í haust á Hótel Islandi. Á
þessari forsýningu gefst fólki
kostur á að sjá byssur frá fyrri
og seinni heimsstyrjöld og einnig
nýrri byssur.
-Er eingöngu um herbyssur
að ræða?
Já, þarna eru bara til sýnis
gamlar byssur sem notaðar hafa
verið í hemaði og aðrar herminj-
ar, svo sem hjálmar, herbúningar
og aðrar minjar sem orðið hafa
eftir hér frá stríðsárunum.
- Var eitthvað af þessurn byss-
um í notkun hér á fyrri stríðsár-
unum?
Nei, þær eru allar innfluttar,
t.d. frá Svíþjóð, Bandaríkjunum,
Bretlandi og Þýskalandi. Margar
af þessum byssum hafa aldrei
verið notaðar í hernaði, aðeins
verið framleiddar. Sumar hafa
hins vegar verið notaðar án þess
að maður þekki nokkuð sögu
þeirra.
- Hvað getur þú sagt mér um
þetta árlega skotmót sem haldið
er samhliða umræddri sýningu?
Það hefur verið haldið frá
stofnun Hins íslenska byssuvina-
félags 1993. Á þessu móti em ein-
göngu notaðar byssur sem fram-
leiddar voru fyrir eða í seinni
heimsstyrjöld. Yngri byssur eru
ekki leyfðar. Margir eiga þessar
gömlu byssur sem hafa verið
fluttar inn í gegnum árin.
- Til hvers hafa þær verið
fluttarinn?
Þær hafa ýmist verið fluttar
inn sem safnbyssur eða sem
veiðibyssur, t.d. til hreindýra-
veiða.
- Eru svona rifflar dýrir?
Nei, það er t.d. verið að flytja
inn sænska herriffla á 26 þúsund
krónur. Þetta er sextíu skota
keppni sem fram fer í __________
dag og það er skotið
af hundrað metra
færi standandi og
þrjú hundruð metra _____________
liggjandi.
- Er mikill munur á að skjóta
standandi eða liggjandi?f
Já, það er mikill munur á því.
Maður er mun stöðugri í liggj-
andi stöðunni. Rifflarnir slá örlít-
ið en ekki svo mikið að menn
meiði sig á þeim.
- Er fólki óhætt að fara um
sýningarsvæðið?
Já, svæðið þar sem sýningin
stendur er mjög vel varið og eng-
in hætta á að fólk verði fyrir
Steinar Einarsson
►Steinar Einarsson fæddist 13.
janúar 1949. Hann lauk prófi
sem vélstjóri 1970 frá Vélskóla
Islands. Hann rak lengi fyrir-
tækið Kolsýruhlcðsluna, ásamt
föður sínum Einari Steinarssyni,
en seldi fyrirtækið 1998 og er
nú starfsmaður þar. Hann er
formaður Skotfélags Kópavogs
og var einn af stofnendum þess
árið 1988. Steinar er giftur
Gunnhildi Eymarsdóttur, starfs-
manni Osta- og smjörsölunnar,
og eiga þau tvö börn.
Haldin byssu-
námskeið á
haustin
skoti. Skotsvæðið er ekki tengt
sýningarsvæðinu en er samt til
hliðar og aftan við það. Þarna
verða menn á staðnum sem svara
spurningum áhugasamra sýning-
argesta og fræða þá um allt sem
tengist sýningarmunum og skot-
keppninni.
- Eru margir sem keppa?
Það hafa verið svona tíu til
fimmtán manns í hverri keppni
en ég legg áherslu á að það eru
allir velkomnir til keppni sem
eiga byssur frá þessum árum.
Allir þeir sem eiga svona byssur
eru búnir að ganga í gegnum
námskeið í meðferð þeirra og
hafa byssuleyfi.
- Er erfítt að fá byssuleyfí?
Nei það er auðvelt. Það eru
haldin námskeið á hverju hausti
á vegum lögreglunnar, dóms-
málaráðuneytisins og Skotveiði-
félags íslands. Þeir hafa haldið
sameiginleg námskeið í að
minnsta kosti 7 til 8 ár. Þar er
kennt allt um byssur; saga
þeirra, virkni og meðferð, auk
dýrafræðinnar fyrir veiðina,
landréttar, siðfræði og loks er
verkleg kennsla á útisvæði. Byss-
ur á Islandi eru annað hvort
keyptar inn sem veiðibyssur eða
íþróttabyssur.
- Hvað verður sýnt á stóru
sýningunni í haust á
Hótel íslandi?
Þetta verður stór
sýning þar sem sýnd-
ar verða veiðibyssur,
herbyssur og skamm-
byssur af ýmsum toga ásamt ým-
iss konar minjum, bæði úr hern-
aði og veiði. Hugsanlega verða
líka sýndar markbyssur fyrir
skotíþróttirnar. Það verður Hið
íslenska byssuvinafélaga sem
heldur sýninguna í félagi við veit-
ingastaðinn Hótel ísland. Þar
verður mikil uppskeruhátíð í
tengslum við sýninguna. Við vor-
um með svipaða sýningu í fyrra
sem tókst mjög vel og var vinsæl.