Morgunblaðið - 03.07.1999, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 03.07.1999, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999 13 AKUREYRI Samstarfssamningur þrigg;ja sveitarfélaga við utanverðan Eyjafjörð Frekara sam- starf mögulegt SVEITARFÉLÖGIN Dalvíkur- byggð, Hríscyjarhreppur og Ólafs- fjarðarbær hafa undirritað samning um samstarf á sviði sérfræðiþjónustu skóla, þjónustu við fatlaða og um efl- ingu heilsugæslu. Sveitarfélögin þijú hafa á undanfómum mánuðum unnið sameiginlega að undirbúningi að samþættingu skóla- og félagsþjón- ustu í kjölfar þeirrar ákvörðunar að Skólaþjónusta Eyþings var lögð nið- ur.. Samningurinn var undirritaður af bæjar- og sveitarstjórunum í blíð- viðri úti í Hrísey í gær. Sveitarfélögin skipuðu sameigin- legan starfshóp haustið 1998 sem hafði það verkefni að gera tillögur um hvemig skipuleggja skyldi þjón- ustu á sviði félags- og skólamála. St- arfshópurinn skilaði tillögum sínum í apríl síðastliðnum til sveitar- stjóma. Tillögumar vora síðan af- greiddar í maí og byrjun júní og til- nefndu sveitarfélögin fulltrúa í verkefnastjóm. Uppeldis- og forvarnastarf eflt Fyrsta skrefið í kjölfar undirbún- ingsvinnu var að_gera með sér sam- starfssamning. I samningnum er kveðið á um samstarfsform og markmið, helstu verkefni og fram- kvæmdaatriði auk kostnaðarskipt- ingar. Helstu markmið samningsins eru eftirfarandi: Að skipuleggja samstarf og sam- eiginleg verkefni skóla og stofnana sveitarfélaganna á sviði skólamála og félagsþjónustu og hafa forgöngu um skipulagt samstarf við heil- brigðisstofnanir. Að efla uppeldisstarf og forvarn- arstarf í byggðarlögunum með sam- hæfðum aðgerðum og samstarfi fagfólks og stuðningi við foreldrafé- lög. Að vinna að gerð rammasamn- ings og verkefnasamninga við Há- skólann á Akureyri. Að vinna að gerð samninga við önnur sveitarfélög og opinbera aðila varðandi aðgengi að sérhæfðum þjónustuúrræðum. I samningnum er kveðið á um ráðningu sameiginlegs verkefna- stjóra en sú staða mun verða aug- lýst á næstunni. Samningurinn tek- ur gildi frá og með 1. ágúst 1999. Að sögn fulltrúa sveitarfélaganna era menn bjartsýnir á að samstarfið hafi í för með sér heilsteyptari og skilvirkari þjónustu. Samstarfið geri það að verkum að sveitarfélög- in era betur í stakk búin til að veita betri þjónustu en mögulegt hefði verið án samstarfs. Betri og ódýrari þjónusta Asgeir Logi Asgeirsson, bæjar- stjóri í Ólafsfirði, sagði að sá mögu- Opnun bú- garðsins á Þórisstöðum Á ÞÓRISSTÖÐUM á Sval- barðsströnd verður í dag, laugardaginn 3. júlí, opnaður búgarður. Búgarður er nokk- urs konar samheiti yfir hús- dýra- og fjölskyldugarð í sveit, en auk hefðbundins kúabús er starfrækt veitingastofa á Þórisstöðum. Þá era flest ís- lensku húsdýrin í sínu nátt- úrulega umhverfi í skógar- lundi sem stendur í lækjargili milli íbúðarhúss og útihúsa, að því er fram kemur í fréttatil- kynningu frá búgarðinum. Gestum búgarðsins gefst kostur á að borða eigið nesti en einnig verða til sölu léttar veitingar virka daga og kaffi- veitingar um helgar. Veitinga- stofan er áföst fjósinu og það- an sést inn í fjósið og út í hús- dýragarðinn. Á mjaltatíma milli kl. 17 og 18 geta gestir fylgst með mjöltum úr veit- ingastofunni. Á Þórisstöðum búa hjónin Inga Árnadóttir og Stefán Tryggvason ásamt fjóram son- um sínum. Bærinn stendur við þjóðveg nr. 1 skammt norðan Svalbarðseyrar segir ennfrem- ur í fréttatilkynningunni. Búgarðurinn er opinn 13-18 alla daga út ágústmánuð og er aðgangseyrir 250 krónur fyrir fullorðna en 150 krónur fyrir böni og ellilífeyrisþega. Morgunblaðið/Ásdls FULLTRÚAR sveitarfélaganna við undirskrift samningsins í Hrísey í gær. leiki hefði verið fyrir hendi að kaupa þá þjónustu sem Eyþing hefði veitt en fljótlega hefðu vaknað hugmyndir um stofnun þess sam- starfs sem orðið er að veraleika nú. Hann sagði að þetta væri meira og stærra framtak en Eyþing hefði verið og hann taldi víst að ef sam- starfið gengi vel þá myndi þetta auka samgang á milli sveitarfélag- anna. „Ég hef trú á því að við getum vel unnið saman en hvað varðar frekara samstarf eða sameiningar- hugmyndir þá viljum við Ólafsfirð- ingar að Siglfirðingar verði með í þeim hugmyndum og horfum þá til bættra samgangna,“ sagði Ásgeir Logi. Rögnvaldur Skíði Friðbjömsson, bæjarstjóri Dalvíkurbyggðar, sagði að samstarfið skilaði rekstrarlega stærri einingu sem ódýrara væri að reka og hefði í fór með sér bætta þjónustu. Um nánara samstarf sagði Rögnvaldur að frekari sameining sveitarfélaga í Eyjafirði yrði líklega einhvem tímann í framtíðinni. „Kannski verður þetta samstarf til þess að menn treysta betur hver öðram og verði þá vísir að frekari sameiningu,“ sagði Rögnvaldur. Pétur Bolli Jóhannesson, sveitar- stjóri Hríseyjarhrepps, sagði að samstarfið hefði verið nauðsynlegt í kjölfar þess að skólaþjónusta Ey- þings hætti samstarfi. „Hvað varð- ar frekara samstarf þá vildi ég sjá að öll sveitarfélög í Éyjafirði, ásamt Siglufirði, sameinuðust og mynduðu sterkt atvinnusvæði og mótvægi við höfuðborgarsvæðið,“ sagði Pétur Bolli að lokum. Sumartónleikar í Akureyrarkirkju í sumar Fyrstu tónleikarnir af fímm um helgina Morgunblaðið/Skapti Hallgrimsson ÁRNI M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra var á ferð á Akureyri í gær. Hér er hann að kynna sér starfsemi títgerðarfélags Akureyringa. Frá vinstri Guðbrandur Sigurðsson framkvæmdastjóri, Ámi, Tómas Ingi Olrich alþingismaður og Ármann Ólafsson, aðstoðarmaður sjávarút- vegsráðherra. TÓNLEIKAR að sumri í Akureyr- arkirkju hafa verið árlegur viðburð- ur síðustu 12 ár og gengið undir nafninu Sumartónleikar á Norður- landi. Frá og með þessu sumri mun tónleikaröðin ganga undir nafninu Sumartónleikar í Akureyrarkirkju. Kristni í þúsund ár verður þema tón- leikanna að þessu sinni. Tónleikarnir verða haldnir fimm sunnudaga í röð frá júlíbyrjun til fyrsta sunnudags í ágústmánuði. Þeir standa yfir í klukkustund og er aðgangur ókeyp- is. Fyrstu tónleikarnir verða nú á sunnudag, 4. júlí, og hefjast kl. 17 en þar kemur fram tónlistarfólkið Marta Guðrún Halldórsdóttir sópransöngkona og Kári Þormar orgelleikari. A efnisskránni verða m.a. fimm Laust embætti prests BISKUP íslands hefur auglýst laust til umsóknar embætti prests í Akureyrarprestakalli sem veita á frá 1. september. Umsóknarfrestur er til 15. júlí næstkomanndi. Séra Svavar A. Jónsson hef- ur gegnt framangreindu emb- ætti frá því síðla árs 1995. Hann tekur við embætti sókn- arprests Akureyrarprestakalls af séra Birgi Snæbjömssyni en hann lætur af embætti 1. sept- ember vegna aldurs. Valnefnd velur prest sam- kvæmt starfsreglum um presta en biskup ákveður hvern hann skipar náist ekki samstaða í valnefnd. Biskup skipar í emb- ætti presta til fimm ára. Biblíusöngvar eftir Dvorák sem séra Magnús Guðmundsson prestur í Ólafsvík og Þórður Möller þýddu á íslensku, sálmar úr kvæðabók séra Ólafs Jónssonar á Söndum, kirkjulög við texta Hallgríms Péturssonar og útsetningar Jóns Leifs, Ablösung im Sommer eftir Mahler og einnig org- elverk eftir Pál Isólfsson og Widor. Marta Guðrún Halldórsdóttir sópran lauk einsöngvaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1988 og stundaði framhaldsnám við Tón- listarháskólann í Munchen um fimm ára skeið. Hún hefur haldið ein- söngstónleika og komið fram á tón- listarhátíðum víða. Kári Þormar lærði orgelleik hjá Herði Áskelssyni samhliða píanó- kennaranámi, hann lauk burtfarar- og píanókennaraprófi frá Tónlistar- skólanum í Reykjavík og lauk prófi í orgelleik Tónskóla Þjóðkirkjunnar 1993 og stundaði framhaldsnám í Þýskalandi. Þeir sem fram koma í tónleikaröð- inni í sumar era Christian-Markus Raiser orgelleikari frá Þýskalandi, Susan Landale orgelleikari frá Frakklandi, Tjarnarkvartettinn úr Svarfaðardal og á síðustu tónleikun- um í röðinni leika þeir Sigm-ður Flosason saxófónleikari og Gunnar Gunnarsson orgelleikari. --------------- Söguganga Minjasafnsins MINJASAFNIÐ á Akureyri stend- ur fyrir sögugöngu um Oddeyri sunnudaginn fjórða júlí. Lagt verður upp frá Gránufélagshúsunum, Strandgötu 49, kl. 14. Gera má ráð fyrir að gönguferðin taki um einn og hálfan tíma. Leiðsögumaður verður Guðrún Kristinsdóttir safnstjóri Minjasafnsins. Þátttaka í göngunni er ókeypis og era allir velkomnir segir í fréttatilkynningu frá Minja- safninu. Sjávar útvegsráð- herra heimsótti Akureyri ÁRNI M. Mathiesen sjávarút- vegsráðherra var á ferð á Akur- eyri í gærdag. Hann hitti for- svarsmenn verkalýðsfélagsins Einingar-Iðju og Sjómannafélags EyjaQarðar, kynnti sér starfsemi Útgerðarfélags Akureyringa og Samherja, heimsótti Háskólann á Akureyri, Hafrannsóknastofnun og Rannsóknastofnun fískiðnað- arins, Verðlagsstofú skiptaverðs og Útvegsmannafélag Norður- lands. „Þetta var ánægjuleg heim- sókn og mjög upplýsandi fyrir mig að heyra hljóðið í fólkinu hér fyrir norðan,“ sagði ráð- herra að lokinni heimsókn sinni. Hann sagðist hafa rætt við Qölda fólks á ýmsum sviðum, úr verkalýðshreyfingunni, sjó- menn, útgerðarmenn, fisk- vinnslufólk. „Þetta voru góð samtöl en sjónarmiðin auðvitað svolítið mismunandi. Það er mikilvægt að eiga samskipti beint við fólkið sem stendur í eldlínunni. Þessi heimsókn min til Akureyrar staðfesti það sem ég reyndar vissi fyrir að í bæn- um er rekin öflug útgerð og fiskvinnsla og hér er líka í tengslum við Háskólann á Akur- eyri sterkt rannsóknarumhverfi, sem er mjög mikilvægt," sagði Árni. Kirkjustarf AKUREYRARKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11 á morgun, þátttakendur á Sumartónleikum, Marta Halldórsdótt- ir og Kári Þormar, taka þátt í mess- unni. Sr. Bii-gir Snæbjömsson messar. Sumartónleikar kl. 17. á morgun. Morgunbæn í Akureyrarkirkju kl. 9 á þriðjudagsmorgun, 6. júlí. GLERÁRKIRKJA: Kvöldguðs- þjónusta kl. 21 annað kvöld. Hildur Tryggvadóttir syngur einsöng. HVÍTASUNNUKIRKJAN: Bænastund í dag, laugardag. „Sunnudagaskóli fjölskyldunnar", biblíukennsla fyrir alla aldurshópa kl. 11.30 á morgun. G. Theodór Birg- isson sér um kennsluna. Léttur há- degisverður á vægu verði á eftir. Vakningasamkoma kl. 20 um kvöld- ið. Mikill og líflegur söngur. Fyrir- bænaþjónusta. Barnapössun fyrir börn 6 ára og yngri. Alla morgna era bænastundir í kirkjunni kl. 6.30. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í dag, laugardag kl. 18 og á morgun, sunnudag, kl. 11 í kirkjunni við Eyr- arlandsveg 26. Aldrei fleiri lið á Pollamóti Þórs Leikið í sól og blíðu ÞÓRSVÖLLURINN iðaði af lífi og fjöri í sólskininu í gærdag, en þar fór fram í ellefta sinn svo- nefnt Pollamót. í því taka þátt knattspymumenn 30 ára og eldri. Jóhann Jónsson hjá Þór sagði að veðrið hefði leikið við þátttakendur, sól og blíða, en ör- lítil gola náði að Þórssvæðinu og kældi hina kappsömu fótbolta- menn dálítið. ,Á-ðstæður era eins og best verður á kosið,“ sagði Jóhann. Aldrei hafa jafnmörg lið tekið þátt í Pollamóti og nú en þau eru 65 talsins, þar af eitt frá Kína. Síðasta haust barst fyrir- spurn til félagsins um möguleika Kínverjanna á þátttöku i mótinu en nokkrir áhugasamir þarlend- ir fótboltamenn era á ferðalagi um Island um þessar mundir og vildu þeir fyrir alla muni nota tækifærið og leika á mótinu. „Þeir era liprir á vellinum, þeir era með svona meðalpolla- mótslið,“ sagði Jóhann um frammistöðu þeirra. Vel yfir eitt hundrað leikir eru spilaðir á Pollamótinu en úrslitaleikurinn fer fram um kl. 16 í dag, laugardag. Um kvöld- ið verður lokahóf í íþróttahöll-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.