Morgunblaðið - 03.07.1999, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Eignarhaldsfélagið Ker ehf. kaupir
stóran hlut í íshafi hf.
Aætlað að leysa Is-
haf upp á næstunni
EIGNARHALDSFELAGIÐ Ker
ehf., sem er í eigu Olíufélagsins hf.,
keypti nýlega upp mikinn hluta
bréfa í Hlutabréfasjóðnum íshafi
hf. með það fyrir augum að undir;
búa endalok á starfsemi sjóðsins. í
apríl síðastliðnum gerði Ker öllum
öðrum hluthöfum í íshafi kauptil-
boð þar sem þeim var boðið and-
virði bréfa sinna á genginu 1,21.
Að sögn Jóhanns Magnússonar,
framkvæmdastjóra Kers ehf., svör-
uðu um 127 hluthafar tilboðinu, af
rúmlega 200 hluthöfum. Hafa
hundrað hluthafar þegar selt Keri
ehf. bréf sín en Jóhann segist bú-
ast við að fleiri muni bætast við á
næstunni. Hann segir að þrátt fyr-
ir að kauptilboðið sé formlega
runnið út hafi Ker enn áhuga á að
kaupa bréf hluthafanna.
íshaf hf. var upphaflega í eigu
Hættir hjá
Burnham
HJÁLMAR Kjartansson hefur
hætt störfum sem einn fram-
kvæmdastjóra Bumham Internat-
ional á Islandi frá og með 30. júní
síðastliðnum, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu sem stjórn Bum-
ham Intemational hefur sent til
Verðbréfaþings íslands. Hjálmar
var áður annar tveggja fram-
kvæmdastjóra verðbréfafyrirtæks-
ins Handsals, forvera Bumham
Intemational, og hafði hann gegnt
þeirri stöðu frá því í nóvember síð-
astliðnum. Núverandi fram-
kvæmdastjórar Bumham Intemat-
ional á Islandi eru Guðmundur
Pálmason og Sigrún Eysteinsdóttir.
íslenskra sjávarafurða og var
stofnað sem áhættufjárfestinga-
sjóður í sjávarútvegi. Sjóðurinn á
hlut í fjölmörgum sjávarútvegsfyr-
irtækjum hér á landi en stærstu
hlutir sjóðsins í einstökum félögum
em í Vinnslustöðinni, Fiskiðjusam-
lagi Húsavíkur, Skagfirðingi, Snæ-
felli og Tanga. Olíufélagið hf.
keypti fyrst hlutabréf í sjóðnum á
árinu 1998 en íshaf var skráð á
Verðbréfaþing Islands árið áður.
„Markmiðið með því að kaupa
eldri hluthafa út var fyrst og
fremst það að gefa þeim einstak-
lingum sem keyptu sig inn í sjóðinn
á sínum tíma tækifæri á að selja
bréf sín á góðu verði. Við ráðgemm
síðan að lögð verði fram tillaga um
að sjóðurinn verði tekinn af skrá
Verðbréfaþings Islands og síðan
verður unnið að því á næstu miss-
emm að leysa upp þau verðmæti
sem í sjóðnum em og greiða þau út
tii eigenda," segir Jóhann.
Þeir hundrað aðilar sem seldu
Keri hlutabréf sín áttu bréf að
nafnvirði rúmlega 32,8 milljónir
króna en kaupverðið, miðað við
gengið 1,21, er um 39,7 milljónir.
Virkt hlutafé í íshafi hf. er alls
tæplega 572 milljónir króna.
Nú um mánaðamótin seldi Ker
ehf. eignarhaldsfélaginu Mastri
ehf. hlutafé í íshafi að nafnverði 82
milljónir króna á genginu 1,21 eða
fyrir um 99 milljónir króna, og á
Mastur nú 14% hlutafjár í sjóðn-
um. Olíufélagið hf. á hlut í Mastri
ehf. en sá hlutur er ekki ráðandi.
Jóhann segir að Mastur viiji með
kaupunum taka þátt í uppgjöri
sjóðsins en við söluna minnkaði
eignarhlutur Kers í sjóðnum úr
56,1% í 48%.
Segiagerðin Ægir ehf. kaupir Skeljungsbúðina
Liður í þróun á úti-
vistarvörumarkaði
SEGLAGERÐIN Ægir ehf. hefur
keypt rekstur og lager Skeljungs-
búðarinnar á Suðurlandsbraut 4 og
hefur þegar tekið við rekstrinum.
Verður hann óbreyttur fram í miðj-
an ágúst þegar Skeljungsbúðin
verður sameinuð útivistarverslun
Seglagerðarinnar, Everest í Skeif-
unni. Kaupverð er trúnaðarmál að
sögn Óla Þórs Barðdal hjá Segla-
gerðinni.
Færri og stærri
útivistarvöruverslanir
Að sögn Óla Þórs Barðdal era
kaupin liður í þeirri þróun á útivist-
armarkaðnum sem lýsir sér í færri
og stærri verslunum. „Þetta kemur
til með að styrkja okkar verslanir,"
segir Óli Þór. „Við fáum inn merki
eins og Britax-barnastóla og Prim-
us-gastæki og verðum aðalseljend-
ur þessara merkja á landinu. Þetta
styrkir verslunarrekstur Segla-
gerðarinnar með nýjum vömm og
nýjum viðskiptavinum."
Ekki mun koma til uppsagna
starfsfólks vegna kaupanna en
Seglagerðin rekur nú tvær útivist-
arvöraverslanir, í Örfirisey og
Skeifunni. „Markmiðið hjá okkur
er að bjóða upp á allt sem tengist
ferðalögum,“ segir Óli Þór.
Breytt starfsemi
beggja verslana
Skeljungsbúðin hét upphaflega
Brennarabúðin og veitti þjónustu
vegna katla og brennara þegar
olíukynding var algengari hér á
landi. Starfsemi Skeljungsbúðar-
innar hefur færst yfir á útivistar-
vöramarkaðinn á síðustu áram.
Hvar færðu
hollráð um
Margrét Guðmundsdóttir frá Skeljungi hf. og Óli Þór Barðdal frá Segla-
gerðinni Ægi ehf. innsigla kaup Seglagerðarinnar á Skeljungsbúðinni.
Seglagerðin Ægir ehf. var stofn-
uð árið 1913 og annaðist þá fyrst
og fremst seglagerð fyrir skip og
báta. Á síðari árum hefur fyrirtæk-
ið sérhæft sig í útivistar- og ferða-
Árangur fjármálastofnana við gengisspár Frávik frá raunverulegu gengi dollars Röð Fjármálastofnun gagnvart pundi, evru og jeni
1. Búnaðarbankinn, Reykjavík 0,48 % frávik
2. Hypovereinsbank, Munchen 0,64 % frávik
3. Bank of Montreal, Toronto 0,67 % frávik
4. Helaba, Frankfurt 0,67 % frávik
5. Banque Populaire, Par'is 0,84 % frávik
6. KBC, Bressel 0,88 % frávik
7. 4-Cast, London 0,88 % frávik
8. Pictet & Cie, Zurich 0,89 % frávik
9. Gandon Cap Mkts, Dublin 0,90 % frávik
10. Macquarie Bank, Sidney 0,93 % frávik
11. Banco Santander, Lissabon 0,94 % frávik
12. BCI, Mílanó 0,95 % frávik
13. Nord Landesbank, Hannover 0,96 % frávik
14. Credit Lyonnais, París 0,97 % frávik
15. Banca IMI, London 1,00 % frávik
16. Unicredito Italiano, Mílanó 1,04 % frávik
17. Dresdner Bank, Frankfurt 1,15 % frávik
18. Nomura Int., London 1,18 % frávik
19. Christiania Bank, Osló 1,21 % frávik
20. Lioyds TSB, London 1,21 % frávik
Búnaðarbankinn
rekstur og
stjórnun?
Deloitte &
svarið er Touche
ö
Deloitte & Touche hf. - öflugt alþjóðlegt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki á íslandi
Hlíöasmári 14 Sími 580 3000 - Ármúli 40 Sími 580 5500 - Lyngháls 9 Sími 580 5570
skákaði alþjoð-
legum bönkum
BÚNAÐARBANKI íslands hf.
spáði næst raunverulegu gengi
dollars í júnímánuði og skákaði þar
með 60 alþjóðlegum fjármálastofn-
unum, samkvæmt könnun sem
Eeuters-fréttastofan hefur gert.
Búnaðarbankinn gerði gengis-
spá í byrjun júní og var 0,48% frá
raunveralegu gengi dollarsins við
lokun kauphalla í London 30. júní
sl. í öðra sæti varð Hypovereins-
bank í Munchen sem var 0,64% frá
raunveralegu gengi og í því þriðja
hafnaði Bank of Montreal í
Toronto, 0,67% frá raunveralegu
gengi.
Góður árangur virkari
markaði að þakka
Að sögn Árna Maríassonar,
gjaldeyrismiðlara hjá Búnaðar-
bankanum, hefur þessi árangur í
för með sér góða kynningu á bank-
anum á alþjóðlegum mörkuðum.
„Markaðurinn hér heima er að
dýpka og eflast og rannsóknir að
aukast og Island er því að komast á
kortið á alþjóðamarkaði.“
Árni segir Gjaldeyrissvið Búnað-
arbankans hafa stækkað og góður
árangur í könnuninni fylgt í kjöl-
farið á aukinni þátttöku á mark-
aðnum. „Þetta sýnir að það er ým-
islegt hægt, stórar erlendar fjár-
málastofnanir era að sjálfsögðu
mun öflugri en þær íslensku en
virkari markaður hér heima hefur
gert þær samkeppnishæfari," segir
Árni.
Búnaðarbankinn spáði í byrjun
júní að dollarinn myndi í lok mán-
aðarins enda í 1,5958 gagnvart
sterlingspundi, 1,0348 gagnvart
evrunni og 121,37 gagnvart jeni.
Raunverulegar tölur voru 1,5770,
1,0352 og 121,1 í sömu röð.