Morgunblaðið - 03.07.1999, Side 22
22 LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Leeson
látinn
laus
NICK Leeson, maðurinn sem
gerði Barings-banka, elzta við-
skiptabanka Bretlands, gjaldþrota,
verður í dag lát-
inn laus úr fang-
elsi í Singapore.
Leeson hlýtur
nú frelsi þremur
og hálfu ári áður
en hann hafði
setið af sér þann
sex og hálfs árs
fangelsisdóm
sem hann hlaut í
Leeson desember 1995
fyrir fjársvika-
og blekkingarstarfsemi sem hann
hafði gripið til í því skyni að reyna
að fela hve gífurlegum upphæðum
hann hefði tapað í afleiðsluviðskipt-
um sem hann gerði í nafni Barings-
banka í Singapore. Bankinn sat
uppi með 1,4 milljarða sterl-
ingspunda, um 165 milljarða króna,
í skuldir vegna þessara viðskipta,
og þær reyndust ríða bankanum að
fullu.
Síðustu daga hafa fjölmiðlar í
Bretlandi verið uppfullir af vanga-
veltum um að Leeson, sem er 32
ára, eigi sér falinn sjóð sem hann
geti nú gengið í og lifað góðu lífi
eftir allt saman. Lögmenn hans
vörðust frásögnum af þessu tagi
með oddi og egg. „Enginn sem
þekkir í raun til þessa máls trúir
því í alvöru að einhvers staðar séu
faldir peningar sem okkur hafi
ekki tekizt að rekja,“ tjáði lögmað-
urinn Stephen Pollard Reuters.
Slíkar sögusagnir væru runnar
undan rifjum æsifréttablaða-
manna. Sagði Pollard Leeson hafa
„elzt verulega" í fangelsisvistinni
og 30% líkur væru á því að hann
létist úr ristilkrabbameini innan
þriggja ára.
Bar nokkur í Singapore, þangað
sem Leeson er sagður hafa vanið
komur sínar á árum áður, bauð í
gær upp á ókeypis bjór í tilefni af
því að Leeson ætti að endurheimta
frelsi sitt.
Skæruliðar Kúrda herða
árásir sínar í Tyrklandi
Diyarbakir. Reuters.
KÚRDÍSKIR skæruliðar hafa hert
árásir sínar í Tyrklandi til að hefna
dauðadómsins yfir leiðtoga sínum,
Abdullah Öcalan, að sögn tyrk-
neskra embættismanna í gær.
Skæruliðarnir skutu fjóra menn
tii bana á kaffihúsi í bænum Elazig
í austurhluta landsins í fyrrakvöld.
Þetta var fyrsta árás Kúrda á
óbreytta borgara í Tyrklandi frá
því Öcalan var dæmdur tii heng-
ingar á þriðjudag fyrir að stjórna
uppreisn kúrdískra aðskilnaðar-
sinna sem hefur kostað 29.000
manns lífið á tæpum fimmtán ár-
um.
Uppreisnarmennimir skutu
einnig á lögreglumenn sem voru á
verði við vændishús í borginni Van í
austurhluta landsins í fyrrinótt.
Einn lögreglumaður beið bana og
annar særðist. Þá særðust þrír
menn lítilsháttar í sprengjuárás á
kaffihús í Istanbúl og lögreglan
handtók tíu menn sem eru grunaðir
um að hafa undirbúið sprengjutil-
ræði í borginni.
Tveir uppreisnarmenn hófu skot-
hríð með sjálfvirkum byssum í
kaffihúsinu í Elazig og urðu fjórum
karlmönnum að bana og særðu
fimm. Lögreglumenn skutu annan
árásarmannanna til bana á staðnum
en hinn faldi sig í nágrenninu. Hann
var einnig drepinn þegar hann
fannst.
„Þeir verða allir að gefa sig fram
og gefast upp, annars fer þannig
fyrir þeim,“ sagði Lutfullah Bilgin,
héraðsstjóri í Elazig.
Um 5.000 manns gengu um götur
Elazig í gær til að mótmæla
árásinni og krefjast þess að Öcalan
yrði hengdur.
Glundroði í röðum
uppreisnarmannanna
Hreyfing Öcalans, Verkamanna-
flokkur Kúrdistans (PKK), hótaði
að hefja nýja hrinu árása, aðallega á
efnahagslega mikilvæg skotmörk,
eftir að dauðadómurinn var kveðinn
upp.
Reuters
LÍKKISTA eins þeirra Tyrkja er létust í árás á kaffihús í bænum Elazig í austurhluta Tyrklands á
fimmtudag, var borin til grafar í gær.
Stjómvöld í Tyrklandi segja hins
vegar að hemaðaraðgerðir þeirra
gegn uppreisnarmönnum hafi dreg-
ið mjög úr getu þeirra til að halda
uppi skæruhemaði. Handtaka Öcal-
ans í Kenýa í febrúar hafi ennfrem-
ur valdið glundroða í röðum stuðn-
ingsmanna hans.
Uppreisnarmennimir hafa einnig
gert flugskeytaárásir og barist við
tyrkneska hermenn í fjallahéruðum
Kúrda í suðausturhluta landsins.
Síðustu tvo daga hafa hermennimir
fellt 22 uppreisnarmenn í átökunum
og þrír hermenn hafa beðið bana.
Embættismaður á skrifstofu hér-
aðsstjórans í Diyarbakir sagði að
átján uppreisnarmenn hefðu fallið í
átökum á fjöllum í Hakkari-héraði,
við landamærin að írak. Einnig
hefði verið barist í hémðunum Bat-
man, Bingol og Simak.
Þrýstingurinn gæti haft
þveröfug áhrif
Uppreisnarmenn felldu einnig
tvo hermenn í árás úr launsátri á
lest herbfla í Bingol í fyrrakvöld.
Tveir uppreisnarmenn biðu einnig
bana.
Mörg erlend rflá hafa skorað á
Tyrki að fullnægja ekki dauða-
dómnum yfir Öcalan en Bulent
Ecevit, forsætisráðherra Tyrk-
lands, sagði í gær að þær áskoranir
gætu haft þveröfug áhrif.
Tyrkneskur áfrýjunardómstóll á
nú eftir að fjalla um mál Öealans og
staðfesti hann dauðadóminn þarf
þing landsins að samþykkja sérstök
lög til að heimila aftökuna. Lög-
fræðingar Kúrdaleiðtogans segjast
einnig ætla að skjóta málinu til
Mannréttindadómstóls Evrópu í
Strassborg.
AP
ROGER Bonnet, yfirmaður Geimferðastofnunar Evrópu (ESA), heldur hér á
líkani af Rosetta geimfarinu sem er ætlað að ienda á halastjörnunni Wirtanen.
Ætla að lenda
á halastjörnu
Lundúnum. The Daily Telegraph.
ÁÆTLIJN ura að lenda geimfari á
haiastjörnu var afhjiipuð af evr-
ópskum vísindamönnum í Lundún-
um á fimmtudag. Áætlunin gerir
ráð fyrir að geimfarið, sem bera
mun nafnið Rosetta, muni fljúga
um himingeiminn í átta ár uns það
er handan reikistjömunnar Júpíter.
Þar verður geimfarinu beint að
halastjörnunni Wirtanen og verða
rannsóknir á henni gerðar úr íjar-
lægð í næstu tvö ár þar á eftir.
Dr. Gerhard Schwem, yfirmaður
Rosetta-verkefnisins, sagði á blaða-
mannafundi í Lundúnum að megin-
tilgangur verkefnisins sé að rann-
saka uppmna sólkerfisins og mótun
þess. „Meginspumingin er hvaða
hlutverki halastjöniumar gegndu
við þróun lífs,“ sagði Schwem.
Evrópska geimrannsóknastofn-
unin (ESA), sem stendur að baki
verkefninu, hefur lýst því yfir að af
geimskotinu verði ekki síðar en í
janúar árið 2003 og sagði Roger
Bonnet, yfirmaður ESA, að Evr-
ópuríki muni geta orðið fyrst til að
standa að lendingu geimfars á hala-
stjömu. „Við munum grípa tæki-
færið,“ sagði Bonnet.
Stjórnvöld í Pakistan hvelja til viðræðna um Kasmír-deiluna
Vilja fyrirbyggja
allsheijarstríð
íslamabad, Nýju Delhí. Reuters.
STJÓRNVÖLD í Pakistan vöruðu
Indverja við því að gera árásir yfir
markalínuna, sem skiptir Kasmír, og
sögðu að slíkar hemaðaraðgerðir
myndu hafa „alvarlegar afleiðingar“.
Þau áréttuðu ennfremur áskorun um
að efnt yrði til viðræðna í því skyni
að koma í veg fyrir að nýtt allsheij-
arstríð blossaði upp milli landanna
tveggja, sem hafa tvisvar sinnum
háð stríð vegna deilunnar um Ka-
smír frá því þau fengu sjálfstæði fyr-
ir rúmum 50 árum.
Nawaz Sharif, forsætisráðherra
Pakistans, boðaði til fundar í vamar-
málanefnd stjórnarinnar, sem er
skipuð æðstu ráðherrunum og yfir-
mönnum hersins. Nefndin sagði her
Pakistans undir það búinn að svara
hvers kyns árásum Indverja af fuliri
hörku. Pakistanar vildu ekki stríð en
væru fullfærir um að verja „hvem
þumlung af pakistönsku landssvæði"
ef Indveijar réðust yfir markalínuna
í Kasmír.
„Nefndin lét í Ijós þá von að Ind-
verjar átti sig á alvarlegum afleið-
ingum víðtækari hemaðaraðgerða
og forðist þessa hættulegu braut í
þágu friðar og stöðugleika á svæð-
inu,“ sagði í yfirlýsingu sem gefin
var út eftir fundinn.
Nefndin áréttaði ennfremur þá af-
stöðu pakistönsku stjórnarinnar að
leysa þyrfti „öll deilumál ríkjanna,
meðal annars deiluna um Kasmír,
með samningaviðræðum í anda La-
hore-yfirlýsingarinnar“. Sharif og
Atal Behari Vajpayee, forsætisráð-
herra Indlands, undirrituðu yfirlýs-
inguna í pakistönsku borginni La-
hore í febrúar og lofuðu þar að reyna
af fremsta megni að leysa deilurnar
og gera ráðstafanir til að tryggja að
kjamorkustríð blossaði ekki upp
milli ríkjanna.
Indverjar hafa útilokað viðræður
við Pakistana nema þeir skipi ís-
lömskum skæmliðum, sem hafa ráð-
ist inn á indverska yfirráðasvæðið í
Kasmír, að fara þaðan. Pakistanar
hafa neitað ásökunum Indverja um
að pakistanskir hermenn hafi tekið
þátt í árásinni og segjast ekki geta
sagt skæmliðunum fyrir verkum.
Friðaráætlun sögð í vændum
The News, fréttablað sem er gefið
út á ensku í Pakistan, skýrði frá því í
gær að friðaráætlun, sem miðaði að
því að afstýra nýju stríði milli ríkj-
anna, kynni að verða gerð opinber
innan þriggja daga. Blaðið hafði eftir
„áreiðanlegum heimildum“ í New
York að verið væri að vinna að „for-
múlu sem bæði ríkin gætu sætt sig
við“. Blaðið lýsti henni ekki frekar
en sagði hana „góð tíðindi" fyrir alla
Indverja og Pakistana.
Áður hafði verið greint frá því að
Niaz Naik, fyrrverandi utanríkis-
ráðherra Pakistans, hefði átt leyni-
legan fund með indverska forsætis-
ráðherranum í Nýju Delhí um síð-
ustu helgi. The News sagði að
ákveðið hefði verið á fundinum að
Sharif myndi hafa samband við Va-
jpayee „til að efla friðarumleitanirn-
ar í Suður-Asíu“, að Naik héldi við-
ræðunum áfram og að yfirmenn
herja landanna kæmu saman til að
draga úr spennunni við landamær-
in.
Stjórnvöld í Pakistan og á Ind-
landi staðfestu ekki þessa frétt.
„Þetta er ekki í samræmi við neitt
af því sem við höfum heyrt. Ég trúi
þessu þegar ég hef séð það gerast,“
sagði vestrænn stjórnarerindreki í
Nýju Delhí.