Morgunblaðið - 03.07.1999, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999 41
UMRÆÐAN
Endurmenntunar-
stofnun Háskóla
A
Islands
SAMFÉLAGBÐ breyt-
ist ört. Mörgum verður
æ ljósara að menntun
er lík efnisgæðum að
einu leyti. Viðhaldi
hennar verður að
sinna. Annars rýma
gæðin. Gildi menntun-
ar fellur í verði ef svo
má að orði komast. Við
þessu verðfalli eða
gengisfalli er til gott
ráð. Það er að stunda
endurmenntun eða sí-
menntun öllu heldur.
Orðið símenntun
heyrði undirritaður í
íyrsta sinn íyrir tveim-
ur áratugum hjá Páli
Hallgrímssyni, þáverandi sýslu-
manni í Árnessýslu. Taldi Páll það
hæfa betur viðhaldi menntunar.
Endurhæfing hafði þá pólitíska
merkingu sem hvarf við lok kalda
stríðsins.
Nú er svo komið að hver maður
verður að halda við menntun sinni.
Til þess eru margar leiðir. Sjálfs-
nám, sem margir hafa stundað,
jafnvel án þess að hafa formlega
menntun, er ein. Hún hefur reynzt
íslenzkri þjóð vel um aldir. Á tím-
um örra breytinga bæði í tækni og
einnig viðhorfum er nauðsyn form-
legrar endurmenntunar og sí-
menntunar augljósari en fyrr.
Margir hafa boðið ýmsa kosti, bæði
einkaaðilar og opinberir. Stundum
hefur verið samstarf. Engin ein
lausn er algild. Boðin hafa verið
styttri námskeið og lengra nám.
Hvort tveggja er gagnlegt. Háskóli
íslands hefur greint þörf fyrir
styttra nám á háskólastigi og
hrundið því úr vör nú við upphaf
nýs skólaárs.
Mikilvægi akademískrar mennt-
unar á eftir að aukast vilji Islend-
ingar standa í fremstu röð í heim-
inum. Hún verður tryggð með því
að gæta upphafsins. Grunnskóla
verður að efla. Það er önnur saga.
Endurmenntunarstofnun Há-
skóla íslands hefur boðið styttri
námskeið og lengra nám með
starfi. Ber þar hæst rekstrar- og
viðskiptafræðinám, sem notið hef-
ur mikilla vinsælda. í upphafi árs
1998 hófst þriggja anna, 300
kennslustunda nám við EHI í sam-
vinnu við Samband íslenzkra sveit-
arfélaga og fjármálaráðuneytið.
Opinber stjórnsýsla og stjórnun
heitir það. Skipulag var þannig að
fólk utan af landi ætti kost að
stunda það. Á þriggja vikna fresti
mættu nemendur með ólíkan bak-
grunn, karlar og konur, til skóla
þrjá daga í senn. í upphafi voru
þeir 41 en fækkaði er
á leið.
Bezta
vekjaraklukkan
Það var einstakt
tækifæri að fá að taka
þátt í að ýta úr vör.
Við sem námum náð-
um ótrúlega vel sam-
an. Það eitt að nem-
endur frá tæplega þrí-
tugu til sextugs voru
svo áhugasamir að
læra smitaði hópinn af
einstakri námsgleði.
Smám saman jókst
sjálfstraust einstak-
linga hópsins. Kennarar komu úr
ýmsum áttum, eins og nemendur,
bæði af akademísku sviði og beint
úr reynsluheimi stjómsýslunnar.
Nemendur gátu miðlað hver öðrum
Símenntun
Nú er svo komið, segir
Ólafur Helgi Kjartans-
son, að hver maður
verður að halda við
menntun sinni.
því til viðbótar og kannski víkkað
svið kennaranna þegar vel tókst til.
Öllum námsgreinum lauk annað-
hvort með prófi eða verkefnum,
ýmist einstaklings eða hópa.
Að líta til baka er að sjá veizlu
fyrir áhugasama um stjórnsýslu,
sem hefur ekki verið kennd sér-
staklega svo neinu nemi hérlendis.
Afburðakennarar og frábært
starfsfólk EHÍ setja mark sitt á
þessa miklu vinnu nemenda. Að
hafa tekið þátt í þessu námi er að
hafa eignazt beztu vekjaraklukk-
una á síðustu árum. Augu okkar
opnuðust fyrir mörgu fræðilegu og
nýtilegu sem mun setja mark sitt á
störf okkar framvegis. Og áhugi
sumra vaknaði til frekara náms á
þessu sviði. Við útskrift 122 nem-
enda EHÍ af fjórum brautum hinn
19. júní síðastliðinn mátti sjá
marga, sem glöddust með réttu af
árangri erfiðis síns. Þar uppskáru
margir. Undirrituðum þótti vænt
um að sjá í hópnum þrjá fyrrum
starfsmenn sína. Þeir sem hugleiða
endurmenntun ættu hiklaust að
kynna sér þau glæsilegu tækifæri,
sem EHÍ veitir. Þau svíkja ekki.
Höfundur cr sýslumaður á ísafirði
og nemandi EHÍ.
Ólafur Helgi
Kjartansson
alla aðra dam
kl. 10:00.
Nánari upplýsingar
og bókanir í fastar feröir:
Upplýsingamiðstöð
Hafnarfjarðar
Hí 565 0661
Húni il - Hafnarfjörður
Sími 894-1388.
Einnig serferóir fynr hopa.
á sunnudögum
kl. 14:00.
Veður og færð á Netinu ^mbl.is
ALLTA/= eiTTHVAÐ NÝTl
Ný öryggismálastefna
og áhrif „lítilla“ ríkja
ÁKVARÐANIR leið-
togafúndarins í Köln
gáfu Evrópusamband-
inu nýja vídd og mörk-
uðu tímamót í samstarfi
Evrópuríkjaý utanríkis-
málum. Átökin á
Balkanskaga hafa sýnt
að Evrópa er enn háð
Bandaríkjunum í örygg-
is- og vamarmálum og
undirstrikað mikilvægi
þess að Evrópa hafi
skipulag og herafla til að
takast á við átök og
knýja fram frið. Utnefn-
ing Javier Solana í hið
nýja embætti talsmanns
Evrópusambandsins í
utanríkismálum er til
þess fallin að styrkja trú á því að
ESB-ríkin geti talað einum rómi og
nú verður þegar hafist handa við að
setja á fót stofnanir og starfshópa
sem hafa umboð og getu til að stilla
saman strengi aðildarríkjanna.
Ástæða er til að gefa sérstakan gaum
hlutverki Martti Ahtisaari Finnlands-
forseta í tilraunum til að finna frið-
samlega lausn í Kosovo. Ahtisaari er
forseti í einu af smærri aðildarríkjum
ESB og honum tókst, ásamt Viktor
Chemomyrdin, að fá Serba til að
ræða og samþykkja frið-
artillögur sem tryggja
öryggi Albana í Kosovo.
Ég hef tekið eftir því í
íslenskri umræðu að því
hefur verið haldið fram
að lítil ríki missi áhrif og
frelsi í utanríkismálum
gangi þau til liðs við
ESB. Finnland er gott
dæmi um hið gagn-
stæða. Aðildarríki ESB
njóta þess að eiga vísan
stuðning allra sam-
starfsríkjanna, að eiga
vettvang til að leysa úr
mismunandi hagsmun-
um á uppbyggilegan
hátt og halda á sama
tíma sérstöðu sinni.
Þannig hafa Finnar til að mynda við-
haldið og ræktað sérstakt samband
sitt við Rússland og notið trausts hjá
Serbum. Þótt Ahtisaari undirstriki að
hann sé fulltrúi Evrópusambandsins
og gangi að vissu marki erinda
NATO þá líta Rússar á hann sem allt
að því hlutlausan sáttasemjara.
Finnland tekur við formennsku í
Evrópusambandinu 1. júlí nk. Eitt
mikilvægasta verkefni finnska for-
sætisins verður að leiða vinnuna við
skipulagningu samvinnu aðildarríkj-
ESB
Aðildarríki ESB, segir
John Maddison, njóta
þess að eiga vísan
stuðning allra sam-
starfsríkj anna.
anna í öryggis- og vamarmálum.
Finnland fær einnig það verkefni að
undirbúa næstu ríkjaráðstefnu og
mun því gegna lykilhlutverki í undir-
búningi breytinga á stofnunum og
skipulagi Evrópusambandsins i
tengslum við stækkun þess. Enn-
fremur getur Finnland í krafti for-
sætisins lagt áherslu á norðlæga vídd
ESB, en það var einmitt Finnland
sem átti frumkvæði að vinnu fram-
kvæmdastjómarinnar og ráðherra-
ráðsins á því sviði.
Aukin samvinna í öryggis- og varn-
armálum innan ESB dregur ekki úr
áhrifum „lítilla ríkja“ heldur þvert á
móti eykur þau. ^
Höfundur er sendiherra ESB með
aðsetur i Ósió.
John
Maddison
ISLEIVSKT MAL
ÓSKAR Þór Kristinsson (Sail-
or) spyr mig gjarna þungra
spurninga sem ég get ekki svar-
að hjálparlaust. Nú er vandamál-
ið hvers vegna sagt sé reimt ,
þegar og þar sem draugagangur
er. Ásgeir Blöndal Magnússon á
reyndar í vandræðum með þetta,
og er sem jafnan, að orð verða
því fleiri sem örugg vissa er
minni. En hann skýrir þetta þó
af miklum lærdómi og linnir ekki
fyrr en hann er kominn út í
fomslavnesku, og má umsjónar-
maður þá hafa sig allan við að
fylgjast með.
Reimt gæti hvort heldur sem
er verið lýsingarháttur þátíðar í
hvorugkyni af sögn sem þá hefði
heitið að reima, eða verið lýsing-
arorð og sögnin svo dregin af
því. [Áður en lengra er haldið,
þykir rétt að skjóta hér inn að
krakkar segja nú stundum
„reimt“, en ekki reimað, um
skóna sína]. Sennilegast virðist
að reimt tákni upphaflega eitt-
hvað sem líður áfram eða reikar
um. Á ensku merkir roam
einmitt þvílíka umreikun, og
íjölda skyldra orða í öðmm mál-
um tilfærir Ásgeir Blöndal.
Þá er þess að geta að reimir
er ormur, og reimt getur líka
merkt grýtt slægjuland, hvernig
sem það er hugsað.
Ég minntist rétt áðan á að
reima skó. Sú sögn virðist af
sömu rót og reimt. Hún hefur
lengi beygst eftir fyrsta flokki
veikra sagna: reima - reimaði -
reimað, en sem fyrr sagði, taka
nú börn að færa hana yfir í
þriðja flokk og beygja reima -
reimdi - reimt. Ekki virðist mér
mikill skaði að því.
Reimast merkir að vera reimt,
og ástandið kallast reimleikar.
Þá er til reimuður um vofur af
stærri gerðinni, og ber þetta allt
að einum brunni, að reimt sé,
þegar um reika óhreinar verur.
Þess skal geta að mannsnafnið
Reimar er af allt öðrum upp-
runa, annaðhvort orðið til úr
*Reginmar = sterkur og ágætur
eða Hreiðmar = stórfrægur.
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
1012. þáttur
★
Þjóðólfur þaðan kvað:
Það tekur sinn tíma, að ég held,
að troðjúgra kýr verði geld,
enOddbjörgáVaði
varð með eldingarhraði
sinni uppþomun ofurseld.
★
„Ég veit þú ert komin, vorsól.
Vertu ekki fela þig.
Gægstu nú inn um gluggann.
I guðs bænum kysstu mig.“
Þannig orti 24 ára stúdent um
síðustu aldamót, þegar hann lá
banaleguna. Hann bað ekki sól-
ina að „kíkja“ inn til sín. Forynj-
ur og tröll áttu til að gægjast um
gáttir, en það var ekki „kíkt“, og
Magnús Éiríksson hafði smekk
til að láta „Möggu í bragga“
gægjast út um gluggann. Þar að
auki gætum við Iitið á, horft á,
hugað að og sitthvað fleira. Um-
sjónarmaður skilur ekki allar
þessar „kíkingar“.
★
Hermann Þorsteinsson spyr
um kynni í húsakynni og dol í
dolfallinn. Kynni er samstofna
sögnunum kunna, kenna, kanna
og kynna. Ætli húsakynni hafi
ekki upphaflega merkt aðseturs-
staði. Á þeim kunnu menn skil
og hafa, þegar best lét, kunnað
þar vel við sig.
Dol er hangs eða droll eða
ræfilsháttur, skylt dul og dvali.
Dola merkir að slóra. Dolfallinn
maður er agndofa eða steinhissa,
og það svo að minnstu munar að
falli í dvala. Aftur á móti var
Stefán Sigurðsson (frá Hvítadal)
fallinn í döf, áður en „kóngsdótt-
ir“ kom og kyssti hann heitt.
Hermann Þorsteinsson berst
enn hetjulegri baráttu fyrir hinu
góða orði þökk. Sú barátta er
virðingarverð, enda mun enginn
vilja týna því orði, þótt við segj-
um mörg „takk“ hversdagslega.
Hermanni finnst þökk hafa betri
hljóm en takk, t.d. þökk fyrir
þáttinn. Þarna hjálpa stuðlamir
til. Ályktunarorð Hermanns í
bréfslok eru þessi: „Árin mín
mörgu með Dönum hafa líklega
gert mig næmari fyrir þessum
mikla mun.“
★
„Hann losar um ljóðformið, og
funi heitra tilfinninga, sem minn-
ir á suðræna lífsglóð, fær frjáls-
legri og hispurslausari túlkun en
menn áttu að venjast. Ljóðið
verður skynrænt, þrungið lífs-
þorsta og lífsnautn, gagntekið
fögnuði þess að vera til, svo að
sumum kann að hafa þótt nóg
um. En annar strengur ómaði
með, strengur gamalla stefja og
viðlaga, oft með tregablöndnum
seim. Þrá aldanna vakti ekki síð-
ur í ljóði skáldsins en lífsþorsti
stundarinnar. Hér vann Davíð
það afrek að sameina nýtt og
gamalt, bæði í formi og anda, og
varðveita þannig það órofa sam-
hengi, sem verið hefir líftaug fs-
lenskrar menningar. Davíð hefir
sagt um íslensku þjóðina:
„Hennar líf er eilíft kraftaverk.“
Hér var það hann, sem óf einn
þráðinn í hinu eilífa kraftaverki.“
(Þórarinn Björnsson um Davíð
Stefánsson frá Fagraskógi).
★
Upp á (jall þeir einninn gá,
yfir falleg löndin sjá;
heiminn allan horfðu á,
hressirkallarvoruþá.
(Tryggvi Magnússon: Ur Kímum af Jesú
Kristi og sveinum hans; hagkveðlingahátt-
ur).
Auk þess henti Ólafur Krist-
jánsson á Akureyri frá sér blað-
inu Degi, þegar hann las þar í
forystugrein orðin: „í þar síðustu
ríkisstjórn." En Arnar Páll
Hauksson fær stig fyrir að segja
„renna sér“ í sambandi við
skautahöllina nýju á Akureyri.
Salómon sunnan sendir:
★
Aumingja Olgeir Skrámur
var einsog ruslagámur.
Betri var áður,
bræt og allsgáður,
herra hundurinn Sámur.
/ -
f*