Morgunblaðið - 03.07.1999, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999 4P
MINNINGAR
FRÉTTIR
lá aldrei illa á honum. Hann sá
alltaf jákvæðu hliðarnar á öllum
málum. Hann var einnig ávallt fús
að fara nýjar leiðir. Við Oli stofnuð-
um félagið Flóka á Brjánslæk árið
1979 ásamt Guðmundi tengdaföður
mínum frá Þaralátursflrði,
Tryggva mági mínum, Ragnari
Guðmundssyni frá Brjánslæk og
Gísla Magnússyni frá Langabotni í
Geirþjófsfirði. Rákum við fyrirtæk-
ið saman til ársins 1992. Þar var
lengst af unnið hrefnukjöt til út-
flutnings ásamt hörpudisk og
rækju. Óli var framkvæmdastjóri
og var mjög vel látinn af sínum
samstarfsmönnum. Góður spila-
maður var Óli og vann nær undan-
tekningarlaust. Var sem hann sæi í
gegnum spilin. Aldrei skammaði
hann þó meðspilara sína þótt þeir
gerðu augljósar vitleysur. Oft var
spilað á heimili Óla og Sellu, mikið
hlegið og oft var líka sungið á góð-
um kvöldum. Sérstaklega man ég
eftir samsöng okkar Sellu þegar
við sungum saman Helgu Jarls-
dóttur í Hvalfírði. LOja í Holti var
hinsvegar uppáhaldslag Óla og
söng hann stundum einsöng á sér-
stökum stundum við góðar undir-
tektir.
Óli hafði gaman af prakkara-
strikum og eitt sinn sagði hann mér
frá karli sem var kokkur hjá honum
á Gylfa. Karlinum þótti gott í
staupinu og var hann hálffullur á
daginn. Vai- gerð mikil leit að víni
um allt skip. Ekkert fannst, sem
von var, því hann hafði falið vínið
undir dýnunni hjá Óla.
Þegar Óli og Sella bjuggu á
Birkimel var oft gestkvæmt. Þar
komum við feðgarnir oft og vorum
ávallt velkomnir. Gilti þar einu
hvort við komum í mat eða kaffi.
Fyrir það viljum við færa bestu
þakkir. Ég heimsótti vin minn
nokkrum dögum áður en hann lést
og fannst mér hann ekki samur
maður. Lífsgeislinn var að fjara út
eftir hetjulega baráttu við illvígan
sjúkdóm sem eftir á að hyggja hef-
ur verið farinn að gera vart við sig
dagar sem Helga hafði á hreinu og
sendi mörgum börnum pakka; mik-
ið var unnið af henni, prjónað eða
saumað út. Helga hélt heimili með
syni sínum Karli og verður að telja
einstakt hvernig hún hugsaði um
heimilið; hún bakaði, eldaði og í
samvinnu sáu þau um þrif fram að
þeim tíma sem hún slasaðist heima
og varð að fara á sjúkrahús núna í
maí á þessu ári.
Elsku Helga, það kemur enginn í
þinn stað, það er ekki bara okkar
skoðun, heldur vissa, því langar
okkur að þakka þér allt og allt. Alla
tryggðina gegnum árin, símtölin
sem voru að heita daglega og alltaf
ef þú vissir að eitthvað var að, þá
sagðir þú eitthvað sem létti lund og
gaf okkur von, alltaf leið okkur bet-
ur eftir að hafa heyrt í þér. Helga
gat komið heim til sín daginn sem
hún varð 95 ára og gaf það henni
mikið og var hún þakklát bömum
sínum og fjölskyldum þeirra íyrir
það eins og annað.
Elsku Helga, það verður erfitt að
hugsa sér tímann framundan, að
koma ekki til með að heyra rödd
þína og sjá þig, en þó ber okkur að
þakka það að þú þurftir ekki að
þjást meira og við erum viss um að
nú líður þér vel.
Ég þakka allt frá okkar fyrstu kynnum,
það yrði margt, ef telja skyldi það,
í lífsins bók það lifir samt í minnum,
er letrað skýrt á eitthvert hennar blað.
Ég fann í þínu heita stóra hjarta,
þá helgu tryggð og vináttunar ljós,
er gerir jafnvel dimma daga bjarta,
úr dufti lætur spretta lífsins rós.
(Margr. Jónsd.)
Elsku Kalli, Sæli og Anna Matta,
tengdaböm, bamaböm og allir
þeir sem tengdust Helgu, ykkur
sendum við okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur og þökkum fyrir að
hafa fengið að eiga ykkur að vin-
um. Guð blessi minningu Helgu
Káradóttur.
Aðalheiður og Elín Sig.
fyrir löngu. Það var bara ekki hátt-
ur Óla að vera að væla út af því sem
honum þótti vera smámunir.
Ég vil með þessum fátæklegu
orðum kveðja þennan vin minn og
félaga. Hafðu þökk fyrir allt. Um
leið færi ég afkomendum hans, öðr-
um ættingjum og vinum innilegustu
samúðarkveðjur.
Konráð G.
Eggertsson
og fjölskylda.
Mig langar hér að minnast og
kveðja Ólaf Halldórsson skipstjóra
frá ísafirði.
Eiginkona Ólafs, Sesselja Ás-
geirsdóttir, lést 31. janúar 1993.
Börn þeirra em Hugljúf, Margrét,
Hrólfur, Ásgerður, Halldór, Einar,
Elín og Guðjón, sem lést 1994.
Eftir að Ólafur varð ekkjumaður
dvaldi hann fern jól hér fyrir sunn-
an á heimili sonar síns, Halldórs, og
dóttur minnar, Vilborgar. Áttum
við þar saman yndislegar stundir
með fjölskyldunni. Við áttum margt
sameiginlegt, eins og barnabömin,
Jónu Sigríði og Ólaf, sem er alnafni
hans. Það er margs að minnast en
þó er mér ofarlega í huga þegar
barnabarn okkar, Ólafur, þá 6 ára
gamall, sagði eftir að Ólafur varð
ekkjumaður: „Amma, nú getur þú
gifst afa,“ en þetta fannst mér
virkilega fallegt, því barnið vildi afa
og ömmu allt það besta. Eftir að
heilsu Ólafs fór að hraka tók hann
sig til og saumaði í púða og flosaði
og veit ég að eftir hann liggja nokk-
ur falleg verk.
Óli minn, þakka þér fyrir góðar
samverustundir.
Sorgin er gríma gleðinnar.
Og lindin, sem er uppspretta gleðinnar,
var oft full af tárum.
Og hvemig ætti það að vera?
Þeim mun dýpra sem sorgin grefur sig
í hjarta manns,
þeim mun meiri gleði getur það rúmað.
(Ur Spámanninum eftir Kahlil Gibran.)
Jóna Sigríður Jónsdóttir.
Afmælis- og
minningar-
greinar
MIKILL fjöldi minningar-
greina birtist daglega í Morg-
unblaðinu. Til leiðbeiningar fyr-
ir greinahöfunda skal eftirfar-
andi tekið fram um lengd
greina, frágang og skilatíma:
Lengd greina
Um hvern einstakling birtist
ein uppistöðugrein af hæfilegri
lengd á útfarardegi, en aðrar
minningargreinar um sama ein-
stakling takmarkast við eina
örk, A-4, miðað við meðallínubil
og hæfilega línulengd, - eða
2200 slög (um 25 dálksentimetr-
ar í blaðinu). Tilvitnanir í sálma
eða ljóð takmarkast við eitt til
þrjú erindi.
Formáli
Æskilegt er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá,
sem fjallað er um, er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka, og
börn, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útför hans fer fram.
Ætlast er til að þessar upplýs-
ingar komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður,
en ekki í greinunum sjálfum.
Frágangur og móttaka
Mikil áherzla er lögð á að
handrit séu vel frá gengin, vél-
rituð eða tölvusett. Sé handrit
tölvusett er æskilegt að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Það
eykur öryggi í textamenferð og
kemur í veg fyrir tvíverknað.
Þá er ennfremur unnt að
senda greinar í símbréfi - 569
1115 - og í tölvupósti (minn-
ing@mbl.is). Vinsamlegast
sendið greinina inni í bréfinu,
ekki sem viðhengi.
Um 8 milljónir í
erlendri smámynt
ALLS söfnuðust um 8 milljónir
króna í söfnun á erlendri smámynt
til styrktar langveikum börnum,
sem Landsbanki Islands hf. stóð
fyrir meðal viðskiptavina sinna í
desember og janúar sl. Söfnunarféð
verður í varðveislu Landsbankans
en sjóðsstjóm Styrktarsjóðs Um-
hyggju mun annast framlög til ein-
stakra verkefna. Umhyggja eru
regnhlífarsamtök foreldrafélaga,
fagfólks og annars áhugafólks um
málefni langveiki’a bama.
Starfsmenn Landsbankans hafa
talið og flokkað myntina, sem sam-
tals vóg um 3 tonn. Flugfélag ís-
lands hf. flutti megnið af myntinni
sem safnaðist á landsbyggðinni til
Reykjavíkur endm'gjaldslaust.
Talning myntai’innar tók talsverð-
an tíma og í kjölfarið var hafist
handa við að flytja hana til hinna
ýmsu landa. Töluvert af eldri mynt,
sem ekki er lengur í gildi, hafði
einnig borist í söfnunina. Megnið af
þeirri mynt, ásamt ýmiss konar
mynt frá fjarlægari löndum, var
sent til Myntsafnarafélags íslands
sem hefur milligöngu um að koma
henni í verð á uppboðum félagsins.
Gera má ráð fyrir að þessi mynt
verði að seljast fram eftir ári því hér
er um talsvert magn að ræða. Það
sem ekki selst verður sent í endur-
vinnslu.
Söfnunarféð skiptist með eftirfar-
andi hætti á helstu myntir: Banda-
ríkjadalir 6.755,00, Sterlingspund
10.647,83, Kanadískir dollarar
2.284,00, Danskar krónur 113.758,00,
Norskar krónur 53.782,10, Sænskar
krónur 32.173,00, Finnsk mörk
7.445,90, Franskir frankar 42.146,40
, Belgískir frankar 123.435,00, Lúx-
emborgarfrankar 35.926,00, Sviss-
neskir frankar 6.776,55, Hollensk
gyllini 18.601,80, Þýsk mörk
32.401,85, ítalskar lírur 1.651.220,
Austurrískir schillingar 33.271,20,
Portúgalskir Escudos 225.324,50,
Pesetar 859.449,00 og írsk pund
1.976,61.
Auk þess söfnuðust myntir frá
flestum öðrum löndum heims og loks
söfnuðust 313.563 kr. í innlendri
mynt.
Hluti söfnunarmyntarinnar hefur
verið seldur afgreiðslu Landsbank-
ans í Leifsstöð, en meginhluti fjárins
sendur til erlendra viðskiptabanka
Landsbankans eða seðlabanka við-
komandi landa sem hafa góðfúslega
tekið við myntinni. Navy Exchange,
verslun Bandaríkjamanna á Kefla-
víkurflugvelli, veitti dollaramyntinni
viðtöku og taldi hana í eigin
mynttalningarvél. Eimskip annaðist
flutninga á mynt til hafna í Evrópu,
Cargolux flutti mynt til Lúxemburg-
ar, Sviss, Belgíu og Austurríkis,
Flugleiðir fluttu mynt til Frakk-
lands og íslandsflug mun flytja
mynt til Spánar. Öll þessi fyrirtæki
hafa annast flutningana án endur-
gjalds. Þá hefur fyrirtækið Bedco &
Mathiesen hf. lagt málefninu lið með
láni á mynttalningarvél.
Enn er eftir að senda mynt til Ir-
lands, Portúgal, Italíu og Kanada og
verður hún væntanlega flutt með
leiguflugi. Gert er ráð íyrir að síð-
ustu myntflutningarnir verði með
haustinu þegar leiguflug hefst til ír-
lands.
ÁSA Rún Björnsdóttir frá Landssfmanum afhendir Sigríði Guðmunds-
dóttur, deildarstjóra alþjóðaskrifstofu RKÍ, og Jónasi Þórissyni, fram-
kvæmdastjóra Hjálparstarfs kirkjunnar, fé sem safnaðist í Kosovo-
söfnunina í símakosningum fyrir Eurovision-keppnina.
Gáfu tæplega
400.000 kr. í
Kosovo-söfnun
LANDSSÍMINN hefur afhent
Rauða krossi Islands og Hjálpar-
starfi kirkjunnar 382.500 kr. sem
söfnuðust til styrktar flóttafólki
frá Kosovo í sfmakosningunni
vegna Eurovision-keppninnar á
dögunum.
Landssfminn annaðist fram-
kvæmd sfmakosningarinnar og
var ákveðið að af verði hvers sím-
tals í kosningunni rynnu 15 krón-
ur í Kosovo-söfnun RKÍ og kirkj-
unnar. Alls tóku 25.500 manns
þátt í kosningunni og varð árang-
STJÓRN íbúasamtakanna Átaks
beinir þeim eindregnu tilmælum til
ríkisstjórnarinnar að hún beiti sér
nú þegar fyrir varanlegum aðgerð-
um til lausnar á þeim bráða vanda
sem steðjar að Þingeyri í atvinnu-
málum og bendir á eftirfarandi:
„Ríkisstjórnin aðstoði þá, sem nú
eru að reyna að leysa vanda Rauð-
síðu og annarra atvinnurekenda og
liggi svör fyrir eigi síðar en í næstu
viku varðandi fyrirætlanir stjórnar-
innar í þessu skyni.
Við höfum þungar áhyggjur af at-
vinnuástandi og líðan einstaklinga og
fjölskyldna í byggðarlaginu og raun-
ar á öllum Vestfjörðum. Er það
vegna stöðu mála í Rauðsíðu, þar
sem vinna um 100 manns; vegna
uppsagna hjá Unni ehf. en þar vinna
16 manns auk mannskaps á þeim
urinn því sá sem að ofan greinir,
segir í fréttatilkynningu.
Landssfminn hefur með öðrum
hætti styrkt flóttafólk frá Kosovo.
Fyrirtækið lánaði t.d. fulltrúum
Rauða krossins gervihnattasíma
er þeir fóru til Makedóníu til að
sækja þangað flóttamenn. Þá hef-
ur Sfminn gefið flóttamönnunum
sem komu til íslands inneign á
sfmareikningi til að auðvelda
þeim að hafa samband við ætt-
ingja sína í Kosovo eða í öðrum
ríkjum.
bátum sem eru í viðskiptum við fyr-
irtækið; og sökum hugsanlegrar sölu
togarans Sléttaness IS 808, hvar 22
Vestfirðingar stai'fa um borð og af
þeim eru 18 þeirra frá Þingeyri auk
þeirra 11 löndunarmanna frá Þing-
eyri og annarra, er komið hafa að
þjónustu við skipið.
Þingeyri er einn elsti verslunar-
staður landsins og þar hefur átt sér
stað stórkostleg uppbygging á und-
anförnum áratugum. Ötækt er með
öllu að Þingeyringar séu látnir
gjalda fyrir stjórnunaraðgerðir. Við
teljum því að koma verði þeim til
hjálpar með öllum tiltækum ráðum á
örlagastund.
Við minnum á hugmyndir til at-
vinnusköpunar, sem stjórn Átaks
sendi frá sér í fyrri áskorun sinni til
ríkisstjórnarinnar.“
Hafnar-
fjarðar-
meistaramót
í dorgveiði
ÆSKULÝÐS- og tómstundaráð
Hafnarfjarðar stendur fyrir dorg-
veiði við Flensborgarbryggju þriðju-
daginn 6. júlí. Keppnin er ætluð
börnum á aldrinum 6 til 12 ára og er
keppnin ætluð öllum á þessum aldri.
„Síðastliðið sumar hefur Æsku-
lýðsráð haldið dorgveiðikeppni og í
íyrra voru þátttakendur rúmlega
300 börn. Þessi keppni hefur þótt
takast vel og verið keppendum til
mikils sóma. Þeir sem ekki eiga veið-
arfæri geta fengið lánuð færi á
keppnisstað. Einnig verður hægt að
fá beitu og leiðbeiningar hjá starfs-
mönnum. Verðlaun eru veitt fyrir
stærsta fiskinn og þau sem veiða
flestu fiskana fá einnig verðlaun.
Styrktaraðili að keppninni er Veiði-
búð Lalla, Bæjarhrauni, sem gefur
verðlaun og góð ráð.
Leiðbeinendur íþrótta- og leikja-
námskeiðanna verða með öfluga
gæslu auk þess sem björgunarsveit-
in Fiskaklettur verður með björgun-
arbát á sveimi. Keppnin hefst kl.
13.30 og lýkur um kl. 15. Allir krakk-
ar á aldrinum 6 til 12 ára eru vel-
komnir og hvattir til þátttöku,“ segir
í fréttatilkynningu frá Æskulýðsráði
Hafnarfjarðai'.
---------------
Heimsmeistarakeppnin
í standard-dönsum
Islendingar
náðu 20. sæti
Alassio. Morgunblaðið.
ÁGÆTUR árangur náðist hjá ís-
lensku pörunum í heimsmeistara-
keppninni í flokki Unglinga I í
standard-dönsum sem fram fór í
Alassio á Italíu sl. sunnudag. Hilmar
Jónsson og Ragnheiður Eiríksdóttir
höfnuðu í 20. sæti og Grétar Ali Kh-
an og Jóhanna Berta Bernburg í
27.-28. sæti.
Þessi keppni þykir mjög sterk því
til hennar er sérstaklega boðið
tveimur bestu pörunum í standard-
dönsum frá hverju landi og voru 56
pör mætt til keppni. Sigurvegararn-'
ir voru frá Slóveníu.
Hrafn Hjartarson og Helga
Björnsdóttir stóðu sig vel í alþjóð-
legri opinni keppni í 10 dönsum í
flokki Unglinga I sem fram fór í
Alassio sl. fimmtudag. Þau komust í
12 para undanúrslit en 30 pör tóku
þátt í keppninni. Sigurvegararnir
voru frá Ítalíu.
Átak sendir ríkis-
stjórninni áskorun