Morgunblaðið - 03.07.1999, Síða 50
X.
50 LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
R A Ð A U c LÝ 5 I ll IM G A Fl
ATVIMMU-
A U G LÝ S I M G A R
Hafralækjarskóli í
Aðaldal auglýsir eftir
skólastjóra
Hafralækjarskóli er grunnskóli og er stad-
settur í Aðaldal um það bil 20 km frá Húsa-
vík og um 70 km frá Akureyri. Skólinn býr
við góda aðstöðu til náms og kennslu.
Skólinn ereinsetinn heimanakstursskóli með
um það bil 100 nemendur úr 4 sveitarfélögum
þar sem samkennsla árganga er umtalsverð.
Áhersla á list- og verkgreinar, þó einkum tónlist,
eru helstu einkenni skólastarfsins. Innan veggja
skólans er rekinn tónlistarskóli með sameigin-
lega stundaskrá, aðstöðu og búnað. Við skólann
er rekin sérdeild, sem þjónar meðferðarheimil-
unum í Árbót og Bergi.
Umsóknarfrestur er til 16. júlí nk.
Nánari upplýsingar veitir Svanhvít Magnúsdótt-
ir, skólastjóri í símum 464 3580 og 464 3581
og Dagur Jóhannesson, oddviti í síma 464 3510
eða 464 3520.
Blaðbera
vantar á Snorrabraut
'fy Upplýsingar gefnar í síma 569 1122.
Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sinum vandaðar og áreiðanlegar
fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er i
upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 53.000 eintök á dag.
Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 i Reykjavik þar sem eru hátt
í 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1.
Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913.
Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
Blaðbera
vantar í Hvassaleiti.
Einnig vantar blaðbera í afleysingar á
Arnarnesi og Ásum.
j?-> Upplýsingar gefnar í síma 569 1122.
Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sinum vandaðar og áreiðanlegar
fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í
upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 53.000 eintök á dag.
Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík þar sem eru hátt
í 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1.
Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913.
Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
Halló smiðir
Við óskum eftir 4 duglegum smiðum til vinnu
í Danmörku sem fyrst. Vinna 12 tíma á dag,
6 daga vikunnar, laun frá 35.000—40.000 dkr.
* á mánuði, frítt húsnæði.
Við getum lagt út fyrir farseðli.
Vinnan felst í viðgerðum og nýbyggingum.
Áhugasamir hafi samband í síma 0045 2049
3877 og 00298 374 200.
SP/F C.N Bygg
Boks 126, Fo 900 Vágur
Sími 00298 374 200, fax 00298 374 300.
Bifvélavirki
Óskum eftir að ráða bifvélavirkja eða mann
vanan vélaviðgerðum.
Upplýsingar á verkstæðinu, Tangarhöfða 13.
Sveitarstjóri
Laus er staða sveitarstjóra í Raufarhafnar-
hreppi. Um er að ræða fullt starf og þarf við-
komandi að geta byrjað sem fyrst. Nánari upp-
lýsingar veittar á skrifstofu Raufarhafnar-
hrepps í síma 465 1151. Umsóknarfrestur renn-
ur út 15. júlí.
Raufarhöfn er sjávarþorp í Norður-Þingeyjarsýslu og búa þar
rúmlega 400 manns. íbúum hefur farið fjölgandi á liðnum
árum. Þorpið er nyrsti þéttbýlisstaður á Islandi. Vinna við
sjávarútveg er burðarás atvinnulífsins auk ýmisskonar þjón-
ustu. Góð aðstaða er til íþróttaiðkana, s.s nýtt íþróttahús,
sundlaug, tækjasalur o.s.frv. Leikskólinn er rúmgóður og
vel búinn. Á staðnum er félagslíf af ýmsum toga s.s leikfélag,
kór, íþróttafélag og tónlistarskóli.
Lagerútsala
í dag, laugardaginn 3. júlí, verður lagerútsala
haldinn að Vatnagörðum 26,104 Reykjavík
frá kl. 13.00 til kl. 16.00 síðdegis.
Fjölbreytt úrval vara verður á boðstólum, svo
sem raftæki: Hárþurrkur, rafmagnsofnar, tvö-
faldar kaffivélar á frábæru verði, rafmagns-
tannburstar, rakvélar ásamt sýnishornum af
ýmsum raftækjum. Leikföng: Dúkkur, litabæk-
ur, pússluspil, Disney-lest, hjólaskautar fyrir
fyrir 3—6 ára á frábæru verði, billiard- og pool-
borð fyrir unga menn og margt fleira í leikföng-
um. Veiðarfæri: Sjóstangir, stangir, hjól,
spúnar, flugulínur, flugubox, spúnabox, veiði-
töskur, önglar, hnýtingarönglar, nælur, ódýrar
vöðlur og stígvél. Garðljós með spennubreyti
og tveim Ijósum í setti, hagstætt verð. Servíett-
ur, borðdúkar, plasthnífapör, vínkælar. Kaffi-
brúsar, nestistöskur með hitabrúsa fyrir unga
fólkið í skólann, leikskólann og útileguna.
Tungumálatölva. Vogir. Ódýrir verkfærakassar.
Þó nokkuð af sýnishornum af ýmsum vörum
svo sem útvörpum o.fl. o.fl.
Missið ekki af þessu tækifæri og komið og ger-
ið góð kaup. Við tökum EURO- og VISA- kredit-
og debet-kort.
TILKYISIISIIIMGAR
IHafnarfjarðarbær
Menningarmálanefnd
Sigga á Grund
og nemendur
Tréskurðarsýning verður haldin í Listamiðstöð-
inni í Straumi á sunnudaginn klukkan 13—17.
Allir velkomnir.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur Árness hf.
AðalfundurÁrness verður haldinn í matsal
félagsins að Óseyrarbraut 24 í Þorlákshöfn,
laugardaginn 17. júlí og hefst hann kl. 10.00
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Breytingar á samþykktum félagsins þess
efnis að stjórnarmönnum verði fækkað.
3. Önnur mál löglega upp borin.
Stjórn Árness.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Bjólfsgötu
7, Seyðisfirði, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Austurvegur 51, Seyðisfirði, þingl. eig. Olga Jónsdóttir og Jón Þor-
steinsson, gerðarbeiðandi húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar, mið-
vikudaginn 7. júlí 1999 kl. 14.00.
Ekra, Hjaltastaðaþinghá, þingl. eig. Sigmundur Halldórsson, gerðar-
beiðandi Byggingarsjóður ríkisins, miðvikudaginn 7. júlí 1999 kl.
14.00.
Lagarbraut 7, norðurendi Fellabae, þingl. eig. Herðir hf., fiskvinnsla,
gerðarbeiðandi Sparisjóður Kópavogs, miðvikudaginn 7. júli 1999
kl. 14.00.
Norðurgata 2, Seyðisfirði, þingl. eig. Lyfting ehf., gerðarbeiðandi
Lífeyrissjóður Austurlands, miðvikudaginn 7. júlí 1999 kl. 14.00.
Stapi, Borgarfirði eystra, þingl. eig. Jón Þór Sigursteinsson, gerðar-
beiðandi Byggingarsjóður ríkisins og íbúðalánasjóður, miðvikudaginn
7. júlí 1999 kl. 14.00.
Torfastaðaskóli, 3,71 ha lóð og skólahús úr landi Torfastaða, þingl.
eig. Sigurður Steindór Pálsson, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag
íslands hf., miðvikudaginn 7. júlí 1999 kl. 14.00.
Vestdalseyrarvegur 2,00-01 Seyðisfirði, þingl. eig. Vestdalsmjöl
ehf., gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Seyðisfirði, miðvikudaginn
7. júlí 1999 kl. 14.00.
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði.
16. júm'1999.
FÉLAGSLÍF
Dagsferð sunnudaginn
4. júlí.
Frá BSÍ kl. 10.30. Bakaleiðin 4.
áfangi. Gengið frá Stóru-Laxá að
Þjórsárbrú. Gangan er helguð
konungskomunni 1907. Verð
1.700/1.900.
Næstu dagsferðir
Föstudaginn 9. júlí. Hrafna-
björg, næturganga. Brottför
frá BSl kl. 21.00.
Sunnudaginn 11. júlí. Fjallasyrpan.
Gengið á Ok. Brottför frá BSÍ kl.
10.30.
Dagsferð hjá jeppadeild
laugardaginn 3. júli.
Hallmundarhraun, Surtshellir og
Húsafell. Brottför frá Essó, Ár-
túnshöfða, kl. 10.00. Þátttöku-
gjald greiðist kr. 2.000/2.500 á bíl
greiðist við brottför.
Heimasíða: www.utivist.is.
FERÐAFÉLAG
® ÍSLANDS
MöfíKINNI 6 - SlMI 568-2533
Sunnudagsferðir 4.júlí
Kl. 8.00 Landmannalaugar.
Öku- og skoðunarferð. Verð
3.000 kr.
Kl. 10.30 Leggjabrjótur, göm-
ul þjóðleið. Um 5—6 klst.
ganga frá Þingvöllum í Hvalfjörð.
Verð 1.700 kr.
Brottför frá BSÍ, austanmeg-
in og Mörkinni 6.
Fyrsta miðvikudagsferð í Þórs-
mörk er 7. júlí. Sjá ferðir á
textavarpi bls. 619 og heima-
síðu: www.fi.is.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía
Almenn samkoma kl. 20.00.
Ræðum. Joshua Paul frá Kóreu.
Allir hjartanlega velkomnir.
www.gospel.is
HÚSNÆBI ÓSKAST
Vantar íbúð til leigu strax
Vantar 3ra til 5 herbergja íbúð á Reykjavíkur-
svæðinu fyrir fjársterkt fyrirtæki. íbúðin þarf
að vera laus sem fyrst.
H-gæði fasteignasala,
sími 588 8787 og 898 2817.
ÝMISLEGT
Förðunarnámskeið
Frábær grunnnámskeið.
Skráning hafin í síma 566 6420.
mbl.is
LLTAF= Œ/TTH\SA£y NÝTT