Morgunblaðið - 03.07.1999, Page 62
n>2 LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ1999
MORGUNBLAÐIÐ
4
FÓLK í FRÉTTUM
E-KRINGMN
D
Opð: mán,- fim. 10.00 - 18.30
föí. 10.00-19.00
lou. 10.00-18.00
KRINGMN
Kaffileikhúsiö búið að fá andlitslyftingu
stýrði bæði áður en ég
fór út í nám og eftir að ég kom heim
setti ég upp tvær sýningar í fram-
haldsskólum í Reykjavík.“
- Er þá hægt að búast við að andi
Talíu eigi eftir að setja sterkari svip
á Kaffileikhúsið undir þinni stjóm?
„Sko, ég vil segja að það verði
meira af öllu. Það verður meiri leik-
list, meiri tónlist, myndlist og síðan
erum við að leggja drögin að upp-
lestrarkvöldum og mörgu öðru
skemmtilegu sem mun auðga menn-
ingarlffið í miðbænum."
- Hvaða stöðu vilt þú sjá Kaffileik-
húsiðgegna í miðbænum ?
„Kaffileikhúsið er á stórkostlegum
stað. Ég sé fyrir mér á fimmtánda
afmælisári Hlaðvarpans á næsta ári
Lítil vin í
hjarta bæjarins
María Reyndal er nýráðinn listrænn
stjórnandi Kaffíleikhússins í Hlaðvarpan-
um. Dóra Osk Halldórsdóttir hitti Maríu
og forvitnaðist um hvort breytingar
fylgdu nýjum stjórnanda.
Morgunblaðið/Jóra
MARIA Reyndal vill að
gleðin ríki í miðbænum og
þá ekki síst í Kaffi-
leikhúsinu.
að við verðum búin að opna
hluta hússins undir kaffihús,
þannig að húsið verði opið alla
daga og öll kvöld allan ársins
hring. Eg vil að stemmningin
sé þægileg og afslöppuð og
fólk sjái Kaffileikhúsið sem
heimilislega vin í miðbænum.“
- Er pláss fyrir böllin í þess-
ari mynd?
„Já, já, þau verða áfram. Hús-
ið sjálft er svo góður rammi fyrir
ólíka starfsemi og nálægðin við
áheyrendur skapar ákveðna
stemmningu sem er einstök. Við
hófum starfsemina með Möggu Stínu
og sýrupolkasveitinni Hringjunum
16. júní og stemmningin var ólýsan-
leg. Það var dansað út um allt og
Magga Stína var klöppuð upp
þrisvar. Þegar við vorum með djass-
kvöldið með Ziegler/Scheving kvin-
tettinum seldust miðarnir upp og við
urðum að loka húsinu klukkan níu og
það var alveg geggjuð stemmning.
Þegar Rússibanamir spiluðu var lika
troðfullt og ég get ekki dregið aðra
ályktun af þessum viðtökum aðrar en
þær að þegar boðið er upp á góða og
vandaða dagskrá komast færri að en
vilja. Það er líka markmiðið að í
Kaffileikhúsinu verði líf og fjör alla
daga.“
„ÞAÐ ER búið að taka Kaffileikhús-
ið alveg í gegn að innan. Laga veggi
og loft, einangra og setja upp eld-
vöm og mála og síðan verða öll húsin
í Hlaðvarpanum tekin í gegn að utan
seinna í sumar,“ segir María, en hún
mun ásamt Sigríði Erlu Jónsdóttur
framkvæmdastjóra sjá um starfsem-
ina á komandi mánuðum.
„Kaffileikhúsið hefur skapað sér
ákveðinn sess í íslensku menningar-
lífi með brautryðjandastarfi Asu
Ríkharðsdóttur. Kaffileikhúsið hefur
verið hús fyrir alla og ég ætla ekki
að breyta því, heldur einbeita mér að
því að auka starfsemina svo allir ald-
urshópar viti að þeir geti sótt þar
áhugaverða viðburði. Það er meðal
annars tilgangurinn með Bræðingi,
fimmtudagstónleikaröðinni. Þar
verður áherslan á ferskar hljóm-
sveitir sem höfða til unga fólksins,
eins og fimmtudaginn var þegar
Botnleðja reið á vaðið og opnaði
Bræðing í félagi við Fitl og Mús-
íkvatur."
Þegar María er spurð um næsta
Bræðingskvöld fimmtudaginn 8. júlí
yerður hún dularfull á svip. „Það er
algjört leyndarmál, en orðrómur
mun berast út.“
- Hvar verður helst hægt að hlera
um viðburðinn?
„Tónlistarbransinn á Islandi er nú
ekkert mjög stór og fiskisagan mun
eflaust fljúga fyrr en varir. Ungt fólk
sem hefur áhuga á tónlist
fylgist með öllu og veit hvenær
þeirra uppáhaldshljómsveitir
eru að spila.“
- Hvað fleira er á döfinni?
María segir að á næstunni
verði m.a. kvöld tileinkað Mi-
les Davies, Bang Gang munu
stíga á stokk, pönkararnir í
Bisund og Fræbbblunum
munu leiða saman hesta sína
á næstu Bræðingskvöldum,
en hugmyndin með Bræð-
ingi er einmitt að blanda
saman mismunandi tónlist-
arstefnum þótt ekki sé
blandað saman djassi og pönki sama
kvöldið. En ýmislegt fleira er á döf-
inni að sögn Maríu.
„Við frumsýnum barnaleikrit eftir
Þorvald Þorsteinsson í ágúst sem
heitir Ævintýrið um ástina. Við höf-
um stofnað leikhóp utan um þessa
ákveðnu sýningu og ég mun leik-
stýra henni. Þetta verður óhefð-
bundin sýning sem hefst með spuna
þar sem leikarar munu ná til áhorf-
enda á svolítið sérstakan hátt. Síðan
hefst ævintýrið sem verður að mestu
leyti flutt í bundnu máli. Þetta er
mjög sérstök sýning og verður mjög
spennandi."
-Ert þú menntuð í leikhúsfræð-
um?
„Já, ég lærði leiklist í London og
kom heim núna um jólin. Ég leik-
Hljómsveitin Gyllinæð á leið til Grænlands
Pönkið var aldrei búið
„VIÐ ERUM búnir að spila í 3 til 4
mánuði og æfum ekkert alltof mik-
ið,“ segir Ágúst Rúnarsson, söngv-
ari þungarokksveitarinnar
Gyllinæðar. „Kallaðu okkur bara
Gústa, Magga og Danna,“ leiðréttir
hann blaðamann og skírskotar til
félaga sinna Daníels ívars Jensson-
ar gítarleikara og Magnúsar Arnar
Magnússonar trommara.
Gyllinæð er önnur tveggja ís-
lenskra hljómsveita sem mun í
ágúst spila á vest-norrænni rokkhá-
tíð, „Nipia Rock Festival", í bænum
Aasiaat á Grænlandi.
Að sögn Gústa spilar hljómsveit-
in „pönkað þungarokk". „Við erum
ekki með bassaleikara í hljómsveit-
inni, heldur bara rafmagnsgítar,
trommur og söng,“ segir hann.
A hvaða tónlist hlustið þið?
„Við hlustum allir mikið á pönk
og þungarokk, til dæmis Ramstein,
Deftones og Type 0 Negative."
4411
Hafið þið komið víða
fram?
„Fyrsti viðburður-
inn var í Spútnik þar
sem við vorum fyrsta
upphitunarhljómsveit-
in fyrir Bisund og
Minus. Þar fengun við
frábærar undirtektir.
Svo erum við búnir að
fara í útvarpsþáttinn
Tvíhöfða og fleira,“
segir Gústi, en þeir félagar hafa
einnig farið í hljóðver og mun eitt
þeirra laga koma út á safnplötu í
sumar.
Er mikill kraftur í ykkur þegar
þið spilið, eruð þið mjög þungir?
„Já, við reynum að hafa sem
hæst í græjunum okkar og svona.
Ég syng ekki mikið heldur öskra og
það skilst voða lítið hvað ég segi.
Fólkið sem býr í kringum æfingar-
húsnæðið er búið vera að amast yfir
hávaðanum í okkur.“
Er pönkið að koma aftur?
„Það hefur náttúrlega aldrei ver-
ið búið. í mínum vinahópi halda
flestallir upp á pönk.“
Reynið þið að halda vissri pönk-
ímynd?
„Við klæðum okkur eins og við
viljum og erum ekkert að pæla í
neinni tísku. Ég er með gaddaólar en
varð að raka af mér hanakambinn
því ég var alltaf að lenda í löggunni."
Eigið þið einhverjar fyrirmyndir?
„Nei, ekki nema ef vera skyldi
hljómsveitin Sjálfsfróun."
Ætlið þið að æfa vel fyrir rokk-
hátíðina á Grænlandi?
Morgunblaðið/ Ásdís
„Já, við erum með sex laga
prógram sem við erum að æfa og
ætlum að flytja á Grænlandi.
Reyndar hættir nánast alltaf einn í
hljómsveitinni á hverri æfingu því
ég fer yfirleitt að æsast í þeim og
vill ráða einum of rniklu."
Eruðþið færir tónlistarmenn?
„Já, kannski, en maður þarf
stundum ekki að kunna á hljóðfæri
til að spila í hljómsveit."
Og hvað geturðu sagt mér meira
um hátíðina á Grænlandi?
,Á Grænlandi munum við koma
opinberlega fram í annað sinn. Það
verður mikið af grænlensku rokki á
þessum tónleikum en eina hljóm-
sveitin sem ég veit að verður þarna
er Grænt Fót Slím frá Færeyjum.
Bærinn er víst frægur fyrir þessa
rokkhátíð."
Gústi, söngvari Gyllinæðar, segir
þá félaga í hljómsveitinni ætla að
reyna að gera það gott í tónlistar-
heiminum. Það verður gaman að
sjá hvort markaðurinn muni aftur
kunna að meta pönkið, eða var það
kannski aldrei búið...?