Morgunblaðið - 08.07.1999, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1999 68^.
□ö'
DIQITAL
Thx
DI6ITÁL
SÍM.
NÝ (JPPFÆRSLA: www.stjorinmbio.is
MAGNAÐ
BÍÓ
/DD/
Handboltinn á Netinu
ALVfiRU BIO! C3Dolby
STAFRÆNT
STÆRSTfl TJALDH) IVIEÐ
HLJQÐKERFII
ÖLLUÍVÍ SÖLUIVi!
IHX
imyndir.is
Stærsta grínmynd allr tíma
M I K E M Y E R S
Sigur Rós spiiar á Bræðingi í Kaffiieikhúsinu í kvöid
Allt frá gelgjum upp í gamalmenni
og frá túristum til tötralýðs
Hljómsveitin Sigur
Rós sendi nýlega frá
sér breiðskífuna
„Agætis byrjun“ sem
hefur heillað unga sem
aldna. Birna Anna
Björnsddttir fór í
Kaffileikhúsið og hitti
þar Jón Þór Birgisson
söngvara, Georg Holm
bassaleikara og
Orra Pál Dýrason
trommuleikara.
HLJÓMSVEITIN Sigur
Rós sfendi nýlega frá
sér breiðskífuna
„Ágætis byrjun“ og
hefur hún hlotið frábærar viðtök-
ur og fádæma góða dóma hjá gagn-
rýnendum. Þeir héldu útgáfutón-
leika sína í íslensku óperunni og
varð uppselt á þá á tveimm' klukku-
stundum. En nú gefst tækifæri til að
beyra og sjá Sigur Rós því þeir spila
í Kaffileikhúsinu í kvöld og
framundan er svo enn meira tón-
leikahald.
Ferð út á land
Hvað verðið þið að gera það sem
eftir lifir sumars ?
»Við ætlum að ferðast um landið,“
segir Jón og strákarnir draga upp
risastórt landakort af íslandi og
upphefst mikið handapat.
Hvert ætlið þið að fara?
Jón telur upp staðina og bendir á
kortið um leið, „Keflavík, Akranes,
Isafjörð, Blönduós, Akureyri, Húsa-
vík held ég, Egilsstaði, kannski
Vopnafjörð og Höfn í Hornafirði,"
„og kannski Hrísey", bætir Georg
við. „Þetta verður gaman,“ segir Jón
„við erum alltaf að spila í bænum og
þetta er skemmtileg tilbreyting."
Endurtekning er leiðinleg
Strákarnir segjast vilja koma með
eitthvað nýtt á hverjum einustu tón-
uueiuu i ntuiu ug ci atu u iciu i
ferðalag um landið. Þarna sjást
Orri Páll Dýrason, nýr
trommuleikari hljómsveitarmn-
ar, Jón Þór Birgisson, gítar-
leikari og söngvari og Georg
Holm bassaleikari.
leikum þannig að engir tónleikar
verði eins. Þetta gerir það að sjálf-
sögðu að verkum að það fer mikil
vinna og orka í hverja tónleika og
virðast þeir leggja mikinn metnað í
það að það takist að gera hverja tón-
leika sérstaka.
„Við nennum ekki alltaf að spila
sömu lögin og við viljum sífellt
reyna að koma með eitthvað nýtt,“
segir Georg. „Við spilum til dæmis
aldrei Flugufrelsarann,“ segir Jón,
„það er lagið, þú veist, sem er vin-
sælt.“ „Það er þreytandi að endur-
taka og spila það sama aftur og aft-
ur,“ segir Georg. „Við reynum líka
að leggja okkur alla fram á hverjum
einustu tónleikum. Það verður
spennandi að fara út á land, því við
verðum á nýjum stöðum með nýja«r'
áhorfendur," „og það stuðlar að
ákveðnum ferskleika," bætir Jón við.
Andleg uppbygging
Þið virðist gefa mjög mikið af
ykkur á tónleikum og það kemst tví-
mælalaust til skila til áhorfenda.
Hvernig undirbúið þið ykkur fyrir
tónleika?
„Fyrir tónleika þurfum við á mik-
illi uppbyggingu að halda,“ segir Ge-
org. „Þegar við erum byrjaðir að
spila kemur þetta frekar<__
áreynslulaust, en við þurfum að
byggja okkur upp andlega áður.“
„Ef við værum að spila rokk þá
myndum við vera meira í því að
reyna að ná upp stemmningu, slá
í öxlina á hver öðrum og svona,“
segir Jón „en tónlistin okkar er
svona rólegri tónlist þannig að við
erum meb'a fyrir það að faðmast
og við slökum mjög á og fáum rosa-
lega orku út úr því, í alvöru talað.“
Foreldrar leggja við hlustir
Tónlistin ykkai' virðist höfða til
mjög breiðs hóps af fólki, burtséð
frá því hvemig tónlist það er vant að
hlusta á, hver er galdurinn?
„Ef maður er einlægur á sviði þá
held ég að það nái alltaf til fólks,“"*^
segir Jón. Hann segir ennfremur að
þeir búi tónlist sína til algjörlega á
sínum eigin forsendum. Það hafi
þeir alltaf gert og munu alltaf gera
og sé það algjört frumskilyrði sem
megi aldrei missa sjónar á.
Strákarnir segja að þeim finnist
gaman að vita hversu fjölbreyttur
hópur hlusti á tónlistina þeirra. Þeir
fái oft skemmtilegar athugasemdir
inn á heimasíðuna sína, t.d. þar sem
unglingar segja þeim að foreldrar
þeirra hafi farið út í búð og keypt
plötuna fyrir sjálfa sig eftir að hafa
heyrt hana einu sinni hjá þeim.
Einnig segir starfsfólk plötubúða
þeim að fólkið sem kaupi plötuna
þeirra sé af öllum toga. é
Jón segir: „Fólkið í plötubúðun-
um segir að fólkið sem kaupi plöt-
una sé allt frá gelgjum upp í gamal-
menni og allt frá túristum til...“
„tötralýðs“ botnar Orri.
□□[DOlflYl
D I G I T A L
Dre* Barryniore Davitl
HÚN HEFUR
ALDREITOLIAÐ
í TÍSKUNNI...
© FYRREN «,
NÚNA.
.vi t
»4:
HEATHER GRA
Sýnd kl. 9.
Simí 462 3500 • Akureyri • www.nell.is/'boigarfaio
FORSYND KL. 9.
www.samfilm.is