Morgunblaðið - 08.07.1999, Blaðsíða 1
151. TBL. 87. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuters
HILLARY Clinton forsetafrú
ásamt stuðningsfólki sínu.
Hillary
Clinton
ætlar fram
West Davenport. AP.
HILLARY Clinton forsetafrú
Bandaríkjanna tilkynnti í gær í
fyrsta sinn að hún ætlaði að
bjóða sig fram til setu í öldunga-
deild Bandaríkjanna fyrir New
York-ríki í næstu þingkosning-
um. Hét Hillary Clinton því að
verða „sterkur og áhrifaríkur
fulltrúi íbúa ríkisins," í ræðu er
hún hélt á búgarði Patricks
Moynihan, núverandi öldunga-
deildarþingmanns Demókrata-
flokksins í New York.
Sagði forsetafrúin að málefni
New York-ríkis stæðu sér afar
nærri og að hún hefði að undan-
förnu verið að kynna sér hvað
þar ber hæst. Sagðist hún í ræðu
sinni ætla að einbeita sér að því
að skapa fleiri atvinnutækifæri
um gervallt ríkið, koma á öflugu
heilbrigðiskerfí og efna til átaks
í menntamálum. Mun forsetafrú-
in eyða næstu dögum í New
York-ríki og hlusta á íbúa þess
og það sem þeir hafa fram að
færa.
Líklegt er talið að Rudolph Gi-
uliani, borgarstjóri New York,
verði andstæðingur Hillary Clint-
on í kosningaslagnum og sýna
nýjar skoðanakannanir að þau
hafi svipað fylgi meðal kjósenda.
Almenningur
krefst afsagn-
ar Milosevics
Reuters
SERBAR í borginni Nis í suðurhluta Serbíu rituðu í gær nafn sitt á
undirskriftarlista þar sem farið er fram á afsögn Slobodans Milosevics .
Belgrad, Leskovac. Reuters, AFP, AP.
MIKILL mannfjöldi safnaðist sam-
an í borginni Leskovac í suðurhluta
Serbíu í gærkvöld og krafðist af-
sagnar Slobodans Milosevic Júgó-
slavíuforseta. Aðgerðirnar í gær
mörkuðu þriðja dag mótmæla í
borginni, sem og víðar um landið,
og hafa stjómarandstæðingar boð-
að áframhald á aðgerðum sínum.
Virðist sem tekið hafi að halla mikið
undan fæti hjá Milosevic síðustu
daga.
Þá ritaði fjöldi borgarbúa í Nis í
gær nafn sitt á undirskriftarlista
sem kvað á um að Slobodan Milos-
evic Júgóslavíuforseti hyrfi úr
valdastóli hið allra fyrsta. Að mati
Zoran Zivkovic, borgarstjóra í Nis,
skrifuðu um þrjú þúsund manns
undir listann í gær, fyrsta dag und-
irskriftarsöfnunarinnar sem skipu-
lögð var af Breytingabandalaginu,
regnhlífasamtökum leiðandi stjóm-
málaafla er vilja breytingar á ríkis-
stjóm Milosevics. Alls er talið að um
100.000 manns, víðs vegar um Ser-
bíu, hafi ritað nöfn sín á listann.
Serbneska þjóðin
stígur skrefið til fulls
Goran Svilanovic, leiðtogi stjóm-
arandstöðuflokksins Borgarabanda-
lagsins, sagði í gær að Serbar hefðu
nú loks „stigið skrefið“ og væm
óhræddir við að mótmæla Milosevic
allt uns hann stigi úr valdastóli.
„Mikil reiði hefur safnast upp í
fólki, brostnar vonir og erfitt líf,“
sagði Svilanovic. Zoran Djindjic,
annar stjórnarandstæðingur, sagð-
ist í viðtali við CNN í gær halda að
nú mun brátt stundin renna upp
þegar Serbar ættu að leggja niður
störf í nokkrar vikur í mótmæla-
skyni við stjórnvöld.
Talsmaður Bandaríkjastjómar
sagði í gær að dagar Milosevics
væm senn taidir og líkti mótmæla-
aðgerðum almennings í Serbíu við
fjöldahreyfingamar er knúðu
Ferdinand Marcos, forseta Filipps-
eyja, til að láta af völdum og komu á
almennum borgararéttindum í
Bandaríkjunum. „Dagar Milosevics
era taldir. Það er ómögulegt að
segja til um hve margir dagar era í
þeirri tölu,“ sagði James Foley,
talsmaður bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins í gær.
Rannsókn á loftárásunum
William Cohen, vamarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, fyrirskipaði í
gær umfangsmikla rannsókn á loft-
árásum Atlantshafsbandalagsins
(NATO) í Júgóslavíu með það að
markmiði að reynsla stríðsins gæti
nýst tO frambúðar, að því er kom
fram í bandaríska dagblaðinu Was-
hington Times í gær. Taldi blaðið að
rannsóknin myndi að mestu beinast
að þeim herfræðOegu mistökum er
gerð vora, í stað vopnabúnaðarins
sjálfs.
■ Kröfur um afsögn/26
Friðarsamkomulaff í Sierra Leone
Atta ára borg-
arastríði lokið
Lóme í,Tógó. AP.
STRÍÐANDI fylkingar í Vestur-Afríkuríkinu Sierra Leone komust í gær
að samkomulagi sem bindur enda á átta ára borgarastríð í landinu. Náð-
ust samningar eftir að hreyfing uppreisnarmanna gaf eftir helstu kröfur
sínar, að sögn talsmanna hreyfingarinnar og Sameinuðu þjóðanna.
Samkomulagið var undirritað af
forseta landsins, Ahmed Tejan
Kabbah, og leiðtoga Sameinuðu bylt-
ingarfylkingarinnar, Foday Sankoh.
Fór undirritunin fram á ráðstefnu
leiðtoga Vestur-Aí'rflíuríkja í Lóme,
höfuðborg Tógö. Styrjöldin í Sierra
Leone hefur verið eitthvert blóðug-
asta stríð sem háð hefur verið í
heiminum. Samkvæmt samkomulag-
inu fá uppreisnarmenn að deila völd-
um með stjórn Kabbahs, og fá í sinn
hlut fjögur ráðherraembætti. Þeir
höfðu krafist þess að fá sex til átta
ráðherrastóla, en alþjóðlegir sátta-
fulltrúar og bandamenn uppreisnar-
fylkingarinnar, þ.á m. Charles Tay-
lor, forseti Líberíu, fengu þá til að
falla frá þeirri kröfu.
í friðarsamkomulaginu er ákvæði
um að þeir byltingarliðar, sem sekir
hafa gerst um stríðsglæpi, verði ekki
sóttir til saka. Þá er ákvæði um að
gæsluliðar undir forystu Nígeríu-
manna verði áfram í landinu, en liðið
átti þátt í að binda enda á borgara-
stríðið í Líberíu fyrir þremur árum.
Reuters
Líffæragjöf „til hvítra“ veldur deilum í Bretlandi
Kynþáttafordómar inn-
an heilbrigðisstofnana
London. The Daily Telegraph.
BRESKI heilbrigðisráðherrann
Frank Dobson sagði í gær að ekki
væri hægt að líða kynþáttafordóma
í heilbrigðisstofnunum og hét því að
efna til rannsóknar á hvers vegna
sjúkrahús í Sheffield samþykkti ný-
lega að taka við líffæragjöf sem háð
var því skilyrði að líffærin yrðu ekki
flutt í þeldökkt fólk.
Það var í júlí á síðasta ári sem
nokkur líffæri vora numin á brott
úr einstaklingi sem setti það skil-
yi’ði að viðtakandi líffæranna yrði
hvítur maður. Ekki er ljóst hver
samþykkti líffæragjöfina með þess-
um skilyrðum, sjúkrahúsið sjálft
eða sérstök stofnun sem hefur milli-
göngu um líffæragjafir.
„Eg var yfir mig hneykslaður
þegar ég heyrði í dag um þetta
mál,“ sagði Dobson. „Eg skipaði að-
stoðarmanni mínum þegar að efna
til rannsóknar á því hvernig þetta
gerðist svo koma mætti í veg fyrir
að það gerðist aftur.“ Kvaðst hann
ekki hafa verið andstæðingur að-
skilnaðarstefnu hvítra manna í S-
Afríku allt sitt líf til þess eins að sjá
hana svo birtast í nýrri mynd í
bresku heilbrigðiskerfi.
í yfirlýsingu heilbrigðisráðuneyt-
isins kom fram að ráðuneytið væri
„algerlega mótfallið" því að nokkur
skilyrði væru samþykkt þegar líf-
færi eru gefin, og fjöldi lækna lýsti
einnig undrun sinni á þessu máli en
það mun vera viðtekin venja að
samþykkja ekki skilmála um það
hver njóti góðs af líffæragjöfum.
Hitabylgjan
í rénum
MIKILLI hitabylgju á austur-
strönd Bandaríkjanna slotaði síð-
degis í gær. Hafði þá frést af
a.m.k. 44 dauðsföllum sem rekja
mátti til hitans. Var svo komið að
fólki var ráðlagt að halda sig inn-
andyra í loftkældu umhverfi sem
oft á tíðum reyndist örðugt þar
eð rafmagnið fór af í þéttbýlis-
kjörnum, t.a.m. New York, vegna
mikils álags. Þeir sem hættu sér
út undir bert loft leituðu skjóls í
loftkældum matvöruverslunum
eða kældu sig ineð vatni úr
brunahönum líkt og þessi dreng-
ur gerði í Washington. Veður-
fræðingar höfðu spáð því að hita-
bylgjunni myndi senn slota með
köldu lofti sem bærist frá norður-
ríkjum Bandaríkjanna.
Bæjarstjóri
myrtur
Bogota. Reuters.
LIÐSMENN úr röðum skæraliða-
samtaka marxista í Kólumbíu eru
taldir hafa myrt bæjarstjóra Canas-
gordas, smábæjar í norðausturhluta
landsins, í gær. Er hann sjöundi
bæjarstjórinn í Kólumbíu er fellur
fyrir hendi skæruliða það sem af er
þessu ári og er atburðurinn talinn
undirstrika vantrú almennings á
sáttaumleitunum Pastranos forseta
við skæruliðahópa.
í gær átti að hefjast næsta lota í
friðarferli því sem Pastrano hleypti
af stokkunum í janúar sl., en henni
var frestað á síðustu stundu þar til
20. júlí nk. Er ástæðan sögð vera að
leyfa eigi alþjóðlegum eftirlitsaðilum
að kanna aðstæður og leiðtogum
skæraliðahópa að safnast saman.
■ Ný bylgja mannrána/29