Morgunblaðið - 08.07.1999, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1999 31
FERÐALÖG
Nýtt
gisti-
heimili á
Þórshöfn
Þórshöfn. Morgunblaðið.
GISTIHEIMILIÐ Lyngholt var
opnað fyrir skömmu og er það ungt
par, sem á rætur sínar hér í byggð-
arlaginu, sem stendur að þessu
framtaki en það eru Karen Rut
Konráðsdóttir og Ólafur Birgir Vig-
fússon. Lyngholt er reisulegt stein-
hús; kjallari, hæð og ris og stendur
við Langanesveg 12. í húsinu eru
fjögur svefnherbergi, eldhús, setu-
stofa með sjónvarpi og baðherbergi;
gistirýmið er fyrir átta manns.
Lyngholt er vel staðsett rétt hjá
nýju íþróttamiðstöðinni, þar sem
hægt er að komast í sund og gufu,
tækjasal, nudd, trimmform og tur-
bóljósabekk.
Gistiheimili í ömmuhúsi
Það er áhrifaríkt framtak þegar
ungt fólk byggir upp í heimabyggð
sinni og hefur húsið Lyngholt ef-
laust nokkra sérstöðu hjá Karen og
Ólafi Birgi. Það voru móðurforeldr-
ar Karenar sem upphaflega byggðu
húsið og nefndu Lyngholt en eftir
þeirra dag var húsið selt og hefm-
verið í eigu tveggja annarra aðila
þar til Karen og Oli eignuðust það
og réðust í endurbætur og breyting-
ar. Að sögn Karenar hefur nú
draumur hennar orðið að veruleika
því þegar hún var lítil hjá ömmu
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir.
ÓLAFUR Birgir og Karen Rut framan við gistiheimilið Lyngholt.
Hestaleiga og reiðsýn-
ingar á Kvíarhóli
Á KVÍARHÓLI í Ölfusi reka hjónin
Gunnar Sigtryggsson og Guðmunda
Hulda Jóhannesdóttir hestaleiguna
Eðalhesta, ásamt því að bjóða upp á
gistingu. Gistingin er með morgun-
verði og einnig er hægt að komast í
heitan pott. Starfsemin hefur verið í
uppbyggingu undanfarin tvö ár en
komst í gang að fullu í vor.
Á staðnum er nýtt 25 hesta hús og
einnig 240 fermetra reiðskemma.
„Reiðskemman nýtist vel til að æfa
óvana áður en lagt er í hann,“ segii’
Gunnar. Hestaferðirnar eru allar
miðaðar við eina dagleið, eða frá ein-
um upp í átta tíma. Er þá jafnan far-
ið um allt Ölfusið, upp með Ingólfs-
fjalli eða jafnvel yfir í Grafninginn.
„Hérna kemur fólk sem ferðaskrif-
stofumar senda hingað sem og hóp-
ar frá fyrirtækjum. Þetta eru bæði
Islendingar og útlendingar,“ segir
Gunnar. Það er líka grillaðstaða fyrir
hendi á Kvíarhóli og hægt er að setja
upp langborð í reiðskemmunni.
Haldnar eru reiðsýningar fyrir
hópa ef þess er óskað en það er sýn-
ingarvöllur á staðnum. Segir Gunnar
að þetta sé gert að fordæmi sýninga
Hestasports á Vindheimamelum og
bendir á að þessi siður mætti gjarnan
breiðast um landið. Kvíarhóll er aust>
an við Ölfushöllina, milli Hveragerðis
og Selfoss, 45 km frá Reykjavík.
sinni í þessu húsi sagði hún alltaf að
hún ætlaði að búa í Lyngholti þegar
hún yrði stór.
Mikill tími og vinna fór í að gera
húsið upp en Karen og Ólafur Birg-
ir eru bjartsýn og vonast til að þau
hafi árangur sem erfiði.
Ferðir út á Langanes vinsælar
Mikið hefur verið um ferðafólk á
Þórshöfn og nágrenni það sem af er
sumri og er mál manna að fleira
fólk hafi heimsótt byggðarlagið það
sem af er sumri núna heidur en allt
sumarið í fyrra. Ferðir út á Langa-
nes verða sífellt vinsælli og em
augu fólks að opnast fyrir þeirri
náttúmperlu sem Langanesið er og
æ fleiri leggja leið sína þangað. Það
ætti því að vera bjart framundan
hjá aðilum í ferðaþjónustu og veð-
urguðirnir hafa verið þeim hliðhollir
síðustu vikumar.
OSTAMÓT, strokkur og þvottabretti. Allt gamlir
nytjahlutir sem fylgdu húsinu.
greiddi fyrir gistinguna með mál-
verkum.
Starfsemi lá niðri í 5 ár
Árið 1988 var reksturinn leigður
út og við honum tóku Ólína Geirs-
dóttir og Steinþór Ólafsson. Þau
sáu um reksturinn í eitt ár en þá
tóku við Helga Sigurðardóttir og
Viðar Aðalsteinsson. Þau ráku húsið
sem heilsárs gistihús þrátt fyrir að
lítið væri að gera yfir vetrartímann.
Þau hættu rekstrinum árið 1993 en
þá var svo komið að húsið þurfti
mikils viðhalds við og hafði haft
undanþágu frá Branamálastofnun
til þess að geta haldið uppi starf-
semi. Það var því engin starfsemi í
húsinu þar til árið 1998 þegar af-
komandi íyrstu íbúa hússins, Jóns
og Margrétar, Gunnlaugur Jónas-
son, og kona hans, Hulda Daníels-
dóttir, keyptu húsið og gerðu það
upp. Þau luku endurbótum á Gisti-
húsinu í fyrrasumar. Ekki er þó
heildarendurbótum fulllokið því þau
gera ráð fyrir að gera upp kjallar-
ann og opna þar fundar- og veislu-
sal.
Einstakt hús á landsvísu - aftur
í hendur fjölskyldunnar
Húsið fékk styrk frá húsfriðunar-
nefnd og er því ætlað að varðveitast
að mestu leyti í sinni upprunalegu
mynd. I umsögn nefndarinnar um
viðgerðir og framtíð hússins segir:
„Gistihúsið er stærsta steinhús á
Austurlandi frá þessu tímabili, en
tími steinhúsa reið snemma í garð í
þessum landshluta. Það hefur varð-
veist tiltölulega lítið breytt frá
fyrstu tíð, er glæsilegt á að líta, í
fallegum hlutfóllum með vönduðum
skreytingum umhverfis glugga og
við inngang. Það stendur í fögra
umhverfi og er órofa hluti af því.
Það er ekki bara einstakt fyrir
Egilsstaði heldur á landsvísu."
Gistihúsið á Egilsstöðum var opnað
á ný í júní 1998. Jón Bergsson,
frambyggi hússins, var langafi
Gunnlaugs og er því húsið og starf-
semi þess komið í hendur afkom-
enda.
Heimildir era sóttar í Egilsstaða-
sögu og í umsögn húsfriðunarnefnd-
ar um Gistihúsið á Egilsstöðum.
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Kynning
í dag kl. 14-18 í
Hagkaup - Skeifunni,
Vesturbæjar Apóteki og
Apótekinu Iðufelli.
- Kynningarafsláttur
SEGLAGERÐIN
Stofnað 1913
ÆGIR
Eyjarslóð 7 Reykjavík Sími 511 2200
I
I
1