Morgunblaðið - 08.07.1999, Side 31

Morgunblaðið - 08.07.1999, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1999 31 FERÐALÖG Nýtt gisti- heimili á Þórshöfn Þórshöfn. Morgunblaðið. GISTIHEIMILIÐ Lyngholt var opnað fyrir skömmu og er það ungt par, sem á rætur sínar hér í byggð- arlaginu, sem stendur að þessu framtaki en það eru Karen Rut Konráðsdóttir og Ólafur Birgir Vig- fússon. Lyngholt er reisulegt stein- hús; kjallari, hæð og ris og stendur við Langanesveg 12. í húsinu eru fjögur svefnherbergi, eldhús, setu- stofa með sjónvarpi og baðherbergi; gistirýmið er fyrir átta manns. Lyngholt er vel staðsett rétt hjá nýju íþróttamiðstöðinni, þar sem hægt er að komast í sund og gufu, tækjasal, nudd, trimmform og tur- bóljósabekk. Gistiheimili í ömmuhúsi Það er áhrifaríkt framtak þegar ungt fólk byggir upp í heimabyggð sinni og hefur húsið Lyngholt ef- laust nokkra sérstöðu hjá Karen og Ólafi Birgi. Það voru móðurforeldr- ar Karenar sem upphaflega byggðu húsið og nefndu Lyngholt en eftir þeirra dag var húsið selt og hefm- verið í eigu tveggja annarra aðila þar til Karen og Oli eignuðust það og réðust í endurbætur og breyting- ar. Að sögn Karenar hefur nú draumur hennar orðið að veruleika því þegar hún var lítil hjá ömmu Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir. ÓLAFUR Birgir og Karen Rut framan við gistiheimilið Lyngholt. Hestaleiga og reiðsýn- ingar á Kvíarhóli Á KVÍARHÓLI í Ölfusi reka hjónin Gunnar Sigtryggsson og Guðmunda Hulda Jóhannesdóttir hestaleiguna Eðalhesta, ásamt því að bjóða upp á gistingu. Gistingin er með morgun- verði og einnig er hægt að komast í heitan pott. Starfsemin hefur verið í uppbyggingu undanfarin tvö ár en komst í gang að fullu í vor. Á staðnum er nýtt 25 hesta hús og einnig 240 fermetra reiðskemma. „Reiðskemman nýtist vel til að æfa óvana áður en lagt er í hann,“ segii’ Gunnar. Hestaferðirnar eru allar miðaðar við eina dagleið, eða frá ein- um upp í átta tíma. Er þá jafnan far- ið um allt Ölfusið, upp með Ingólfs- fjalli eða jafnvel yfir í Grafninginn. „Hérna kemur fólk sem ferðaskrif- stofumar senda hingað sem og hóp- ar frá fyrirtækjum. Þetta eru bæði Islendingar og útlendingar,“ segir Gunnar. Það er líka grillaðstaða fyrir hendi á Kvíarhóli og hægt er að setja upp langborð í reiðskemmunni. Haldnar eru reiðsýningar fyrir hópa ef þess er óskað en það er sýn- ingarvöllur á staðnum. Segir Gunnar að þetta sé gert að fordæmi sýninga Hestasports á Vindheimamelum og bendir á að þessi siður mætti gjarnan breiðast um landið. Kvíarhóll er aust> an við Ölfushöllina, milli Hveragerðis og Selfoss, 45 km frá Reykjavík. sinni í þessu húsi sagði hún alltaf að hún ætlaði að búa í Lyngholti þegar hún yrði stór. Mikill tími og vinna fór í að gera húsið upp en Karen og Ólafur Birg- ir eru bjartsýn og vonast til að þau hafi árangur sem erfiði. Ferðir út á Langanes vinsælar Mikið hefur verið um ferðafólk á Þórshöfn og nágrenni það sem af er sumri og er mál manna að fleira fólk hafi heimsótt byggðarlagið það sem af er sumri núna heidur en allt sumarið í fyrra. Ferðir út á Langa- nes verða sífellt vinsælli og em augu fólks að opnast fyrir þeirri náttúmperlu sem Langanesið er og æ fleiri leggja leið sína þangað. Það ætti því að vera bjart framundan hjá aðilum í ferðaþjónustu og veð- urguðirnir hafa verið þeim hliðhollir síðustu vikumar. OSTAMÓT, strokkur og þvottabretti. Allt gamlir nytjahlutir sem fylgdu húsinu. greiddi fyrir gistinguna með mál- verkum. Starfsemi lá niðri í 5 ár Árið 1988 var reksturinn leigður út og við honum tóku Ólína Geirs- dóttir og Steinþór Ólafsson. Þau sáu um reksturinn í eitt ár en þá tóku við Helga Sigurðardóttir og Viðar Aðalsteinsson. Þau ráku húsið sem heilsárs gistihús þrátt fyrir að lítið væri að gera yfir vetrartímann. Þau hættu rekstrinum árið 1993 en þá var svo komið að húsið þurfti mikils viðhalds við og hafði haft undanþágu frá Branamálastofnun til þess að geta haldið uppi starf- semi. Það var því engin starfsemi í húsinu þar til árið 1998 þegar af- komandi íyrstu íbúa hússins, Jóns og Margrétar, Gunnlaugur Jónas- son, og kona hans, Hulda Daníels- dóttir, keyptu húsið og gerðu það upp. Þau luku endurbótum á Gisti- húsinu í fyrrasumar. Ekki er þó heildarendurbótum fulllokið því þau gera ráð fyrir að gera upp kjallar- ann og opna þar fundar- og veislu- sal. Einstakt hús á landsvísu - aftur í hendur fjölskyldunnar Húsið fékk styrk frá húsfriðunar- nefnd og er því ætlað að varðveitast að mestu leyti í sinni upprunalegu mynd. I umsögn nefndarinnar um viðgerðir og framtíð hússins segir: „Gistihúsið er stærsta steinhús á Austurlandi frá þessu tímabili, en tími steinhúsa reið snemma í garð í þessum landshluta. Það hefur varð- veist tiltölulega lítið breytt frá fyrstu tíð, er glæsilegt á að líta, í fallegum hlutfóllum með vönduðum skreytingum umhverfis glugga og við inngang. Það stendur í fögra umhverfi og er órofa hluti af því. Það er ekki bara einstakt fyrir Egilsstaði heldur á landsvísu." Gistihúsið á Egilsstöðum var opnað á ný í júní 1998. Jón Bergsson, frambyggi hússins, var langafi Gunnlaugs og er því húsið og starf- semi þess komið í hendur afkom- enda. Heimildir era sóttar í Egilsstaða- sögu og í umsögn húsfriðunarnefnd- ar um Gistihúsið á Egilsstöðum. Súrefnisvörur Karin Herzog Kynning í dag kl. 14-18 í Hagkaup - Skeifunni, Vesturbæjar Apóteki og Apótekinu Iðufelli. - Kynningarafsláttur SEGLAGERÐIN Stofnað 1913 ÆGIR Eyjarslóð 7 Reykjavík Sími 511 2200 I I 1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.