Morgunblaðið - 16.07.1999, Page 56
'f>6 FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1999
FÓLK í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ
Nr. var vikur Diskur Flytjandi Otgefandi
1. 12 6 Boyzone By Request (Greatest hits) Universal
2. 4 41 Gling gló Björk Smekkleyso
3. 3 21 Gold Abba Universol
4. 8 39 Sings Bocharach & David Dionne Warvick Music Collection
5. 18 4 lcelandic Folk Favourites Ýmsir islenskir Tónor
6. 7 18 Greatest Hits 2Pac EMI
7. 2 Mensch Maschine Kraftverk EMI
8. 9 6 Best of Van Morrison Universal
9. 5 12 Pottþétt rapp Ýmsir Pottþétt
10. 2 Blue Line Mossive Attack EMI
11. 2 Check Your Head Beastie Boys EMI
12. 28 4 Romanza Andrea Bocelli Universal
13. 38 8 Under a Blood Red Sky U2 Universal
14. 43 8 Ljúflingslög Sigrún og Selma Spor
15. 6 18 Gullna hliðið Sólin hans Jóns míns Spor
16. 137 5 íslandsklukkur Ýmsir M&R Records
17. 2 My Iron Lung Radiohead EMI
18. 10 10 Rain Dogs Tom Waits Universal
19. 20 10 Violent Femmes Violent Femmes Universol
20. 99 8 License to III Beastie Boys Universal
Unnið of PricewaterhouseCoopers í samstorfi við Sambond hljómplötufromieiðendo og Morgunblaðið.
Ljúfsár snilld
>
STRÁKARNIR í Boyzone.
Drengirnir
í Boyzone
á toppnum
BREIÐSKÍFAN „By request“
sem inniheldur úrval vinsælustu
laga hljíimsveitarinnar Boyzone,
.'■rírónir nú efsta sæti listans yfír
mest seldu, gömlu góðu plötum-
ar. Björk og Dianne Warvick
færa sig upp um nokkur sæti.
Björk í annað sæti og Dianne í
það fjórða, en þær hafa báðar
verið í um tíu mánuði á listan-
um. Abba Gold situr sem fastast
í þriðja sætinu og hefur nú verið
í fimm mánuði á listanum.
Ferðamennirnir selja mark sitt
á listann og rýkur „Icelandic
folk favorites" upp í fimmta sæti
listans og íslandsklukkur koma
nýjar inn á listann og fara beint
í sextánda sætið.
Hljómsveitin Kraftwerk kem-
ur ný inn á listann og fer beint í
sjöunda sætið með „Mensch
mashine", Massive attack fer
beint í tíunda sætið með „Blue
line“ og Beastie boys fara beint í
það ellefta með „Check your
head.
ÉG FÉKK góða sendingu úr Svía-
ríki fyrir rúmum tveimur árum eða
svo. Reyndar má segja að Svíar
hafi ekki í annan tíma látið svo gott
af sér leiða. Sænsk stúlka, Helen
vinkona mín, sendi mér plötuna If
You’re Feeling Sinister, með
skosku hljómsveitinni Belle and
Sebastian, á segulbandi.
Tónlistin var einfaldlega frábær,
svo notað sé kunnuglegt hugtak.
Hugmyndaauðgi Stuarts Mur-
dochs, sem er aðallagasmiður
hópsins, vakti aðdáun mína. Lög
sveitarinnar eru „hefðbundin"
popplög, minna svolítið á sjöunda
og áttunda áratuginn, en eru um
leið ískrandi frumleg, jafnast jafn-
vel á við Bítlalögin í þeim efnum.
Áður hafði ég haldið að erfitt eða
ógerlegt væri að semja slík lög nú
á tímum.
En í kjölfar þessarar góðu send-
ingar frá frænku vorri í Svíþjóð
keypti ég semsagt allt sem hægt
var að kaupa með Belle and
Sebastian. Það var að sjálfsögðu
ekki hægt hér á landi, en Netið
kom að góðum notum sem fyrri
daginn.
Eina plötu var þó ekki hægt að
panta. Það var fyrsta afurð flokks-
ins, Tigermilk. Hún hafði verið gef-
in út árið 1996 í aðeins 1.000 ein-
tökum, þar að auki bara á vínil-
plötu.
Nú hefur Tigermilk verið endur-
útgefin og mér barst eintak fyrir
skömmu. Svo maður noti eina klisj-
una enn er skemmst frá því að
segja að þessi plata er stórkostleg.
Reyndar má segja að seinni verk
B&S fölni í samanburðinum, þótt
þau séu verkum flestra annarra
æðri.
Tigermilk hefst á laginu The
State I am In, sem kom seinna út á
plötunni Dog On Wheels. Þessi út-
gáfa er þeirri seinni fremri og lagið
sjálft er meiriháttar, svo enn sé
notuð gamalkunnug klisja. Gæsa-
húðin bankar á dyrnar.
Svo rekur hvert meistaraverkið
annað. Næst er Expectations,
sem minnir svolítið á La Pastie
De La Bourgeoisie af 3..6..9
Seconds of Light sem kom út
1997. Kannski eru það þó bara
blásturshljóðfærin sem eru svip-
uð. En þvílíkt lag!
She’s Losing It heitir næsta lag,
sveipað ljúfsárum trega. „When
the first cup of coffee tastes like
washing-up, she knows she’s losing
it.“ Nánast fullkomið lag, eins og
flest hin.
Þá er það lagið You’re Just a Ba-
hy og gæsahúðin hverfur ekki enn.
Electronic Renaissance er rafræn
fullkomnun, með eldgömlum
trommuheila og skemmtilegum
hljóðgervli frá fyrri hluta níunda
áratugarins eða seinni hluta þess
áttunda. Gæsahúðin magnast.
Þá er það lagið I Could be Dr-
eaming, Mig gæti verið að dreyma.
Já, svei mér þá. We Rule 'the
School: „Do something pretty
while you can, don’t fall asleep.“
My Wandering Days are Over er
kannski lélegasta lagið á plötunni.
Frábært lag. í laginu I Don’t Love
Anyone minnir söngur Stuarts svo-
lítið á Sice úr sveitinni sálugu Boo
Radleys. Hvaða máli skiptir það?
Engu.
Síðasta lagið, Mary Jo hefst á
undurfögrum samleik píanós og
þverflautu, þá kemur kassagítar,
bassi, rödd og loks trommur ásamt
rafgítar. Hinn ljúfsári tregi er yfir-
þyrmandi.
Loks, tíu mínútum eftir að hafa
lokið við að hlusta á Tigermilk,
þegar amstur hversdagslífsins tek-
ur við, hverfur gæsahúðin.
9{œiur^aíinn
Smiðjuvegi 14, %0-pavogi, sími 587 6080
V
Dans- og skemmtistaður
í kvöld og laugardagskvöld
leika Hilmar Sverrisson og
Anna Vilhjálms
Opið ffrá kl. 22—3
Næturgalinn — alltaf lifandi tónlist