Morgunblaðið - 20.07.1999, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hlaup í Jökulsá á Sólheimasandi eftir umbrot í Mýrdalsjökli
Morgunblaðið/Árni Sæberg
VIÐ upptök Jökulsár í Sólheimajökli. Ekki er vitað nákvæmlega hvenær hlaupið hófst, en það náði hámarki seint aðfaranótt sunnudags.
„Smugukvótan-
um“ úthlutað
Tvö skip
fá yfír
300 tonn
FISKISTOFA kynnti í gær úthlut-
un aflahlutdeildar íslenskra skipa í
þorski í Barentshafí á þessu ári. Is-
lendingar eiga rétt á að veiða sam-
tals um 8.900 tonn af þorski í
norskri og rússneskri fiskveiðilög-
sögu á þessu ári, samkvæmt Smugu-
samningnum svokallaða.
Aflahlutdeild íslensku skipanna
miðast við 7.231 tonn en afganginn,
um 1.669 tonn, þurfa íslenskar út-
gerðir að greiða Rússum fyrir.
Kvótahæsta skipið er Svalbarði SI
með um 4,5% hlutdeild en það jafn-
gildir um 329 tonnum af heildar-
kvóta ársins. Þá kemur Arnar HU
með 4,3% hlutdeild eða 316 tonn.
Önnur skip fá úthlutað undir 300
tonnum en alls fá 10 skip úthlutað
200 tonnum eða meira.
Alls fengu 77 skip hlutdeild í
heildarkvóta íslendinga á svæðinu
en úthlutað var eftir veiðireynslu
síðustu 6 ára og tekið mið af þremur
bestu árunum. Fjöldi skipa fær út-
hlutað á bilinu 10-50 tonn og því er
ljóst af sameina þarf heimildir á
fæn-i skip. Búist er við að fyrstu
skipin haldi á veiðarnar innan
skamms.
Eldgos líkleg skýring
CHRISTIAN Holm svaf í bækistöðvum á Mýrdals-
jökli aðfaranótt sunnudags, skammt frá staðnum
þar sem sigketillinn myndaðist, en varð einskis var.
PÁLL Einarsson, jarðeðl-
isfræðingur á Raunvís-
indastofnun Háskólans,
segir að lfklegasta skýr-
ingin á hlaupi í Jökulsá á
Sólheimasandi um heig-
ina sé að eldgos hafi orð-
ið í Mýrdalsjökli. Hann
telur umbrotin þar vera
merki um aukna virkni á
Kötlusvæðinu sem fylgj-
ast þurfi vel með. Sigket-
ill, sem er um 1,5 km í
þvermál, myndaðist á
barmi öskjunnar sem
tengist Kötlueldstöðinni í
jöklinum.
Páll segir að helstu vís-
bendingar fyrir því að
gos hafi orðið sé röð atburðanna.
Flóðið hafi ekki farið af stað fyrr
en eftir óróahviðuna í jöklinum
og því hafi það ekki valdið henni.
„Það hafa verið flóð í ánni áð-
ur, en þá bara vegna þess að lón í
giljunum stíflast. Þá hafa komið
hefðbundin jökulhlaup, en svona
hlaup frá sigkatli uppi í jöklinum
eru áður óþekkt fyrirbrigði
þarna. Þessi atburður markar því
ótvírætt einhvers konar breyt-
ingu.“
Páll segir að vandlega verði
fylgst með þróun mála í fram-
haldinu, enda sé Katla til margra
hluta vís. Verður það gert með
mælingum í grennd við eldstöð-
ina, með radarmyndum úr gervi-
tunglum og með því að kanna
nánar hvaða efni hlaupið skildi
eftir í farvegi Jökulsár.
Almannavarnanefnd Mýrdals-
hrepps er í viðbragðsstöðu vegna
atburðanna, og er fylgst með
vatnsmagni í ám, og ferðamenn á
vinsælum leiðum upp með Jök-
ulsá eru varaðir við því að tjalda
þar og beðnir um að gæta vel að
merkjum í umhverfinu.
Svaf á jöklinum en
varð einskis var
Fyrirtækið Geysir hefur tekið
upp samstarf við tvo Dani, þá
Dennis Pedersen og Christian
Holm, sem bjóða vélsleðamönnum
upp á ferð á hundasleða þegar á
jökulinn er komið. Hafa þeir
bækistöðvar uppi á jöklinum,
skammt frá þeim stað þar sem
sigketillinn myndaðist, og þar
svaf Christian Holm
ásamt 16 sleðahundum
aðfaranótt sunnudagsins,
þegar hræringarnar
voru hvað mestar. Var
hann sóttur upp á jökul-
inn og náði Morgunblað-
ið tali af honum er hann
kom í skála Geysis við
jökulbrúnina um hádeg-
isbil á sunnudag.
Holm kveðst hafa orð-
ið undrandi er hann
frétti af umbrotunum
þar sem hann varð
einskis var sjálfur. „Ég
heyrði ekki neitt og
hundarnir virðast ekki
hafa orðið nokkurs varir
heldur, þar sem þeir höfðu hægt
um sig. Ég vissi ekkert hvað var
um að vera fyrr en Dennis
hringdi í mig og sagði mér að
eitthvað væri að gerast í jöklinum
og að ég og hundarnir yrðum
sóttir.“
Páll Einarsson segir það ekki
óeðlilegt að Holm skuli ekki hafa
orðið var við hræringarnar í jökl-
inum. „Það er til frægt dæmi frá
árinu 1955 þegar svona atburðir
gerðust siðast á þessum slóðum.
Þá mynduðust tveir stórir sig-
katlar í austanverðum Mýr-
dalsjökli, nánast beint undir fót-
um mælingaleiðangurs. Leiðang-
ursmenn urðu hins vegar varla
varir við nokkurn hlut.“
■ Vísbending/46-47
Þórhallur Gunnlaugs-
son handtekinn í
Kaupmannahöfn
Fluttur til
landsins í
fylgd lög-
reglu
LÖGREGLUMAÐUR í Kaup-
mannahöfn handtók á sunnu-
dagsmorgun Þórhall Ölver
Gunnlaugsson, sem eftirlýstur
var vegna rannsóknar lögregl-
unnar á drápi Agnars W. Agn-
arssonar, sem fannst látinn í
íbúð sinni við Leifsgötu sl.
fimmtudag. Var hinn hand-
tekni úrskurðaður í gæslu-
varðhald til 23. júlí í Kaup-
mannahöfn og fóru íslenskir
lögreglumenn í Reykjavík ut-
an um hádegisbil í gær til að
sækja Þórhall í því skyni að
færa hann til skýrslutöku hjá
lögreglu. Voru lögreglumenn-
irnir væntanlegir með Þórhall
til landsins undir miðnætti í
nótt. Að lokinni skýrslugerð
liggur fyrir að meta gögn í
málinu og taka ákvörðun um
framhaldið.
Fyrir lá handtökuskipun
Héraðsdóms Reykjavíkur og
ákvörðun dómsmálaráðuneyt-
isins um framsalsbeiðni. Mun
Þórhallur hafa samþykkt að
fara til Islands svo ekki var
þörf á að fá hann framseldan
með formlegum leiðum sam-
kvæmt upplýsingum hjá emb-
ætti ríkislögreglustjóra.
Var á gangi við Aðal-
járnbrautarstöðina
Þórhallur var handtekinn á
Aðaljárnbrautarstöðinni þar
sem hann var þar á gangi en
danski lögreglumaðurinn
þekkti Þórhall af ljósmyndum
sem dreift hafði verið til allra
lögreglustöðva í Danmörku og
víðar. Samkvæmt upplýsing-
um frá embætti ríkislögreglu-
stjóra gekk handtakan átaka-
laust.
Ekki liggja fyrir neinar
upplýsingar um aðsetur Þór-
halls á meðan hann dvaldi í
Danmörku þá fjóra daga sem
hann var þar fram að handtök-
unni, en hann fór frá íslandi
að kvöldi miðvikudags í síð-
ustu viku.
Lögreglan í Reykjavík hafði
afskipti af hinum grunaða að-
faranótt miðvikudags í síðustu
viku og færði hann á lögreglu-
stöð vegna gruns um ölvun-
arakstur. Að hálfum sólar-
hring liðnum var honum
sleppt úr haldi þar sem engin
tengsl fundust við glæpsam-
legt athæfi. Blóðsýni var tekið
úr fótum hans, sem grunur er
nú um að sé úr Agnari heitn-
um, og var sýnið sent til Nor-
egs til DNA-greiningar. Er
niðurstöðu að vænta á allra
næstu dögum.
Á ÞRIÐJUDÖGUM:
lleimili
asimiR
/Mmm
ÉrWyMf*gMt\
Sögulegar sviptingar og
skoskur sigur / B4
Jakob tvíbætti eigið met
í Moskvu / B1
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is