Morgunblaðið - 20.07.1999, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 20.07.1999, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1999 23 ERLENT Mósailc á ákurevri - 690691*200001 Fnmibaidssagan Hættiðesur ieilOBr I hverri viku reyingurinn Fyrsta Bandaríkj aferð nýs forsætisráðherra fsraels Norður-Irland Gefur sér 15 mánuði til að semja við araba Washington. Reuters. ^ Reuters EHUD Barak, forsætisráðherra Israels, skálar við Bill Clinton Banda- ríkjaforseta í veislu í Hvíta húsinu á sunnudagskvöld. EHUD Barak, forsætisráðherra Israels, kvaðst á sunnudag búast við því að vita innan fimmtán mánaða hvort ísraelar gætu náð friðarsam- komulagi við Palestínumenn, Sýr- lendinga og Líbana. „Stund sannleikans er að renna upp,“ sagði forsætisráðherrann í viðtali við NBC-s,j ónvarpið. „Við þurfum að standast þetta ögrandi viðfangsefni, binda enda á hundrað ára átök og styrkja, fremur en veikja, Israelsríki.“ Barak snæddi kvöldverð með Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu á sunnudagskvöld en fréttin um að flugvél Johns F. Kennedys yngri hefði farist varpaði skugga á veisl- una. Barak vottaði bandarísku þjóðinni samúð sína vegna flugslyssins og Bill Clinton forseti tengdi slysið við friðarviðræðumar í Miðausturlönd- um. „Þetta minnir okkur aftur á að líf mannsins er hverfult, að við dauð- legir menn þurfum að vera auð- mjúkir og þakklátir fyrir hvern dag, gera sem mest úr hverjum degi, og við verðum að takast á við þá skyldu okkar að stuðla að friði í Miðaustur- löndum í þessu ljósi,“ sagði Clinton. Barak var í fyrstu ferð sinni til Bandaríkjanna sem forsætisráð- herra og skýrði Clinton frá helstu skilyrðum sínum fyrir friðarsam- komulagi við Palestínumenn. Að sögn Davids Levys, utanríkisráð- herra Israels, tók Barak fram að Israelsstjóm myndi ekki afsala sér öllum landsvæðunum sem ísraelar hertóku 1967, Jerúsalemborg yrði öll undir stjóm Israela, ekki yrði hróflað við flestum byggðum gyð- inga á Vesturbakkanum og ísraelar myndu ekki fallast á erlent herlið vestan Jórdanar. Palestínskum hreyfingum sagt að leggja niður vopn Félagar í róttækum hreyfmgum Palestínumanna skýrðu frá því í gær að Sýrlendingar hefðu beðið þær um að hætta vopnaðri baráttu sinni gegn ísraelum þar sem sýr- lenska stjómin vildi friðmælast við þá. Abed-Halim Khaddam, varafor- seti Sýrlands, átti fund með leiðtog- um hreyfinganna í Damaskus í byrjun júlí og sagði þeim að þær yrðu nú að „hætta vopnaðri baráttu sinni, stofna stjórnmálaflokka og einbeita sér að félagslegum málefn- um“, að sögn eins heimildarmann- anna. Hann bætti við að Hizbollah- hreyfingin í Líbanon hefði einnig verið beðin um að hætta árásum sínum á norðurhluta ísraels. Ummæli Aherns vekja reiði sam- bandssinna Belfast. Reuters. EINN af forystumönnum sam- bandssinna á Norður-írlandi gagn- rýndi Bertie Ahem, forsætisráð- herra Irlands, í gær harðlega fyrir orð sem hann lét falla á sunnudag en þá sagði Ahern að ekki væri ör- uggt að írski lýðveldisherinn (IRA) myndi standa við skuldbind- ingar um að afvopnast fyrir maílok árið 2000 eins og friðarsamkomu- lagið, sem kennt er við föstudaginn langa, kveður á um. Sagði Ken Maginnis, sem er þingmaður fyrir Sambandsflokk Ulster (UUP), að ummæli Ahems gætu reynst náð- arhöggið fyrir friðarumleitanir á N-írlandi og að öll frekari sam- skipti sambandsinna við Ahern væru í óvissu vegna þeirra. „í Ijósi þessara yfirlýsinga verð- ur afar erífitt fyrir sambandssinna að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið í viðræðum við forsætis- ráðherrann nema hann geri frekari grein fyrir afstöðu sinni,“ sagði Maginnis. „Ef eitthvað eitt ógnar alvarlega friðarsamkomulaginu þá held ég að það sé þessi yfirlýsing." Ahem hitti Gerry Adams, leið- toga Sinn Féin, stjórnmálaarms IRA, í gær en á sunnudag sagði Ahern að hann þættist vita að IRA myndi vilja meiri tíma til að af- vopnast í kjölfar þess að tilraunir til að mynda heimastjórn fóru út um þúfur í síðustu viku, og friðar- umleitunum þar með stefnt í óvissu. Eins og hann horðar ■ ■8 ■ ■■ elskar hann Lifðu fyrir sjálfa pig Prescott „stéttvís“ áný Lundúnum. The Daily Telegraph. JOHN Prescott, aðstoðarfor- sætisráðherra Bretlands, sagð- ist á sunnudag - þvert á fyrri yfirlýsingar - telja sig til verka- mannastéttar. Prescott, sem olli miklu írafári fyrir um þremur ámm er hann lýsti því yfir að hann teldi sig vera millistéttar- mann, lét þessi ummæli falla í sjónvarpsþætti á BBC, í fyrsta sinn síðan kastaðist í kekki með honum og Bert Prescott, föður hans, sem telur son sinn vera af verkamannastétt. Talið er að ummæli föðurins hafi vakið reiði Johns Prescotts en í viðtalinu sagði hann að þau væru ekki orsök illinda milli feðganna. „Mér fínnst það fremur kjánalegt að ræða um að vera fæddur í „verkamanna- stétt eða millistétt“. [...] Ég lít á þetta sem eins konar brandara. Við erum of ppptekin af stétt í þessu landi. I hjarta mínu er ég úr verkamannastétt, þar hef ég alltaf verið og þaðan kom ég,“ sagði Prescott. PROFAÐU umt>m kosti er kjörínn í fjölskylduferðalagið. Þessi jepplingur er á góðu verði og hefur fengið frábærar viðtökur. Sýnishorn úr söluskrá Markmið okkar er að tryggja viðskiptavinum örugg og áhyggjulaus bílaviðskipti. Allir notaðir bílar hjá Toyota fara i gegnum vandað söluskoðunarferli og eru flokkaðir og verðlagðir samkvæmt þvi. Auk þess er boðið upp á eftirfarandi nýjungar: ókeypis skoðun, 14 daga skiptirétt og allt að eins árs ábyrgð. Rav 4 • Arg. 1996 • 2000 vél 5 dyra • Blágrár • Ekinn 87 þús. • Verð 1.610.000 kr. Rav 4 • Árg. 1996 • 2000 vél • 5 dyra • Blásans • Ekinn 65 þús. • 1.690.000 kr. Rav 4 • Árg. 1996 • 2000 vél 5 dyra • Blár • Ekinn 59 þús. 1.750.000 kr. Rav 4 • Árg. 1998 • 2000 vél 5 dyra • Sæblár • Ekinn 20 þús. • 1.950.000 kr. TOYOTA Betn notadir bflar Sími 563 4400
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.