Morgunblaðið - 20.07.1999, Page 24

Morgunblaðið - 20.07.1999, Page 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FLUGVÉL JOHNS F. KENNEDYS YNGRI FERST Þremenn- ingarnir taldir af Boston. Reuters. JOHN F. Kennedy yngri, Carolyn Bessette Kennedy, eiginkona hans, og Lauren Bessette, mágkona, lögðu af stað frá flugvellinum í Es- sex í New Jersey í eins-hreyfíls Piper Saratoga-vél Kennedys klukkan 20.38 og áætluðu að lenda í Martha’s Vineyard í Massaehu- setts, um einni og hálfri klst. síðar. Vélin skilaði sér aldrei á áfanga- stað. Rétt eftir klukkan tvö, að- faranótt laugardags, fjórum klst. eftir áætlaðan lendingartíma, var hringt í fulltrúa bandarísku strand- gæslunnar í Woods Hole og þeim tjáð að flugvél John F. Kennedys yngri sem átti að vera lent í Martha’s Vineyard, hefði ekki skil- að sér á réttum tíma. Um ein og hálf klukkustund leið uns leit hófst og flugvélin var skráð sem týnd. í dagrenningu var leit komin á fullan skrið og fínkembdu hundruð björg- unarsveitarmanna og hermanna um tíu þúsund ferkflómetra svæði sem liggur frá Long Island til Martha’s Vineyard í leit að vís- bendingum um hvað gerst hafði. Er leitin ein sú umsvifamesta sem framkvæmd hefur verið síðan flug- vél TWA fórst undan austurströnd Bandaríkjanna fyrir þremur árum. Brak úr vélinni fannst strax á laugardagsmorgun þegar höfuð- púði, teppabútar og hluti af flug- vélarskrokknum með lendingar- hjóli áföstu kom í leitirnar á ströndinni við Aquinnah, auk strigapoka sem merktur var Lauren Bessette. Gengu fulltrúar strandgæslunn- ar út frá því að Piper Saratoga vél- in hafi brotlent í sjónum u.þ.b. kíló- metra frá áætluðum lendingarstað í West Tisbury og á sunnudags- kvöld var talið að þau John, Caro- lyn og Lauren væru öll látin. „Það er alltaf einhver von, en er ákveðnar vísbendingar finnast verður maður, því miður, að vera búinn undir hið versta,“ sagði Gary L. Jones, liðsforingi í bandarísku strandgæslunni í viðtali við Boston Globe á sunnudag. Ekki vitað um flugleiðina I leitinni hafa tekið þátt um tutt- ugu þyrlur, flugvélar og strand- gæslubátar og hafa björgunar- menn nýtt sér hljóðsjár sem komið var með frá rannsóknarstofum í Martha’s Vineyard. Hins vegar telja björgunarmenn það vera afar erfitt að fínna flugvélina á svo stóru svæði án þess að fyrir liggi fleiri vísbendingar eða hljóðmerki frá talstöðvarbúnaði vélarinnar. Þá eykur það enn meir á vanda leitar- manna að Kennedy lét ekki vita um flugleið sína. Slíkt er ekki óalgengt en víst þykir að ef mönnum hefði verið kunnugt um áætlanir flug- mannsins þá væri leitin mun auð- veldari. Hafa menn gagnrýnt þann langa tíma er leið frá því strandgæslunni var gert viðvart uns leitaraðgerðir hófust. Hafa yfirmenn strandgæsl- unnar borið því við að yfírvöldum hafi ekki borist neitt kallmerki frá vélinni og því afráðið að hefja ekki leit fyrr en birti af degi sl. laugar- dag. Væri það hefðbundið í slíkum tilfellum. „Við leitum einnig á öðr- um hugsanlegum lendingarstöðum, í stað þess að senda flugvélar til leitar hingað og þangað,“ sagði Steve Roark, undirofursti í strand- gæslunni á fréttamannafundi í Pentagon á sunnudag. Þá sagði hann að leitin að flugvél Kennedys væri í engu frábrugðin leit að öðr- um flugvélum og að frægð þeirra sem saknað er hefði þar engin áhrif. „Leitaraðgerðir eru alltaf eins. Það er enginn munur á því LEITIN AÐ FLUGVÉL KENNEDYS Bandaríska strandgæslan hefur haldið áfram leit sinni að John F. Kennedy yngri sem talið er að hafi farist á föstudagskvöld, ásamt eiginkonu sinni og mágkonu, í flugslysi úti fyrir austurströnd Bandaríkjanna. Reuters LEITARBÁTAR lögreglunnar í Massachusetts halda frá Menemsha-smábátahöfhinni í Martha’s Vineyard í gær. j Eins-hreyfils Piper Saratoga flugvélin hélt frá flugvellinum i Fairfield í New Jersey á föstudagskvöld kl. 20.38, að staðartíma, og átti að lenda um tveimur klst. síðar á flugvellinum í Martha's Vineyard hvort fólk er frægt eða ekki,“ sagði Roark. Leitarsvæðið þrengt Flugskilyrði umrætt föstudags- kvöld eru aðeins talin hafa verið þokkaleg, aðallega vegna þoku- slæðings sem lá yfir sjónum. Skyggni var hins vegar um fimm km og sáust stjörnur og máni greinilega. Þar eð skyggni var ekki talið slæmt var Kennedy ekki í stanslausu sambandi við flugturn. Er vélin hvarf af ratsjám töldu flugumferðarstjórar því að hún hefði lent, heilu og höldnu. Leit hefur verið haldið áfram og reyna menn nú til hins ýtrasta að sannreyna hvað gerðist hið örlaga- ríka kvöld. Þær vísbendingar sem hafa fundist - í um eins km fjar- lægð frá landareign Jacqueline Kennedy Onassis heitinnar, móður Johns - hafa þegar gert mönnum kleift að þrengja leitarsvæðið og vonast menn til að unnt verði að finna brakið með aðstoð öflugra ratsjárleitartækja. John F. Kennedy yngri var nýliði í flugi og á hættulegasta skeiðinu á ferli flugmanns Ættlæg ásókn í áhættu New York, Washington. Reuters, AP, Daily Telegraph. AÐEINS 46 flugstundir voru skráð- ar í flugferilsskrá Johns F. Kenn- edys yngri þegar sá ferill varð ekki lengri. Að hann ætti sér yfirleitt flugfer- ilsskrá (,,log-bók“) hefði valdið móð- ur hans ómældri skelfingu. Jacqueline Kennedy Onassis, sem lézt úr krabbameini árið 1994, mátti ekki til þess hugsa að börnin hennar flygju í litlum flugvélum, og hefði að sögn fjölskylduvina gért hvað sem í hennar valdi hefði staðið til að aftra syni sínum frá því að setjast við stjórnvöl einnar slíkrar. Hann byrj- aði fyrst að læra að fljúga eftir and- lát móður sinnar. Hinn 38 ára gamli nýliði var á hættulegasta skeiðinu í ferli flug- manns, að sögn sérfróðra. Reynsla hans var ekki nægileg til að hann réði við allar aðstæður sem upp geta komið, en þó svo mikil að hann var tilbúinn til að takast á við nýjar áhættur, hefur Daily Telegraph eftir A1 Pregler, öryggismálafulltrúa hjá Flugmannafélagi Bandaríkjanna. „Þetta er mótandi reynslutímabil sem flestir okkar ganga í gegnum snemma á flugferlinum, og til allrar hamingju lifa flestir okkar fyrstu Reuters JOHN F. Kennedy forseti fylgist með átján mánaða syni sínum, John yngri, í Hvíta húsinu. skyssurnar af, þegar dómgreindin bregst,“ sagði hann. „Áhættufíkill" Áhugi forsetasonarins á ýmsum áhættusömum tómstundaiðkunum var vel þekktur. „Jackie vildi alltaf halda verndarvæng yfir honum en Kennedy-amir eru áhættufíklar,“ er haft eftir Steven Grossman, vini Kennedy-fjölskyldunnar og einum af fyrrverandi flokksformönnum Demókrataflokksins. Þegar John sté upp í flugvél sína sl. föstudagskvöld var nýbúið að taka vinstra fót hans úr plastgipsi, sem hann fékk eftir að hafa slasazt lítil- lega við svifdrekaflug á Martha’s Vineyard skömmu áður. Hann hafði einnig dálæti á siglingum niður straumharðar ár og kajaksiglingum. Sumarið 1997 lagði hann leið sína til íslands til að iðka þessa síðastnefndu íþrótt og fór á kajak ásamt nokkrum vinum sínum bandarískum um Jökul- firði og ísafjarðardjúp. Kváðust þeir félagar fara árlega í slíkar kajakróðr- arferðir á framandi slóðir. Hugur hans mun lengi hafa staðið til þess að fljúga. Hann tók einka- flugmannspróf í aprfl 1998. Skömmu síðar keypti hann sér Cessna Skyline 182, en það er flugvélartegund sem þykir henta byrjendum einkar vel, með föstu hjólastelli og lágum há- markshraða. Síðar ákvað hann að skipta í einka- flugvél af gerðinni Piper Saratoga PA 32 II HP. Hún er með 300 hest- afla hreyfil og inndraganlegan hjóla- búnað, sem gerir yfir 300 km hraða á klst. mögulegan en fyrir vikið meiri kröfur til flugmannsins. John Kennedy var ekki búinn að verða sér úti um blindflugsréttindi er hann lagði upp í hinzta flugið sl. föstudagskvöld. Þá var nærri orðið dimmt, mistur og lágskýjað. Flug- leiðin lá yfir opið haf og farkosturinn var eins hreyfils. Jafnvel reyndustu flugmenn eru sagðir reyna að komast hjá því að fljúga undir slíkum kring- umstæðum. Vinsælasti sproti ættarinnar John F. Kennedy yngri, sem sjálf- ur lét nægja á nafnspjaldi sínu að bera nafnið John Kennedy, fæddist þremur vikum eftir að faðir hans og nafni tók við embætti 35. forseta Bandaríkjanna, nánar tiltekið hinn 25. nóvember árið 1960. Hann var frægasti og vinsælasti sproti yngri kynslóðar Kennedy-ættarinnar, sem hefur auk forsetans foður hans alið af sér þingmenn, rfldssaksóknara og sendiherra, svo titlar nokkurra ætt- menna séu upp taldir. Útlit hans varð honum úti um titil- inn „kynþokkafyllsti núlifandi karl- maðurinn" í bandarískum slúður- tímaritum. Öruggt fas hans og útr geislun, áhuginn á pólitískum mál- efhum og hæfnin til að draga að sér athygli hvar sem hann kom vakti vonir hjá mörgum aðdáendum fjöl- skyldunnar um að hann ætti eftir að láta að sér kveða í stjórnmálum líkt og faðir hans, afi og frændur. Fá dæmi eru um aðra eins athygli og fylgdi öllum uppvexti Johns F. Kennedys yngra. Heimsfræg varð Ijósmynd sem tekin var af honum á þriðja ári að leika sér undir skrif- borði fóður síns í skrifstofunni í Hvíta húsinu. Og mörgum Banda- nTqamanninum er það ógleymanleg sjón, þegar snáði klæddur í bláan bamafrakka og stuttbuxur heilsaði að hermannasið við útför hins myrta forseta árið 1963 - snáðinn átti þriggja ára afimæli þann daginn. Eftir morðið á Kennedy forseta fluttist ekkjan, Jacqueline, til New York. Bömin urðu eftir þar á meðan á sjö ára hjónabandi móður þeirra við gríska kaupskipajöfurinn Aris- totle Onassis stóð, en hann lézt árið 1975. Jaequeline átti í harðri baráttu til að tryggja öryggi bama sinna og vemda þau fyrir sviðsljósinu, en eftir því sem John yngri óx úr grasi varð eftirspum almennings eftir myndum og fréttum af hinum íþróttamanns- lega og gjörvulega pilti nær óþrjót- andi. ;

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.