Morgunblaðið - 20.07.1999, Síða 25

Morgunblaðið - 20.07.1999, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FLUGVEL JOHNS F. KENNEDYS YNGRI FERST ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1999 25 Reuters JOHN F. Kennedy yngri við hiið móður sinnar heitinnar, Jacqueline Kennedy, og heilsar að hermannasið er lík föður hans, Johns F. Kenn- edys, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, er borið út úr St. Matthew dómkirkjunni 25. nóvember 1963. Harmsaga Kennedy- fjölskyld- unnar MEÐLIMIR Kennedy-fjölskyldunn- ar voru saman komnir um sl. helgi á Martha’s Vineyard til að vera við- staddir brúðkaup Rory, dóttur Ro- berts heitins Kennedys. Saga Kenn- cdy-fjölskyldunnar, sem oft hefur verið kölluð „konungsíjölskylda Bandaríkjanna“, er mörgum kunn. Frægðarljómi hefur leikið um með- limi hennar aftur í ættir og frá- sagnir af gleði, glaumi, framagirni, afrekum, glæsileika, mannúð, brostnum vonum, peningaveldi fjöl- skyldunnar og hneykslismálum henni tengdum hafa orðið tilefni til bókaskrifa og greina sem prýtt hafa forsíður blaða og tímarita um heim allan. Sorgin hefur þó sett mark sitt á sögu ijölskyldunnar og í kjölfar at- burða helgarinnar syrgir hún enn á ný, nú John F. Kennedy yngra, son- inn sem heilsaði að hermannasið aðeins þriggja ára gamall er faðir hans, John F. Kennedy, fyrrverandi forseti Bandarfkjanna, var borinn til grafar eftir að hafa verið myrtur í Dallas í Bandaríkjunum 22. nóv- ember 1963. „Ættfaðirinn”, Joseph P. Kenn- edy, eða Joe, eins og hann er gjarn- an kallaður, var af írskum ættum en uppalinn í Bandaríkjunum líkt og eiginkona hans, Rose Fitzger- ald, en þau gengu í hjónaband árið 1914. Joe er sagður hafa verið mjög framagjarn, góðum gáfum gæddur og staðráðinn í að komast í efni og leggja grunninn að því íjöl- skylduveldi sem síðar varð. Morðið á John F. Kennedy lifir enn í minni margra líkt og það hafi gerst í gær. Bandaríska þjóðin og fólk um heim allan voru, líkt og fjölskylda hans, harmi slegin yfir andláti hans, en atburðurinn var hvorki sá fyrsti né siðasti þar sem ungir Kennedy-fjölskyldumeðlimir hafa týnt lífi fyrir aldur fram eða farið villir vegar. Árið 1944 lést elsti sonurinn í hópi m'u systkina, Joseph yngri, í flugslysi er hann barðist með bandaríska flughernum í Bretlandi í seinni heimsstyrjöldinni. Áform Joes um að Joseph yngri byði sig fram til forseta urðu að engu. Elsta dóttir þeirra hjóna, Ros- emary, átti við væga andlega fötlun að stríða, en eftir að hafa gengist undir misheppnaða skurðaðgerð árið 1941, þá rúmlega tvítug að aldri, hefur hún verið sjúklingur á sjúkraheimili í Wisconsin. Önnur dóttir þeirra hjóna, Kathleen Agnes, lést í flugslysi í Frakklandi árið 1948, aðeins 28 ára gömul. John F. Kennedy var kjörinn for- seti árið 1960 og árið 1963, nokkrum dögum áður en hann var myrtur, lést þriðja bam hans og Jacqueline, eiginkonu hans, Patrick Bouvier, aðeins nokkurra daga gamall. Patrick fæddist fyrir tím- ann og lést af völdum öndunarerf- iðleika. Tæp fimm ár liðu en 4. júm' 1968 varð Kennedy-fjölskyldan fyrir enn einu reiðarslaginu. Robert Kenn- edy, bróðir Johns F. Kennedys, var í forsetaframboði og eftir að hafa sigrað í forkosningum Demókrata- flokksins í Kaliform'u var hann skotinn til bana á hóteli í Los Ang- eles. Eiturlyf og ofdi-ykkja Edward Kennedy, núverandi öld- ungadeildarþingmaður og eini bróðirinn sem er á lífi, hafði haft í hyggju að feta í fótspor bræðra sinna og bjóða sig fram til forseta, en þær vonir urðu að engu eftir að hann ók fram af brú á Chappa- quiddick-eyju 18. júh' 1969. Edward komst lífs af en Mary-Jo Kopechne, sem var með honum í bflnum, drukknaði. Eiturlyf og ofdrykkja hafa einnig sett svip sinn á sögu Kennedy-fjöl- skyldunnar likt og margra ann- arra. Árið 1982 famist sonur Ro- berts Kennedys, David Anthony, í Harlem, illa farinn eftir barsmíðar og rán eftir að hafa reynt að verða sér úti um heróín. Tveimur árum síðar lést hann í Flórída af ofneyslu eiturlyfja, þá aðeins 28 ára að aldri, jafn gamall Kathleen Agnes, föður- systir sinni, er hún kvaddi þennan heim. Edward, sem kjörinn var öld- ungadeildarþingmaður árið 1994, fór í meðferð vegna kókaínffluiar árið 1986. í aprfl 1991 fór Edward ásamt syni sínum Patrick og syst- ursyni sínum, William Kennedy Smith, syni Jean Kennedy Smith, á næturklúbb á Palm Beach í Flórída. Ferð þeirra átti eftir að draga dilk á eftir sér, en skömmu eftir kvöldið var William ákærður fyrir nauðgun. Konan sem í hlut átti hafði farið með honum af nætur- klúbbnum á heimili Edwards. Willi- am var sýknaður af ákærunni en fjölmiðlafárið kringum málið er sagt hafa tekið mjög á móður hans, Jean, sem var þar til fyrir skömmu sendiherra Bandaríkjanna á fr- landi. Málið varð Edward einnig dýrkeypt og ásakanir um of- drykkju og ólifnað fylgdu í kjölfar- ið. Árið 1997 kom enn annað hneykslismál upp á yfirborðið er ljóst var að Michael Kennedy, son- ur Roberts, hafði átt í ástarsam- bandi við bamfóstru þeirra hjóna um nokkra hri'ð. Stúlkan, sem sögð er hafa verið undir sextán ára aldri er samband þeirra hófst, neitaði að fara að óskum foreldra sinna og kæra Michael fyrir nauðgun. Mich- ael, sem á þrjú böm með eiginkonu sinni sem hann skildi við í kjölfarið, tilkynnti eftir að hulunni hafði ver- ið svipt af sambandi þeirra, að hann hygðist fara í áfengismeðferð. Á gamlárskvöld árið 1998 lét Mich- ael h'fið í slysi á skíðum í Aspen í Colorado. I dag er John F. Kennedy yngri talinn af, ásamt eiginkonu sinni, Carolyn Bessette Kennedy, og syst- ur hennar, Lauren Bessette. Segja má að ófarir Kennedy-fjölskyldunn- ar hafi byijað er Joseph yngri lést í flugslysi í seinni heimsstyijöidinni og nú, 55 ánun síðar, er allt útlit fyrir að hið sama hafi hent John, aðeins 38 ára að aldri, annað tveggja bama John F. Kennedys og Jackie. 9Heimildir:Tbe Times, The New York Times, Washingion Post, Reuters. Morgunblaðið/Bergþóra Reynisdóttir SUMARIÐ 1997 var John F. Kennedy yngri á fimm daga ferðalagi um Vestfírði. Hér situr hann á áningarstað í Grunnavík á Hornströndum, þar sem hann og félagar hans þáðu kaffi og með þvi'. Með Kennedy á myndinni er Lilja Ósk Sigurðardóttir. Eftirlæti slúðurblaðanna Hann var eftirlæti æsifréttablaða og „papparazzi“-ljósmyndara, sem gerðu sér far um að ná myndum af honum berum að ofan og í stuttbux- um, er hann og vinir hans köstuðu á milli sín frisbee-disk, léku fótbolta í Central Park eða þegar hann leið um götur New York á línuskautum. Kennedy sótti kaþólska skóla í New York, St.David’s og Collegiate, síðan Phillips Academy í Andover í Massachusetts, en háskólaprófi lauk hann frá Brown-háskóla á Rhode Is- land árið 1983 með bandaríska sögu að aðalfagi. Hann sýndi leiklist áhuga og tók þátt í nokkrum áhugaleikhúsupp- færslum í New York. Hann ferðaðist víða, þar á meðal til Suður-Afríku, Zimbabwe og Indlands. Ekki sízt fyrir tilstilli móður sinnar hætti hann afskiptum af leikhúsi og hóf lögfræðinám við New York-háskóla, þaðan sem hann útskrifaðist árið 1989. Þegar hann féll í fyrstu tilraun við lögmannsprófið í New York skellti æsifréttablað í borginni upp á forsíðu: „Kvennagullið fellur" („The Hunk Flunks“). Eftir aðra tilraun hans við prófið var fyrirsögnin: „Kvennagullið fellur aftur“. Eftir að hafa náð prófinu í þriðju tilraun hóf Kennedy störf á skrifstofu héraðs- saksóknara Manhattan, Robert Morgenthau. I því starfi undi hann til ársins 1993 og vann á þeim tíma öll sex málin sem honum var falið að reka fyrir rétti. Úr lögmannsstarfí í ritstjórastól Eftir að hafa lagt lögfræðistörf á hilluna árið 1993 lét Kennedy verða af því árið 1995 að stofna eigið tíma- rit, George, í félagi við útgáfufyrir- tæki Hachette Filipacchis. George var tileinkað stjórnmálum, dægur- málum og frægu fólki. Sem stofn- andi og ritstjóri beitti Kennedy nafni sínu til þess m.a. að ná viðtöl- um við Fidel Castro Kúbuleiðtoga, Dalai Lama, George Wallace, ríkis- stjóra Alabama, og hnefaleikamann- inn Mike Tyson, sem hann heimsótti í fangelsi. Hann lét oft eftir sér að ögra fólki með eigin greinaskrifum í blaðið og árið 1997, sama árið og hann lagði leið sína til Islands, birt- ist mynd af honum hálfnöktum í Ge- orge. Díana prinsessa heitin bar eitt sinn lof á Kennedy í grein sem hún ritaði í tímaritið New Yorker. Sagð- ist hún vonast til að sonur hennar, Vilhjálmur prins, ætti eftir að læra að umgangast fjölmiðlaathyglina af slíku öryggi sem Kennedy gerði. Kvennagull Rétt eins og faðir hans var hann gjarnan sagður eiga í sambandi við ýmsar nafntogaðar konur og var oft opinberlega kallaður „eftirsóttasti piparsveinn Bandaríkjanna”. Hann átti í skammlífu sambandi við popp- söngkonuna Madonnu og bjó með Hollywood-leikkonunni Daryl Hannah þegar hann kynntist tilvon- andi eiginkonu sinni, Carolyn Bes- sette, árið 1994. Hún starfaði þá að útgáfumálum fyrir tízkukónginn Calvin Klein. Þau giftust í kyrrþey í lítilli kapellu á eyju undan strönd Georgíu tveimur árum síðar. Hundeltur af fjölmiðlum alla ævi var það Kennedy lúxus að takast að kvænast utan kastljóss fjölmiðlanna. En giftingin fréttist samt fljótt og Ijósmyndarar náðu hinum nýgiftu í brúðkaupsferð í Tyrklandi. Fyrst eftir að Kennedy tók upp á því að fljúga sjálfur birtust sögu- sagnir í fjölmiðlum um að eiginkona hans flygi ógjarnan með honum. „Eina manneskjan sem ég hef getað fengið til að fljúga með mér - sem hefur beinlínis hlakkað eins mikið til þess og ég sjálfur - er konan mín,“ sagði Kennedy er hann reyndi að verjast þessum sögusögnum. „Um leið og það var löglegt kom hún með mér í loftið. I hvert sinn sem okkur langar burt þurfum við ekki annað en að stíga um borð og fljúga á braut.“ hefur veríð söluhæsti bíll á íslandi í 13 ár! Það er ekki að ástæðulausu þvi þessi frábærí bíll er bæði lipur og skemmtilegur og mjög góður til endursölu. Markmið okkar er að tryggja viðskiptavinum örugg og áhyggjulaus bílaviðskipti. AUir notaðir bílar hjá Toyota fara í gegnum vandað söluskoóunarferti og eru ftokkaðir og verðlagóir samkvæmt því. Auk þess er boóið upp á eftirfarandi nýjungar: ókeypis skoðun, 14 daga skiptirétt og attt aó eins árs ábyrgð. Corolla H/B XLi • Arg. 1996 1 1300 vél • 5 dyra • Rauður • Ekinn 94 þús. • Verð 850.000 kr. Corotla S/D GLi • Árg. 1993 • 1600 vél • 4 dyra • Rauður • Ekinn 46 þús. • Verð 870.000 kr. Corolla S/D XLi • Árg. 1995 • 1300 vél • 4 dyra • Btágrænn Ekinn 41 þús. • Verð 920.000 kr. Corolla W/G Terra • Árg. 1998 1 1600 vél • 5 dyra • Silfurgr. Ekinn 14 þús. • Verð 1.350.000 kr. <S£> TOYOTA Betn notaðir bílar Sími 563 4400

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.