Morgunblaðið - 20.07.1999, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1999 29
FUNDUR settur. Fulltrúar Noregs sögðu frá aðgerðum til að bæta kynheilbrigði. Nú beinist athyglin einkum að strákunum.
Aðrir við borðið eru stjómarmenn Evrópusamtakanna.
ureyðingar, hins vegar var gefin
skýrsla um ástandið í Kosovo og
aðgerðir félagsins í Albaníu til að-
stoðar konum og ungu flóttafólki.
Fóstureyðingar eru bannaðar á
írlandi, en staðreyndin er sú að
fjöldi kvenna sem hefur efni á fer
tO Bretlands tii að láta eyða fóstri.
Jafnframt hefur verið erfitt að
nálgast getnaðarvamir, en allt er
þetta vegna mikillar andstöðu kaþ-
ólsku kirkjunnar sem enn er afar
valdamikil á Irlandi þrátt fyrir
hneykslismál sem á henni hafa
dunið. Kirkjan predikar að það sé
nóg af fólki sem vilji ættleiða börn,
en málið er auðvitað ekki svo ein-
falt. í kaþólsku samfélagi er ekkert
auðvelt að eignast barn utan hjóna-
bands, bömin em kannski mörg
fyrir, það er afar erfitt að gefa
böm og það er álag á konur að
ganga með og fæða böm. Austur-
rískur geðlæknir sem þama var
benti á að rannsóknir á ungaböm-
um bentu til þess að þau mynduðu
tengsl við fólk miklu fyrr en áður
var talið og því erfitt fyrir þau að
vera skilin frá móðurinni. Læknir
frá Tékklandi sagði frá könnun
sem gerð hefði verið þar í landi á
bömum sem fæddust eftir að móð-
ur hafði verið neitað um fóstureyð-
ingu. Niðurstaða þeirrar könnunar
var hrikaleg. Bömin höfðu verið
sett á munaðarleysingjahæli, þau
höfðu verið vanrækt og þar fram
eftir götunum. Þessi umræða
minnti mig mjög á þær miklu deil-
ur sem urðu hér á landi á ámnum
1973-75 þegar umræða stóð yfir
um ný lög um fóstureyðingar og
fræðslu um kynlíf og bameignir.
Reynsla fjölmargra þjóða sýnir að
besta leiðin til að draga úr óæski-
legum þungunum og fóstureyðing-
um er að auka fræðsluna og auð-
velda aðgang að getnaðarvörnum.
Formaður samtakanna í Albaníu
greindi okkur frá því hvað gerst
hefði eftir að flóttamenn frá
Kosovo tóku að streyma inn í land
hennar. Allt í einu þurfti að glíma
við hundruð þúsunda flóttamanna,
þar sem konur voru í meirihluta.
Þarna voru fæðandi konur, barns-
hafandi konur, konur með lítil
börn, unglingsstúlkur í reiðileysi,
ungar konur sem urðu ófrískar án
þess að vilja það og þurftu neyðar-
getnaðai-vörn. Þarna voru þúsund-
ir kvenna sem sætt höfðu nauðgun-
um Serba og þurftu hjálp lækna og
sálfræðinga. Samtökin í Albaníu
sendu út beiðni um hjálp og fengu
hana í svo stórum stíl að Páfagarð-
ur sá ástæðu til að gera athuga-
semd. I dagblaði var það orðað svo
með hneykslan að pillan og neyðar-
getnaðarvamir hafi borist á undan
teppum og mat. Það kom greini-
lega fram að samtökin í Albaníu
þóttu hafa staðið sig með miklum
sóma og unnið mikið fyrirbyggj-
andi starf. Þau fengu mikinn fjölda
ungra albanskra kvenna í lið með
sér til að fara um búðimar, leita að
konum í neyð, ræða við þær, fræða
þær og veita þeim aðstoð.
Bíbhumenn og Bedúínar
Á fundinum störfuðu umræðu-
hópar sem ræddu hvemig hægt yrði
að veija áunnin réttindi til kynheil-
brigðis, en víða er að þeim sótt. Þá
var rætt um unglingaóléttu sem er
mjög vaxandi vandamál og virðist
einkum eiga sér félagslegar orsakir.
Þriðji hópurinn ræddi um hvemig
félögin í hinum ýmsu löndum og
samtökin gætu verið sjálfbær.
Eg tók þátt í fyrstnefnda um-
ræðuhópnum, en þar kom í ljós að
ástandið er harla mismunandi eftir
löndum. I mörgum ríkjum em mikil
átök við kaþólsku kirkjuna, en í A-
Evrópu hefur orðið mikið hmn sem
birtist í auknum dauða kvenna og
barna, sjálfsmorðum karla, auknum
fóstureyðingum vegna þess að aðr-
ar getnaðarvamir era ekki tiltækar
og efnahagslegum erfiðleikum.
Sú frásögn sem vakti þó mesta
athygli mína kom frá Israel sem
fylgir Evrópudeildinni. I Israel eru
fóstureyðingar frjálsar og aðgang-
ur að getnaðarvömum auðveldur.
Mikill meirihluti gyðinga á eitt til
þrjú böm en þar em þó undan-
teknigar á. Hópar strangtrúargyð-
inga hafna öllum vömum og hleypa
ekki neinni fræðslu inn á sitt heim-
ili. í ísrael eru reglur þannig að
ríkið borgar ekkert með fyrsta
barni, en síðan er borgað með
hverju bami eftir það. Strangtrá-
argyðingar eiga á milli 10 og 14
börn og geta lifað á framlögum rík-
isins. Karlarnir sitja alla daga og
stúdera Gamla testamentið en kon-
urnar em heima að sjá um börnin.
Þetta kostar ríkið að sjálfsögðu
mikið fjármagn, en það var aldrei
meiningin með barnabótum að fara
að halda uppi stórfjölskyldum.
Á undanfömum árum hefur um
ein milljón rássneskra gyðinga flutt
til ísrael. Ráðamenn tóku eftir því
að allt í einu fór fóstureyðingum að
fjölga allverulega og í Ijós kom að
þar vom konur frá Rússlandi á ferð.
Mannskapur var settur í að ræða við
Rússana, fræða þá og benda þeim á
aðrar leiðir sem strax skilaði mikl-
um árangri. Þama var hópur með
mikfa menntun, en hafði ekki haft
aðgang að öðmm aðferðum til tak-
markana bameigna en fóstureyð-
ingum sem framkvæmdar vom á
færibandi um alla A-Evrópu í tíð
kommúnista. Enn einn hópurinn
innan ísrael sem ég hafði ekki áttað
mig á að væm þar em Bedúínar,
hirðingjar sem búa í tjöldum, en
teljast ekki til Palestínumanna. Þeir
em afar fámennur hópur og hefur
um áratugaskeið gifst innbyrðis
þannig að skyldleiki er mikill. Eins
og verða vill í slíkum hópum var orð-
ið mikið um sjúkdóma og þroskaheft
fólk sem Ísraelsríki varð auðvitað að
sjá um og styðja. Ungu mennimir
meðal tjaldbúa vom skyldaðir til
herþjónustu eins og aðrir karlmenn
og því sáu stjómvöld sér leik á borði
að reyna að fræða ungu mennina um
þær hættur sem fylgja mökum ná-
inna skyldmenna. Þegar strákamir
komu heim neituðu þeir að giftast
frænkum sínum og því var gripið til
þess ráðs að leita að konum handa
þeim hjá Bedúínum á Gazasvæðinu.
Þá sátu ungu stúlkumar eftir heima
án möguleika á hjónabandi því alls
ekki kom til greina að þær giftust út
fyrir hópinn. Niðurstaðan varð sú að
strákamir tóku þær að sér líka og í
stað einkvænis varð til fjölkvæni.
Þroskaheftu bömin fæddust áfram
og Israelsríki sat uppi með nýjan
hóp innflytjenda. Síðan em það auð-
vitað allir Palestínumennimir sem
almennt eiga mörg böm en hleypa
fræðslusamtökum ísraelsmanna
ekki nálægt sér. Við hin sátum og
göptum upp í konuna og varð orða
vant.
Kröfur Norðurlandanna
Þá er einungis eftir að geta sam-
starfs Norðurlandaþjóðanna. Á
þessum fundi kynntu samtökin á
Norðurlöndum sérstaka ályktun
„The Nordic Resolucion" þar sem
áherslur samtakanna em dregnar
fram. Það má ljóst vera að Norður-
löndin hafa af mikilli og langri
reynslu að miðla hvað varðar bai'-
áttu fyrir kynheilbrigði. Þessi
ályktun var kynnt og fékk hún mik-
inn stuðning. Hún hefur einnig ver-
ið kynnt sumum af ríldsstjórnum
Norðurlandanna og er ljóst að hún
hefur stuðning þeirra. Við hér
heima eigum eftir að kynna hana.
Megininntak ályktunarinnar er
áhersla á unga fólkið til að tryggja
réttindi þess til kynheilbrigðis og til
að verja það fyrir misnotkun, of-
beldi og kynsjúkdómum. Þá er lögð
áhersla á að ungt fólk fái að koma
að ákvarðanatöku sem snertir líf
þeirra og kynheilbrigði. Réttur
ungs fólks til fræðslu verði tryggð-
ur óháð kyni, því hvort þau eiga
börn eða hvort von sé á bami og
hvort fólk er í sambúð eður ei.
Tryggja ber fræðslu í skólum og
aðgang að þjónustu utan skóla í
samvinnu við frjáls félagasamtök.
Auðvelda ber aðgang að hágæða-
þjónustu hvað varðar kynheilbrigði
og sjá til þess að ungt fólk hafi auð-
veldan aðgang að tryggum og ódýr-
um getnaðarvömum. Þá skal sjá til
þess að ungt fólk njóti tránaðar og
geti leitað sér ráðgjafar án afskipta
foreldra. Tryggja skal rétt ungs
fólks til að ákveða sjálft hvenær
það vill eignast böm, tryggja að-
gang að öraggum fóstureyðingum
án afskipta foreldra, auk ráðgjafar
og stuðnings bæði fyrir og eftir
þungun. Fjárfesting í kynheilbrigði
ungs fólks tryggir mannréttindi
þeirra og gagnast einstaklingunum
jafnt sem samfélaginu öllu, nú sem
og á næstu öld, segir þar.
Á fundinum vora sýndar
fræðslumyndir frá Kosovo og
Nepal. Síðartalda ríkið er dæmi
um land þar sem fæðingartíðni er
mjög há og hjónabönd ákveðin af
fjölskyldunni. Fóstureyðingar eru
ólöglegar, en framkvæmdar í stór-
um stfl. Konur sem farið hafa í
slíka aðgerð era fangelsaðar náist
til þeirra. Margir læknar neita að
segja til þeirra og í landinu er hafin
mikil barátta fyrir nýrri löggjöf,
með stuðningi alþjóðasamtaka. Allt
bar þetta vott um þau miklu verk-
efni sem þarf að sinna á sviði kyn-
heilbrigðis. Þegar hugsað er til
landa eins og Nepal eða ísrael
finnst manni við lifa á annarri
plánetu. Það má þó ekki gleyma
því að hér eins og annars staðar er
sama vandann að finna; skort á
upplýsingum og ráðgjöf, óöryggi
um eigin kynímynd, unglinga-
óléttu, kynsjúkdóma og endurtekn-
ar fóstureyðingar, að ekki sé
minnst á óábyrga hegðun í kynlífi!
Reynslan kennir okkur að þar sem
fræðslan er best er minnst um
vandamál. Best reynist að strákar
tali við stráka og stelpur við stelp-
ur, ef það er gert á ábyrgan hátt.
Samfélagið hefur líka sínar skyldur
og þarf að beina fræðslu að báðum
kynjum og tryggja rétt einstak-
linganna.
Höfundur er sagnfræðingur.
Telina
Fegurðin kemur innan frá
Laugovegi 4, sími 551 4473
UTSALA - UTSALA - UTSALA
20-50% afsláttur
Skartgripir - gjafavara - stell - glös - hnífapör
SILFURBÚÐIN
Kringlan 8-12, sími 568 9066
þJRCR/yjíj,
Amerísk pallhús
sem smellpassa á flestar
-gerðir bíla
ve9rð?.U CÍSU
JÓNSSON ehf
höfða 14, 112 Reykjavík, sími 587 6644
Umboðsmann * Suðumssjum. Toyota-salurinn i Njarðvik, siml 421 4888
lf!
jFasteignasala,
Strandgötu 25, Hfj.
Árni Grétar Finnsson, hrl.
Stefán Bj. Gunnlaugsson, hdl.
Sími 555 1500, bréfsími 565 2644. Netfang: stefanbj@centrum.is
Hrauntunga - Hf.
Glæsilegt 170 fm timbur-einbýlishús á tveimur hæðum.
Bílskúrsplata. Skipti möguleg á 3ja—4ra herb. íbúð í norður-
bænum í Hafnarfirði. Verð tilboð.
Bæjarhraun - Hf.
Gott ca 450 fm skrifstofuhúsnæði á tveimur hæðum.
Laust um áramót. Verð 35 millj.
Hjallabraut - Hf.
Góð ca 140 fm íb. á 3. hæð í 6 íbúða stigagangi. Endurnýjað
bað og eldhúsinnr. Verð 11,9 millj.
Reynimelur
Glæsileg ca 72 fm 3ja herb. íbúð í fjölbýli. Endurnýjað bað
og eldhús. Laus fljótlega. Áhv. 2,7 millj. Verð 8,5 millj.
★★★
Upplýsingar veitir Stefán í síma 897 4788 utan
skrifstofutíma.