Morgunblaðið - 20.07.1999, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1999 39
MARGRET
THEÓDÓRSDÓTTIR
NORÐKVIST
+ Margrét Theó-
dórsdóttir Norð-
kvist, húsmóðir og
starfsstúlka við að-
hlynningu sjúkra á
Sólvangi, til heimilis
að Ölduslóð 6 í Hafn-
arfirði, fæddist í
Reykjavík 14. des-
ember 1960. Hún
lést á krabbameins-
lækningadeild Land-
spítalans 12. júlí síð-
astliðinn. _ Margrét
fluttist til Isaíjarðar
tveggja ára gömul
og ólst þar upp hjá
foreldrum sínum ásamt þremur
systkinum. Foreldrar hennar eru
Ingibjörg Marinósdóttir Norð-
kvist, f. 10. apríl 1936, og Theó-
dór Siguijón Norðkvist, f. 3. júlí
1933, d. 18. desember 1994.
Systkini hennar eru 1) Ása Norð-
kvist, f. 15. aprfl 1963, gift Pálma
Gunnarssyni, f. 27. apríl 1962,
börn þeirra eru Theódór Ingi, f.
26. aprfl 1987, Sigurlaug Ása, f.
28. september 1988, Anna Lind,
f. 28. júlí 1991, Birg-
ir Örn, f. 28. maí
1993, og Katrín Eva,
f. 27. september
1996. 2) Jón Sigurð-
ur Norðkvist, f. 17.
júní 1964, kvæntur
Hörpu Þórisdóttur,
f. 28. aprfl 1964,
dóttir hennar er
Olga Sonja, f. 28.
janúar 1987. Jón og
Harpa eiga saman
Salóme Sól, f. 22.
maí 1998. 3) Theó-
dór Norðkvist, f. 9.
október 1965.
Maki Margrétar er Sigurður Óli
Sigurðsson veitingamaður á A.
Hansen, f. 6. júní 1959. Þau hófú
búskap árið 1978. Börn þeirra
eru Valdimar Karl f. 6. ágúst
1979, Benedikt Þór, f. 28. aprfl
1981, Ingibjörg Theódóra, f. 6.
júní 1986, og Sindri Óli Sigurðs-
son, f. 6. aprfl 1992.
Útför Margrétar fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 15.
Mamma mín, þú varst mér alltaf
kær. Við áttum margar skemmti-
legar stundir saman og það var svo
gaman. Því mun ég aldrei gleyma.
Nú líður þér vel, laus við allar
kvalii’ og komin á Guðs efstu svalir.
Þar hittir þú afa. Saman horfið þið á
lífið halda áfram og litlu Margréti
hennar Ásu stækka.
Seinna hittumst við á himnum. Þá
tekur þú á móti mér og við lítum
saman niður og horfum á lífíð halda
áfram. Ég bið að heilsa Guði og öll-
um í himnaríki.
Þín dóttir,
Ingibjörg Theódóra.
Alltaf varstu góð og ert það enn-
þá. Við geymum minninguna um þig
í hjarta okkar. Við vitum að nú líður
þér vel á himnum. Drottinn hefur
tekið þig til sín._
Sigurlaug Ása og Anna Lind.
Hvað veldur því að sumum er út-
hlutað svo stuttri dvöl á meðal vor?
Hver getur hugsanlega verið ávinn-
ingur og þá hvers, þegar klippt er
svo snögglega á lífsstreng ungrar
móður. Fjögur börn svipt móðurást
og öryggi því er fylgir góðri og ást-
ríkri mömmu. Hvað kemur í staðinn
fyrir þá þörf að kalla um leið og
komið er heim t.d. úr skólanum eða
af íþróttaæfingum: „Mamma ertu
heima? Veistu hvað?“ Magga var
einmitt sú sem gaf börnum sínum
nægan tíma, hlustaði og hló blíðlega
að óvæntum uppákomum sem
gjarnan fylgja fullu húsi af bráð-
duglegum krökkum. Það var þetta
með tímann hjá Möggu, makalaust
hvað hún gat nýtt tímann vel, ég
man ekki eftir einu einasta skipti
sem hún var að flýta sér eða reka á
eftir manni, allt gekk svo notalega
upp hjá henni.
Foreldrar okkar höfðu þann góða
sið að hittast á jólunum, og gerðu
þær ógleymanlegu stundir okkur að
innilegri fjölskyldu. Þær systur,
Magga og Ása, sem oftast eru
nefndar saman, voru oft að gæla við
þá hugmynd að endurvekja þennan
sið í einhverri mynd, og þá tóku
bamaafmælin við. Ég get ekki full-
þakkað kærri frænku minni fyrir
það að börn okkar þekkjast vel og
vita af ættingjum sínum ef á þarf að
halda.
Magga og Siggi maður hennar
hafa rekið veitingastað, sem hefur
með árunum orðið að veislusal fjöl-
skyldunnar. Síðasta uppákoma var í
tilefni af aldarafmæli Ásu ömmu
heitinnar í apríl sl. Þar stóð Magga
upp úr enn einu sinni er hún af
sjúkrabeði lagði svo á að nú mætt-
um við fara af stað og undirbúa
veislu. Þar mætti hún svo með blíða
brosið sitt, full eftirvæntingar, og
vonaði að bjartir tímar væru
framundan, en þetta varð síðasta
veislan hennar.
Magga hafði einstakan hæfileika í
viðræðum, það varð að taka allt til
alvarlegrar athugunar og hnýta alla
lausa enda svo maður var farinn að
finna til sín er hún hafði fengið
mann til frásagnar um eitt og annað
sem var „bara“ og tók því ekki að
minnast á. Það var svo notalegt að
vera í návist hennar, hún hafði svo
smitandi áhuga á því sem var að
gerast í fjölskyldunni.
Þau hjónin Magga og Siggi voru
smátt og smátt að koma sér upp
sumarbústað fyrir sig og sína. Það
var helsta mál á dagskrá núna og
mikil gleði yfir hverjum hlut og
hverri plöntu sem komið var fyrir í
„sæluríki" þeirra. Þetta litla hús er
Magga. Þetta litla hús er stórt, þar
geta Siggi og bömin fundið nær-
vera sem bara þau þekkja, linað
sorgina í stutta stund og haldið
áfram að rækta, rækta hvert annað
og fylla skarðið smátt og smátt með
sameiginlegu átaki.
Það er erfitt að vega og meta
stærð sorgarinnar, en að missa
unga dóttur og það frá fjórum böm-
um og eiginmanni, þár tekur á vog-
ina. Inga móðir Möggu hefur ótrú-
legt þrek, hún er hetjan okkar í
þessu stríði, því frá sjúkrabeði dótt-
ur sinnar vék hún hvorki dag né
nótt, og Björg tengdamóðir Möggu
stóð vörð um heimilið, þar voru fyr-
ir hetjur heimilanna, sem frá fomu
fari hafa aldrei látið bugast. Þessar
konur eiga aðdáun mína alla. Hvað
geta frátækleg orð svo sem sagt
þegar mikið liggur við, hver þekkir
lækningu sorgar sem veldur svo
miklum sársauka? Hvernig á að
hugga bömin smá og stór, niður-
brotinn eiginmann, systur sem
misst hefur vinkonu, félaga, hjálp-
arhellu? Hvemig er hægt að breyta
Möggu og Ásu í eintölu? Eitt er víst
að börn Möggu munu alltaf eiga
sína móðursystur og Pálma mann
hennar að í blíðu og stríðu, það veit
Siggi og metur mikils.
Guð almáttugur varðveiti ykkur
og styrki. Sigga, Valda Kalla,
Benna, Ingu Dóra, Sindra Óla og
aðstandendum öllum óska ég Guðs
blessunar.
Sigrún Viggósdóttir.
Þegar ég hugsa um æskuvinkonu
mína, Margréti Theodórsdóttur,
sem nú er dáin, alltof fljótt, kvikna
ótal minningar í huganum: við nöfn-
urnar bamungar að leik á Hlíðar-
veginum á ísafirði, þar sem Gleiðar-
hjallinn gnæfir yfir og freistar
krakka til að klífa brekkurnar, en
eyrin, tanginn og fjörðurinn á hina
höndina; lítill heimur en þó svo
passlega stór, þar sem allir þekkja
alla og allt er innan seilingar. Og
síðar, tvær vinkonur sem lagt hafa
land undir fót og komnar í hús-
mæðraskólann að Laugum í Þing-
eyjarsýslu að læra nytsama hluti.
Seinna: tvær vinkonur, mæður á
besta aldri, komnar suður, nú að
vinna saman á Sólvangi, öldranar-
hjúkmnarheimilinu í Hafnarfirði.
Að lokum hið óvænta, óhjákvæmi-
lega og sorglega: að kveðja við
sjúkrarúm 38 ára gamallar konu.
Magga var einstaklega hlý og góð
manneskja, hjálpsöm og brosmild,
en um leið ávallt yfirveguð og ein-
hver rósemi sem fylgdi henni alltaf.
Hún fór ung að búa með honum
Sigga og eignuðust þau fjögur böm.
Hugur minn er hjá þeim öllum,
þeirra missir er mestur. Það er ekki
alltaf sem draumarnir rætast í lífinu
og það fer gjama á annan veg en
ætlað er. Ljóðlínur eftir Ingibjörgu
Haraldsdóttur eiga vel við núna, en
þar segir á einum stað:
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
HÁKON PÉTURSSON,
Þverholti 9a,
Mosfellsbæ,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur laugardaginn
17. júlí.
Útförin fer fram frá Lágafellskirkju
laugardaginn 24. júlí kl. 10.30.
Guðrún Einarsdóttir,
Pétur Jökull Hákonarson, Kolbrún K. Ólafsdóttir,
Gunnar Jökull Hákonarson,
Sigurður Hákonarson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
GUNNHILDUR B. BJÖRNSDÓTTIR,
áður til heimilis
að Teigaseli 11,
lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund
fimmtudaginn 15. júlí sl.
Jarðsett verður frá Fossvogskapellu
fimmtudaginn 22. júlí kl. 10.30.
Björn G. Björnsson, Þóra Jónsdóttir,
Björn Þór Björnsson, ívar Björnsson,
Steingrímur J. Þórðarson
,,-di’aumanna minnist ég með trega,
nú þegar kólnar og dimmir, og bilið
vex milli þess sem er og þess sem
átti að verða.“
Um leið og ég kveð bestu vinkonu
mína og þakka henni samfylgdina,
votta ég Sigurði og börnum þeirra,
Valda, Benna, Ingu Dóra og Sindra,
einnig móður Margrétar, systkinum
hennar og tengdaforeldram mína
dýpstu samúð.
Margrét Bragadéttir.
Elsku besta vinkona, nú hefur þú
kvatt okkur, langt fyrir aldur fram.
Það er með trega og söknuði að ég
rita þessar línur. Frá þvi í febrúar
sl. að þú sagðir mér frá sjúkdómi
þínum hafði ég aldrei þorað að efast
um tilvist þína meðal okkar heldur
beðið eftir að kraftaverk gerðist. Þú
sem hafðir alltaf ratt öllum hindr-
unum úr vegi þínum. En þessi
hindran í lífi þínu var of erfið. Það
er öraggt, Magga mín, að Guð hefur
ætlað þér æðra hlutverk, og var þitt
hlutverk þó æði stórt.
Ég ætla ekki með þessum fátæk-
legu orðum mínum að rekja ævi-
sögu þína né hvaða starf veitti þér
lífsbjörg, það vitum við, heldur
þann persónuleika sem þú hafðir að
geyma og var auður okkar hinna
sem fengum að eiga þig að.
I þau ár sem við áttum hvor aðra
að varstu lífsglöð og bjartsýn. „Nei“
var ekki til í þínum orðaforða,
trygglyndi þitt og traust var mikið
og þó að vegalengdimar væru
stundum miklar á mOli okkar brástu
aldrei, þú varst styrkur minn og
stoð á erfiðum tíma og armar þínir
alltaf útbreiddir. Fjölskylda þín og
heimili áttu hug þinn og hjarta, það
var stórt hjarta, og þú varst þeim
eiginieikum gædd að geta deilt þínu
stóra hjarta og ég var ein af þeim
sem fékk þar hlutdeild. Ég fæ þér
seint fullþakkað einlægni þína. Þú
varst í essinu þínu þegar þú gast
verið að bjástra við heimilið, fjöl-
skylduna og vini þína, útbúa afmæli
og veislur, sama hvert tilefnið var.
Þú varst menningarlega sinnuð og
víðföral. Blessuð sé minning þín.
Elsku Siggi, Valdi, Benni, Inga
og Sindri, missir ykkar er mikill.
Megi góður Guð styðja ykkur og
styrkja á erfiðum tímum. Foreldr-
um, systkinum og öðram aðstand-
endum votta ég mína innilegustu
samúð.
Nú ertu leidd, min ljúfa,
lystigarð Drottins í,
þar áttu hvíld að hafa
hörmunga’ og rauna frí,
við Guð þú mátt nú mæla,
miklu fegri en sól
unan og eilíf sæla
er þín hjá lambsins stól.
Dóttir, í dýrðar hendi
Drottins, mín, sofðu vært,
hann, sem þér huggun sendi,
hann elskar þig svo kært.
Þú lifðir góðum Guði.
í Guði sofnaðir þú,
í eilífum andarfiiði
ætíð sæl lifðu nú.
(Hallgr.Pét.)
Steinvör Gísladóttir.
Vestfirsku fjöllin era ægifögur,
girt bröttum og gróðurlitlum fjarða-
og dalahlíðum með skriðum og
hamrabeltum, þverhnípt björgin
ganga í sjó fram. Fjöllin eru sund-
urklippt af gjám, hvilftum og skörð-
um. I slíkum jarðvegi vex harðger
gróður eins og holtasóley, lamba-
gras og fjalldrapi og á malareyram
má sjá eyrarrósina í breiðum.
Fjallið yfir Isafirði er dapurt,
sorgmætt yfir því að ein af fallegu
eyrarrósunum er horfin. Annesin
vestfirsku með fallegu nöfnin sín
era einnig hnípin: Kópui’, Blakkur,
Skjöldur, Barði, Göltur, Ritur og
Kögur. Suður í hrauninu í Hafnar-
firði hefur sorgin líka tekið sér ból-
stað af því að Margrét er dáin.
Vestfirska stúlkan er bar í sér ein-
kenni uppranans, styrkinn og þol-
gæðið þegar á móti blés.
Margrét sigldi mótbyr í lífi sínu ~
þetta árið. Hún tókst á við erfið
veikindi af bjartsýni og með æðra-
leysi. En hún hafði einnig meðbyr.
Umvafin ást og kærleika fjölskyldu
sinnar stóð hún af sér erfíðan upp-
skurð, geisla og lyfjameðferð. Alltaf
með sama baráttuþrekinu og reisn-
inni til hinstu stundar.
Margrét starfaði við umönnun
aldraðra á Sólvangi í mörg ár. Hún
vakti á næturnar og varð ljósið
þeirra er þörfnuðust hjálpar. Um
nótt er gott að trúa á ljósið. Nú er
okkar að trúa á ljósið þegar dimmt
er í huga. Það er gæfa hverrar heil-
brigðisstofnunar að þangað veljist
gott fólk. Starfið er í eðli sínu starf
hugar, hjarta og handar. Sólvangur
hefur ávallt borið gæfu til þess að fá
slíkt fólk til starfa. Kærleiksríks
starfs Margrétar er minnst af hlýj-
um hug um leið og samstarfsfólk
þakkar samfylgdina. Eiginmanni
hennar, börnum og fjölskyldunni
allri era sendar samúðarkveðjur.
Megi sá er öllu ræður styrkja þau í
þeirra miklu sorg.
Guð blessi minningu Margrétar
Theódórsdóttur Norðkvist.
Sigþrúður Ingimundardóttir
hjúkrunarforstjóri.
+
Yndislegur eiginmaður minn, faðir okkar, sonur
og tengdafaðir,
BRYNJÚLFUR G. THORARENSEN
frá Vestmannaeyjum,
Logafold 133,
Reykjavík,
lést laugardaginn 17. júlí.
Ingveldur Jóna Gunnarsdóttir,
Ólafur Thorarensen, Þórunn Helga Kristjánsdóttir,
Ingi Þór Thorarensen, Birna Gisladóttir,
Ingibjörg Guðlaugsdóttir.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafí,
TÓMAS KRISTÓFER HALLDÓRSSON,
til heimilis í Heiðargerði 65,
Reykjavík,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sunnudaginn
18. júlí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Jóna Tryggvadóttir,
Einar Breiðfjörð Tómasson, Elísabet Þórdís Harðardóttir,
Alda Breiðfjörð Tómasdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
L