Morgunblaðið - 20.07.1999, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 20.07.1999, Qupperneq 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENDAR Sigfús E. Arnþórsson pi'anóleikari skrifar um nýja geisladiskinn með lögunum úr söngleiknum Aida eftir Elton John og Tim Rice. ★★★★% Gilbert og Sullivan þessarar aldar „GOTT kvöld, góðir gestir! Við byrjum á nýju lagi með náunganum sem söng Daniel. Crocodile Rock, gerið þið svo vel!“ Við erum stödd á árshátíð Gagnfræðaskólans á Akur- eyri árið 1973 og það er Bjarki Tryggvason sem kynnir og mænir upp til himins meðan Grímur og Ingimar hamra innganginn á raf- magnsorgel og píanó. Ljóshærða stúlkan með hringl- óttu gullspangagleraugun, í rauðu plastkápunni er mætt með vinkonu sinni. Gat verið! Ég læt sem ég viti ekki af þeim. Hún er ^ í þröngri peysu með kraga. Úff! Ég horfi af öllu afli - í gegn um gleraugun - upp á sviðið, enda liggur ekld lítið við. Hljómsveit Ingimars Eydal er með nýjan gítarleikara, Grím Sig- urðsson frá Jökulsá á Flateyjardal, sem um tíma hefur starírækt rokk- hljómsveitina Óvissu með Frey- steini bróður sínum, við vaxandi vinsældir í höfuðstað Norðurlands. Skyldi þetta ganga upp? Stjórn tónlistarklúbbs skólans er ekki síð- ur áhyggjufull. Þeir Haukur, Malli og Tolli fylgjast grannt með hverj- um tóni. Kiprur um augu. Hendur á höku. „I remember when rock was young...“ IfiMo M M 5 30 30 30 MAastt qAi fá 12-18 og Irant að sýntagu sýiiasnlags. Otfð Ira 11 lyrir hátetfrteHSBM HÁDEGISLEIKHÚS - kl. 12.00 Mið 21/7 örfá sæti laus Rm 22/7 örfá sæti laus, Fös 23/7 SNYRAFTVR Þri 20/7 ath kl. 19, örfá sæti laus Fim 22/7 örfá sæti laus Fös 23/7 kl. 23.00 UPPSELT Ath! Aðeins þessar sýningar T1LBOÐ TIL LEIKHÚSGESTA! 20% afsláttur af mat fyrir leikhúsgesti í Iðnó. Borðapantanir í síma 562 9700. Þessi æskuminning var það fyrsta sem mér kom í hug, þegar ég var beðinn að skrifa um þennan nýja söngleik hans Eltons Johns. Hann var, um þær mundir, í for- ystu bresku „glam“-rokkaranna sem flugu eins og fersk vatnsgusa upp alla vinsældalista. Maður þurfti hvorki að fara í kröfugöngu, né stunda „yoga“ til að skilja hvað hann var að fara. Bara að hafa un- un af tónlist. Og lífinu! Og nú, rétt eins og þá, er það ómenguð ást listamannsins á fegurð tónanna, sem hrífur hlustandann með sér. Elton John and Tim Rice’s Aida heitir söngleikurinn fullu nafni. Engum er ætlað að ruglast á Eltoni og Verdi. Á því er þó engin hætta. Enginn Giuseppi hér. Ekki svo mikið sem lykt af pítsu. Enda hefði sá gamli Jósep aldrei getað samið neitt þessu líkt. Þetta er einstaklega eigulegur diskur. Ólíkt því sem áður var, vak- ir Elton nú, að hætti Bjarkar, yfír hverjum tóni, sem „musical direct- or“ og fylgir tónlistinni eftir allt til enda. Hann tekur fram í inngangi að þetta sé ekki allur söngleikur- inn. Hann hlífir manni við að þurfa að pæla í gegnum undirleik við dansatriði og annað flúr sem oft gerir geisladiska með tónlist úr söngleikjum svo langdregna. Þetta er þó ekki neitt „highlights“-safn. Þetta eru öll 15 lögin. Hvorki of, né van. Another Pyramid, heitir fyrsta lagið. Hva, enginn forleikur? Hér hefði maður búist við nokkurra mínútna sinfóníu, en þess í stað labbar maður beint inn í loftpáku- dans. Það eru þeir Sly Dunbar og Robbie Shakepeare sem leika á trommur og bassa og stjórna upp- tökunum. Wailers, hljómsveit Bob Marleys, lifandi komin. Góð útsetn- ing. Og Twiggy í bakröddum! Text- inn er listasmíð. Ekta Tim Rice. Um söng Stings er það að segja að textaframburðurinn er skýr. Written In The Stars er, við fyrstu heyrn, svona dæmigerður ástardúett úr söngleik. Eða kannski bara lag úr Eurovision- keppninni. En Elton John er góður söngvari. Hér syngur hann á móti LeAnn Rimes og það er góður sam- hljómur í söng þeirra um örlög okk- ar mannanna. Áð sönnu ekki frum- Símapantanir í síma 551 1475 frá kl. 12 Miðasala opin frá kl. 13—19 alla daga nema sunnudaga Gamanleikrit í leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar Fös 23/7 kl. 20 Lau 24/7 kl. 20 Ósóttar pantanir seldar daglega FÓLK í FRÉTTUM ELTON John svífur yfir píanóinu. leg lagasmíð, en það er mikil hlýja og birta í þessu lagi, sem þegar er komið inn á visældalista víða um heim. Af þessum fyrstu tveimur lögum að dæma, gæti maður þó verið staddur á æviminningakvöldi hjá félagi eldri borgara á Thames- bökkum. Það er fyrst með næsta lagi sem „landið byrjar að rísa“ og síðan batna lögin, jafnt og þétt, allt til enda. Easy As Life er sérkennilegt lag, ilmandi af framandi kryddtegund- um. Spænskt? Franskt? Eða kannski af Nílarbökkum? Elton á ókunnum slóðum. Það er Angelique Kidjo sem gefur þessu lagi sinn fransk-afríska blæ. Og það dugar ekki minna en Chris Lord-Alge á mixerinn tD að blanda öllum þess- um hljóðheimum saman. (Bræðurn- ir Chris og Tom Lord-Alge vöktu heimsathygli árið 1986 er þeir hljóðblönduðu „Higher Love“ fyrir Steve Winwood. Þeir hafa verið með eftirsóttustu mixer-mönnum, allar götur síðan.) Söngur Tinu Turner er vh’ðulegur og viðeigandi, en samt tilfinningaþrunginn og seiðandi. Þetta hefði enginn gert betur en hún. My Strongest Suit byrjar alveg eins og Jólastund með Stuð- kompaníinu. En það er ekki Kalli Örvars sem syngur, heldur sjálfar Kryddpíurnar. Og hafi einhverjir ekki skilið vinsældir þeirra hingað til, ættu þeir nú að leggja við hlust- ir. Það er einfaldlega eitthvað ómótstæðilegt við söng þessara systra. Og þó að segja megi að þetta sé bara venjulegt hvítt soul- lag, gæti þeirra hluta vegna verið með Stjórninni, þá hafa The Spice Girls ekki sungið betur á sínum ferli. Gaman að sjá hér gamla blús- rokkarann Clem Clemson, úr Colosseum og Humble Pie. Snarp- ur á rythmagítarinn! Skemmtilegt lag. Einstakur texti. I Know The Truth er gullfallegt, rólegt country-soul-lag 'a la Elton John. En í miðju lagi réttir hann hljóðnemann frá sér. Sennilega vegna leiðinda. En það er hin ynd- islega Janet Jackson sem grípur um míkrófóninn og ber að vörum sér. Henni tekst mun betur að blása lífi í þennan þunglyndislega kveðskap. En allt kemur fyrir ekki. Inn um annað - út um hitt. Hið öm- urlega hlutskipti sem Tim Rice leggur upp með í textanum, hefði þurft miklu gi-immara lag. Sem þýðir líka að þetta fallega lag hefði þurft blíðari texta. Til dæmis vögguvísu. Samt er þetta líklegt tO vinsælda. JaneCsér til þess. En hún hefði átt að fá að syngja allt lagið. Einhvemveginn trúir maður ekki, þegar Elton John syngur um óheppni sína í lífinu. En ég trúi Ja- net tO að hafa átt erfiða daga. Hún er yngri systir Michaels Jackson. Hvem langar tO þess? Not Me er snOldarverk. Hér glímir Elton við hina nýju soft-soul- tónlist og sigrar, með miklum átök- um. Boyz II Men er ein af þessum drengjasöngsveitum sem allar hljóma eins, en þeir vora fyrstir og era greinOega ennþá bestir. Það er erfitt að finna orð sem lýsa þessu lagi rétt. Framan af er það eins og litlar lækjarsprænur, sem koma hver úr sinni áttinni, en magnast svo upp í beljandi stórfljót með hrikalegum flúðum, fossum og þverhníptum hamraveggjum. Lífs- háskinn er allt um kring, en þeir henda sér hiklaust fram af. Aftur og aftur. Og lagið endar í kyrrð. Á lygnri vík. Einstök upplifun. SpOist á hæsta mögulegum styrk. Amneris’ Letter er bara einnar og hálfrar mínútu langt. Eins konar uppfylling. Og það er Shaniu Twain sem er ætlað það lítOræði að raula þetta. Og hún fer létt með það. Dansar nokkrar áttundir. Hefð- bundnar soul-strófur. En það er heiðarleiki í tOgerðarlegri röddinni, sem hæfír þessari yfirborðslegu, en, að sínu marki, einlægu ástar- játningu. LítO perla. A Step Too Far ber merki techno-tónlistarinnar. Einföld „lúppa“ (stef) endurtekin í fjögurra mínútna samfellu. Á stöku stað er þó brotist út úr hringiðunni, í „eltonískari“ hljómaflækjur. Sherie Scott, Elton sjálfur og Heather Headley skipta með sér söngnum. Bandalaus bassaleikur Zev Katz er ævintýri út af fyrir sig. Músíkalskt lag, en ólíklegt tO vinsælda. Endir- inn er flopp. Hlustandinn er skOinn eftir í lausu lofti. Svona lög verða að fá að deyja út. Eða að smíða verður voldugan endi, þar sem öll lúppan er lamin til jarðar, tón fyrir tón. Elton velur að slökkva á laginu með einum stóram hljómi. Marg- reynt. Klikkar alltaf. Líka hér. Like Father Like Son er skemmtOega flutt af Lenny Kravitz sem syngur aðalrödd og bakraddir, spilar á bassa, gítara og rafmagns- píanó og gerir það allt listavel. Hann göslast líka á trommunum, með miklum gusugangi. Því miður útsetti hann einnig lúðrablásturinn. Af þessu lúðraverki að dæma hefði lagið frekar átt að heita „Like PhO Collins - Like „No Jackets Required“ Session". En Lenny er fæddur töffari 'a la Rúnni Júl. og keyrir þetta áfram af sínu víð- fræga, kæraleysislega sjálfsöryggi. Ekki slæmt. Elaborate Lives er þungt og mikið lag sem batnar við hverja hlustun. Það þarf gríðarleg lungu til að syngja þessa löngu, voldugu tóna. Heather Headley skOar þessu með sóma. Þetta gæti aðeins Margrét Eir leikið eftir. How I Rnow You er lítið, einfalt lag í þjóðlagastfl. James Taylor syngur eins og engill. Eins og alltaf. SnOldarleg túlkun. Gott lag. The Messenger er um hverful- leika lífsins. Um óttann við að eld- ast og deyja. Dauðinn er bara sendiboði, sem minnir okkur á stóra sannleikann, sem er ástin. Ég þekki ekki guðfræðina að baki þessari speki, en þetta hljómar ekki langt frá lútersk-evangelíunni, sem hann séra Birgir Snæbjörnsson kenndi okkur fyrir ferminguna. Hvað er hverfulla en poppstjarnan? Elton valdi Lulu, gleymda dægur- lagasöngkonu frá hans eigin ung- lingsáram, tO að syngja þetta með sér. Enn einu sinni hárrétt valið. Enn eitt afburðalagið. The Gods Love Nubia er í negrasálmastfl. Kelly Price og ein- hver suðurríkjakirkjukór syngja. Tekið upp í Atlanta, Georgíu. Og tárin þrælanna blandast rigning- unni, sem svalar þorsta gróður- moldarinnar, sem aftur færir okkur lífið. „Glorious Creation". „Praise the Lord“. Hin ljúfsára fegurð fá- tæktarinnar. Heinræktaður Davíð Stefánsson. Það er líflaus sál, sem ekki viknar. Stórkostleg smíð, sungin af frjósemi. Enchantment Passing Through er síðasta sungna lagið. Dra Hill? Jú, auðvitað Dra Hill. Þeir Baltimore-bræður rúlla þessu upp. Seintekið lag, en stórgott. Vel flutt. Orchestral Finale er stutt verk þar sem stefjum úr nokkram hinna laganna er blandað saman og síðan útsett fyrii' litla sinfóníuhljómsveit. Smekklega gert, en óþarft. Bless- unarlega stutt. Egypska þjóðsagan um Aidu er harmleikur. Mælikvarði eins og skemmtOegt/leiðinlegt á því ekki við. Þetta er tflkomumikið lista- verk, samið af heflindum og fag- mennsku. Listavel flutt, upptekið og hljóðblandað. Það er auðheyrt, hvers vegna hann er að semja söng- leik. Söngvarinn Elton John, hefur í áratugi sniðið lagahöfundinum Elton John mjög þröngan stakk. Tónskáldið vfll út! Lögin „Easy as Life“, „Not Me“ og „Enchantment Passing Through“, ,A Step Too Far“, „Elaborate Lives“ og „The Gods Love Nubia“ vísa hvert í sína áttina, en sýna að hann er ófeiminn við ókunnuga tónlistarstrauma. Hafi ég gleymt að nefna það, þá eru textarnir alveg sérstaklega vel smíðaðir, eins og við var að búast. Þeir Elton John og Tim Rice hafa alla burði til að verða Gflbert og Sullivan nýrrar aldar. Svo rannum við í snjónum, á þykkbotna skónum, niður allt gilið. Alveg niður að hinum nýstofnaða Bauta, sem nú var farinn að selja útlenska nýlundu. Svokallaða ham- borgara. Menn snæddu þetta af mikilli varfærni. Með hníf og gaffli. Skrýtið bragð. Öraggara að drekka nóg Vallash með. Við sátum úti á Ráðhústorgi og horfðum á rúntinn sflast inn Hafnarstrætið. Hún var í rauðu plastkápunni, sem gljáði í öll- um regnbogans litum í birtunni frá neonljósaskiltunum yfír okkur. Ég gerði vísindalega uppgötvun: Þegar tvær persónur með gleraugu, kyss- ast í frosti, er eins víst að þær verði báðar blindar um stund. Vegna móðu á glerjunum. Elton átti gler- augu með sjálfvirkum rúðuþurrk- um. Og svona þúsund gleraugu að auki. Og út um glugga, einhvers staðar hátt uppi, einhvers staðar þar sem útvarpsstöðin Frostrásin er nú til húsa, ómaði „Daniel" út í nóttina: „... must be the clouds in my eyes“. Árshátíðinni hafði einmitt lokið með því lagi. Og þegar Finnur hafði klárað klarínettustefið leit hann brosandi tfl nýja gítarleik- arans, sem hafði, samkvæmt því, staðist prófið, en Helena sagði: Kæra vinir! Þetta var síðasta lagið okkar í kvöld. Góða nótt!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.