Morgunblaðið - 20.07.1999, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1999 59v
ÍHX
DIGITAL
ÞRETTÁIMDA HÆÐIIM
SSA UÉfME»gíLEJJ'JiÚiú
aö þnd sc ckki
THE
THIRTEEnTH
FLOQR
Frá meðframleiðanda GODZILLA og
IIMDEPEIMDEIMCE DAY.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 . B.i. 16 ára.
NÝ UPPFÆRSLA: www.stjomubio.is
www.austinpowers.com
MAGNAÐ
BÍÓ
/DD/
SÍMI 551 6500
Laugavcsl 94
Poppstefnumót
Undirtóna
TÓNLISTARBLAÐIÐ Undir-
tónar hefur undanfarið boðið
UPP á tónlist úr öllum áttum í
tónleikaseríunni Stefnumót á
þriðjudagskvöldum á Gauki á
Stöng. Tæplega fimmtíu bönd
hafa spiiað á þrettán tónleikum
sem verður, að teljast lofsvert
framtak hjá Undirtónum, því
serían hefur óneitanlega gætt
borgina lífi og fjöri. Meðal
þeiiTa sem hafa spilað á Stefnu-
móti eru Sigur Rós, Múm, Mín-
us, Ensími, Jagúar, Dip, Qu-
arashi og Botnleðja.
I kvöld koma fram á Stefnu-
móti þrjár ástsælustu^ popp-
hljómsveitir landsins, Á Móti Sól
sem mun kynna efni af nýrri plötu,
Sóldögg og Url sem er tiltölulega ný
af nálinni. Skífuþeytirinn Kiddi Big-
foot, sem helst sést við stjómtækin
á Astró þessa dagana, mun sjá um
.. Morgunblaðið/Jón Svavarsson
SOLDÖGG verður á Stefnumóti
í kvöld.
að hita gesti Gauksins upp fyrir
freyðandi poppveisluna sem verður
send beint út á tónlistarvefsíðu
Coca-Cola, www.coca-cola.is. Að-
gangseyrir er fimmhundruð krónur
og hefjast leikar klukkan 22:00.
Lögin eru skissur
HAUKUR Gröndal saxófónleikari
útskrifaðist úr tónlistarskóla FÍH
vorið 1997 og fór þá um haustið til
Kaupmannahafnar þar sem hann
hefur dvalið við nám og störf und-
anfarin tvo ár. Síðan um áramót
hefur hann spilað með þeim Stef-
ani Pasborg trommuleikara og
Morten Lundsby kontrabassaleik-
ara og eru þeir nú komnir með
honum hingað til lands til að
halda tónleika.
Þeir félagar ætla að spila á Sól-
on Islandus í kvöld en halda svo
út á land og munu spila í Deigl-
unni á Akureyri á fimmtudags-
kvöldið, á Hótel Reynihlíð við Mý-
vatn föstudagskvöldið, á Kaffi
Krók á Sauðárkróki á laugardags-
kvöldið og á sunnudagskvöldið
leika þeir svo í Kirkjuhvoli í
Garðabæ og eru þeir tónleikar
hluti af djasshátíð Garðabæjar.
„Við spilum djass og töluvert af
lögum er eftir okkur í sjálfa,“ seg-
ir Haukur í samtali við blaða-
mann. „Hljóðfæraskipanin er svo-
lítið sérstök, við leikum á tromm-
ur, bassa og altsaxafón og erum
því ekki með neitt hljómahljóð-
færi. Þá er það kontrabassaleik-
arinn sem útlistar þá hljóma sem
eru í gangi og hann spilar nátt-
úrulega bara eina nótu í einu og
þá hef ég miklu meira frelsi þegar
ég leik á saxófóninn yfir. Þannig
hefur línan fjölbreyttari mögu-
leika á því að leysast upp þegar
við erum að spinna.“
Hann segir að þeir félagarnir
hafí spilað mikið saman og séu
farnir að þekkja vel hver inn á
annan. Það sé mikilvægt í tónlist
sem þessari þar sem tónlistin
spinnst áfram um leið og hún er
leikin. „Þetta er fyrst og fremst
spuni hjá okkur en auðvitað styðj-
umst við einnig við ákveðið form.
Þó mætti kannski frekar kalla
lögin sem við leikum skissur, því
meirihlutinn af laginu er yfirleitt
spuni. Samt verður að gefa tóninn
og setja ákveðna stemmningu og
það er það sem lagið gerir.“
MYNPBÖNP
Sönn
sakamál
Versace morðið
(The Versace Murder) _
Glæpasaga
★
Framleiðandi: Sam Lupowitz. Leik-
stjórn og handrit: Menahem Golan.
Aðalhlutverk: Shane Perdue, Franco
Nero og Steven Bauer. (91 mín)
Bandarísk. Myndform, júní 1999.
Bönnuð innan 16 ára.
Hér eru á ferðinni eins konar
„sönn sakamál" í kvikmyndalíki,
þ-e. ákaflega ódýr og einfeldnings-
}eg útlistun á glæpaferli raðmorð-
ingja sem tískukóngui'inn Gianni
Versace varð fyrir barðinu á er
hann var myrtur fyrir utan heimili
sitt. Settir eru á svið atburðir er
tengdust málinu og sagan sögð frá
sjónarhorni ólíkra persóna, þó aðal-
lega morðingjans, Andrews Cunan-
ans, Ver-
saces og
tveggja
velval-
inna lög-
reglu-
manna.
Þó svo
að mynd-
in sé svo
illa gerð
tækni-
lega að
nánast
má heyra
þruskið í
upptökuliðinu og tónlistarsetning sé
sú ömurlegasta sem sögur fara af,
er hún á vissan hátt athyglisverð í
hallærisleika sínum. Að baki fram-
setningunni liggur einlægur metn-
aður sem skilar dálítilli dramatík
mitt í öllum lélegheitunum. Shane
Perdue túlkar rugludallinn Cunan-
an ágætlega og Franco Nero er
sjarmerandi í hlutverki Versace. Al-
ríkislöggumar tvær sem bregður
víða fyrir eru hins vegar hlægilegar
staðalgerðir sem njóta þess vafa-
sama heiðurs að flytja heimspeki-
lega lokaræðu myndarinnar.
Heiða Jóhannsdóttir
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
HAUKUR GRÖNDAL , Stefan Pasborg og Morten Lundsby á æfingu í
Hljómskálanum. Þeir halda tónleika á Sólon Islandus í kvöld og spila
svo á Akureyri, á Mývatni og á Sauðárkróki seinna í vikunni.
úrual af fatnadi fyrir
alla aldurshópa
Faxaiem 8
OpH: mán-flm 10-18
fii 10-19
tau 10-18
Su 12-17
Aðsendar greinar
á Netinu
,5> mbl.is
VS'
lí.t*k/= errrH\^K£j /vm
IDIGITAL
ÆW-UlJHn JAiVflrílll .HMT.iTNlP
NÝJAE
Barrymore David Árquette
HUN HEFUR ALDREI
TOLLAÐ í TÍSKUNNI...
..FYRREN NÚNA.
been
ToUircMdf
Sýnd kl. 9.
BSCODIGITAL
*
www.samfilm.is
W