Morgunblaðið - 07.08.1999, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1999 11
FRÉTTIR
Formaður Skógræktarfélags Islands
á aðalfundi á Laugarvatni
Tímabært að semja
reglur um framtíð
Vinaskógar
/ /
A aðalfundi Skógræktarfélags Islands sem stendur
yfír að Laugarvatni um helgina verður í dag haldið
áfram að fjalla um skógrækt frá ýmsum hliðum og
síðar fara fulltrúar í skoðunarferð í Vinaskóg, til
Nesjavalla og að Snæfoksstöðum.
HATT í 200 manns, fulltrúar og gestir, sitja nú
aðalfund Skógræktarfélags íslands á Laugar-
vatni og er þess nú minnst að öld er liðin frá
því að skipulögð skógrækt hófst í landinu. I
skýrslu Huldu Valtýsdóttur, formanns félags-
ins, kom m.a. fram að tímabært væri að gera
úttekt á því sem unnið hefur verið í Vinaskógi
og semja reglur um framtíð hans.
I ávarpi sínu við upphaf fundarins sagði
Oskar Þór Sigurðsson, formaður Skógræktar-
félags Amesinga, að fyrir 100 árum hefði víða
stefnt í óefni með gróður í Amessýslu vegna
skógarhöggs og ofbeitar og uppblásturs í kjöl-
farið. Þá hafi aðeins verið landnámsskógur í
fimm af 13 hreppum sýslunnar og tilraunir til
skógræktar á síðustu öld Mtinn árangur borið.
Það hafi breyst árið 1899 með komu mennt-
aðra manna á sviði skógræktar og á þessari
öld hafi tekist að snúa taflinu við í sýslunni og
græða mörg sárin vegna þúsund ára búsetu.
Arangur megi nú sjá í öllum byggðarlögum.
Hulda Valtýsdóttir lagði fram skýrslu
stjómar og rakti í nokkmm orðum helstu
verkefni stjómarinnar á liðnu starfsári. Sagði
hún það meðal annars sérstakt fagnaðarefni
að tekist hefði að undirrita þjónustusamning
við hið opinbera í mars um framhald land-
græðsluskógaverkefnisins sem hún sagði tví-
mælalaust eitt merkasta skógræktarverkefni
í sögu íslenskrar skógræktar. Með samningn-
um veitir ríkið ákveðið fjármagn til verkefnis-
ins með tilgreindum markmiðum og skiiyrð-
um og nemur upphæðin 12 til 16 miiljónum
króna árlega til ársins 2003. Formaðurinn
sagði einn reitinn í landgræðsluskógaverkefn-
inu, Vinaskóg, hafa nokkra sérstöðu og hefði
hann vakið athygli víða um lönd enda fjöl-
margir þjóðarleiðtogar komið þar við í heim-
sóknum sínum hingað til lands. Hún sagði
brýnt að Vinaskógur fengi að halda sérstöðu
sinni á alþjóðavettvangi og tryggja yrði hon-
um fjármagn.
Þá vék Hulda að Yrkjusjóðnum, sjóði æsk-
unnar til ræktunar landsins sem frú Vigdís
Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti íslands,
stofnaði og fór fram á að Skógræktarfélag ís-
Morgunblaðið/Jón Geir Pétursson
NÆRRI 200 manns, aðalfundafulltrúar og gestir, sitja aðalfund Skógræktarfélags fslands.
lands sæi um. Sagði hún að á síðasta ári hefðu
um 8 þúsund nemendur tekið þátt í gróður-
setningu rúmlega 35 þúsund plantna og ætti
nú um helmingur grunnskóla landsins aðild að
sjóðnum. Sagði hún nauðsynlegt orðið að ráða
sérstakan starfsmann til að sjá um verkefni
sjóðsins og hún sagði ætlunina að leita til
menntamálaráðherra um stuðning við útgáfu
handbókar fyrir kennara um fræðsluefni. Var
kynnt tillaga þess efnis á aðalfundinum.
Við umræður um undirbúning stjómar-
kjörs kom það fram á fundinum að Hulda gef-
ur ekki kost á sér til áframhaldandi setu í
stjóm. Ný stjórn Skógræktarfélagsins verður
kosin á sunnudagsmorgun en þá lýkur aðal-
fundastörfum.
Fjárveiting vanáætluð
Jón Loftsson skógræktarstjóri sagði í
ávarpi sínu að Furulundurinn á Þingvöllum
væri fyrsti þjóðskógur landsmanna og væri
táknrænt að hann skyldi standa þar sem á
þessari öld hefði verið minnst allra helstu at-
burða er tengdust sjálfstæði þjóðarinnar.
Hann sagði þjóðskógana hafa æ meira hlut-
verki að gegna í framtíðinni, þeir væm vin-
sæiir áfangastaðir ferðamanna, háskólar
skógræktarmanna, vettvangur rannsókna og
tilrauna og kvaðst hann vilja nefna þá fjöregg
íslenskrar skógræktar. Hann sagði hlutverki
Skógræktar ríkisins hafa verið breytt frá því
að vera stærsti framkvæmdaraðili í skógrækt.
Væri henni nú ætlað að sinna rannsóknum,
ráðgjöf, áætlanagerð og eftirliti með þeim að-
ilum sem væra stærstu framkvæmdaraðilar,
þ.e. landeigenda.
Skógræktarstjóri sagði ekki hafa verið
áætlað nægUegt fjármagn til hins breytta hlut-
verks og að stofnunin glímdi nú við mesta fjár-
hagsvanda í sögu sinni. Skógræktarstjóri
sagði skipulagsyfirvöld gera æ meiri kröfur
um áætlanir og ríkið meiri kröfur um eftirlit
með fjármagninu sem veitt væri til mála-
flokksins. Hann sagði vanta skilning ráða-
manna á því að undirbúningsstarfið, rann-
sóknir, ráðgjöf og fræðsla kostaði fjármagn tU
að raunveralegur árangur næðist. Nauðsyn-
legt væri að ráðamenn gerðu sér grein fyrir að
skógrækt snerist ekki aðeins um að framleiða
plöntur og gróðursetja. Sagði skógræktar-
stjóri mögulegt að koma upp tugum þúsunda
hektara skóglendis með friðunaraðgerðum
eingöngu með því að koma upp gróðureyjum
og láta náttúrana og tímann um framhaldið.
Sigurður Blöndal, fyrrverandi skógræktarstjóri, stiklar á stóru í 100 ára sögu skógræktar á íslandi
VIÐ erum að skapa enn stærra ís-
land með tugum nýrra trjátegunda
sem vaxa fimm til tífalt á við ís-
lenskar tegundir, með nýjum mögu-
leikum fyrir efnahag og yndi fólks,
sagði Sigurður Blöndal, fyrrverandi
skógræktarstjóri, meðal annars í
erindi sínu á aðalfundi Skógræktar-
félags Islands, sem hann nefndi
Stiklað á 100 ára sögu.
Sigurður nefndi helstu áfanga í
aldarlangri skógræktarsögu lands-
manna sem segja má að hafi byrjað
með því að settar vora niður 5 þús-
und plöntur frá Danmörku árið 1899
og þá voru einnig samþykkt lög um
friðun Hallormsstaðaskógar. Meðal
framkvöðla vora Sigurður Sigurðs-
son, sem lærði skógfræði í Noregi
og skrifaði mikið um skógrækt í
Búnaðarritið, og Christian Flens-
borg, frá Danmörku, sem hér starf-
aði í 6 ár og skrifaði ítarlegar skýrsl-
ur um skógræktarmálefni hérlendis
á fyrstu áram aldarinnar. Aldamóta-
árið vora gróðursettar blæaspir frá
Jótlandi að Grand í Eyjafirði og seg-
ir Sigurður þar nú vera stærsta
blæaspaskóg landsins. Ári síðar er
Skógræktarfélag Reykjavíkur stofn-
að og var Steingrímur Thorsteins-
son fyrsti formaður þess.
Jarðir keyptar fyrir skógrækt
Árið 1903 er landstjóminni heim-
ilað að kaupa af kirkjujarðasjóði
kirkjujarðimar Hallormsstað, hluta
af jörðinni að Hálsi og Vagli í
Fnjóskadal og þannig hafi þeir
skógar orðið til. Sigurður nefndi að
Skapar stærra Island
með nýjum möguleikum
Agnar Kofoed Hansen skóg-
ræktarstjóri hefði lýst því
yfir á öðrum áratug aldar-
innar hversu óánægður
hann væri með vöxt er-
lendra trjátegunda hér og
snúið sér að friðun og grisj-
un íslenskra skógrækta; á
starfstíma hans hefðu verið
friðaðir 16 reitir, 2.940 hekt-
arar, og hafi hann lýst að-
ferð til að rækta birkiskóg
með sáningu. Sagði hann
best heppnaða birkireitinn
vera að Haukagili í Vatns-
dal.
Hákon Bjamason var
fyrsti Islendingurinn sem
lauk háskólaprófi í skóg-
ræktarfræði í Danmörku og
réðist hann til Skógræktar-
félagsins. Sagði Sigurður að
hann hefði fyrstur skóg-
ræktarmanna á Norðurlönd-
um látið gera kvikmynd til
fræðslu um skógrækt, sem
heitir „Þú ert móðir vor
kæra“, og sigldu fleiri
myndir í kjölfarið. Hákon lét
fiytja trjátegundir frá Nor-
egi og stóð fyrir fræsöfnun í
Morgunblaðið/Jón Geir Pétursson
FORMAÐUR Skógræktarfélags íslands er Hulda
Valtýsdóttir. Með henni er Sigurður Blöndal,
fyrrverandi skógræktarstjóri, sem flutti erindi
um skógrækt í 100 ár.
Alaska og fór m.a. þangað
sjálfur í því skyni og safnaði
þar einum 30 kg af sitka-
grenifræjum.
Sigurður Blöndal sagði
viðamikil lög um skógrækt
hafa verið samþykkt árið
1955 og kvað hann brýnt að
fá ný lög samþykkt. Taldi
hann það slys að ekki hefði
tekist að afgreiða þau á síð-
asta Alþingi. Að sögn Sig-
urðar tók lítill bolti að rúlla í
sumarbyrjun 1970 þegar
hafin var nytjaskógrækt á
fimm býlum í Fljótsdal í
Norður-Múlasýslu, sem
hann sagði að hefði leitt til
þess sem nefnt væri héraðs-
skógar í dag.
I lokaorðum sínum sagði
Sigurður að með skógrækt
væra landsmenn að skapa
eitthvað nýtt, skógræktar-
ráðunautar væra arkitektai-
sem útveguðu skógræktar-
félögunum vinnuteikningar
að nýju landslagi. Hann
sagði skóga í þéttbýli ekki
síður mikilvæga og væru
þeir ein mesta umbylting
sem íslendingar hefðu lifað. Nefndi
hann að einn stærsta reyniviðar-
skóg landsins væri að finna í Norð-
urmýrinni í Revkjavík.
„Hugleiðingar á hátíðarfundi“ hét
erindi sem Matthías Johannessen,
formaður Yrkju, flutti um skáld-
skap og gróður.
Hnignun eða hagsæld?
Grétar Guðbergsson, jarðfræð-
ingur hjá Rala, flutti síðan erindi
sem hann nefndi menningarlands-
lag á Islandi, gróður, lög og saga.
Sagði hann jökla og eldgos hafa
einna mest áhrif á gróðurfar, jöklar
hreyfðust eins og harmonika og
þannig myndaðist efni sem fyki upp
og ryfi landið. Hann taldi beit ekki
hafa orðið skaðvald á landinu fyrr
en eftir 1800 enda hafi verið í gildi
lög um ítölu, þar sem talið væri í
hagann og þess gætt að ekki væri
of- eða vanbeitt og sagði hann menn
hafa litið betur eftir högum þá en
nú. Vildi Grétar meina að lög er
snertu hegðan fólks hefðu verið
merkilega vistvæn og óvilhöll í
gegnum aldalanga búsetu í landinu.
Þó hefðu lög um að ryðja skóg og
uppræta tré valdið nokkram skaða.
Hann sagði sauðfé hafa fækkað úr
900 þúsund fjár í um 490 þúsund og
með aukinni áherslu á skógrækt og
uppgræðslu væri hægt að snúa vöm
í sókn. Kvað hann eins víst að
hnignun væri fram undan ef fram-
hald yrði á rányrkju en stuðla
mætti að hagsæld með nýjum at-
vinnutækifæram.
Útsala
20-70%
afsláttur
Opið í dag frá ld. 10-16
HREYSTI
ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL
— Skeifunni 19 - S. 568 1717-
Riissell Athletic bómull/flcece - Better Bodies - Columbia fatnaður - Tyr sundfatnaður - Fæðubótarefni o.m.fl.