Morgunblaðið - 07.08.1999, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1999 35
Ungverskur organisti
í Hallgrímskirkju
UNGVERSKI organistinn Sza-
bolcs Szamosi leikur á orgel í Hall-
grímskirkju á tónleikum Kirkju-
listahátíðar á morgun, sunnudag,
kl. 20.30. Á efnisskrá er annars
vegar ungversk tónlist og hins
vegar þekkt verk úr orgelbók-
menntunum.
Fyrst á efnisskránni er verkið
Canticum Carmeli eftir ungverska
tónskáldið og organistann István
Koloss. Hann er prófessor við tón-
listarháskólann í Búdapest og eitt
stærsta nafnið í tónlistarlífí Ung-
verja í dag. Szamosi leikur líka
Chorese Hungaricae, upphaflega
eftir óþekktan höfund á 17. öld en
Koloss útsetti það fyrir orgel.
Þá leikur Szamosi Konsert í a-
moll BWV 593 sem Antonio Vi-
valdi skrifaði upphaflega fyrir
strengi en Bach umritaði fyrir org-
el. Síðast á efnisskránni eru verk
frá rómantíska tímabilinu. Annars
KVIKMYJVÐIR
Háskólabfó, Laugar-
ásbfó, Nýja bíó Akur-
eyri. IVýja bíó, Kefla-
vfk.
NOTTING HILL
Leikstjóri Roger Michell. Handrits-
höfundur Richard Curtis. Kvik-
myndatökustjóri Michael Coulter.
Tónskáld Trevor Jones. Aðalleikend-
ur Hugh Grant, Julia Roberts, Ric-
hard McCabe, Rhys Ifans, James
Dreyfus, Dylan Moran, Alec Baldwin.
120 mín. Bresk/Bandan'sk.
Polygram, 1999.
ÖSKUBUSKA er á stjái í London.
Nánar tiltekið í líki reisubókasalans
og meðaljónins Williams Thatcher
(Hugh Grant), í rómantísku gaman-
myndinni Notting Hill. Thatcher
rekur bóksölu sína í þessu ágæta
hverfi, sem er í svipaðri órafjarlægð
frá Beverly Hills og Anna Scott
(Julia Roberts), frægasta kvik-
myndaleikkona veraldar, frá bók-
mangaranum. Hann dregur fram
lífið í sinni fábrotnu veröld, í basli
með að eiga fyrir kaffisopa. Engu
að síður birtist hofróða hvíta tjalds-
ins einn veðurdag inní búðarholu
Thatchers, ein tilviljunin rekur aðra
uns skötuþjúin ólíku verða ástfang-
in. Áður en þau ná endanlega saman
verða vitaskuld nokkrir árekstrar
uns allt fellur í ljúfa löð.
Allt er þetta léttvægt fundið og
óforbetranlega fyrirsjáanlegt, en
ekki alls varnað. Notting Hill virkar
vegar Prelúdía og fúga yfir stefið
B-A-C-H eftir Franz Liszt og Þrír
kaflar úr 5. orgelsinfóníu Charles-
Marie Widors.
Szabolcs Szamosi fæddist í
Pécs í Ungverjalandi árið 1970.
Árið 1993 lauk hann BA-prófi í
tónlist, stærðfræði og kennslu-
fræðum frá Janus Pannonius-há-
skólanum í Pécs. Kirkjutónlistar-
nám stundaði hann í Búdapest og
orgelnám hjá organistanum og
tónskáldinu István Koloss. Þá er
hann að ljúka framhaldsnámþvið
tónlistarháskólann í Graz. Árið
1994 var hann ráðinn
dómorganisti í Pécs og kórstjóri
þar. Síðan þá hefur hann m.a.
skipulagt orgeltónleikaröð í dóm-
kirkjunni. Szabolcs Szamosi hefur
komið fram á orgeltónleikum víða
um Mið-Evrópu auk þess sem
leikur hans hefur verið gefinn út á
geislaplötum.
þó best á öðrum forsendum en til er
ætlast. Gamanið er einkum fólgið í
hegðun og hlutskipti aukapersón-
anna, sem er fyndinn og frumlegur
hópur. Með guðsvolaðan Walesbúa í
fararbroddi, meðleigjanda bóksal-
ans. Hann á bestu línumar og leik-
arinn óborganlegur. Systir
Thatchers er einnig nýstárleg per-
sóna og aðrir í vinahópnum hafa yf-
ir sér virkilega ósvikinn blæ. Saga
aðalpersónanna verður hinsvegar
yfirmáta velluleg, endirinn ódýr,
samleikur Grants og Roberts ótrú-
verðugur og líflaus. Roberts er
meginvandamálið. Hún hefur sætt
bros, lengra nær útgeislunin ekki.
Grant er þó alltént geðugur leikari,
þótt það dugi ekki til að gera sam-
band þeirra áhugavert.
Myndir af þessu sauðahúsi eru í
rauninni Grimmsævintýri fyrir full-
orðna og eiga ekki að vera trúverð-
ug frekar en önnur slík. Þau þurfa
hinvegar að halda áhuga manns
vakandi líkt og önnur afþreying og
því miður heldur Notting Hill
dampinum misvel. Á bestu sprett-
ina meðal litríks almúgans í London
en missir flugið þegar athyglin
beinist að kvikmyndagyðjunni. Þar
er handritshöfundurinn, Richard
Curtis, (Fjögur brúðkaup ogjarðar-
för), í lausu lofti. Notting Hill er
greinilega hans heimavöllur. Engu
að síður er myndin dágóð geðbót og
skilur við mann ágætlega afslappað-
an, takk fyrir kærlega. Eða var það
fallega, sunnlenska ágústveðrið?
Sæbjörn Valdimarsson
Borgarleikhúsið
Tólf þúsund
hafa séð
Litlu hryll-
ingsbúðina
SÖNGLEIKURINN Litla hryll-
ingsbúðin sem frumsýndur var í
Borgarleikhúsinu í byrjun júní hef-
ur notið mikilla vinsælda í sumar
að sögn Jóhannesar Skúlasonar
kynningarfulltrúa Leikfélags
Reykjavíkur. Nú þegar hafa nær
tólf þúsund manns séð sýninguna á
23 sýningum og verður sýningum
fram haldið í ágúst og fram á
haustið eftir því sem aðsókn gefur
tilefni til.
„Nú þegar eru auglýstar sýning-
ar í ágúst að seljast upp og líklega
verður bætt við aukasýningum til
að mæta eftirspurninni áður en
leikárið hefst í byrjun september
og önnur verkefni bætast við,“ seg-
ir kynningarfulltrúi Leikfélagsins.
Leikstjóri Litlu hryllingsbúðarinn-
ar er Kenn Oldfield, tónlistarstjóri
er Jón Ólafsson og leikendur eru
Þórunn Lárusdóttir, Valur Freyr
Einarsson, Stefán Karl Stefánsson,
Eggert Þorleifsson, Selma Björns-
dóttir, Bubbi Morthens, Jóhanna
Vigdís Arnardóttir, Hera Björk
Þórhallsdóttir og Regína Ósk
Óskarsdóttir.
--------------
Titanic-sýning-
unni að ljúka
SÝNINGU um þekktasta skip allra
tíma, Titanic, í húsnæði Hafnar-
fjarðarleikhússins, lýkur nú á
sunnudag.
Sýningin er opin alla daga frá 10-
22 og er gengið inn frá Norður-
bakkanum, gegnt stóru flotkvínni.
Nýjar bækur
• INNANVID gluggann er
ljóðabók eftir Andrés Guðnason.
I fréttatilkynningu segir að í
bókinni sé
ýmislegt sem eftir
lá, þegar
ljóðabókin
Hugarflug kom út
árið 1995.
Ennfremur eru í
bókinni nýrri Ijóð
og vísur, sem
höfundur gat ekki
stillt sig um að setja á blað við ýmis
tækifæri. Einnig hestavísur,
tækifæriskveðskapur og
kunningjaminni.
Ennfremur er komin út bókin
Blaðagreinar frá liðnum árum
eftir Andrés. Bókin hefur að geyma
flestar þær greinar sem hann hefur
skrifað í blöð á liðnum 36 árum.
Kennir þar margra grasa, en
flestar greinarnar varpa ljósi á þá
umræðu, sem var í gangi í
þjóðfélaginu á hverjum tíma.
Einnig eru nokkrar fræðilegar
greinar. Hægt er að sjá hvenær
greinarar voru birtar.
Andrés Guðnason hefur gefið út
nokkar bækur á síðustu árum.
Höfundur gefur út. Ljóðabókin
er 92 bls. og Blaðagreinarnar eru
138 bls.
Barnavagnar
Rauðarárstíg 16,
sími 561 0120.
Gyðjan og
bókmangarinn
Andrés
Guðnason
LISTAMENNIRNIR Eduardo Santiere og Faith Copeland
fyrir utan Straum.
Norrænt landslag í
Listasafni Arnesinga
í LISTASAFNI Ámesinga
verður opnuð sýninga á verk-
um þriggja erlendra lista-
manna í dag, laugardag, kl. 14.
Eduardo Santiere er fædd-
ur í Buenos Aires, en dvelur
nú í Listamiðstöðinni í
Straumi. í fréttatilkynningu
segir að landabréf heilli Edu-
ardo, sem sér ísland eins og
skapnað, sem iðar og hreyfist
í sjónum. Hann teiknar með
finlegum blýantsdráttum ofan
í kort af íslandi. í grunninn
ríður hann net af línum, sem
hann segir vera kraftlínur
jarðarinnar.
Elisabet Jarsto mun sýna
myndbandsverk sitt
„Vendetta“ eða blóðhefnd, sem
byggt er á íslensku landslagi. Hún
er fædd í Stafangri og kom fyrst
til íslands 1985 og nam við MHÍ.
Aftur kom hún 1988 ásamt norsk-
um og þýskum listamönnum og
dvaldist tvo mánuði í Landmanna-
laugum og Þórsmörk og síðan á
Korpúlfsstöðum. Afraksturinn af
ferðinni var sýndur í Norræna
húsinu og kallaðist Þrenna I.
Verk Faith Copeland eru undir
áhrifum frá fegurðinni sem hún
sér í náttúrunni. Myndirnar ein-
kennast bæði af lífsgleði og glað-
legum litum, auk áhrifa af lands-
ELISABET Jarste með
myndbandsverk sitt.
lagi frá norðlægum slóðum, eink-
um Færeyjum og íslandi. Hún
málar fugla, oft lunda, eða mótíf af
dönskum þorpum og strandlengj-
um. Faith hefur sýnt víða í Dan-
mörku, Færeyjum og Bandaríkj-
unum.
Listasafnið er opið fimmtu-
daga-sunnudaga kl. 14-17. Sýn-
ingunni lýkur sunnudaginn 22.
ágúst
Súrefnisvörur
Yarin Herzog
Vita-A-Koinbi
Mikilvæg tilkynning um öryggi
Action Man Bungee Jump Extreme teygjustökksbeisli
Stöðugt öryggiseftirlit okkar hefur leitt i Ijós að nauðsynlegt er að skipta
um krók á Action man Bungee Jump teygjustökksbeislinu.
Hasbro hefur komist að þeirri niðurstöðu að ef gripkrókurinn er ekki
notaður samkvaemt þvf sem mælt er fyrir getur hann losnað, skroppið til
baka og slegist f notandann.
I varúðarskyni hefur Hasbro ákveðið að innkalla öll Action Man Bungee
Jump Extreme teygjustökksbeisli ef þau eru búin gripkrók (sjá myndina
hér fyrir ofan).
Notendur, sem hafa I fórum sfnum Action Man Bungee Jump gfnu, ættu
að hætta að nota beisliö og gripkrókinn, fjarlægja og senda hvort
tveggja - en ekki gínuna) til Hasbro BV, Nomdenweg 2, 9561 Ter-apel,
Holland. Burðargjald verður endurgreitt. Við sendum sfðan nyjan búnað
í staðinn. Notendur geta hringt til neytendaþjónustu Hasbros f eftirtalin
númer: +45 43 270101 og fengið frekari upplysingar.
Vinsamlegast athugið að þessi innköllun miðast a eins við Action Man
Bungee Jump Extreme teygjustökksbeislið með gripkrók. Málið snertir
ekki aðrar Action Man vörur.