Morgunblaðið - 08.08.1999, Page 1

Morgunblaðið - 08.08.1999, Page 1
176. TBL. 87. ÁRG. SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Skæruliðaátök í Kákasushéruðum Rússlands Stepasjín skipar hernum á vettvang* Moskvu. Reuters, AFP. SERGEI Stepasjín, forsætisráðherra Rúss- lands, fyrirskipaði í gær að herinn kæmi á Mði og spekt í Dagestan-héraði í Kákasusfjöllum, á landamærum Rússlands og Tsjetsjníu, þar sem skæruliðar múslíma umkringdu tvö þorp í gærmorgun, að sögn rússneskra fréttastofa. Anatoly Kvasjnín, yfirhershöfðingi land- hersins, og Vjatsjeslav Ovtsjíníkov, yfirmaður öryggissveita innanríkisráðuneytisins, fengu skipanir um að grípa tafariaust til aðgerða „til að koma skikk á ástandið á landamærum Da- gestan og Tsjetsjníu“, eftir því sem háttsettur embættismaður í Moskvu tjáði fréttamönnum. Jtar-Tass-fréttastofan sagði hershöfðingjun- um hafa verið gert að fást við vandann „af há- marksskilvirkni". Stepasjín, sem er á embættisferðalagi í Volga-héraði austur af Moskvu, ræddi í gær í síma við héraðsleiðtogann í Dagestan, Ma- gomedali Magomedov, um ástandið á átaka- svæðinu. Rússneski herinn háði á árunum 1994-1996 með hléum stríð við uppreisnarmenn múslíma í Tsjetsjníu, sem hann tapaði. Stepasjín lýsti því yfir á föstudag að ekki myndi koma til neins nýs stríðs í Kákasushéruðunum en sagði að hvers konar tilraunum róttækra múslíma tii að sölsa hluta þeirra undir sig yrði mætt af fullu afli. Sagðir viija sameiningu við Tsjetsjníu Frá því sl. mánudag hefur spenna aukizt mikið á landamærum Dagestan og Tsjetsjníu, þegar 11 manns létu lífið í átökum sem stjórn- völd gerðu skæruliða múslíma, sem vildu koma á íslamskri stjórn og sameina hluta Dagestan Tsjetsjníu, ábyrga fyrir. Samkvæmt upplýsingum fréttastofa fór um 200-500 manna flokkur vopnaðra manna yfir landamærin frá Tsjetsjníu inn í Dagestan snemma í gærmorgun. í flokknum voru sagðir vera bæði Tsjetsjenar og Dagestanar. Stepasjín lék stórt hlutverk í hrakfaraherför Rússa á hendur uppreisnarmönnum í Tjset- sjníu, en á meðan á henni stóð fór hann fyrir rússnesku leyniþjónustunni. Moskvustjórnin hefur nú í raun ekkert vald yfir Tsjetsjníu þótt opinberlega sé hún enn hluti Rússlands. Morgunblaðið/RAX Bær Eiríks rauða endurreistur FRAMKVÆMDIR við endurgerð bæjar Eiríks rauða í Brattahlíð á Grænlandi ganga vel. Smíði bæjarins og kirkju við hann hófst á Islandi f byrjun ársins, með aðferðum sem talið er líklegt að notaðar hafi verið á tímum Eiríks rauða. Bærinn var fluttur til Brattahlíðar í vor þar sem 14 manna vinnuhópur frá ístaki og Torf- og grjóthleðslunni ehf. hafa unnið að bygg- ingu hans í sumar. Engir málmnaglar eru notaðir við smiðina og torf og grjót í veggjum er grænlenzkt, þótt gott torf sé þar vandfundið. Framkvæmdum lýkur að mestu í haust og verður bærinn vígður við hátíðlega athöfn í júlí á næsta ári. --------------- Hert að andófs- mönnum í Kína Peking. Reuters. KÍNVERSK stjórnvöld hafa hert á aðgerðum gegn meintum stjórnarandstæðingum, nú þeg- ar 50 ára afmæli „rauða Kína“ nálgast. I gær greindu mannréttindasamtök frá því að til stæði í vikunni að fella fangelsisdóma yfir fjór- um baráttumönnum fyrir auknum lýðréttind- um í Kína. í liðinni viku voru fjórir aðrir dæmdir, einn þeirra í 13 ára fangelsi, en það er þyngsti dómur sem kveðinn hefur verið upp yfir kínverskum andófsmanni á árinu. • • Okuprófum aflýst vegna sólmyrkva MIKIÐ sólmyrkvafár hefur gripið um sig í Bretlandi og víðar þar sem skuggi tungls- ins mun lenda á jörðinni á miðvikudaginn. Almyrkvi verður á 111 km breiðu belti sem nær frá miðju Atlantshafi og berst með 2.450 km hraða yfir suðvesturodda Englands, Frakkland, Suður-Þýzkaland, Austurríki, Ungverjaland, Rúmeníu, Búlgaríu og áfram austur yfir Svartahaf, Tyrkland, Irak, íran, Pakistan og Indland unz hann endar í Bengalflóa. Lengst mun verða hægt að virða almyrkvann fyrir sér í Rúmeníu, þar sem hann mun vara í 2 mínútur og 23 sekúndur. Yfirvöld í Bretlandi hafa af völdum hins væntanlega sólmyrkva aflýst þúsundum ökuprófa, sem fara áttu fram um miðjan dag á miðvikudag þar sem óttazt er að þeir sem undirgangast prófin tapi athygl- inni þegar myrkur skellur skyndilega á um hábjartan daginn. Brezk yfirvöld hafa líka áhyggjur af umferðaröngþveiti þegar um ein og hálf milljón landsmanna reynir að flykkjast til Cornwall, sem búizt er við að gerist fram á miðvikudaginn, en í þeim landshluta sést sólmyrkvinn bezt. Dauðarefsingar skuli víkja BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti hefur beð- ið Dúmuna, rússneska þingið, formlega um að nema lög er kveða á um dauðarefs- ingar úr gildi í samræmi við ályktanir Evrópuráðsins. Talið er þó ólíklegt að þingmenn muni fallast á beiðni Jeltsins fyrr en í fyrsta lagi eftir næstu þingkosn- ingar í desember nk. Rússneskur almenn- ingur er afar fylgjandi dauðarefsingum og telur að þær séu nauðsynlegar til að stemma stigu við sívaxandi glæpaöldu. Rússnesk stjórnvöld hétu því að afnema dauðarefsingar á innan við þremur árum eftir að Rússar urðu aðilar að Evrópuráð- inu árið 1996. Með setu í Evrópuráðinu er aðildarríkjum þess meinað að framkvæma dauðarefsingar á friðartímum. Skjöl um dauða Díönu prinsessu BANDARÍSK stjómvöld eiga í fómm sin- um skjöl er varða dauða Díönu prinsessu en vilja ekki láta þau af hendi vegna ógn- ar við þjóðaröryggi Bandaríkjanna, að því er fram kemur í frétt breska dagblaðsins Guardian. I fréttinni kemur fram að Þjóðaröryggismálastofnun Bandaríkjanna hafi ekki ætlað að sér að rannsaka dauða Dionu en að upplýsingar uin tildrög dauða hennar hafi borist stofnuninni við vepju- bundna upplýsingaöflun. HAFA LÆKNAR 10 DREGIST AFTUR ÚR? listin hans Nóa Smíðaði húsgögn fyrir Davíð Stefánsson FLJÓTANDI ÍS TRYGGIR FERSKARI VÖRU

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.