Morgunblaðið - 08.08.1999, Qupperneq 6
6 SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Þenslan á hlutabréfamarkaðnúm í Bandaríkjunum
Næsta loftbóla
sem springiir?
FJÁRFESTAR fagna gengishækkun bandarískra
hlutabréfa í kauphöllinni í New York.
Reuters
eftir Jeffrey Sachs
The Project Syndicate.
VERULEGAR líkur eru á því að
uppganginn í efnahag Bandaríkj-
anna megi rekja til loftbólu gróða-
bralls af sama toga og bólumar
sem sprungu í mörgum löndum
heims fyrr á þessum ái-atug - Jap-
an, Kóreu, Mexíkó, svo fá dæmi séu
nefnd. Goðsögnin um efnahagsleg-
an ósigranleika lágu að baki þess-
um fjármálaloftbólum.
Japanir töldu sig ósigrandi fyrir
tíu árum. Þótt ótrúlegt sé töldu
margir alvöruþrungnh- fjármála-
spekingar á þessum tíma að
japönsk fyrirtæki væru um það bil
að sigra heiminn ... það er að segja
áður en gengi japanskra hlutabréfa
lækkaði um rúm 50 prósent. Síðar
héldu Mexíkóar að nýir samningar
þeirra um frjáls viðskipti við
Bandaríkin myndu leiða til mikils
hagvaxtar... nokkrum mánuðum
áður en efnahagurinn hrundi í
mestu kreppunni í Mexíkó í ára-
tugi.
Margir Bandaríkjamenn telja nú
bandaríska efnahaginn óstöðvandi,
að Netbyltingin sem hafín er í
Bandaríkjunum sé mesti viðburð-
urinn frá sjálfri iðnbyltingunni.
Slíkar ýkjur og þenslan á banda-
ríska hlutabréfamarkaðnum, sem
byggist á þessum ofurbjartsýnu
viðhorfum, ættu að gefa mönnum
tilefni til að staldra strax við og at-
huga sinn gang. Hafa menn gerst
sekir um hroka, eins og í fyrri loft-
bólunum? Fari svo að bandaríski
hlutabréfamarkaðurinn hætti að
vaxa, eða dragist jafnvel saman,
hverjar verða þá afleiðingarnar
fyrir önnur röd heims?
Bandaríkin eru knúin áfram af
tveimur þáttum, sem eru vissulega
til marks um raunverulegan styrk
- sveigjanleika markaðskerfísins
og mikilli djörfung við þróun nýrr-
ar tækni. Úppgangurinn í Banda-
ríkjunum að undanförnu byggist að
miklu leyti á gífurlegum fjárfest-
ingum bandarískra fyrirtækja í
nýju upplýsingatækninni. Með
sinni sérstæðu blöndu af frjálsum
mörkuðum og nýsköpun er banda-
ríski efnahagurinn í reynd að end-
urskapa sjálfan sig með ótrúiegum
hraða. Fjármálaloftbólur byggjast
hins vegar oft á sönnum efnahags-
legum styrk. Þetta ástand skapast
þegar þessi styrkur tekur skyndi-
lega á sig ýkta, jafnvel goðsagna-
kennda, mynd í augum fjárfesta,
sem eru þá tilbúnir að kasta gífur-
legu fé í hlutabréfamarkaðinn án
þess að gaumgæfa hvort þeir geti
gert sér raunhæfar vonir um hagn-
að þegar fram líða stundir.
Nýlega kom upp gott dæmi um
þetta. Ámazon, frumkvöðull í smá-
sölu á Netinu - fyrst á bókum og
nú á nánast hverju sem er - til-
kynnti að fyrirtækið hefði tapað
138 milljónum dala (tæpum 10
milljörðum króna) á öðrum fjórð-
ungi ársins þótt sölutekjurnar
hefðu þrefaldast og væru nú 314
milljónir dala (22,6 milljarðar
króna). Fjárfestar voru í sjöunda
himni yfir þessari auknu sölu en
gáfu engan gaum að því fyrirtækið
er enn rekið með tapi... tapi sem
endurspeglar lágan söluhagnað
vegna mikillar samkeppni á
bandaríska smásölumarkaðnum.
Eftir þessa tilkynningu fyrirtæk-
isins hækkaði gengi hlutabréfa
þess um 4 prósent! Fyrirtækið hef-
ur aldrei skilað hagnaði og bókfært
verð eigna þess er um 650 milljónir
dala (47 milljarðar ki’óna). Samt er
fyrirtækið metið á 19 milljarða dala
(1.400 milljarða króna) á hluta-
bréfamarkaðnum, sem gerir það
eitt af 300 stærstu fyrirtækjum
heims miðað við markaðsverð!
Þetta bendir til þess að dóm-
greind bandarískra fjárfesta hafí
brenglast. Jú, vissulega hafa komið
fram fjölmargar kenningar sem
eiga að sanna að markaðsverðið sé
hárrétt. Ef til vill verður herskari
viðskiptavina Amazon til þess að
fyrirtækið skili að lokum hagnaði,
en það hefur ekki enn verið sannað.
Hvað gerist hins vegar ef fjármála-
markaðirnir hafa á röngu að
standa, eins og svo oft hefur gerst í
heiminum á síðustu 10 árum? Hvað
gerist ef sæluvímunni fylgir hrun?
Eitt er víst: bandarískir neytend-
ur myndu láta af kaupæði sínu og
það myndi hægja á bandaríska
efnahagnum. En myndi það valda
samdrætti í Bandaríkjunum? Ef til
vill skammvinnum en líklega ekki
djúpstæðum.
Með lágri verðbólgu, tiltölulega
traustu bankakerfi og fjárlagaaf-
gangi myndi bandaríska stjórnin
líklega hafa svigrúm til að draga úr
áfallinu með fjármálastefnu sinni.
Nokkrir fjárfestar myndu vissu-
iega verða gjaldþrota, en verði
ástandið ekki enn villtara en nú er
myndi bandaríska fjármálakerfíð
Iíklega standast afturkippinn
óskaddað þrátt fyrir allverulega
leiðréttingu á hlutabréfamarkaðn-
um. Yfirvöld í Bandaríkjunum
þurfa samt sem áður að fylgjast
grannt með lánastarfsemi bank-
anna til að tryggja að sæluvíma
fjárfesta breytist ekki í holskeflu
vanhugsaðra útlána.
Myndu önnur ríki heims verða
fyrir miklum skaða vegna leiðrétt-
ingar á bandaríska hlutabréfa-
markaðnum, til að mynda með
minni útflutningstekjum vegna
samdráttar í Bandaríkjunum? Lík-
í stuttu máli má segja
að uppgangurinn í
bandaríska efnahagn-
um kunni að vera fjár-
hagsleg loftbóla.
Milljónir Bandaríkja-
manna sem telja sig
nú fjárfestingarsnill-
inga gætu orðið fyrir
vonbrigðum ef og
þegar bólan springur.
Jafnvel þótt banda-
ríska stoltið bíði
hnekki og einkaneysl-
an í Bandaríkjunum
minnki verður efna-
hagur heimsins lík-
lega ekki fyrir miklum
skaða.
lega myndu þau áhrif einnig verða
fremur væg. Ríki í Evrópu, Asíu,
Rómönsku Ameríku og Afríku
myndu annars vegar standa
frammi fyrir minni markaði í
Bandaríkjunum, en hins vegar er
líklegt að auðveldara yrði fyrir þau
að laða til sín meira fjármagn þar
sem minna fé myndi streyma í
bandaríska efnahaginn. Aukin fjár-
festing heima fyrir gæti því vegið
upp á móti minni útflutningstekj-
um, einkum ef þessi ríki lækka
vexti sína komi til samdráttar í
Bandaríkjunum.
I stuttu máli má segja að upp-
gangurinn í bandaríska efnahagn-
um kunni að vera fjárhagsleg Ioft-
bóla. Milljónir Bandaríkjamanna
sem telja sig nú fjárfestingarsnill-
inga gætu orðið fyrir vonbrigðum
ef og þegar bóian springur. Jafnvel
þótt bandaríska stoltið bíði hnekki
og einkaneyslan minnki verður
efnahagur heimsins líklega ekki
fyrir miklum skaða. Ráðamenn í
ríkjum heims ættu að hafa stjórn-
tæki - einkum peningaleg - til að
draga úr skaðanum, ef þeir nota
þau rétt.
Höfundurínn er forstöðumaður Al-
þjóðlegrar þróunarstofnunar við
Harvard og „Gallen Stone“-pró-
fessor í alþjóðlegum viðskiptum
við Harvard-háskóla. Hann hcfur
veríð helsti erlendi efnahagsráð-
gjafi ríkisstjóma Rússlands, Pól-
lands og Bólivíu.
Menntun í hundana
London. Reuters.
MENNTUN í Bretlandi er á leiðinni
í hundana. Að minnsta kosti telur eitt
af bresku kennarasamböndunum, að
svo ætti að vera en forystumenn þess
hafa óskað eftir því að hundum verði
beitt til að tryggja aga í skólum.
Hugmynd Wendy Dyble, sem kenn-
ir við bamaskóla á Hjaltlandi, um að
notast verði við hunda til að 'tryggja
röð og reglu í skólastofunni fékk góð-
an stuðning meðal fulltrúa á ársfundi
eins af bresku kennarasamböndunum
á dögunum. Að hennar sögn gagnast
stórir hundar vel við að safna bömun-
um saman og tryggja að þau standi
prúð og stillt þegar þess er óskað.
Umrætt kennarasamband er
minnst slíkra samtaka í Bretlandi og
af mörgum talið innihalda flesta
furðufuglana.
Vandað kortasett af íslandf:
Ferðakort 1:600 000 og fjögur
landshlutakort 1:300 000 í
hentugu hulstri og fallegri öskju
(slandskort Máls og menningar
eru landakort nýrrar aldar,
sniðin að þörfum ferðamanna.
Verð I —-1 - wr.-— - .
4,S00.-rí|s.okk<.rt
www.mm.is
'IUno SLaSíd
Mál og menmng
Laugavegi 18 ’ Sfmi 515 2500 • Síöumúla 7 • Sfmi 510 2500
V angaveltur um eft-
irmann Carls Bildts
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
„NÚ er lag að gera það, sem fyrr
eða seinna verður að gerast,“ sagði
Carl Bildt formaður Hægriflokksins
er hann tilkynnti í fyrradag, að
hann gæfi ekki kost á sér sem for-
maður er kjörtímabil hans rennur
út í haust. Kynslóðaskipti í Hægri-
flokknum eða ekki er spumingin,
sem nú brennur á vörum flokks-
bræðra hans og annarra Svía.
Ákvörðunin kom dálítið á óvart
þar sem ýmsum hafði skilist, að
Bildt hygðist halda áfram. Hann
hefur hins vegar verið gagnrýndur
allmikið undanfarið, meðal annars
fyrir að vera of mikið fjarverandi og
fyrir að hlusta ekki á það, sem aðrir
hafa til málanna að leggja. 13 ár
sem formaður eru líka langur tími í
nútíma stjórnmálum.
Sjálfur talaði hann einnig um að
ábyrgðin væri mikil og þung, það
væri annað og meira í lífinu en
stjórnmál. Bildt kvæntist í fyrra
ítalskri samstarfskonu sinni frá
Bosníu en hún er þriðja kona hans.
Undrabarn í stjómmálum
Þegar á menntaskólaárunum
komst Bildt í fjölmiðlana er hann
gagnrýndi skólasystkin sín fyrir að
nota sér kennaraverkfall til að taka
sér frí. Þegar hann varð stúdent
1968 voru það ekki stúdentaupp-
reisnir, sem áttu hug hans allan,
heldur ferðaðist hann um Austur-
Evrópu og hreifst af frelsishreyf-
ingum, sem þar voru í fæðingu. Þar
var lagður grunnur að áhuga hans á
utanríkis- og öryggismálum, sem
hann hefur einkum einbeitt sér að.
Það var í byrjun níunda áratugar-
ins að Svíar fóru að taka eftir skel-
eggum hægrimanni, sem hafði
ákveðnar skoðanir á málunum. Þá
lenti þeim Olof Palme, þáverandi
forsætisráðherra og leiðtoga jafnað-
armanna, harkalega saman um
ferðir sovéskra kafbáta.
Bildt varð síðan formaður flokks-
ins 1986,37 ára að aldri. Fimm árum
síðar varð hann forsætisráðherra og
leiddi stjóm á miklum samdráttar-
tímum. Borgaraflokkamir náðu ekki
að halda völdum eftir kosningamai-
1994 og árið eftir varð hann fulltrúi
ESB í Bosníu. Eftir tvö ár kom hann
heim en það ergði ýmsa flokksmenn
hans hve hann hafði augun áfram á
Bosníu. Ekki tókst að mynda hægri-
stjóm eftir kosningamar sl. haust og
aftur hvarf Bildt til starfa erlendis,
nú sem sérlegur sendimaður í
Kosovo á vegum Kofí Annans, íram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna,
og þvi heldur hann áfram.
Bildt-eftirlíking eða
eitthvað annað?
Bildt er virtur fyrir góðar gáfur en
vinsæll og alþýðlegur er hann ekki.
Líkt og Palme var hann undrabam í
stjómmálum með yfirbragð gáfu-
manns af aðalsættum, ekki alveg
laus við hroka þótt hann þyki
skemmtilegur við nánari kynni.
I flokknum hefur Bildt gnæft yfír
flokksmenn sína. Það hefur gjaman
verið talað um að í kringum hann
hafí valist Biidt-eftirlíkingar, karlar
á svipuðum aldri og hann en bara
ekki eins afgerandi.
Fyrstu nöfnin, sem nefnd vom í
fyrradag, vom nöfn leiðandi flokks-
manna úr þessum hópi. Auk karl-
anna er þarna Chris Heister, mjög
skelegg þingkona. Hún myndi tví-
mælalaust ljá flokknum annan blæ
en verið hefur. Einnig var nefnt að
ekki væri úr vegi að koma á kyn-
slóðaskiptum nú, taka einhvem af
yngri kynslóðinni rétt eins og þegar
Bildt tók við. Gallinn er að það fólk
er reynslulaust og lítt þekkt. Flokk-
urinn stendur því frammi fyrir ýms-
um erfiðum spumingum.