Morgunblaðið - 19.09.1999, Page 4
4 SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1999
1“
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 12/9 -18/9
►KOMIÐ hefur í ljós að
brottfall tvítyngdra ung-
linga, sem notið hafa aðstoð-
ar nýbúafræðslu, úr fram-
haldsskólum hefur verið á
milli 90 og 100% seinustu ár.
►SAMTÖK atvinnulífsins
voru stofnuð formlega í vik-
unni, en að þeim standa
Vinnuveitendasambandið,
Vinnumálasambandið og sjö
aðildarfélög. Finnur Geirs-
son var kjörinn formaður
samtakanna.
►TEKJUR ríkissjóðs á
fyrstu sex mánuðum ársins
eru mun meiri en gert var
ráð fyrir í fjárlögum. Inn-
heimtar tekjur ríkisins voru
7,1 milljarður umfram áætl-
un fjárlaga og er ein hclsta
ástæða umframteknanna
veruleg aukning skatttekna
en þær voru 5,7 milljarðar
umfram áætlun.
►FJÖLDI aurskriðna féll
milli Eskifjarðar og Reyðar-
íjarðar aðfaranótt föstudags,
sú stærsta tæpur hálfur kíló-
metri á breidd. Mildi þykir
að mannfjón hafi ekki orðið
á bænum Tóarseli í Breiðdal
þar sem skriða féll á útihús
og íbúðarhús.
►MEISTARAFLOKKUR KR
í kvennaknattspyrnu tryggði
sér sigur gegn Brciðabliki í
bikarkeppninni. KR varð
einnig Islandsmeistari.
Stjarnan og Fylkir hafa
tryggt sér sæti í úrvaldsdeild
karla í fótbolta.
►SEÐLABANKINN hefur
ákveðið að hækka vexti
bankans í viðskiptum við
lánastofnanir um 0,6%. Þetta
er fjórða vaxtahækkunin á
liðlega einu ári, en samtals
hafa vextir hækkað um 1,8%.
Forseti Eistlands
á fslandi
FORSETI Eistlands, Lennart Meri,
kom í þriggja daga opinbera heimsókn
hingað til lands. Þess var minnst að ís-
lendingar voru
fyrstir til áð viður-
kenna sjálfstæði
Eistlands, Lett-
lands og Litháens.
Meri sagði að Is-
lendingar mættu
aldrei vanmeta
hlutverk sitt í mál-
efnum Eistlands og
Eystrasaltsríkj anna
á sínum tíma. Þjóð-
in hafí rétt Eistlendingum hjálparhönd
og því muni þeir aldrei gleyma.
Hægja þarf á efna-
hagsstarfseminni
DAVIÐ Oddsson forsætisráðherra
sagði í ræðu sinni á stofnfundi Samtaka
atvinnulífsins að hægja þurfi á efna-
hagsstarfseminni til að verðbólgan fari
ekki úr böndunum. Hann sagði að
stjórn peningamála yrði miðuð við að
tryggja stöðugt verðlag. Ríkissjóður
yrði rekinn með verulegum afgangi á
næsta ári, skuldir ríkisins yrðu greidd-
ar hratt niður, ýmsum framkvæmdum
yrði frestað um hríð og almennur
sparnaður örvaður.
Grunaðir fíkniefnainn-
flytjendur dæmdir í
gæsluvarðhald
FJÓRIR menn á þrítugsaldri hafa ver-
ið úrskurðaðir í tveggja mánaða
gæsluvarðhald í tengslum við stærsta
fíkniefnamál sem upp hefur komið
hérlendis. Lagt var hald á 24 kg af
hassi, 6.000 e-töflur, 4 kg af amfetamíni
og 1 kg af kókaíni. Danska lögreglan
leitar nú tveggja Islendinga í Dan-
mörku sem munu einnig vera viðriðnir
málið. Þá hefur lögreglan lagt hald á
átta bifreiðir.
Lennart Meri
Fellibylur veldur
miklu tjóni
FELLIBYLURINN Floyd geystist í
vikunni yfír Bahama-eyjar og suðaust-
urströnd Bandaríkjanna og olli víð-
tæku tjóni og mestu fólksflutningum á
friðartímum. Aðfaranótt miðvikudags
fór Floyd yfir Bahama-eyjar en hélt
síðan í norðurátt og lét til sín taka á
Flórída þar sem viðbúnaður hafði verið
hinn allra mesti. Styrkur Floyds var
yfir 200 km/klst. þegar mest lét og var
eyðileggingarmátturinn slíkur að yfir
þremur milljónum manna á suðaustur-
strönd Bandaríkjanna var gert að
halda á brott af heimilum sínum svo
tryggt yrði að manntjón hlytist ekki af.
A fimmtudagsmorgun gekk Floyd á
land við Cape Fear og var þá vindhrað-
inn 177 km á klukkustund. Flug- og
lestarsamgöngur fóru úr skorðum
vegna óveðursins og ringulreið var á
mörgum flug- og lestarstöðvum. Ur-
hellisrigning fylgdi slóð Floyds og mik-
il ölduhæð við ströndina. A fóstudag
hélt Floyd inn í Virginíu og áfram
norðurleiðina í átt að Kanada. Hafði
fellibylurinn þá misst mikinn mátt en
víða ríkti þó neyðarástand vegna mik-
illa flóða. Alls er talið að sjö manns hafi
týnt lífi vegna náttúruhamfaranna -
aðallega vegna gífurlegs úrhellis og
flóða.
Hryðjuverkaalda
í Rússlandi
RÚSSNESK stjórnvöld glíma nú við
hryðjuverk sem 'rakin hafa verið til
skæruliðasveita múslima sem styðja
baráttu Tsjetsjena og múslima í Da-
gestan fyrir sjálfstæðu íslömsku ríki í
Norður-Kákasushéruðunum. Á
fimmtudag var þriðja tilræðið er fjöl-
býlishús í borginni Volgodonsk var
sprengt í loft upp. AIls hafa yfir 300 al-
mennir borgarar týnt lífi í árásum
hryðjuverkamanna. 27 menn hafa verið
handteknir vegna málsins.
►NOKKUR þúsund
indónesískra hermanna fóru
frá Austur-Tímor á föstudag
vegna komu alþjóðlegs frið-
argæsluliðs á vegum Samein-
uðu þjóðanna til landsins.
Ástralar munu stjórna að-
gerðum hersveita um átta
þúsund manna sem koma
munu víðs vegar að. Hafa
skipuleggjendur lýst yfír
áhyggjum af leyniaðgerðum
indónesiska hersins gegn
friðargæsluliðinu. Mikil neyð
er meðal íbúa A-Tímor en
talið er að um 150.000 manns
séu þar í felum og yfir
200.000 hafí flúið landið.
►EVRÓPUÞINGIÐ sam-
þykkti á miðvikudag með yf-
irgnæfandi meirihluta at-
kvæða nýja framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins
undir forystu Romanos Prod-
is. Prodi lýsti því yfir sam-
dægurs að nú gengju í hönd
nýir tímar ráðvendni og ein-
lægni innan sambandsins.
►JÚRÍ Skúratov, fyrrum rík-
issaksóknari í Rússlandi, lýsti
því yfir á fimmtudag að um
175 milljarðar ísl. króna sem
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
lánaði rússneskum stjórn-
völdum fóru í raun aldrei til
Rússlands heldur voru pen-
ingamir notaðir til að bæta
stöðu nokkurra stórra rúss-
neskra banka.
►245 manns sluppu lifandi er
Boeing-757 þota breska flug-
félagsins Brittannia Airways
brotnaði í þrennt í lendingu á
Girona-flugvelli á Norðaust-
ur-Spáni. ðtrúleg mildi var
að enginn skyldi týna lífí. Er
talið að slysið megi rekja til
óveðurs.
__________FRÉTTIR______
Garðyrkjubændur nota
vikur í auknum mæli
NOTKUN raflýsingar er sífellt að
aukast í íslenskum gi’óðurhúsum og
hefur hún valdið nokkrum breyting-
um í ræktun agúrkna og tómata hér
á landi. Stór hluti agúrkubænda
notar nú raflýsingu til ræktunar og
hefur það leitt til þess að jafnt
framboð er af agúrkum allt árið og
þar að auki er verð á þeim stöðugra.
Notkun á vikri við ræktunina hefur
aukist verulega að undanförnu.
Unnt hefur verið að flýta upp-
skeru tómata um tíu vikur með raf-
lýsingu og segir Unnsteinn Egg-
ertsson, framkvæmdastjóri Sam-
bands garðyrkjubænda, að nú megi
fara að búast við tómatauppskeru
um miðjan janúar. Raflýsing við
tómatarækt sé þó ekki orðin eins al-
menn og við agúrkuræktina og því
séu þessir vetrai'tómatar ennþá
frekar dýrir en verðið muni lækka
um leið og fleiri bændur byrji að
nota þessa aðferð. Framtíðarsýnin
sé sú að hægt verði að bjóða upp á
tómata allan ársins hring.
Unnsteinn segir að tOraunir hafi
verið gerðar með jarðarberjarækt
með raflýsingu og reynt verði að
setja íslensk jarðarber á markað
fyrir næstu jól. Hann segir að meg-
inforsenda þess að bændur fari að
nota raflýsingu í auknum mæli og
geti þannig boðið upp á fleiri teg-
undir grænmetis og ávaxta allt árið
sé að verð á raforku til greinarinnar
lækki verulega frá því sem nú er.
Úr steinull í vikur
Flestir bændur sem rækta græn-
meti í gróðurhúsum nota steinull til
ræktunarinnar. Nokkuð er þó um
að garðyrkjubændur séu farnir að
rækta í íslenskum vikri og segir
Unnsteinn að það sé mjög jákvæð
þróun. „Það er betra fyrir umhverf-
ið að nota vikurinn því steinullinni
Æ fleiri agúrkubændur nota
nú raflýsingu til ræktunarinn-
ar og hefur það leitt til fram-
boðs á þeim allt árið og
stöðugra verðs.
fylgja plastumbúðh sem þarf að
losna við þegar henni er fargað.
Vikrinum má hins vegar einfaldlega
Morgunblaðið/Jim Smart
breyta í göngustíga eða annað þeg-
ar hlutverki hans er lokið. Ástæða
þess að bændur treysta sér í sí-
auknum mæli til að nota vikurinn er
sú að ákveðin reynsla er komin á
notkun hans í Hollandi. íslenskur
vikur hefur verið fluttur þangað til
ræktunar og reynst vel og því er
sjálfsagt að bændur hér noti hann.“
Hann segir að stofnkostnaður vik-
urs muni vera hærri en steinullar
en að á móti komi að hann endist
lengur.
Unnsteinn segir að íslenskir garð-
yrkjubændur hafi þá sérstöðu að
nota nær einungis lífrænar varnir, í
stað eiturefna, við ræktun sína, en
lífrænar vamir felist í því að skor-
dýr sem hafi stuttan líftíma séu not-
uð til að útrýma meindýrum. Hann
segir að þetta sé kostur sem ís-
lenskar aðstæður bjóði upp á vegna
einangrunarinnar og loftslagsins. I
öðrum löndum sé yfirleitt ekki
mögulegt að einangra og útrýma
meindýrum á sama hátt og hér.
Forseti
heimsækir
Austfirði
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, for-
seti Islands, fer í opinbera heim-
sókn til Norður-Múlasýslu og
Fjarðarbyggðar í næstu viku.
Heimsóknin mun standa frá
þriðjudegi til fímmtudags. Hún
hefst á Reyðarfirði, en þaðan verð-
ur haldið til Eskifjarðar, Neskaup-
staðar, Fellabæjar, Bakkafjarðar,
Vopnafjarðar, Borgarfjarðar
eystri, Seyðisfjarðar og Egils-
staða.
Menningar-
dagar í Sand-
gerðisbæ
Keflavík - MENNINGARDAGAR
standa nú yfir í Sandgerði, en þeir
hófust á föstudag þegar Davíð
Oddsson forsætisráðherra heim-
sótti Fræðasetur Sandgerðisbæj-
ar. Hann nýtur hér aðstoðar Guð-
mundar Víðis Guðmundssonar
sjávarlíffræðings við að kynna sér
botndýrarannsóknir sem stundað-
ar eru á Fræðasetrinu.
Þá afhjúpaði forsætisráðherra í
hcimsókninni uppstoppaðan rost-
ung sem grænlenska þjóðin gaf
þeirri íslensku. Að sögn Reynis
Sveinssonar, forstöðumanns
Fræðasetursins, eru Menningar-
dagar Sandgerðisbæjar fyrst og
fremst hugsaðir til að lífga upp á
inannlíf staðarins. Fjölbreytt dag-
skrá er í boði um helgina og var í
gær m.a. boðið upp á ferðir um
helstu sögustaði Sandgerðisbæjar.
Islands
Morgunblaðið/Björn Blöndal
I
í
1
P