Morgunblaðið - 19.09.1999, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1999 21
Septembertónleik
ar í Selfosskirkju
Réttvísinni þjónað
TÓNLEIKARÖÐ Selfosskirkju
heldur áfram þriðjudaginn 21. sept-
ember kl. 20.30. Flytjendur eru
Margrét Bóasdóttir sópran og
Bjöm Steinar Sólbergsson orgel.
Þau Margrét og Bjöm hafa starf-
að saman allt frá árinu 1987 er þau
stofnuðu Sumartónleika í kirkjum á
Norðurlandi. Þau hafa lagt áherslu
á flutning íslenskrar kirkjutónlistar
og einnig kynnt hana á tónleikum
erlendis.
Um þessar mundir er Islensk
tónverkamiðstöð að gefa út geisla-
plötu þar sem Margrét og Bjöm
flytja perlur íslenskrar kirkjutón-
listar fyrir söngrödd og orgel og
einnig orgelverk íslenskra höfunda.
A efnisskrá þeirra í Selfosskirkju
er m.a. flutt verldð Faðir vor eftir
Jón Leifs og Chacona Páls ísólfs-
sonar íyrir orgel. Einnig flytja þau
útsetningar Hróðmars Inga Sigur-
björnssonar á sálmum úr fomum
handritum, útsetningar Þorkels
Sigurbjömssonar og sálmaforleiki
og útsetningar Ragnars Björnsson-
ar og Jóns Þórarinssonar.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis.
KVIKMYIVÐIR
Laugarásbfó/Bfóhullin
INSPECTOR GADGET
Leikstjóri: David Kellogg. Handrit:
Dana Olsen, Kerry Ehrin og Audrey
Wells. Aðalhlutverk: Matthew
Broderick, Rupert Everett, Joely Fis-
her og Michelle Trachtenberg. Walt
Disney 1999.
JOHN Brown er öryggisvörður
sem dreymir um að vera lögreglu-
þjónn sem bjargar samborgurum
sínum á hættustundum og drýgir
marga hetjudáðina. Til þess að sá
draumur rætist þarf John fyrst að
lenda í allsvaðalegu bílslysi og
lenda í höndunum á vísindakonunni
Brendu Bradford sem breytir
kauða í mannlegt vélmenni sem er
vel útbúið til að takast á við starf
sitt sem Gadget rannsóknarlögga.
Það er margt skemmtilega gert í
þessari Disney-mynd um góða en
misheppnaða náungann sem verður
hetja að lokum og vinnur hug og
hjarta draumadísarinnar. Eg hef
ekki séð teiknimyndirnar sem kvik-
myndin er unnin út frá, en mér
þykja persónurnar skemmtilegar
og leikur almennt góður. Gaman að
sjá Rupert Everett í hlutverki
vonda mannsins, og Matthew
Broderick (sem annars er ekki hátt
á vinsældalistanum) er fullkominn í
hlutverk Gadgets. Allt útlit mynd-
arinnar er ævintýralegt og glað-
legt, brellurnar góðar og tónlist
John Debney gerir mikið fyrir
myndina; skapar skemmtilega
stemmningu auk þess að vera oft
brandari í sjálfri sér.
Litlu börnin ættu að geta
skemmt sér vel yfir þessum furðu-
heimi með sínum furðulegheitum.
Sagan sjálf er hins vegar ósköp
þunn fyrir utan hugmyndina að
persónu Johns Brown. Boðskapur-
inn til barnanna er sá að maður eigi
alltaf að láta hjartað ráða för, það
muni koma manni til bjargar á lífs-
ins mestu hættustundum.
Hiidur Loftsdóttir
Alþjóðlegi
ljóðaúrval í
þýsku riti
ÞÝSKA tímaritið Text (1. hefti 1998-
99) er komið út. I ritinu sem gefíð er
út í Stuttgart og Sergiu Stefanescu
ritstýrir, birtist efni eftir fjölda höf-
unda frá ýmsum löndum og er al-
þjóðlegt svipmót á ritinu. Einkum
setur ljóðlist svip sinn á þetta hefti.
I heftinu birtist ljóð eftir Matthías
Johannessen úr Sálmum á atómöld í
þýðingu Wilhelms Friese en bókin í
heild kom nýlega út í Þýskalandi í
þýðingu hans.
Meðal annarra skálda sem eiga
ljóð í Text eru Duncan Bush, Steph-
en Knight, Bastian Böttcher, Aioker-
anjan Dasgupta og José F. A. Oliver.
Text er gefið út af Ithaka Verlag,
ritið má panta hjá Buch Julis,
Charlottenstrasse 12, 70182 Stutt-
gart.
ihici
SOKKABUXUR
SIMI557 7650
Stálvaskar
Intra stálvaskarnir fást í mörgum
stærðum og gerðum. Þessi vaskur
ber nafnið Eurora og hefur hlotið
margvíslegar viðurkenningar fyrir
frábæra hönnun.
TCHGIehf.
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur
Sími: 564 1088 • Fax: 564 1083
Fást í byggingavöruverslurwm um land allt
á öllum notuðum
vinnuvélum, lyfturum,
dráttarvélum og
landbúnaðartækjum
hjá Ingvari Helgasyni hf.
Sýnishorn af útsöluvélum
Allt að
afsláttur