Morgunblaðið - 19.09.1999, Side 24

Morgunblaðið - 19.09.1999, Side 24
24 SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Mjólkursamlagið í Búðardal nýtur ávaxtanna af vel heppnaðri vöruþróun og færir út kvíarnar austur á bóginn OKKUR hefur gengið vel á undanförnum þremur ár- um, fengið aukin verkefni og verið heppnir með vöruþróun þannig að neytendur hafa tekið nýjungum frá okkur afar vel,“ segir Sigurður Rúnar Frið- jónsson, mjólkursamlagsstjóri í Búðardal. Starfsemi Mjólkursam- lagsins í Búðardal hefur vaxið mjög á undanfömum árum. Pá var rekst- ur mjólkursamlagsins á Blönduósi sameinaður mjólkursamlaginu í Búðardal um síðustu mánaðamót. Sigurður Rúnar segir að Mjólk- ursamlagið hafi lengi búið við þröngan kost, sérstaklega hafi vant- að birgðageymslur. „Við erum með geymslur um allt hús, í gámum hér fyrir utan og í 250 fermetra leigu- húsnæði. A miðju síðasta ári voru kannaðir möguleikar á viðbyggingu og ákveðið að byggja 850 fermetra húsnæði fyrh' birgðageymslu og til að losa og lesta mjólkurbfla og flutningabfla. Jafnframt er tækifær- ið notað til að bæta kæliaðstöðuna," segir hann. Búið er að reisa við- bygginguna og unnið að innrétting- um og um leið að nauðsynlegum breytingum á eldra húsnæðinu. Framkvæmdum á að Ijúka fyrir 1. nóvember. Vaxandi starfsemi er ástæðan fyrir því að ráðist var í að auka við húsnæði fyrirtækisins. Stundað er árangursríkt vöruþróunarstarf í samstarfi við Mjólkursamsöluna í Reykjavík og fleiri innlend og er- lend fyrirtæki. Sumar vörumar hafa slegið rækilega í gegn og eru með athyglisverðustu mjólkurafurð- unum á markaðnum. Tíu sinnum betri mótttökur Framleiðsla á LGG+ hófst á fyrrihluta síðasta árs. LGG+ er svokölluð markfæða, styrkjandi dagskammtur sem unninn er úr fitulausri mjólk og inniheldur LGG- gerla auk annarra heflnæmra gerla og náttúrulegra efna. LGG-gerlam- ir em náttúrulegir mjólkursým- gerlar sem finnast í heilbrigðri gerlaflóm sumra einstaklinga. Regluleg neysla LGG+ er talin bæta meltinguna og koma jafnvægi á hana, veita mikið mótstöðuafl, hafa fjölþætta vamarverkun og stuðla að vellíðan. LGG+ er framleitt í litlum flösk- um og dósum. Móttökur neytenda urðu tíu sinnum betri en áætlað var. Þannig var reiknað með að vélamar yrðu notaðar tvo dagsparta í viku. Eftirspumin varð hins vegar svo mikil að vélamar hafa gengið alla virka daga og fram á kvöld þegar eftirspumin hefur verið mest. Seld- ar em nokkrar milljónir flaskna sem þýðir að drjúgur hluti þjóðar- innar fær sér styrkjandi dag- skammt reglulega. Framleiðsla LGG+ byggist á einkaleyfi sem mjólkursamlagið hefur frá finnsku fyrirtæki og varan er markaðssett í samvinnu við sviss- neskt fyrirtæki. I kynningarefni er sagt að LGG+ sé sjálfsagður hluti af hollu og heilsusamlegu mataræði. Einnig er mælt með drykknum fyr- ir fólk sem býr við ójafnvægi, rösk- un og vanlíðan af völdum ytri þátta, eins og streitu, kaffidrykkju, inn- töku fúkkalyfja og geislameðferðar, því það geti náð jafnvægi á nýjan leik með daglegri neyslu. Tekið er fram að það geti tekið LGG+ einn mánuð að byggja gerlaflóruna upp á nýjan leik og til að tryggja varanleg áhrif þurfi drykkurinn að vera dag- legur hluti mataræðis til framtíðar. Sigurður Rúnar segir ekki erfitt að standa undir þessum orðum. LGG- gerillinn sé einn af þeim mjólkur- gerlum sem mest hafi verið rann- sakaður og heilnæmi hans staðfest á ýmsan hátt. „Eg tel að varan hafi ekki brugðist þeim fyrirheitum sem við höfum gefið neytendum í kynn- ingu. Við höfum fengið margar per- sónulegar reynslusögur frá fólki sem notað hefur drykkinn og haft gott af. Veiku fólki sem notar lyf hefur tekist að koma maganum í lag með LGG+ og sumir eru famir að taka nokkrar kippur af drykknum með sér til sólarlanda til að koma í veg fyrir óþægindi vegna breytinga á mataræði. Morgunblaðið/Golli Sigurður Rúnar Friðjónsson, mjólkursamlagsstjóri í Búðardai. Ætlum að standa okkur í samkeppninni * I Mjólkursamlaginu í Búðardal eru framleiddar nokkrar af vinsælustu sérvöruunum sem mjólkuriðnaðurinn hefur á boðstólum um þessar mundir. Starfsemin hefur vaxið hröð- um skrefum og unnið er að stækkun húsnæðis. Samlagið hefur nú tekið við rekstri mjólkursamlagsins á Blönduósi og tvöfald- ar með því innvegna mjólk. Helgi Bjarnason ræddi við Sigurð Rúnar Friðjónsson mjólkursamlagsstjóra. Feta-ostur vinsæll Stöðugt er unnið að vöruþróun á Engjaþykkni og Hrísmjólk og hefur það skilað aukinni sölu. Meginhluti þess sýrða rjóma sem hér er á markaði kemur úr Búðardal og hann nýtur enn vaxandi vinsælda, vegna breyttra neysluvenja. Þannig jókst salan verulega á síðasta ári. I Mjólkursamlaginu í Búðardal eru einnig framleiddir ostar, meðal ann- ars Dalabrie, Dalayrja og Islenskur Feta-ostur. Tekist hefur að halda í horfinu með sölu Brie og Yrju, þrátt fyrir vaxandi ostainnflutning. Um 150 tonn af ostum eru nú flutt inn og verulegur hluti innflutningsins er í beinni samkeppni við Dalabrie og Dalayrkju. „Við verðum bara að standa okkur enn betur á innan- landsmarkaði og helst einnig að flytja okkar vörur á erlenda mark- aði,“ segir Sigurður Rúnar. Islenskur Feta-ostur er fram- leiddur í Búðardal og hefur fram- leiðslan aukist mikið á hverju ári. Telur Sigurður Rúnar að unga fólk- ið kunni vel að meta þessa afurð og Feta-osturinn sé nú að verða einn af söluhærri sérostunum hjá Osta- og smjörsölunni. Leyfi til útflutnings Aukin framleiðsla hefur í för með sér aukna notkun hráefna og um- búða og hefur sárlega skort hús- LGG+ hefur slegið öll sölumet. Hér er verið að pakka þessum styrkjandi dagskammti. Seldar eru nokkrar milljónir flaskna sem þýðir að drjúgur hluti þjóðarinnar fær sér styrkj- andi dag skammt reglu- lega. næði til að mæta þessum þörfum. Með viðbyggingunni er unnt að koma hlutunum betur fyrir og hag- ræða á ýmsan hátt. „Við viljum tryggja að fólk eigi aðgang að mjólkurvörum í hæsta gæðaflokki | og að framleiðslan sé arðbær," segir Sigurður Rúnar mjólkursamlags- stjóri. Mjólkursamlagið sótti um leyfi til útflutnings mjólkurafurða til landa Evrópusasmbandsins og hefur nú fengið það. Útflutningur er reyndar ekki hafinn en tækifærið notað til að yfirfara og skerpa áherslur í gæðamálum. „Við erum með vörur sem ég tel að við getum flutt út í framtíðinni og fengið fyrir þokka- | legt verð. Rannsóknir sýna að við búum í tiltölulega hreinu umhverfi og Island hefur þá ímynd í hugum neytenda á mörgum markaðssvæð- um. Þá hefur komið í ljós með þátt- töku okkar í erlendum sýningum og heimsóknum erlendra viðskiptavina að íslenskar mjólkurafurðir eru í háum gæðafiokki," segir Sigurður Rúnar. Hann nefnir sýrðan rjóma og Engjaþykkni og Dalabrie og Dalayrju þegar hann er spurður að j því hvaða vörur úr Búðardal hann teldi eiga mest erindi á erlendan markað. Unnið faglega „Við þurfum að sýna ákveðið frumkvæði en njótum þess einnig að vera hluti af mjög öflugu fyrir- tæki, Mjólkursamsölunni í Reykja- vík, og eiga samstarf við aðra inn- lenda og erlenda aðila. Með því móti hefur okkur tekist að vinna mjög g faglega að vöruþróun og markaðs- setningu nýjunga. Við höfum líka verið heppnir með vörur,“ segir Sig- urður þegar hann er spurður um ástæður velgengni Mjólkursamlags- ins í Búðardal á sama tíma og ýmis samlög hafa verið í óvissu og jafnvel hætt starfsemi. Mjólkursamlagið er í eigu Mjólkursamsölunnar í Reykjavik. Vöruþróunin heldur áfram og bætt aðstaða mun auðvelda vinn- | una. Sigurður Rúnar segir að á ji næsta ári komi á markað tvær til þrjár nýjungar sem hann vonast til aðveki athygli. í Mjólkursamlaginu í Búðardal hefur verið pakkað mjólk, rjóma og súrmjólk fyrir samlagssvæðið sem nær yfir Dalina, norðanvert Snæ- fellsnes og sunnanverða Vestfirði. Akveðið hefur verið að hætta átöpp- uninni 20. september og dreifa vör- unum úr Reykjavík eftir það. Sig- urður Rúnai- segir að Mjólkursam- salan í Reykjavík reki eitt fullkomn- asta átöppunarkerfi fyrir mjólkur- afurðir og það sé þróað jafnóðum í samræmi við þarfir neytenda. Minni fyrirtæki hafi ekki sömu aðstöðu til fylgja þróuninni. Því hafi verið ákveðið að nýta hagkvæmustu átöppunarverksmiðju landsins og einbeita kröftum Mjólkursamlags- ins í Búðardal að þeirri framleiðslu sem þar hafi gengið best. „Við styrkjum stöðu okkar fyrirtækis og vonandi mjólkuriðnaðarins í heild og sköpum okkur betri aðstöðu í ■ harðnandi samkeppni. Með þessari breytingu fáum við aukið hráefni til framleiðslunnar hér. Mjólkin fer í verðmætari afurðir og svigrúm skapast tfl að bæta við nýjum teg- undurn," segir mjólkursamlags- stjórinn. Stöðug útþensla Starfssvæði Mjólkursamlagsins í Búðardal hefur stækkað verulega í 35 ára sögu þess. Fyrstu tíu árin tók það einungis við mjólk frá bændum í Dalasýslu. Arið 1974 var

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.