Morgunblaðið - 19.09.1999, Síða 26
26 SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Opið hús hjá öldrunarsviði Sjúkrahúss Reykjavíkur á Landakotsspítala
Hópvinna á öldrunarsviði SHR.
Morgunblaðið/Kristinn
Þjónustan kynnt
á Ari aldraðra
Öldrunarþjónusta sjúkrahúsanna gengst fyrir opnu húsi á
Landakotsspítala nú um helgina. Er það gert í tilefni af Ari
aldraðra sem nú stendur yfír. Að sögn Önnu Birnu Jensdóttur
hjúkrunarframkvæmdastjóra er mikilsvert að opna stofnunina
til að kynna hvað hún hefur upp á að bjóða og kveða niður
hverjar þær ranghugmyndir sem kunna að vera á kreiki um
hvað innandyra er að fínna. „Þetta er ekki hugsað sem
einhvers konar endastöð,“ segir Anna Birna.
Loikfimi stendur til boða.
PNA húsið byrjaði í gær
milli klukkan 13 og 16 og í
dag verður opið á sama
tíma. Að sögn Önnu Bimu
er stór hluti stofnunarinnar opinn
fyrir gestum, m.a. deild þar sem
eldri borgarar eru fyrir og taka á
móti gestum og gangandi. „Við ger-
um okkur grein fyrir því að það get-
ur verið viðkvæmt mál fyrir þá sem
hjá okkur gista að fá mikla athygli,
en sjúklingar okkar á hjúkranardeild
K-1 vildu taka þátt í uppákomunni
og samþykktu að hafa opið hjá sér.
Enn fremur gefst gestum kostur á
að kynnast og prófa sjúkra- og iðju-
þjálfun. Meðal þess sem við bjóðum
upp á þar fyrir utan er opið fagbóka-
safn, ráðgjöf, m.a. varðandi heilsufar
og meðferð,heimahjúkrun og félags-
þjónustu. Fólki gefst kostur á blóð-
þrýstingsmælingu, auk þess sem
veggspjöld með kynningarefni um
starfsemi, þjónustu og vísindavinnu
munu hanga á veggjum. Þá getur
fólk fengið sér kaffisopa undir harm-
onikkutónlist og fylgst með mynd-
böndum tengdum þemum dagsins."
Alvaran skellur á
Anna Birna sagði mjög mikilvægt
að fólk nýtti sér það sem boðið verð-
ur upp á á Landakoti þessa daga,
því alltof algengt sé að fólk velti ekki
elliárunum og mögulegum vanda-
málum sem þeim geta fylgt fyrr en
of seint, eða „þegar alvaran skellur
á“, eins og hún komst að orði. Þegar
það gerist sé slæmt að vita ekki
hvað sé í boði.
„Við í öldranarþjónustu sjúkra-
húsanna leggjum við áherslu á að
greina og endurhæfa með það fyrir
augum að fólk geti búið heima og ef
þannig er að það geti alls ekki horfið
aftur til síns heima, þá vinnum við út
frá því að fólk fái samt sem áður alla
þá endurhæfingu og meðferð sem
mögulegt er. Hér fer fram mikil
fræðsla og vinna með einstaklingun-
um og í þeim efnum hefur verið mik-
il framþróun síðustu árin. Það er
ekki síst kjarkurinn sem skiptir
máli. Það getur verið áfall fyrir eldri
borgara að tapa heilsunni eða missa
maka og þá þarf að hjálpa fólki að
sjá út úr þokunni'. Fólk er iðulega
langt niðri, en hér á það bakhjarl.
Það má ekkert tómarúm vera og
fólki er sagt hér að við sleppum ekki
af því hendinni þótt það sé sent til
síns heima. Það getur leitað til okk-
ar, við fylgjumst með og bjóðum
fram þá þjónustu sem til er. Það er
jafnframt afar mikilvægt að ættingj-
ar taki þátt í þessu, ekki síst í verstu
tilvikunum, t.d. þegar um heilabilun
hjá gömlu fólki er að ræða. Það er
óhætt að segja að þá sé fjölskyldu-
sjúkdómur á ferð. Ættingjar eiga
því ekki síður erindi á þetta opna
hús heldur en eldri borgarar sjálfír,*
segir Anna Birna.
Markmiðin
A öldranarsviði eru níu deildir
sem veita sérhæfða þjónustu hver
um sig. Deildir fyrir heilabilaða era
tvær. Öldrunarlækningardeildir eru
fjórar og ein hjúkranardeild. Auk
þess er dagdeild og móttökudeild.
Öldrunarsvið Sjúkrahúss Reykja-
víkur hefur til ráðstöfunar 141 rúm,
sérstaklega ætluð öldraðum og 32
dagrými sem nýtast 64 sjúkiingum
og móttöku- og endurkomudeild. Á
Landsspítala er síðan til viðbótar ein
öldrunai-matsdeild og öldrunai-teymi.
Að sögn Önnu Birnu era markmiðin
skýr og þau eru eftirfarandi:
Að styðja aldraða til sjálfsbjargar
og stuðla að því að þeir geti búið
sem lengst heima.
Að greina og meðhöndia hin
margvíslegu vandamál sem fylgja
hækkandi aldri.
Að bæta færni með þjálfun og
hjálpartækjum.
Að veita andlegan og líkamlegan
stuðning.
Að viðhalda sjálfsmynd og sjálfs-
virðingu þrátt fyrir veikindi og
færnitap.
Og loks að auka öryggi og vellíðan
sjúklinga.
Gæðamálin
Anna Birna segir að aldraðir njóti
góðs af framförum í læknavísindum
eins og aðrir, en ljóst sé að á öldrun-
arsviði sé í fleiri horn að líta, t.d.
megi aldrei hvarfla hugur frá góðum
og bættum aðbúnaði. Þannig hefur
öldrunarsvið verið aðili að RAI-
rannsóknarverkefninu frá árinu
1994 í samvinnu við heilbrigðisráðu-
neytið og félagsmálastofnun Reykja-
víkurborgar. RAI-mat er gert fyrir
alla aldraða sem dvelja lengur en 4
mánuði á öldrunarstofnun landsins.
Öldrunarsviðið hefur einnig „lagt
gífurlega vinnu“ í gæðaumbætur og
m.a. verið með rannsóknarverkefni í
þeim efnum í samvinnu við háskól-
ann í Missouri í Bandaríkjunum.
Þátttakendur í þeirri rannsókn eru
auk Sjúkrahúss Reykjavíkur öll
hjúkrunarheimili á Stór-Reykjavík-
ursvæðinu. Einnig er í gangi rann-
sóknarverkefni um sjáanlegar vís-
bendingar um gæði í öldrunarhjúkr-
un, í samvinnu við sömu aðila og að
ofan er getið.
„Dæmi sem ég get nefnt um fram-
farir í þessum efnum er, að vannær-
ing sést ekki lengur á deildum öldr-
unarsviðs. Það bai’ á henni hér áður
og þá sáu menn að vinnuferlin skil-
uðu ekki nógu góðum árangri, allt
var skoðað og niðurstaðan var þessi.
Hér áður var mikið iagt upp úr lík-
amlegi’i hjúki-un, það vora ailir bað-
aðir og klæddir í hvít sjúkrahúsföt,
og allt var hreint og strokið, en
margir eru þunglyndir og einmana-
leikinn er tíðum mikill. Það þarf að
vinna út frá því og það er ekki svo
iangt síðan fólki var ekki einu sinni
hleypt út í garð að viðra sig, hvað þá
að sækja slökunar- og leikfimitíma.
Hvað þá að gamalt fólk gæti verið
þjakað af streitu. Það var eins og það
varðaði aðeins yngra fólk, en sann-
leikurinn er sá að slíkt er óháð aldri
og gæðastarfíð hefur fært sönnur á
að það verður að vinna með fólkinu
út frá andlegu og félagslegu hliðun-
um ekki síður en þeim líkamlegu.
Svona lagað kann að þykja sjálfsagt í
dag, en er um leið lítið dæmi um gíf-
urlega framþróun. Það er míta hjá
fólki að halda að gömlu fólki sem
verður veikt eða færniskert séu öll
sund lokuð. Jafnvel þó að í verstu til-
vikum sé útilokað að fólk sem til okk-
ar kemur geti ekki farið heim á ný,
þá er samt hægt að endurhæfa.
Áherslurnar verða að vera skýrar og
vinnan í samræmi við það.“