Morgunblaðið - 19.09.1999, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1999 43 *
MINNINGAR
KIRKJUSTARF
SIGNY
ÞORGEIRSDÓTTIR
+ Signý Þorgeirs-
dóttir fæddist í
Reykjavík 20. mars
1982. Hún varð
bráðkvödd á heimili
sínu 4. september
síðastliðinn og fór
útför hennar fram í
kyrrþey.
Elsku Signý mín.
Eg vil trúa að þessi
veröld hafi einungis
verið áfangastaður
þinn á lengra ferða-
lagi og þó að mér
sámi óendanlega mikið að missa
þig þá huggar það mig að einn
daginn fái ég aftur að njóta gæsku
þinnar og fegurðar.
Þú komst í heiminn svo lítil og
brothætt að sjá en svo afskaplega
dugleg og lífsglöð. Þú og Borgný
vora sólargeislarnir mínir og til-
vera ykkar og sú væntumþykkja
sem hún færði mér er ein dýr-
mætasta gjöf sem lífið hefur gef-
ið. Litlu opnu armarnir tóku
ávallt vel á móti mér, fyrir ykkur
var ég alltaf jafn saklaus og góð-
ur og ekkert hræddi mig meira
en að missa þá ímynd. Þetta vora
erfið ár í lífi okkar allra og ef ekki
hefði verið fyrir ykkur þá væri sú
minning sem ég varðveitti hjá
mér ekki ljómuð af jafn mikilli ást
og gleði.
Eg man svo vel eftir fyrstu
skrefunum þínum, fyrstu orðun-
um, öllum þessum stundum sem
þú gerðir mig svo stoltan af þér
og ég veit í hjarta mínu, elsku
Signý mín, að þú hefðir haldið
áfram að gleðja mig ef þú bara
hefðir fengið að lifa lengur. Síð-
ustu daga hef ég ferðast með þér
og Boggu í hugarflugi samveru-
stunda okkar og þó að þær hafi
ekki allar verið ykkur eftirminni-
legar þá eru þær mér ómetanleg-
ur fjársjóður. Þið voruð ávallt
eins og ein manneskja, samvaxin
blóm sem hringuðust utan um
hvort annað, þótt ólíkar væra. Eg
hafði svo gaman af því að sitja og
horfa á ykkur þegar við fórum
saman um helgar og fengum okk-
ur kakó og meðlæti. Þú varst
alltaf svo bein í baki og borðaðir
með svo mikilli snyrtimennsku og
vandvirkni. Það þýddi ekkert að
reka á eftir þér, hver einasta
mylsna varð að fara sína leið,
hvern einasta munnbita varð að
tyggja vel og vandlega, Borgný
lét hins vegar fara vel um sig í
stólnum og lét sér fátt um finnast
þótt helmingurinn af kræsingun-
um enduðu í kjöltu hennar. En
innra með ykkur bjó arfleiðin
hennar mömmu sem gerði ykkur
að svo yndislegum systrum, full-
um af kærleika og góðvild til
allra. Eg finn fyrir litlu höndun-
um ykkar í mínum og vildi að ég
gæti fengið tækifæri á að upplifa
eina slíka bæjarferð með ykkur
aftur og finna þann frið sem það
gaf mér að gleðja ykkur og
vernda.
Eg harma að ég gaf mér ekki
tíma til að kynnast þér nógu vel
sem fullvaxta manneskju. En guð
einn veit hversu hversu vænt mér
þótti um þig og hvað fegurð þín og
dugnaður glöddu mig mikið. Eg var
svo ánægður með árangur þinn
bæði í námi og starfi en það sem
mér þykir mest vænt um er hversu
góð og réttlát manneskja þú varst.
Þú hafðir mikið skap og sterkar
skoðanir sem erfitt var að breyta en
með endanlausri þolinmæði og
hjálpsemi systur þinnar tókst þér
að yfirstíga allar hindranir og
standa uppi sem sigurvegari í
hverri raun.
Eg veit að þú verður hjá Boggu
og mömmu og passar upp á þær,
elsku litla systir mín. Nú era þær
eins og gróðurinn á haustin, lúta
höfði, svo skelfilega kaldar og ein-
mana en mmnmgam-
ar um þig munu einn
daginn koma aftur
með vor og hlýju.
Sjáumst seinna.
Þinn bróðir,
Orlygur.
Með ást og söknuði.
Borgný, Haraldur,
Ketilbjöm og
Sveinn.
Við stöndum ætíð
hjálparvana þega dauðinn knýr
dyra og eigum erfitt með að skilja
og sætta okkur við að ungt fólk í
blóma lífsins sé kallað skyndilega
á braut. Þannig leið mér að
morgni sunnudagsins 5. septem-
ber þegar ég frétti að einn nem-
enda skólans hefði orðið bráð-
kvaddur á heimili sínu kvöldið áð-
ur. Signý Þorgeirsdóttir var að
hefja nám á öðru ári í Flensborg-
arskólanum þegar kallið kom svo
óvænt og fyrirvaralaust. Hún var
sérstaklega hæfileikarík ung
stúlka, vinsæl bæði af samnem-
endum og kennurum. Skarð er
höggvið í okkar litla skólasamfé-
lag og við söknum fyrirmyndar
nemanda og góðs félaga.
Sárastur er þó missir og sorg
fjölskyldu og nánustu vina. Ég vil
fyrir hönd starfsfólks Flensborg-
arskólans senda systkinum, for-
eldram og öllum aðstandendum
Signýjar okkar innilegustu samúð-
arkveðjur.
Minning hennar mun lifa í huga
okkar.
Einar Birgir Steinþórsson,
skólameistari.
Elsku Signý. Það var okkur
reiðarslag laugardagskvöldið 4.
sept. er við fréttum að eitthvað
hefði komið fyrir þig, við vissum
ekki hversu alvarlegt það væri,
stuttu seinna var hringt í okkur og
sagt að þú værir dáin. Við urðum
orðlausir, þetta gat ekki verið satt.
Við vorum 13 ára þegar við
kynntumst Signýju, það var í
fermingarfræðsluferðalagi í
Vatnaskógi, svo lífsglöð, hress og
skemmtileg.
Upp frá þessari ferð myndaðist
góð vinátta milh okkar. Við vinirn-
ir urðum daglegir gestir á heimih
hennai- og sátum oft fram eftir
nóttu, horfðum á vídeó, hlustuðum
á tónlist og spjölluðum saman.
Okkur var alltaf vel tekið á heimili
hennar og eigum við margar góðar
og eftirminnilegar stundir frá
þessum tíma, með Signýju, Boggu
systur hennar og Katrínu móður
þeirra, sem urðu ekki síður góðir
vinir okkar. Við söknum þessara
stunda, en þær munu lifa í minn-
ingu okkar.
Elsku Signý, vonandi líður þér
vel á þeim áfangastað sem þú ert
komin til, við söknum þín sárt.
Elsku Katrín, Bogga og fjöl-
skylda, við sendum okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur og biðjum
Guð að gefa ykkur styrk í þessari
miklu sorg.
Eyjólfur og Halldór.
Það er með mikilli sorg að ég
sest niður og reyni að koma hugs-
unum mínum á blað. Allt frá því að
ég heyrði um andlát Signýjar Þor-
geirsdóttur þá hefur afneitun verið
í huga mínum, en ekki getum við
afneitað staðreyndum lífsins enda-
laust.
Er ég hugsa um þessa ljúfu og
yndislegu stúlku er þakklæti efst í
huga mér, já, þakklæti fyrir að
hafa verið svo lánsöm að hafa
fengið að kynnast henni og hennar
góðu fjölskyldu. Fjölskyldu sem
Morgunblaðið/Ólafur Kr. Magnússon
reyndist mér. vel bæði í blíðu og
stríðu og áttu þær systur Borgný
og Signý ekki síst þátt í því, alltaf
jafn reiðubúnar með sín þéttu
faðmlög og hlýju. Varla nefndi
maður aðra nema að nefna hina,
svo sterk heild vora þær.
Nú á dögum hraða og lífsgæða-
kapphlaups er aðdáunarvert og
ómetanlegt að sjá og heyra þann
mikla kærleika og ást sem ríkir á
milli þeirra systra og móður
þeirra enda er hún Kata mín mik-
ill vinur barna sinna og hefur
alltaf tíma til að sinna þörfum
þeirra.
Núleggégaugunaftur,
6, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
méryfirláttuvaka,
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbj. Egilsson.
Elsku litla vina. Hafðu þökk
fyrir alla þína hlýju, góðmennsku
og kærleika. Minningarnar
hrannast upp en uppúr stendur
myndin af þér í sólinni á Garð-
skaga, þú brosandi og hlaupandi
um í grasinu innan um blómin
með síða fallega hárið þitt svo létt
og kát. Hvíl þú í friði, friður Guðs
þig blessi.
Elsku hjartans Kata mín. Fá eða
engin orð geta tjáð það sem mig
langar að segja nú þegar þú hefur
misst einn af sólargeislunum þínum
því að lífið er oft svo óskiljanlegt.
Eitt bið ég þig um; efastu aldrei um
hversu góð og umhyggjusöm móðir
þú hefur verið. Guð vemdi þig,
blessi og geymi og leiði þig í gegn-
um þessa þungu sorg. Mínar
dýpstu samúðarkveðjur.
Elsku Borgný, Haddi, Ketill,
Ölli, Svenni og fjölskyldur, mínar
hjartanlegustu kveðjur. Minningin
lifir um góða og elskuríka stúlku,
án hennar hefði lífið orðið fátæk-
legra.
Að lokum samúðarkveðjur til
föður Signýjar, Þorgeirs Guð-
mundssonar.
Sóley Benna Guðmundsdóttir.
+ Jón Árni Guðmundsson, vél-
fræðingur, fæddist í Reykja-
vík 20. desember 1951. Hann lést
á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 9. sept-
ember síðastliðinn og fór útför
hans fram frá Fossvogskirkju 17.
september.
Daginn er tekið að stytta. Jón
Árni er skyndilega horfinn úr
þessum heimi langt um aldur
fram. Kannski vissi maður innst
inni að hverju stefndi, en samt er
manni alltaf jafn bragðið, þegar
kallið kemur.
Við Jón kynntumst fyrir
nokkrum áram er við unnum á
sama vinnustað og tókst með okk-
ur góður vinskapur, sem síðar
leiddi til þess að við stofnuðum
saman fyrirtæki ásamt fleirum.
Alltaf gátum við félagarnir rætt
málin og komist að niðurstöðu, og
kom Jón þá oft með góðar ábend-
ingar.
Margar minningar sækja á hug-
ann þótt kynnin við Jón hafi ekki
verið löng. Jóni fannst gaman að
fara á kaffihús, og þar hittumst við
oft og ræddum málin og þar hitti
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal-
línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Safnaðarstarf
Bústaðakirkja. Æskulýðsfélagið
fyrir unglinga í 8. bekk mánudags-
kvöld kl. 19.30 í félagsmiðstöðinni
Bústöðum.
Friðrikskapella. Kyrrðarstund í há-
degi á morgun, mánudag. Léttur
málsverður í gamla félagsheimilinu
að stundinni lokinni.
Langholtskirkja. Opið hús - hádeg-
istónleikar mánudag kl. 12-12.30.
Victoria Wagner organleikari frá
Bandaríkjunum.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl.
6.45. Mánudagskvöld kl. 20. 12
spora hópurinn. Fólk hvatt til að
mæta og fræðast um það hvemig
unnið er með skaddaðar tilfinningar
eftir 12 spora kerfinu. Margrét
Scheving leiðbeinir og stjómar
samverunni.
Neskirkja. Síðdegistónleikar mánu-
dag kl. 18. Ami Arinbjamarson
organisti Grensáskirkju.
Mömmumorgnar alla miðvikudaga
kl. 10-12.
Árbæjarkirkja. Væntanleg ferm-
ingarböm í ArbæjarprestakaUi árið
2000 eru beðin að koma til skrán-
ingar og viðtals í Árbæjarkirkju
mánudaginn 20. september milli kl.
13.30 og 16. Kirkjuprakkarar 7-9
ára kl. 16-17 á mánudögum. TTT-
starf fyrir 10-12 ára Id. 17-18 á
mánudögum. Eldri deild æskulýðs-
félagsins kl. 20-22.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 9-
10 ára drengi á mánudögum kl. 17-
18. Æskulýðsstarf fyrir 9.-10. bekk
hann marga, því hann var vin-
margur.
Okkur langar að þakka fyrir
samfylgdina við góðan vin og með-
eiganda. Einnig viljum við votta
börnum Jóns, þeim Áka, Fjólu,
Alexander og Charlotte, og einnig
aldraðri móður Jóns, Önnu, svo og
öðram aðstandendum okkar
dýpstu samúð.
Megi Guð styrkja ykkur á þess-
um erfiðu tímum.
Farþúífriði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Sigurður Hallgrímsson,
Sölvi Jóhannsson.
á mánudögum kl. 20-22. Bænastund
og fyrirbænh- mánudaga ki. 18.
Tekið á móti bænarefnum í kirkj-
unni.
Grafarvogskirkja. Bænahópur kl.
20. Tekið er við bænarefnum í kirkj-
unni alla daga frá kl. 9-17 í síma
587 9070.
Hjaliakirkja. Prédikunarklúbbur
presta í Reykjavíkurprófastsdæmi
eystra er á þriðjudögum kl. 9.15-
10.30. Umsjón dr. Siguijón Árni
Eyjólfsson.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Unglinga-
kór á mánudögum kl. 16.30-18.30.
Æskulýðsfélag mánudag kl. 20-22.
Hafnarfjarðarkirkja. Æskulýðs-
starf yngri deild kl. 20.30-22 í Há-
sölum.
Krossinn. Almenn samkoma að ^
Hlíðasmára 5 kl. 16.30. Allir vel-
komnir.
Hvammstangakirkja. TTT (10-12
ára) starf mánudag kl. 18. Æsku-
lýðsfundur á prestssetrinu mánu-
dagskvöld kl. 20.30.
Landakirkja, Vestmannaeyjum. Kl.
11 fyrsta bamaguðsþjónusta hausts-
ins. Nú skoðum við nýtt eftii og kynn-
umst nýjum persónum sem flakka
um í tímanum. Skím, lofgjörð, bæn
og blessun. Mætum tímanlega. Kl. 14
messa. Fermingarfólk (fermingar-
böm og fjölskyldur þeirra) sérstak-
lega hvatt til þátttöku í upphafi ferm-
ingarfræðslunnar. Kynningarfundur
og kaffi eftir messu í safnaðarheimil-
inu. Sr. Kristján Bjömsson og sr.
Bára Friðriksdóttir. Kl. 20.30 fyrsti
æskulýðsfúndur haustsins í safnaðar-
heimihnu. Allir velkomnir sem eru í
8., 9. og 10. bekk, líka þeir sem aldrei
hafa komið áður. Skafti Öm og Ólaf-
ur Jóhann. Mánud. kl. 20 fundir í
Kvenfélagi Landakirlqu. Undirbún-
ingur að basar og fjáröflun vetrarins.
Lágafellskirkja. Gönguhópur for-
eldramorguns, „Fræknir foreldrar“,
á mánudagskvöldum kl. 20.30 frá
safnaðarheimili.
Fríkirkjan Vegurinn. Fjölskyldu-
hátíð kl. 11. Drama, dans og trúðar, *•
brúðuleikhús og margt fleira. Sam-
koma kl. 20. Eva Nordsten frá Sví-
þjóð og Aina Laukhammer frá Nor-
egi þjóna á báðum samkomunum.
Allir hjartanlega velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Ffladelfía.
Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður
Vörður L. Traustason. Almenn
samkoma kl. 16.30. Lofgjörðarhóp-
urinn syngur, vitnisburðir. Ræðu-
maður Jón Indriði Þórhallsson. All-
ir hjartanlega velkomnir. Mánudag-
ur: Mai-ita-samkoma kl. 20.
Hjálpræðisherinn. Kl. 19.30 bæn.
Kl. 20 vitnisburðarsamkoma. Allir
hjartanlega velkomnir. Mánudag kl.
15 heimilasamband. Majór Elsabet
Daníelsdóttir talar. 1'
Ólafsvallakirkja. Guðsþjónusta kl.
14 í Ólafsvallakirkju.
LEGSTEINAR
Komið og skoðið
í sýningarsal okkar eða
fáið sendan myndalista
mqmik___________________
Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík
s(mi: 587 1960, fax: 587 1986
JÓN ÁRNI
GUÐMUNDSSON