Morgunblaðið - 19.09.1999, Side 48
MORGUNBLAÐIÐ
*48 SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1999
Dýraglens
Grettir
Ljóska
Smáfólk
Hvernig líst þér á að kaupa vatns- En það er ekkert á henni.
litamynd af hundinum þínum?
pli9ntj0WtIMítí>íí>
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Grjót á ferð
o g flugi
Frá Steinþóri Skúlasyni:
SLYS verða því miður oft í umferð-
inni. Orsakir eru margar en í flest-
um tilfellum mistök bílstjóra. Með
reglum, fræðslu og eftirliti reynir
hið opinbera að auka öryggi og
fækka slysum í umferðinni.
Einn er sá þáttur sem litla at-
hygli hefur fengið. Hér nefni ég
mikinn og hraðan akstur vörubif-
reiða sem flytja möl, vikur og grjót.
Það er samnefnt með þessum bif-
reiðum að þær eru mikið hlaðnar,
aka a.m.k. á sama hraða og önnur
umferð og eru yfírleitt ekki með yf-
irbreiðslur.
Þegar maður mætir þessum
þörfu flutningatækjum bylur iðu-
lega á bílnum möl eða sandur með
tilheyrandi lakkskemmdum. Eflaust
mætti reikna allt lakktjón sem
fólksbílar landsins verða fyrir frá
vörubifreiðum til hárra upphæða á
ári.
Mjög mikil umferð malarbfla er
frá malargryfjum á Hellisheiði til
Reykjavíkur. I nokkur skipti hef ég
hringt til lögreglunnar og tilkynnt
glæfralegan akstur malarbíla eftir
að hafa verið grjótbarinn við að
mæta þeim. Eg hef fengið frekar
dræmar undirtektir lögreglunnar
og haft á tilfinningunni að ég væri
að trufla hana frá öðrum mikilvæg-
ari störfum.
Fyrir fáum dögum var ég á ferð í
Hrútafirði og mætti þar malarflutn-
ingabfl á góðri siglingu. Steinn féll
af bflnum og í framrúðuna í andlits-
hæð. Rúðan brotnaði og glerbrot
gengu inn um allan bfl. Litlu mun-
aði að þar lyki ævi undirritaðs.
Þetta var í annað sinn á tæpu ári
sem steinn frá malarflutningabfl
hefur eyðilagt framrúðuna og nær
valdið stórslysi. Þess má minnast að
fyrir nokkrum árum varð banaslys
við Sandskeið er bflstjóri fékk grjót
frá malarbfl í framrúðuna.
Það er kominn tími til að taka af
festu á þessari hættu í umferðinni.
Þá skýlausu kröfu á að gera að allir
malarflutningabflar keyri með yfir-
breiðslur og á löglegum hraða. Eg
skora á umrædda bflstjóra að fylgja
þessum reglum og lögregluna að
framfylgja þeim.
Bflstjórar eiga ekki að hafa á til-
finningunni að þeir spfli rússneska
rúllettu á þjóðvegunum þegar þeir
mæta malarbflum. Fá þeir grjót í
bflinn eða sleppa með frían sand-
blástur?
STEINÞÓR SKÚLASON,
Efstalundi 13, Garðabæ.
Ösmekkleg skilaboð
til unglinga
Frá Vigdísi Stefánsdóttur:
í DAGBLAÐINU Degi 17. septem-
ber 1999 birtist grein sem hefði bet-
ur verið látin liggja óbirt.
Þetta er viðtal við hljómsveitina
GylUnæð og frásögn af hljómleika-
ferð til Grænlands. Frásögnin af
hljómleikunum er með þvílíkum
ólíkindum að mann setur hljóðan.
Þarna er lýst skemmdum á hlutum
upp á milljónir króna, ólátum og
berserksgangi hljómsveitarmanna
sem greinflega hafa litla sem enga
stjóm á sér og svo í lokin er lögregl-
an gagnrýnd fyrir að hafa afskipti
af látunum.
Er það þetta sem við vfljum
kenna bömunum okkar? Viljum við
að þau taki þessa hegðun tfl fyrir-
myndar? Brjóti og bramli allt sem
fyrir er, kveiki í sér og öðmm,
drekki sig fuU 15 ára gömul og hafi
á engan hátt stjóm á sér? Með því
að birta þessar lýsingar er í raun
verið að leggja blessun sína yfir
slíka hegðun ungmenna og skila-
boðin em skýr: Krakkar, ef þið
eyðileggið hluti, kveikið í ykkur og
vinum ykkar, drekkið bensín og
hegðið ykkur eins og svín, þá fáið
þið athygli. Þið fáið að fara á forsíðu
dagblaðs!
Það hefur greinUega alveg farið
framhjá blaðamanni Dags að
drengirnir era aðeins 15 ára gamlir,
ólögráða, mega ekki kaupa áfengi
eða tóbak og þaðan af síður eiturlyf.
Þó ekki sé sagt með bemm orðum
að eiturlyf hafi verið notuð er af-
skaplega ólíklegt að fólk með fullri
rænu hegði sér á þann hátt sem lýst
er í þessari grein. Forsíðumyndin
er af 15 ára unglingi sem heldur á
sígarettu. Er það í takt við heilsu-
vemdarsjónarmið nútímans? For-
varnabaráttu tóbaksvamarráðs og
foreldra sem vflja allt til vinna að
börnin þeirra fari ekki að reykja?
Með þessari grein hefur margra
ára baráttu gegn drykkju unglinga
og reykingum og slæmri umgengni
verið gefið langt nef.
VIGDÍS STEFÁNSDÓTTIR,
Dofraborgum 15, Reykjavík.
AUt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fyigir fyrirvari hér að lútandi.
Eru rimlagardínurnar óhreinar!
Vib hrcinsum:
Rimla, strimla, plíseruö og sólargluggatjöld.
Setjum afrafmagnandi bónhúð.
Sækjum og sendum ef óskaó er.
Nji0
tætomhreinsunin
\ • Simit 533 3634 • QSM: 89/ 3634