Morgunblaðið - 02.10.1999, Síða 44
44 LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1999 45
.........-....-...........i
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
FJÁRLÖG GEGN
VERÐBÓLGU
SJALDAN HEFUR fjárlagafrumvarpsins verið beðið af
jafnmikilli eftirvæntingu og að þessu sinni. Ástæðan er
sú, að efnahagssérfræðingar telja aðgerðir í ríkisfjármálum
hafa úrslitaáhrif á verðbólguþróun næstu missera. Geir H.
Haarde, fjármálaráðherra, kynnti fjárlagafrumvarp ríkis-
stjórnarinnar fyrir næsta ár síðdegis í gær. Það gerir ráð
fyrir 15 milljarða króna rekstrarafgangi ríkissjóðs árið
2000. Lánsfjárafgangur, en það er það fé sem er til ráðstöf-
unar hjá ríkissjóði, verður enn hagstæðari, eða um 24 millj-
arðar króna. Þetta þýðir, að samanlagður lánsfjárafgangur
ríkissjóðs áranna 1998-2000 verður ríflega 60 milljarðar.
Þetta mikla fé er hægt að nota til uppgreiðslu lána eða til að
bæta stöðu ríkissjóðs að öðru leyti. Umskiptin í ríkisfjár-
málum eru ótrúlega mikil, því ríkissjóður var rekinn með
halla um langt árabil og skuldir hlóðust upp innanlands sem
utan.
Rekstrarafgangur ríkissjóðs á næsta ári verður 2,2% af
landsframleiðslu. Það er miklu meira en búizt var við miðað
við ummæli fjármálaráðherra frá því síðast í ágústmánuði
sl. Þá sagði hann eftir þingflokksfundi stjórnarflokkanna,
að markmið ríkisstjórnarinnar um 1% afgang af ríkissjóði
að lágmarki, miðað við landsframleiðslu næsta árs, virtist
ætla að nást. Rekstrarafgangur hefði samkvæmt því orðið
6-7 milljarðar. Það er því augljóst, að ríkisstjórnin hefur
tekið alvarlega vísbendingar um aukna verðbólgu í efna-
hagslífínu.
Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu er ákveðið að fresta op-
inberum framkvæmdum fyrir um 2 milljarða króna á næsta
ári, auk þess sem áformum um ný verkefni verður slegið á
frest. Beitt verður aðhaldi í útgjöldum almennt séð. Fjár-
lagafrumvarpið gerir ráð fyrir, að útgjöld ríkisins á næsta
ári verði 27,7% af vergri landsframleiðslu í stað 29,2% á
þessu ári.
Einhver ánægjulegustu umskiptin í afkomu ríkissjóðs eru
niðurgreiðsla skulda, sem safnast hafa upp um langt árabil.
Með því að greiða niður skuldirnar léttir á byrði vaxta og
afborgana og það fé, sem þar sparast, er unnt að nota til
annarra þarfa samfélagsins. Fjárlagafrumvarpið gerir ráð
fyrir því, að skuldahlutfallið verði komið niður í 30% í lok
næsta árs, en til samanburðar má geta þess, að það nam
51% fyrir aðeins fjórum árum (árslok 1995).
Á næsta ári er gert ráð fyrir því, að talsvert hægi á hag-
vextinum frá því í ár (5,8%). Landsframleiðslan mun aukast
um 2,7% samkvæmt þjóðhagsspá. Nokkuð mun draga úr
viðskiptahallanum, sem er einn mesti vandinn í efnahags-
málum nú, og er því spáð að hann nemi 4,2% á næsta ári í
stað 4,6% í ár og 5,7% árið 1998. Viðskiptahallinn verður
samt of mikill og þess vegna er nauðsynlegt að mæta honum
með ríflegum afgangi ríkissjóðs, svo og með almennum
sparnaði landsmanna. Hyggilegt er fyrir ríkisstjórnina að
beita sér fyrir aðgerðum sem hvetja almenning til sparnað-
ar þurfí enn frekar að slá á þensluna í efnahagskerfínu.
Annar kostur er varla fyrir hendi nema þá skattahækkanir.
Sú leið er þó ófær, þar sem skattar eru enn of háir, auk þess
sem framundan eru kjarasamningar á almennum vinnu-
markaði.
Verðbólguhraðinn að undanförnu hefur valdið ugg, en
forsendur fjárlaga gera ráð fyrir því, að verulega dragi úr
verðhækkunum á næsta ári. Því er spáð, að neyzluvöruvísi-
talan hækki um 2,5% frá upphafí til loka ársins en 4,5%
hækkun var á árinu 1999. Þetta er minni verðbólga, en í ný-
legri spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem reiknaði með 3,2%
verðbólgu á Islandi árið 2000.
Mikilvægt er að berjast gegn verðbólguþróuninni með
öllum tiltækum ráðum, enda skiptir það launþega jafnt sem
atvinnulíf miklu, að það takist að varðveita þann mikla ár-
angur, sem náðst hefur í efnahagslífinu síðustu fjögur árin.
Hagvöxturinn hefur verið 5,5% að meðaltali þessi ár og
kaupmáttur hefur aukizt í samræmi við það.
Ekki verður annað sagt, en að með fjárlagafrumvarpinu
hafí ríkisstjórnin brugðizt rösklega við þeim þenslumerkj-
um, sem vart hefur orðið að undanförnu. Lánsfjárafgangur
samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs er mun meiri en
búizt var við. Til viðbótar er gert ráð fyrir sölu á ríkiseign-
um fyrir fjóra milljarða og fyrir lok þessa árs verður vænt-
anlega búið að selja hlut ríkisins í FBA fyrir verulegar fjár-
hæðir. Hvorttveggja mun slá á þensluna, enda er það yfir-
lýst stefna ríkisstjórnarinnar að nota fé vegna eignasölu til
niðurgreiðslu skulda.
KAUPFELAG Eyfirð-
inga stóð lengi fyrir út-
gerð og fiskvinnslu,
meðal annars í Hrísey
og á Dalvík. KEA hætti
útgerð frá Hrísey í lok ársins 1994 og
færði kvótann á skip dótturfélags
síns á Dalvík. Reksturinn á Dalvík og
Hrísey var sameinaður á árinu 1997
þegar KEA stofnaði Snæfell hf. um
sjávarútvegsrekstur sinn en nýja fé-
lagið er með höfuðstöðvar á Dalvík.
Jafnframt var fískvinnslu hætt í
frystihúsinu í Hrísey en aukin í end-
umýjuðu frystihúsi á Dalvík. I stað-
inn var sett upp pökkunarstöð í Hrís-
ey þar sem pakkað var í neytendaum-
búðir fískbitum frá frystihúsinu á
Dalvík. Stjóm Snæfells hefur nú
ákveðið að loka verksmiðjunni um
áramót og flytja starfsemina einnig
til Dalvíkur.
Talsmenn Hríseyinga halda því
fram að flutningur pökkunarstöðvar-
innar til Dalvíkur sé aðeins lokaað-
gerðin í flutningi starfseminnar úr
Hrísey til Dalvíkur. Barátta sem
staðið hafi frá því á níunda áratugn-
um hafi tapast löngu fyrr, eða þegar
kvótinn var fluttur til Dalvíkur.
Eignarhlutur hreppsins
gufaði upp
Slagurinn hófst í framkvæmda-
stjóratíð Jóhanns Þórs Halldórssonar
í Hrísey. Hann segir að á árinu 1984
hafi Árna Benediktssyni verið falið að
gera skýrslu um sameiningu sjávar-
útvegsfyrirtækjanna á Dalvík og í
Hrísey. Segir Jóhann að Ami hafi
komist að þeirri niðurstöðu að Hrísey
myndi fara mjög halloka í slíku félagi
og í raun bent á þá þróun sem nú
hefði gengið til enda.
Á þessum tíma gerði fyrirtækið út
tvö skip frá Hrísey, ísfisktogarann
Snæfell og togbátinn Sólfell, og sáu
þau frystihúsinu fyrir hráefni. Skut-
togarinn Snæfell var keyptur notaður
frá Noregi 1975 og vegna kaupanna
var endurvakið hlutafélag, Utgerðar-
félag KEA hf. í Hrísey. Átti KEA
75% hlutafjár og Hríseyjarhreppur
25%. Jóhann Sigurbjömsson útgerð-
armaður sem þá átti sæti í sveitar-
stjóm segir að KEA hafi sett mikinn
þrýsting á sveitarfélagið um að taka
þátt í kaupunum og hafi hreppurinn
lagt fram 10 milljónir af 40 milljóna
kr. hlutafé. Framlag hreppsins var að
hluta fjármagnað með erlendu láni
sem reyndist sveitarfélaginu þungt í
skauti vegna óhagstæðrar gengisþró-
unar á næstu ámm.
Pétur Bolli Jóhannesson sveitar-
stjóri segir að eignarhlutur Hríseyj-
arhrepps hafi gufað upp og nauðsyn-
legt sé að skoða það hvað hafi orðið
um þá peninga sem hreppurinn lagði
fram. Jóhann bendir á að það hafi
tekið KEA sjö eða átta ár að eignast
skipið að fullu. KEA átti frystihúsið
sem skilaði hagnaði á meðan útgerðin
var gerð upp með tapi. Safnaði því út-
gerðarfélagið skuldum við vinnsluna
sem reglulega var breytt í hlutafé.
Sveitarfélagið hafði ekki bolmagn til
að leggja fram meira hlutafé og því
brann hlutur þess upp á nokkmm ár-
um.
Breyttist í frystiskip
Á níunda áratugnum hóf KEA at-
huganir á möguleikum þess að endur-
nýja Snæfellið. Skiptar skoðanir vora
um leiðir, sumir vildu láta smíða nýtt
skip en aðrir endumýja gamla skipið,
að því er fram kemur í grein t'rastar
Jóhannssonar stýrimanns í Degi.
Fulltrúar KEA ákváðu að láta smíða
nýjan togara en fulltrúi Hríseyjar-
hrepps greiddi atkvæði á móti. Skipið
átti að taka við hlutverki Snæfells við
hráefnisöflun fyrir frystihúsið. Á
smíðatíma skipsins var hins vegar
ákveðið að breyta því í flakafrystiskip
og kom það til heimahafnar í Hrísey í
október 1988. Tekið var á móti skip-
inu með mikilli viðhöfn. Það komst
með naumindum að bryggju vegna
þess hversu djúprist það er og gat
ekki athafnað sig í höfninni. Reyndist
þetta vera í eina skiptið sem nýja
Snæfellið kom til Hríseyjar og land-
aði eftir það á Akureyri, á meðan það
var í eigu KEA Kaupfélagið átti nýja
Snæfellið reyndar ekki nema í rúmt
ár því það var selt til Grindavíkur
ásamt kvóta í lok ársins 1989.
Til að afla frystihúsinu hráefnis í
stað Snæfells var keypt togskipið
Fimmtán ára baráttu Hríseyinga fyrir fiskvinnslu Kaupfélags Eyfirðinga lokið með ósigri
Morgunblaðið/Kristj án
Flutningur á vinnu við pökkun fiskbita fyrir Marks & Spencer og fleiri verslanakeðjur
til Dalvíkur mun hafa alvarlegar afleiðingar fyrir atvinnulífið í Hrísey.
Þótt varla komi sporður á land í Hrísey er enn hægt að finna menn að störfum við höfnina.
ÚRSLITIN RÉÐUST
ÞEGAR KVÓTINN FÓR
Súlnafell. Sólfelli var lagt og kvóti
þess færður á Súlnafell ásamt kvóta
sem fékkst með báti sem KEA eign-
aðist við söluna á Snæfelli. Súlnafell
fiskaði vel og var undirstaða hráefnis-
öflunar frystihússins næstu árin. Á
árinu 1991 ákváðu yfirmenn sjávarút-
vegsmála hjá KEÁ að leggja Súlna-
felli og áhöfn skipsins var sagt upp
störfum. Vegna mótmæla Hríseyinga
og andstöðu þáverandi framkvæmda-
stjóra, Jóhanns Þór Halldórssonar,
var ákvörðunin dregin til baka, í bili.
Málið var tekið aftur upp árið eftir og
þá varð Jóhann undir. Vegna opin-
berrar andstöðu hans kom upp trún-
aðarbrestur innan fyrirtækisins og
Jóhann hvarf til annarra starfa.
Utgerð Súlnafellsins var flutt til
Dalvíkur en sá áfram fiskvinnslunni í
Hrísey fyrir hráefni auk þess sem
keyptur var fiskur á mörkuðum.
Skipið var síðan selt í árslok 1994 og
kvótinn sem þá var rúm 1.500 tonn
fluttur á togara Útgerðarfélags Dal-
víkur, Björgvin og Björgúlf. Fisk-
vinnslan í Hrísey naut kvótans enn
um sinn því hráefnið var flutt til
vinnslu út í eyna, eða þar til fisk-
vinnslu var hætt þar árið 1997 með
stofnun Snæfells hf. I stað fiskvinnsl-
unnar var byggð upp mikil pökkunar-
stöð í fiskvinnsluhúsunum í Hrísey.
Fiskbitarnir voru framleiddh' í frysti-
húsinu á Dalvík, fluttir til Hríseyjar
til pökkunar í neytendaumbúðir og
síðan aftur yfir sundið í birgða-
geymslur á Dalvík.
Leikflétta til að loka
Hríseyingar telja að stríðið hafi
tapast á árinu 1992 þegar útgerð
Súlnafellsins var færð til Dalvíkur og
kvótinn síðar færður yfir á önnur
skip fyrirtækisins. Sumir segja að
uppsetning pökkunarstöðvarinnar
hafi aðeins verið leikflétta, liður í því
að leggja starfsemina alveg niður.
Jóhann Sigurbjörnsson segir að
frystihúsið í Hrísey hafi ávallt verið
mikið notað við þróunarvinnu, við að
vinna afurðir í nýjar pakkningar. Þar
hafi einnig hafist framleiðsla á afurð-
um fyrh- bresku verslanakeðjuna
Marks & Spencer á árinu 1985 og
þótt álitlegur kostur.
Jóhann segir að frystihús KEA í
Hrísey hafi haft sérstöðu meðal
frystihúsa í áratugi. Hann segist hafa
heimildir fyrir því að á síðasta áratug
hafi verið hagnaður af rekstrinum öll
árin, utan eins. Framlegð frystihúss-
ins hafi ávallt verið betri en til dæmis
frystihúss KEA á Dalvík, það hafi
komið fram á fundum kaupfélags-
deildarinnar. I gögnum sveitarstjóra
kemur fram að hagnaður hefur verið
á starfseminni á áranum 1990 til
1994. Jóhann Þór Halldórsson segir
að frystihúsið í Hrísey hafi verið góð
rekstrareining. Þótt Hrísey sé lítið
byggðarlag sé þar löng frystihúsa-
hefð, allt frá 1940, og í frystihúsinu
hafi fram undir þetta verið fastur
kjarni reynds starfsfólks.
Þröstur Jóhannsson, sem var tals-
maður Hríseyinga á borgarafundin-
um með stjórn KEA, telur að ekki
hafi verið forsendur tii að hætta al-
veg starfseminni í Hrísey fyrir
tveimur áram þegar vinnslan var
flutt til Dalvíkur. Það hafi því verið
leikflétta hjá stjórnendum Snæfells
og KEA á Dalvík að setja upp pökk-
unarstöð í Hrísey svo sýna mætti
fram á tap þar og flytja allt til Dal-
víkur að lokum. „Fólki svíður að
horfa upp á óstjórn þessa fyrirtækis
og rangar ákvarðanir. Það er vegna
þess sem er lokað hér, ekki vegna
þess að starfsemin hafi gengið illa.
Afkomutölur síðustu ára hjá Snæfelli
sýna að hagræðingin hefur ekki skil-
að sér í rekstrinum og ég spái því að
þess verði ekki langt að bíða að Snæ-
fell renni inn í Samherja,“ segir
Þröstur.
„Starfsemin í Hrísey var drepin
innanfrá, í sínu eigin móðurfélagi,“
segir Jóhann Þór Halldórsson, „það
virtist vera aðalmálið að taka kvót-
ann og vinnsluna af Hríseyingum.
Frekar hefði átt að efla þessa góðu
einingu og eyða kröftunum í að
sækja ný verkefni út á við,“ segir
hann.
Átti að standa undir sér
Eiríkur S. Jóhannsson, kaupfé-
lagsstjóri KEA og stjómarformaður
Snæfells hf., segir að það sé klárlega
hagkvæmara að hafa pökkunina við
hlið framleiðslunnar en vill að öðru
leyti ekki ræða ástæður þess að
Flutningur pökkunarstöðvar Snæfells úr
Hrísey er aðeins lokaaðgerðin í flutningi á
starfseminni til Dalvíkur, endalok baráttu
sem staðið hefur í fímmtán ár. Fyrst fór út-
gerðin og kvótinn í framhaldinu, síðan var
fiskvinnslu hætt og pökkunarstöð sett upp í
staðinn en henni hefur nú einnig verið lokað.
Hríseyingar eru reiðir út í Snæfell en kaup-
félagsstjóri KEA segir Helga Bjarnasyni að
mikilvægt sé að snúa umræðunni að næstu
skrefum. Kaupfélagið sé reiðubúið að taka
þátt í uppbyggingunni með heimamönnum.
Það er hins vegar spurning hvort nauðsyn-
legt trúnaðartraust ríki milli Hríseyinga
og fyrirtækjanna.
+
ákveðið var að færa pökkunarverk-
smiðjuna til Dalvíkur, segist ekki fara
frekar út í þær umræður. Því hefur
verið haldið fram opinberlega af
Hríseyingum að Snæfell hafi vanmet-
ið kostnaðinn við að flytja pökkunar-
stöðina. Byggja þarf yfir starfsemina
á Dalvík og er þegai- byrjað á því og
þjálfa upp nýtt starfsfólk auk þess
sem óvíst er um verðmæti eignanna
úti í Hrísey. Hafa Hríseyingar haldið
því fram að kostnaður við flutninginn
verði ekki undir 60-80 milljónum kr.
Flestir sjá kostina við að vera með
framleiðslu og pökkun á sama stað og
því vakna spurningar um þá ákvörð-
un að byggja pökkunarstöðina upp í
Hrísey en ekki á Dalvík. Eins má
spyrja hvort örlög starfseminnar í
Hrísey hafi í raun ekki verið ráðin
þegar kvótinn var fluttur til Dalvíkur.
Spurður um þetta segir Eiríkur
kaupfélagsstjóri, sem reyndar hefur
ekki stýrt fyrirtækinu nema í rúmt
ár, að eftir að ákvarðanir hafi verið
teknar þróist málin stundum þannig
að eftirá mætti segja að meira hafi
falist í ákvörðuninni en ætlunin var á
þeim tíma sem hún var tekin. Hann
segir að stjórnendur Snæfells hafi
talið að rekstur pökkunarstöðvar í
Hrísey myndi standa undir sér enda
hafi verið reiknað með að hún fengi
verkefni frá fleiri fyrirtækjum en
Snæfelli. Það hafi ekki gengið eftir og
nú væra til dæmis reknar tvær pökk-
unarstöðvar á Akureyri.
Lítili virðisauki
Stjórnarformaður KEA hafa sagt
að starfsemi Snæfells í Hrísey sé
rekin með bullandi tapi. Fram kem-
ur í skýrslu Atvinnuþróunarfélags
Eyjafjarðar um vandamál Hrísey-
inga að starfsemi Snæfells í Hrísey
hafi verið rekin með 12 milljóna
króna tapi, án vaxta og afskrifta, frá
janúar til ágúst á síðasta ári, eða frá
stofnun félagsins til loka rekstrar-
ársins. I fréttatilkynningu fyrir síð-
asta aðalfund kom fram að heildar-
tap af starfseminni þar væri 32 millj-
ónir. Á tímabilinu frá september á
síðasta ári og til júní sl. var 33 millj-
óna króna tap í Hrísey, án vaxta og
afskrifta, að því er fram kemur í
skýrslu Atvinnuþróunarfélagsins en
stjómendur Snæfells segja að tapið
hafi verið meira, eða tæpar 40 millj-
ónir.
Guðmundur Gíslason, fyrrverandi
framleiðslustjóri Snæfells í Hrísey,
vakti á því athygli í grein í Morgun-
blaðinu að 45% af nettótekjum
rekstrarins í Hrísey færu í að greiða
afskriftir og himinhá fjármagnsgjöld
sem séu til komin vegna annars en
rekstursins í Hrísey. Fram kemur að
starfsemin í Hrísey hafi keypt afurðir
til pökkunar á markaðstengdu verði
frá frystihúsinu á Dalvík. Þannig hafi
það þurft að greiða svipað verð fyrir
fiskbita til pökkunar og heimsmark-
aðurinn hefur verið tilbúinn að borga
fyrir pakkaða vöru. Frystihúsið á
Dalvík hafi hins vegar fengið hráefnið
af eigin skipum á miklu lægra verði
en almennt gerist á hráefnismark-
aðnum.
Lítill virðisauki skapast við pökk-
unina en á móti kemur að verðsveifl-
ur era hægari á fullunninni vöra. Af
þessu má ráða að lítill grundvöllur
virðist fyrir sjálfstæðum rekstri
pökkunarstöðvar, miðað við núver-
andi markaðsaðstæður, hvort sem er
í Hrísey eða á Dalvík. Einnig má sjá
að stjórnendur fyrirtækisins á Dalvík
geta með verðlagningu á fiskbitum
frá Dalvík til Hríseyjar og skiptingu
fjármagnskostnaðar á einstakar ein-
ingar haft veraleg áhrif á það hvar í
fyrirtækinu hagnaður er tekinn út
eða tap reiknað. Eiríkur stjómarfor-
maður Snæfells gefur í skyn að eðli-
legt geti verið að tap sé af starfsem-
inni í Hrísey. Eðli pökkunar sé
þannig að hún sé almennt ekki rekin
með hagnaði, heldur með lágmarks
kostnaði. Hann vill síðan ekki fara út
í frekari umræður um þetta málefni.
„Það er kominn tími til að einbeita
sér að framtíðinni. Eg get ekki ráðið
því hvort fólk sættir sig við þessa
ákvörðun en það þarf að vinna sig út
úr þessum umræðum og huga að
næstu skrefum. Snæfell og Kaupfé-
lagið eru tilbúin að vinna með heima-
aðilum að því. Við þurfum að koma
umræðunni í þann farveg. Ef það
tekst ekki er illa komið,“ segir Eirík-
ur.
Ekki kvótakerfinu að kenna
Skipulag fiskveiðistjórnunarinnar
tengist óneitanlega vanda Hríseyinga
og kenna __ sumir kvótakerfinu um
vandann. „Utgerðarmenn ættu að fara
að átta sig á því að þeir geta ekki
endalaust dæmt lítil sveitarfélög eins
og Hrísey til dauða. Ef það er afleið-
ing kvótakerfisins í hnotskum spái ég
því ekki langlífi," segir meðal annars í
umræddri grein Guðmundar Gíslason-
ar. Pétur Bolli Jóhannesson sveitar-
stjóri segir ískyggilegt að eitt fyrir-
tæki geti stjómað því hvort lífvænlegt
sé í heOu byggðarlögunum eða ekki.
Eitthvað hljóti að vera að kerfi sem
veiti fyrirtækjum slík völd. Hrepps-
nefndin gerir kröfu tO hluta af kvóta
Snæfells og í því efni vísar Pétur Bolli
tO sögulegra staðreynda um fjárfram-
lög Hríseyjarhrepps tO útgerðar KEA
og þeirrar aflareynslu sem skip félags-
ins öfluðu sér á meðan þau vora gerð
út frá Hrísey. „Aflareynslan vai-ð tO
hér og þess vegna eigum við hluta
kvótans. Við höfum óskað eftir að
KEA skOi einhverjum kvóta tO baka
tO þess að eitthvað sé hægt að gera
hér,“ segir sveitarstjórinn.
Eiríkur S. Jóhannsson tekur ekki
undir þau orð að það komi óorði á
kvótakerfið sem er einn af homstein-
unum í rekstri Snæfells, þegar fólk sér
afleiðingar þess á litlum stöðum eins
og í Hrísey. „Taprekstur vegur að
grandvelli fyrirtækisins, ekki kvóta-
kerfið," segir Eiríkur. Hann segir að
fiskveiðistjórnunarkerfið sem slíkt
standi fyrir sínu og fyrirtækin starfi
innan þess ramma sem það setji. Segir
Eiríkm- að vissulega séu ákveðnir
hnökrar á kerfinu og nefnir einkum þá
staðreynd að menn geti farið út úr
greininni með fuOar hendur fjár. Á
þeim afleiðingum verði að taka í
skattakerfinu, en ekki með því að
leggja niður fiskveiðistjómunarkerfið.
Eh-íkur segir vissulega dapurlegt
að horfa upp á ástandið í Hrísey en
vill ekki taka undir að þar sé að sjá
hina dökku hlið kvótakerfisins. „I við-
skiptalífinu er stöðug krafa um hag-
ræðingu og arðsemi, ekki aðeins arð
eigenda heldur einnig arðsemi í þágu
launþega. Búið er að setja leikregl-
urnar, fiskveiðistjórnunarkerfið, og
einhvers staðar finnst jafnvægi."
Rifjar Eiríkur það upp að lengi hafi
verið bent á það að störfum í framT-
framleiðslu, sjávarútvegi og landbún-
aði, muni fækka á Islandi. „Við eram
í því ferli núna. Það er frekar að við
séum að sjá afleiðingar þess í Hrísey,
en afleiðingar kvótakerfisins.
Byggðavandinn kemur fram í því að
sjávarútvegur og landbúnaður eru
stór þáttur í atvinnulífinu á lands-
byggðinni en við höfum ekki borið
gæfu til að finna önnur störf í stað-
inn,“ segir kaupfélagsstjórinn.
Staðir sem misst hafa kvóta á und-
anfórnum áram fengu ákveðinn
stuðning með úthlutun byggðakvóta.
Hrísey kom ekki til greina við þá út-'
hlutun vegna þess að enn er töluverð-
ur kvóti skráður í eynni, 1.300-1.400
tonn, aflinn kemur bara aldrei þar á
land. Frá staðnum er gert út frysti-
skip og tveir rækjubátar sem landa á
Akureyri, auk nokkurra trillubáta.
„Byggðastofnun leit bara á tölur á
blaði en ekki raunveraleikann þegar
hún setti reglur um úthlutun byggða-
kvótans,“ segir Pétur Bolli.
Athuga aðra starfsemi
MikOl vandi blasir við í Hrísey þeg-
ar pökkunarstöðin verður flutt tö
Dalvíkur seinna í vetur. Kom það
skýrt fram í úttekt Atvinnuþróunar-
félags Eyjafjarðar sem kynnt var á__
borgarafundi á þriðjudagskvöld og
sagt var frá hér í blaðinu. Snæfell á
allgóð fiskvinnsluhús í eynni og er
þar með reykingu og pökkun á laxi og
aðra smærri vinnslu, auk fiskbita-
pökkunarinnar sem fer í land. VOl fé-
lagið stofna sérstakt fyrirtæki um
eignir og vinnslu í Hrísey og selja síð-
an. Pétur Bolli Jóhannesson sveitar-
stjóri segir að reyking á laxi hafi ekki
gengið vel og erfitt að treysta á þá
starfsemi. Hann segir að KEA og
Snæfell hafi boðið fram ákveðna hluti
og það yrði hlutverk ráðgjafa sen>
Hríseyjarhreppur hyggst ráða til
starfa með stuðningi Byggðastofnun-
ar að fara yfir þau mál og aðra mögu-
leika. „Við verðum að sjá hvað út úr
því kemur,“ segir Pétur Bolli.
Sveitarfélagið er skuldugt og sér
auk þess fram á tekjutap vegna
fækkunar gjaldenda. Það hefur því
litla möguleika til að koma að upp-
byggingu atvinnulífsins eða öðram
stórum verkefnum. Þess má geta að
sveitarstjórnin hefur óskað eftir
fundi með Davíð Oddssyni forsætis-
ráðherra sem fer með byggðamál tO
að setja hann inn í málin og fara fram
á leiðréttingu mála.
Einhverjar hugmyndir era komnar
fram um starfsemi í húsnæði Snæ- 1
fells í Hrísey en Eiríkur segir of
snemmt að greina frá þeim. „Þarna
er mjög vel búið hús til matvæla-
vinnslu. Eg sé fyrir mér að þar geti
verið einhver fiskvinnsla eða önnur
matvælavinnsla.“ Hugmyndir hafa
verið um að kaupa frá Danmörku
verksmiðju sem framleiðir lífrænt
sælgæti en framgangur málsins
ræðst meðal annars af því hvort Ný-
sköpunarsjóður er tObúinn að taka
það upp á sína arma.
Trúnaðarbrestur?
Miðað við hvemig margir Hrísey-
ingar tala um stjórnendur Snæfells
er erfitt að sjá hvernig samstarf get-
ur tekist um endurappbyggingu at- '
vinnulífsins. Sveitarstjórinn tekur
undir þetta og segir að erfitt geti ver-
ið að fá fólkið til að taka þátt. Rétt er
að geta þess að hreppsnefndin snýr
sér beint til stjómar KEA, ekki til
stjórnenda Snæfells.
Stjórnendur Kaupfélagsins, þessa
gamla flaggskips samvinnumanna,
virðast heldur hnípnir vegna stöðu
mála, eins og sjá mátti í frásögnum af
fundi þeirra með íbúum staðarins á
þriðjudagskvöld, þótt þeir stæðu fast
á ákvörðun Snæfells um flutning
pökkunarinnar. „Eg fer í þetta starf
af heilum hug og vona að Hríseyingar
geri það líka. Eg vona að þeir vilji
vinna að þessu með okkur þótt ég
ætlist ekki tO þess að þeir komi bros-
andi í fangið á okkur,“ segir Eiríkur
þegar hann er spurður að því hvort
nauðsynlegur trúnaður ríki milli fyr-
irtækjanna og Hríseyinga eftir það
sem á undan er gengið. ,