Morgunblaðið - 02.10.1999, Page 69
SIMINN
www.simi.is
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Málþing lagadeildar til
heiðurs Armanni Snævarr
áttræðum
LAGADEILD Háskóla íslands efn-
ir til málþings laugardaginn 2. októ-
ber kl. 14-17, í Hátíðasal Háskól-
ans, og verður þar fjallað um réttar-
þróun á ýmsum sviðum lögfræðinn-
ar. Málþingið er haldið til heiðurs
dr. Armanni Snævarr prófessor,
sem varð áttræður 18. september sl.
Dr. Gunnar G. Schram prófessor
stýrir málþinginu. Aðgangur að
málþinginu er öllum opinn.
Dagskráin hefst með því að
Jónatan Þórmundsson, forseti laga-
deildai', flytur setningarávarp. Því
næst flytur dr. Páll Skúlason, há-
skólarektor, ávarp. Að því loknu
flytja erindi þau Guðrún Erlends-
dóttir, hæstaréttardómari: Sifja-
réttur á 20. öld - Breytingar á fjöl-
skyldugerð, Sigurður Líndal, pró-
fessor: Að selja þekkingu, dr. Páll
Sigurðsson, prófessor: Straumhvörf
í kirkjurétti.
Að loknu kaffihléi flytja erindi
þau Jónatan Þórmundsson, prófess-
or: Þróun refsiréttar í ljósi mann-
réttinda, dr. Einar Sigurbjömsson,
prófessor við guðfræðideild: Upp-
haf laga vorra og dr. Armann Snæv-
arr flytur lokaorð. Því næst verður
heimasíða lagadeildar formlega tek-
in í notkun og fundarlok.
Sunnudags-
göngur
Utivistar
ÚTIVIST býður upp á dagsferð
sunnudaginn 2. október. Ekin
verður Nesjavallaleiðin austur fyr-
ir fjall að Hagavík við Þingvalla-
vatn.
Frá Hagavík verður gengið um
Ölfusvatnsvík og farið í Hellisvik
og litið á gamlan fjárhelli sem nýtt-
ur var frá bænum Villingavatni.
Farið verður undir Björgunum upp
á Dráttarhlíð og komið við í Skinn-
húfuhelli en sagnir herma að þar
hafi eitt sinn búið tröllskessa. I
ferðinni gefst einnig kostur á að
skoða gljúfur mikið sem Sogið fell-
ur um á leið sinni frá Þingvalla-
vatni í Úlfljótsvatn.
Útivist býður upp á dagsferðir á
sunnudögum út október. Brottför í
ferðirnar er frá Umferðamiðstöð-
inni við Vatnsmýrarveg kl. 10.30.
Ekki er nauðsynlegt að tilkynna
þátttöku með fyrirvara. Næstu
dagsferðir sem Útivist bíður upp á
eru Ganga á Grímannsfell sunnu-
daginn 10. október og 17. október
verður gengið á Keili.
Skyttan - ný
rússnesk kvik-
mynd í MÍR
NÝ rússnesk kvikmynd, Skyttan
(Voroshilovskíj strelok), verður
sýnd í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10,
sunnudaginn 3. október kl. 15.
Mynd þessi hefur vakið mikla at-
hygli og umtal í Rússlandi m.a.
vegna þess að leikstjórinn Stan-
islav Govorúkhín, sem sæti á í
dúmunni, rússneska löggjafarþing-
inu, fjallar á gagnrýninn hátt um
ýmsar meinsemdir í rússnesku
samfélagi svo sem glæpi og gróða-
hyggju, tillitsleysi og virðingarleysi
gagnvart lögum og rétti, svarta-
markaðsbrask og spillingu yfir-
valda, segir í fréttatilkynningu.
I kvikmyndinni segir frá öldruð-
um manni sem barðist á vígstöðv-
unum í síðari heimsstyrjöldinni og
hlaut margvíslega viðurkenningu
fyrir vasklega framgöngu. Þegar
dótturdóttur hans, unglingsstúlku,
er nauðgað á hrottafenginn hátt af
þremur ungum piltum og lögreglu-
yfirvöld eru treg til að rannsaka
málið og refsa glæpamönnunum,
finnst afanum nóg komið og hann
ákveður að taka til sinna ráða. I
hlutverki skyttunnar er frægur
rússneskur leikari, Mikhaíl Úlja-
nov, en stúlkuna Kötju leikur Anna
Sinjakina. Myndin er sýnd ótextuð.
A bíósýningartíma er einnig opin
á Vatnsstíg 10 myndasýning
helguð rússneska skáldinu Alex-
ander Púshkín í tilefni 200 ára af-
mælis. Aðgangur er ókeypis og öll-
um heimill.
Fyrirlestur
um viðskipti,
verslun
og markað
HELGI Þorláksson, prófessor við
sagnfræðiskor Háskóla íslands,
flytur fyrirlestur þriðjudaginn 5.
október sem hann nefnir: Viðskipti,
verslun og markaður. Fundurinn
verður haldinn í Þjóðarbókhlöðu á
2. hæð í hádeginu kl. 12.05-13 og
er hluti af fyrirlestraröð Sagnfræð-
ingafélags Islands sem nefnd hefur
verið: Hvað er hagsaga?
Eru allir áhugamenn um sögu
hvattir til að koma á fundinn og
taka þátt í umræðum um efnið.
Helgi Þorláksson hefur unnið um
árabil að rannsóknum á verslun ís-
lendinga á miðöldum og er jafn-
framt einn af forsvarsmönnum
fræðihóps sem hefur á prjónunum
að taka saman bók um íslenska
verslun frá upphafi til nútímans.
Athygli skal vakin á því að fund-
armenn geta fengið sér matarbita í
veitingasölu Þjóðarbókhlöðunnar
og neytt hans meðan á fundinum
stendur.
LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1999 69
jlϗileat
ÚRVAL
LEDURSÓFAS etta
Á GDDU VERÐI
'mmmm
fóa&áeu.
ÍTALSKT
LEÐURSÓFASETT
3 + 1+1
• SVART
• VÍNRAUTT
• DÖKKBRÚNT
CViNTYRALEGT VERfi
HUSGOGN
TM
Síöumúla 30 - Sími 568 6822
- œvintýri líkust
OPIO:
Mán. - fös. 10:00 - 18:00 Fimmtud. 10:00 - 20:00 Laugard. 11:00 - 16:00 : Sunnud. 13:00 -16:00
til útLanda
-auövelt að muna
;: v \
8 da^artiljóla
Byrjid á jólagjöfunum tímalega.
Vorum að taka upp úrval af nýjum
trévörum. Fulltaf hugmyndum
tiljólagjafa. ^
Nýsending afsniðum
fyrirtréútsögun.
ei;
oest
LctKKiím
wE
Langholísvcöur 111
_______ Símí 568 6500 * +
/ Opldfrákl. 10-18 vlrko daqa 09 frá kl. tO-IStaugttitteaa % www.islandia.is/lin/fondra.htm Jté*