Morgunblaðið - 04.11.1999, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1999 23
Morgunblaðið/Sverrir
Astand verðmerkinga í sýningargluggum hefur versnað til muna á einu ári bæði á Laugavegi og í Kringlunni.
Verslanir
í Kringlunni
47% með
óverðmerkt
í sýningar-
gluggum
Ástandið
versnað mikið
frá því í fyrra
í SÍÐUSTU viku var næstum
helmingur sýningarglugga versl-
ana í Kringlunni með óverðmerkt-
ar vörur eða 47%. Astandið var að-
eins skárra við Laugaveg en þar
voru 36% sýningarglugga ekki
með verðmerktar vörur til sýnis.
Þetta kom fram þegar haft var
samband við Samkeppnisstofnun
vegna verðmerkinga í verslunum
en lesendur höfðu komið með
ábendingar um að verðmerkingum
væri verulega ábótavant.
Könnunin sem gerð var á vegum
Samkeppnisstofnunar í síðustu
viku sýnir að ástandið hefur versn-
að frá því í fyrra. Kristín Færseth
deildarstjóri hjá Samkeppnisstofn-
un segir að til samanburðar megi
geta þess að í desember í fyrra
voru 28% verslana í Kringlunni
með óverðmerkt í sýningarglugg-
um og 26% á Laugavegi. Astandið
hefur því versnað til muna á einu
ári bæði á Laugavegi og í Kringl-
unni.
Þegar Kristín er spurð hvernig
Samkeppnisstofnun hyggist
bregðast við þessari þróun segir
hún að að venju afhendi starfsfólk
stofnunarinnar verslunareigend-
um reglurnar en það gefi augaleið
að þessi þróun gangi ekki og
bregðast þurfi við með hertari að-
gerðum. „A vegum viðskiptaráðu-
neytisins er nú unnið að endur-
skoðun samkeppnislaga og von-
andi leiðir þessi endurskoðun til
þess að stofnunin fái ríkari heim-
íldir til að snúa þessari þróun
við.“
Verðmerkingum verður
kippt í lag
Sigurþór Gunnlaugsson mark-
aðsstjóri Kringlunnar segir að
hver kaupmaður beri ábyrgð á
sinni verslun en hann segir að ít-
rekað verði við kaupmenn að þeir
fylgi settum reglum með verð-
merkingar. Hann telur að hluti
skýringarinnar á því hversu illa er
verðmerkt í sýningargluggum sé
að margir kaupmenn hafi verið að
opna verslanir í Kringlunni og þeir
séu einfaldlega ekki búnir að koma
þessum málum í lag. Þá segir hann
líka að margir kaupmenn í eldri
hluta Kringlunnar hafí verið að
færa sig um set og eigi eftir að
verðmerkja í gluggum sínum. Ég
tel fullvíst að þessu verði kippt í
lag á næstu dögum.“
'00 Stekkjanlaur kom tyntur,
| stinnur rim og Iri..
Slúfur hit sá,
stubburinn sc
, Pottaskefílt
I kuldastrá-
ÍSIAND
ISiAND
Níundi var Bjúgnaknekir,
brögöóttur og snar~
ISIAND
ÍSLAND
13 jólasveinafrímerki
Útgáfa jólafrímerkja hefur aldrei verið eins viðamikil og
í ár. í dag koma út 13 mismunandi frímerki með íslensku
jólasveinunum. Á þeim eru jólasveinarnir færðir í sinn
upprunalega íslenska búning í samræmi við niðurstöður
í hugmyndasamkeppni Þjóðminjasafnsins um útlit þeirra
og klæðnað. Einnig var tekið mið af þeirri mynd sem
skáldið Jóhannes úr Kötlum dró upp af þeim í jólasveina-
kvæðum sínum í bókinni Jólin koma frá 1932 en í ár eru
einmitt 100 ár frá fæðingu skáldsins.
POSTURINN
- m£^jóUuireúuxkup^ðjuy !