Morgunblaðið - 04.11.1999, Qupperneq 28
28 FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
________________________________ERLENT__________________
Fundur leiðtoga fsraela og Palestínumanna með Bill Clinton í Ósló
Lofuðu að hefja friðarvið-
ræður „af miklum krafti“
Jenísalcm. Reuters.
LEIÐTOGAR ísraela og Palestínu-
manna samþykktu á fundinum með
Bill Clinton Bandaríkjaforseta í
Ósló í fyrradag að hefja samninga-
viðræður af miklum krafti um var-
anlegan friðarsamning, að sögn að-
stoðarmanns Ehuds Baraks, for-
sætisráðherra Israels, í gær.
„Mestu máli skiptir að Palestínu-
menn og Israelar voru sammála um
að nauðsynlegt væri að halda við-
ræðunum áfram af miklum krafti,“
sagði Danny Yatom, aðstoðarmaður
Baraks, í útvarpsviðtali. „Allt þetta
verður með góðri aðstoð Bandaríkj-
anna, ef og þegar þörf krefur."
Viðræðurnar eiga að hefjast á
mánudaginn kemur. Leiðtogarnir
hafa sett sér að ná bráðabirgðasam-
komulagi fyrir miðjan febrúar um
meginatriði varanlegs friðarsamn-
ings sem á að undirrita í september
á næsta ári. Leiðtogarnir hétu því
að gera allt sem þeir gætu til að
tryggja að hægt yrði að standa við
þessi tímamörk.
„Þetta verður
mjög erf!tt“
í komandi samningaviðræðum
verður tekist á um mörg torleyst
deilumál, svo sem framtíðarstöðu
palestínsku sjálfstjómarsvæðanna,
framtíð Jerúsalemborgar, byggðir
gyðinga á hemumdu svæðunum,
Ap
Bill Clinton Bandaríkjaforseti, Ehud Barak, forsætisráðherra fsraels,
og Yasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, ganga út úr bandaríska
sendiráðinu í Osló eftir fund þeirra á þriðjudag.
málefni palestínskra flóttamanna,
landamæri og vatnsréttindi.
Clinton sagði eftir leiðtogafund-
inn í Ósló að líkurnar á því að
samningaviðræðurnar bæm árang-
ur hefðu „stóraukist". Hann varað-
ist þó að gera of lítið úr þeim hindr-
unum sem samningamennimir
þurfa að yfirstíga á næstu vikum.
„Þetta verður mjög erfitt," sagði
hann.
Israelskir embættismenn tóku í
sama streng og sögðu að reynslan
af fyrri samningum þjóðanna sýndi
að vandamálin myndu aðeins aukast
eftir því sem líður á samningavið-
ræðumar.
Barak ávarpaði í gær ísraelska
nemendur, sem eiga í vændum að
verða kvaddir í herinn, og sagði að
fundurinn í Ósló hefði einkum snú-
ist um framtíð þeirra. „Markmið
okkar með því að koma á friði er í
raun að öll ungmenni í Israel geti
lifað hamingjusömu lífi, án þess að
þurfa að hafa of miklar áhyggjur af
öryggi landsins," sagði hann.
Annar Ieiðtogafundur
hugsanlegur
Clinton gaf til kynna að hugsan-
lega yrði efnt til nýs leiðtogafund-
ar, ef til vill í líkingu við fundinn I
Camp David í Bandaríkjunum sem
leiddi til friðarsamnings Israela og
Egypta árið 1979. Aðstoðarmaður
Baraks sagði að Israelar og Palest-
ínumenn léðu máls á þeirri hug-
mynd. „I lok janúar eða í byrjun
febrúar þurfum við að ákveða
hvort þörf sé á öðrum fundi leið-
toganna þriggja, í samræmi við að-
stæður og gang viðræðnanna,“
sagði Yatom.
Lofuðu að forðast
ögrandi yfirlýsingar
Clinton sagði að Barak og Yasser
Arafat, leiðtogi Palestínumanna,
hefðu „samþykkt að reyna af
fremsta megni að forðast opinberar
yfirlýsingar eða aðgerðir sem gætu
valdið viðsemjandanum miklum erf-
iðleikum á næstu 100 dögum“.
Barak reitti þó Palestínumenn til
reiði með því að hafna þeirri kröfu
Arafats að byggðir gyðinga á
hemumdu pvæðunum yrðu ekki
stækkaðar. Israelum gramdist hins
vegar að Arafat skyldi vekja máls á
deilunni um Jerúsalem, flóttafólkið
og byggðir gyðinga í minningarorð-
um um Yitzhak Rabin, fyrrverandi
forsætisráðherra Israels, sem vai’
myrtur eftir að hafa hafið friðaryið-
ræður við Palestínumenn í Ósló
1993.
Gyðingar á hemumdu svæðunum
sögðust ekki ætla að auðvelda
Barak að semja við Arafat um
byggðir þeirra. Þeir sögðu að ekk-
ert væri hæft í fréttum fjölmiðla um
að leiðtogar gyðingabyggðanna
hefðu samþykkt að fjarlægja nokkr-
ar útvarðarstöðvar á hernumdu
svæðunum áður en samningavið-
ræðurnar hefjast. í málamiðlunar-
samkomulagi, sem stjóm Baraks
náði nýlega við leiðtoga gyðinga-
byggðanna, voru gyðingarnir hvatt-
ir til þess að fjarlægja 12 útvarðar-
stöðvar af 42 sem stjómin héfur
ekki heimilað.
Aukakosningar í öruggu vígi breska íhaldsflokksins í London síðar í mánuðinum
Komu Portillos beðið
með eftirvæntingu
London. Reuters, Daily Telegraph.
Reuters
Michael Portillo á blaðamannafundi eftir að hann
hafði verið útnefndur frambjóðandi Ihaldsflokks-
ins í aukakosningum í Kensington og Chelsea.
MICHAEL Portillo var í fyrra-
kvöld útnefndur frambjóðandi
íhaldsflokksins í ömggu kjördæmi
í London en aukakosningar verða
þar síðar í mánuðinum. Hét hann í
gær að sýna William Hague, leið-
toga flokksins, fulla hollustu en
margir telja samt, að hann geti
orðið honum skeinuhættur síðar.
Portillo missti þingsæti sitt í
kosningunum 1997 en nú hefur
hann verið valinn frambjóðandi í
kjördæmingu Kensington og
V erkamannaflokk-
urinn kvíðinn en
vonar að Portillo
muni grafa
undan Hague
Chelsea, öruggu vígi Ihalds-
flokksins. Vegna andláts Alan Cl-
arks, þingmanns kjördæmisins,
verður efnt til aukakosninga þar
25. þ.m.
Oft hefur verið litið á Portillo sem
merkisbera hægristefnunnar í
íhaldsflokknum og hann er ákafur
aðdáandi Margaret Thatcher, fyrr-
verandi forsætisráðherra, og
stefnumála hennar. Hefur hann
jafnan haldið þeim hátt á loft og
seint á síðasta kjörtímabili var hann
orðinn mikið efth’læti hægrimanna í
flokknum fyrir Evrópufjandsam-
lega afstöðu sína og aðrar yfirlýs-
ingar í anda Thateher. Virtist þá
sem vegur hans til valda yrði breið-
ur og beinn en kosningamar 1997
settu strik í reikninginn. Þann tíma,
sem síðan er liðinn, hefur hann not-
að til að gefa af sér dálítið aðra
mynd og leggur nú meiri áherslu en
áður á umburðarlyndi og umhyggju
fyrir samborgurunum.
Hinn nýi Portillo
Sem dæmi um þetta má nefna,
að í ágúst sl. vann Portillo í þrjá
daga sem ólaunaður dyravörður á
sjúkrahúsi í London og að því
loknu hrósaði hann starfsfólki heil-
brigðisþjónustunnar á hvert reipi.
Voru þeim ummælum hans gerð
góð skil í fjölmiðlum. „Það er svo
margt, sem gefur lífinu gildi, annað
en að græða peninga," sagði
Portillo á landsfundi Ihaldsflokks-
ins fyrir skömmu.
Rétt áður en Portillo tilkynnti,
að hann vildi reyna að tryggja sér
þingsæti á ný, viðurkenndi hann,
að sem ungur maður hefði hann
tekið þátt í og upplifað kynlífs-
reynslu samkynhneigðra. Var ekki
vitað hvernig væntanlegir kjósend-
ur hans, sem eru flestir mjög
íhaldssamt fólk, myndu taka þessu
en það varð honum þó ekki neinn
fjötur um fót þegar á reyndi.
Portillo lýsti því yfir er hann
hafði verið útnefndur frambjóðandi
flokksins í aukakosningunum síðar
í mánuðinum, að hann myndi sýna
Hague fullkomna hollustu. Sagði
hann, að þeir væru „sem einn mað-
ur“ í Evrópumálunum. Haft er eftir
heimildum innan íhaldsflokksins,
að Hague hyggist láta Portillo fá
valdamikið embætti í skuggaráðu-
neyti flokksins fljótlega og örugg-
lega löngu áður en kemur til næstu
kosninga eftir hált annað ár. Þykir
ekki ólíklegt, að hann verði valinn
formaður flokksins, sem er annað
embætti en sjáft leiðtogaembættið.
Michael Denzil Xavier Portillo
er fæddur í London 1953. Er móðir
hans af skoskum ættum en faðir
hans spænskur vinstrisinni, sem
flýði Spán á fjórða áratugnum
vegna borgarastyrjaldarinnar. Var
Portillo aðeins barn að aldri er
hann vakti fyrst athygli á sér fyrir
góða frammistöðu í auglýsingum
Og í skóla þótti hann frábær náms-
maður og hliðhollur Verkamanna-
flokknum. A námsárunum í
Cambridge snerist hann til hægii
og gekk til liðs við íhaldsflokkinn.
Setja Bretar spænska
nafnið fyrir sig?
Að námi loknu stundaði hann við-
skipti í eitt ár en leiddist þau að sögn
og fór til starfa í höfúðstöðvum
íhaldsflokksins. Var hann aðstoðar-
maður Thatcher í
hinum sögulegu
kosningum 1979 en
þær voru upphafið
að 18 ára langri
valdatíð íhalds-
manna. Hann var
kjörinn á þing 1984
og 1992 varð hann
næstráðandi í fjár-
málaráðuneytinu.
1994 varð hann at-
vinnumálaráðherra
og ári síðar vamar-
málaráðherra.
„Ég vil verða for-
sætisráðherra en ég
verð það aldrei
vegna þess, að ég
heiti Portillo," sagði
hann einu sinni í hópi gamalla
skólafélaga sinna.
Þótt heita megi öruggt, að
Portillo sigri í kosningunum 25.
þ.m. þá verður slagurinn vafalaust
mjög harður. Verkamannaflokkur-
inn og Frjálslyndi demókrataflokk-
urinn munu leggjast á eitt gegn
honum og trúlega munu ýmsir tals-
menn samkynhneigðra blanda sér í
baráttuna. Saka þeir Portillo um
hræsni og segja, að hann hafi lifað
sem samkynhneigður lengur en
hann vilji vera láta.
Kvíðablandin
eftirvænting
Verkamannaflokkurinn óttast líka
Portillo. Hann hefur nefnilega það,
sem margan stjórnmálamanninn
skortir, mikla persónutöfra. Þá dást
líka margir verkamannaflokksmenn
að því hvemig Portilio tók ósigrin-
um 1997 og hvernig honum hefrn’
tekist að breyta ímynd sinni síðan.
Verkamannaflokkurinn bíður þó
líka dálítið spenntur eftir komu
Portillos og þá í þeirri von, að hann
muni koma til með að grafa undan
Hague. Portillo veit hins vegar, að
það getur reynst honum dýi’keypt
að ögra leiðtoganum. Það verðui’ því
vel fylgst með Portillo á þingi og
ekki síst vegna þess, að þótt hann sé
mörgum góðum kostum búinn, þá
hefur hann einn Akkillesarhæl, sem
er fljótfærni og dómgreindarleysi.
Digranesvegur - Kóp. - Sérhæð
Vorum að fá í sölu glæsi-
lega 124 fm sérhæð á
jarðhæð í nýlegu þríbýli.
Frábær staðsetning -
stutt í alla þjónustu. Þrjú
stór herbergi, parket á
öllum gólfum, glæsilegt
baðherbergi, flísalagt f
hólf og góif. Timbursól-
pallur, frábært suður-
útsýni, Ákveðin sala. Áhv.
4,9 m. Verð 12,7 millj.
NÝBÝLAVEGI 14,
KÓPAVOGI,
S 564 1400.