Morgunblaðið - 04.11.1999, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1999 31
ERLENT
Flugslysið undan strönd
Bandaríkj anna
Skall heil á
haffletinum á
hljóðhraða
Washington.AP.
RANNSOKN á ratsjárupptökum
af hinstu mínútunum í flugi
egypsku farþegaþotunnar, sem
fórst undan austurströnd Banda-
ríkjanna, bendir til þess að hún
hafi nánast náð hljóðhraða og ver-
ið í heilu lagi er hún skall á haf-
fletinum og splundraðist. Sér-
fræðingar í rannsóknum flugslysa
vita enn ekki hvað gerðist en vís-
bendingin um að þotan hafi
skyndilega tekið steypidýfu úr
33.000 feta farflugshæð gefur
fjölda kenninga byr undir báða
vængi, m.a. að eitthvað hafi komið
fyrir ílugmennina. „Flugvél
steypist ekki af himnum úr þess-
ari hæð nema eitthvað gerist,"
sagði Billie Vincent, fyrrverandi
öryggismálastjóri hjá bandarísku
flugmálastjórninni (FAA).
Að sögn Jims Hall, forstjóra
Oryggisnefndar samgöngumála
(NTSB), var Boeing-767 þota
EgyptAir i farflugi í 33.000 feta
hæð er hún lækkaði skyndilega
flugið í beinni línu áfram niður í
16.700 fet á innan við 40 sekúnd-
um. Nemur lækkunin um 16.300
fetum á þeim tíma. Náði þotan á
þessu tímabili 1104 km/klst.
flughraða miðað við jörð. Eftir
það sveigði þotan rólega til hægri
í rúmar 37 sekúndur áður en hún
hvarf af ratsjám um það bil 104
kílómetra suðaustur af Nant-
ucket-eyju í Massachusetts.
Ed Crawley, yfirmaður flug- og
geimferðadeildar tækniháskóla
Massachusetts (MIT), segir að
þegar tekið sé tillit til lækkunar
þotunnar og hraða hennar yfir
jörð jafngildi það því að hún hafi
steypst til jarðar á 1190 km/klst
hraða eða sem nemur 97% af
hljóðhraða. „Farþegum hefur lið-
ið eins og þeir væru að fara hratt
og bratt niður í rússibana eða
mjög bratta skíðabrekku," sagði
Crawley.
Brak úr þotunni þykir benda til
þess að hún hafi skollið á hafflet-
inum af miklu afli og því verið
mjög heilleg allt til þess. Ættingj-
um þeirra sem fórust hefur verið
sagt að búast ekki við að heilleg
lík finnist.
Þegar júmbóþota TWA sprakk
undan austurströndinni í júlí 1996
rifnaði hún í sundur í 13 þúsund
feta hæð. Mörg líkanna sem fund-
ust voru tiltölulega heilleg sem
búast mátti við þar sem fólk í
frjálsu falli fellur ekki hraðar til
jarðar en með 200 km/klst. vegna
vindmótstöðu.
Vegna straumlínulags flugvélar
getur hún lækkað mun hraðar
fyrir vélarafli. „Heilleg flugvél
sem steypist til jarðar fyrir vélar-
afli myndi splundrast miklu meira
en flugvél sem springur í hæð og
fellur í hlutum til jarðar í frjálsu
falli,“ segir Bill Hendricks, fjTr-
verandi yfírmaður stórslysarann-
sókna hjá NTSB.
Samlíking við
SilkAir-slysið
Tvö fyrri flugslys kynnu að
varpa ljósi á það hvers vegna þota
EgyptAir steyptist til jarðar. I
desember 1987 stakkst þota frá
Pacifíc Southwest-flugfélaginu til
jarðar 280 km norðvestur af Los
Angeles eftir að vopnaður maður
myrti flugmennina. Allir sem um
borð voru, 43 manns, fórust.
í desember 1997 stakkst þota
SilkAir til jarðar á rúmlega
hljóðhraða á Súmötru, á leið frá
Jakarta til Singapore, með þeim
afleiðingum að 104 manns biðu
bana. Rannsókn þess slyss er enn
ólokið en nokkrum dögum áður
keypti aðstoðarflugmaðurinn
líftryggingu upp á milljónir doll-
ara. Talið er að hann hafi viljað
stytta sér aldur og því steypt vél-
inni til jarðar. „I báðum tilvikum
stingast vélarnar nánast heilar og
óhindraðar í jörðina þar sem stýr-
unum er stefnt beint niður,“ sagði
Billie Vincent.
Meira úrval - betrikaup
NUDDSÁPAN SEM STINNIR
OG GRENNIR LÍKAMANN
Éh
eilsuhúsið
KYNNING HEILSUHÚSINU SKÓI AVÖKUUSTÍG f DAG KL, 13 - 17, Á SAMA
TÍMA í KRINGLUNN! FÖSTUPAG OG í SMÁRANUM LAUGARDAG,
Ef þú kaupir Bogense sápuna færðu kaupauka og ef þú kaupir Bogense
sápuna og Bogense pilluna saman þá færðu 20% afslátt og kaupauka.