Morgunblaðið - 04.11.1999, Side 36
36 FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Tónlistarmaðurinn Skúli Sverrisson til liðs við g;jörningalistamanninn Laurie Anderson
Upplýsingar og skráning í síma Sálfræðistöðvar-
innar 562 3075 milli kl. 11 oa 12 /fax 552 1110
Stóri hvíti
hvalurinn
gerir vart
við sig
áný
Ncw York. Morgunblaðið
TÓNLISTARMAÐURINN Skúli
Sverrisson tekur þátt í flutningi á
nýju verki gjörningalistamannsins
Laurie Anderson, marg-
miðlunaróperunni Söngvar og
sögur af Moby Dick. Þetta er eitt
stærsta verk Laurie Anderson til
þessa og í fyrsta sinn sem fleiri
Iistamenn koma að flutningnum
ásamt henni. Skúli vinnur hljóðút-
setningar ásamt höfundi auk þess
sem hann leikur á bassa í verkinu
sem flutt var um tveggja vikna
skeið í byrjun mánaðarins í Brook-
lyn Academie of Music í New
York. í gagnrýni The New York
Times, segir Bemard Holland, Ieik
Skúla vera „hjartslátt sýningar-
innar“.
Söngvar og sögur af Moby Dick
hefur lengi verið í smíðum en
verkið var fmmflutt í Dallas í vor
áður en það var svo flutt í New
York í októbermánuði í styttri og
breyttri mynd. Um þessar mundir
standa yfir sýningar verksins á
vesturströnd Bandaríkjanna, í Los
Angeles og San Fransisco, og það-
an er förinni heitið til Evrópu þar
sem verkið verður flutt bæði í
Frakklandi og á Italíu á næstu
tveimur mánuðum. Þá em fyrir-
hugaðar upptökur á geisladiski
með tónlistinni í verkinu undir
umsjón Skúla.
Laurie Anderson spinnur saman
tónlist, myndlist og leiklist í gjöm-
ingum sinum á sviði. Rafræn fiðla
er kennimerki sem fylgt hefur
Laurie allt frá upphafi ferilsins í
lok 7. áratugarins þegar verk
hennar fóm fyrst að vekja athygli
í New York. Gjömingamir hafa
vaxið að umgangi en hennar
Á flestum vinnustöðum þurfa stjórnendur/-
starfsmenn að takast á við flókin samstarfsmál
og jafnvel fást við áreitni og yfirgang í starfi.
Flestum finnst erfitt að taka á slíkum erfiðum
og oft viðkvæmum málum.
Fyrir hverja. stjórnendur, yfirmenn, trúnaðarmenn og aðra
sem í starfi sínu þurfa að takast á við sam-
skipti og samstarfsvanda.
Kennar verða aðferðir/samskiptalíkan til að þátttakandinn geti
betur áttað sig á hvaða viðbrögð hann þarf að styrkja til að
valda hlutverki sínu sem best og hvaða viðbrögð getur þurft að
minnka til að komast hjá ágreiningi, óánægju og deilum.
Leiðbeinendur og höfundar eru sálfræðingarnir
Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal.
MorgunblaðiðAVilliam Struhs
Frá flutningi verksins í Brooklyn Academie of Music í október. Söngvar og sögur af Moby Dick verða á ferð um Bandaríkin, Ítalíu og Frakkland
næstu tvo mánuði.
NY SAMKEPPNI
UM ÍSLENSKU
BARNABÓKAVERÐLAUNIN
300 þúsund króna verðlaun í boði fvrir besta handritið!
Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka efnir nú enn á ný til verðlaunasamkeppni
þar sem auglýst er eftir handritum að sögum fyrir börn og unglinga. Dómnefnd
velur besta handritið og verðlaunin nema 300.000 krónum auk venjulegra
höfundarlauna fyrir bókina sem kemur út hjá Vöku-Helgafelli á haustdögum
árið 2000. Skilafrestur handrita er til 1. febrúar 2000.
íslensku barnabókaverðlaunin hafa á
undanförnum árum greitt mörgum
nýjum höfundum leið og jafnframt orðið
til þess að auka úrval góðra bókmennta
fyrir börn og unglinga.
Stjórn Verðlaunasjóðsins hvetur
jafnt þekkta sem óþekkta höfunda til
þess að taka þátt í samkeppninni um
íslensku barnabókaverðlaunin.
Skila á útprentuðu handriti að sögunni
og skal það vera a.m.k. 50 blaðsíður
að lengd. Ekki er gert ráð fyrir að verð-
iaunasagan verði myndskreytt. Handrit
á að merkja með dulnefni en rétt nafn
höfundar skal fylgja með í umslagi.
Utanáskriftin er:
Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka
Vaka-Helgafell
Síðumúla 6
108 Reykjavík
YAKA-HELGAFELL • Síðumúla 6 • 108 Reykjavík • Sími 550 3000
þekktasta verk til þessa er óður-
inn til þjóðar sinnar, United Stat-
es, sem frumflutt var árið 1980.
Síðasta stóra sviðsverk hennar,
The Nerve Bible, var flutt árið
1995 en Laurie vinnur jafnframt
myndlistarinnsetningar í söfnum
og galleríum, tónlist fyrir kvik-
myndir og margmiðlunar-
geisladiska svo eitthvað sé nefnt.
í verkum sínum bjagar Laurie
og teygir hljóð og raddir með
óiíkustu aðferðum, bæði búktali
og flóknum rafrænum hljóðvinn-
slum sem hún hefur þróað í gegn-
um árin, t.d. með búnaði á fiðlur
sínar þar sem hún getur leikið
hljóðritaðar upptökur texta og
tóna með snertingu bogans. I óp-
erunni sem byggir á sögu Melvilles
af Moby Dick kynnir hún til sög-
unnar nýtt hljóðfæri, „talandi
staf‘, stafrænan búnað sem getur
numið og leikið hljóð á mismun-
andi hraða eftir því sem stafnum
er sveiflað.
Bandarískur
harmleikur
Hið ritaða og talaða orð er ekki
síður mikilvægt en tónlistin í verk-
um Laurie, en þá sjaldan sem nú,
þegar hún ræðst í að tjá. og túlka
upplifun sína á hinu fræga bók-
menntaverki Moby Dick. „Það sem
hreif mig svo mjög var hugmyndin
um að hið óljósa og dularíúlla sem
þú leitar að allt þitt líf skuli á end-
anum eta þig lifandi," segir Laurie
m.a. í sýningarskrá. I blaðaviðtali
er haft eftir henni að í þessu nýja
verki haldi hún áfram að draga
fram mynd af þjóð sinni en sagan
af Moby Dick sé sannkallaður
bandarískur harmleikur þar sem
tjallað er um völd, hamingjuieysi
og bijálæði.
Söngljóð, rapp og
hjartsláttur hvala
Verkið hefst á fiðlusólói Laurie
þar sem hún gengur ákveðin fram
á sviðið, lágvaxin í dökkum jakka-
fötum og rauðum skóm og öldum-
ar bærast á stómm skjá í bakgr-
unni sviðsins. Myndræn
framsetning verksins samanstend-
ur af ljósmyndum og kvikmyndum
ofan og neðan hafsmáls, textarun-
um og litaflötum sem renna um
sviðið á risavöxnum skjá á hrinu
samhverfra mynda.
Sjónrænt áreitið er jafn áhrifa-
mikið og ögrandi tónamir. Áhorf-
endur sogast inn í ógnvekjandi og
dularfulla leit að stóra hvíta hvaln-
um. I taktföstum 90 minútna flutn-
ingi er þeyst um sögu Melvilles,
eða öllu heldur vangaveltur lista-
mannsins um söguna, s.s. Iíffræði
hvala, hvalveiðar, goðsögur og
ranghugmyndir manna um eðli
hvala, raunir skipstjórans Ahams
eins og þeim em gerð skil í kvik-
myndum Hollywood, skírskotanir
til texta biblíunnar og margvísleg-
ar myndlíkingar auk þess sem
listamaðurinn rekur á per-
sónulegum nótum eftirgrennslan
sína á hvalavísindasafninu í Lund-
únum og fleiri spaugilegri hliðar á
tilurð verksins. Tónlistin er í
höndum Laurie og Skúla, sem
stendur og stýrir bassa sfnum á
sviðinu nánast frá upphafl til
enda, en auk þess taka þrír leikar-
ar þátt í flutningnum.
Erfitt er að lýsa flæði tóna í
verkinu sem spanna allt frá eftir-
líkingum af bylgjuhreyfíngum ald-
anna, söng og hjartslætti hvala,
um fíðlu og bassaspuna, til söng-
ljóða og rapplaga. Sem fyrr í verk-
um sínum em hugmyndir Laurie
Anderson sprottnar úr ólíkum átt-
um. Þar má finna Ijóðra:nar frá-
sagnir og heimspekilegar vanga-
veltur um tilgang lífsins,
samfélagsgagnrýni og kaldhæðna
kimni í bland við rapp, rokk og ról.
LEYSA
& mmmrm
VINNUSÁLFRÆÐI