Morgunblaðið - 04.11.1999, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1999 61
hlutverki.
Um leið og við vottum dýpstu
samúð okkar eiginkonu Einars
Páls, Hrafnhildi Sigurgeirsdóttur,
börnum þeirra þremur, Jónasi
Hauki, Hrafnhildi og Helga, og öðr-
um ættingjum, kveðjum við félaga
okkar og vin hinstu kveðju með fá-
einum hendingum úr erfiljóði eftir
Matthías skáld Jochumsson:
Vantarnúívinahóp,
völt er lífsins glíma,
þann er yndi og unað skóp
oss fyrir skemmstum tíma.
Nú er harpan hljóð og ein,
hryggðar þrumu lostin,
aðeins heyiist óma kvein
eftir strenginn brostinn.
Með haustinu styttir dag og
myrkrið færist yfir. Við fráfall vin-
ar míns og starfsfélaga, Einars
Páls Jónassonar, dimmdi enn frek-
ar af degi og myrkrið lagðist af enn
meiri þunga á tilveru okkar. Það er
dapurlegt að setjast niður og fest á
blað fátækleg orð um góðan sam-
starfsmann, sem nú er horfinn héð-
an eftir stutta, en mjög erfiða bar-
áttu við illvígan sjúkdóm.
Kynni mín af Einari voru löng.
Við hófum störf hjá Skýrr á svipuð-
um tíma fyrir um 17 árum. Eg hef
starfað með honum alla tíð síðan.
Ég minnist Einars sem sérlega
duglegs og ósérhlífins starfsmanns.
Einar var metnaðarfullur, traustur,
skipulagður, samviskusamur og
umfram allt góður starfsfélagi.
Einari voru falin ábyrgðarmikil
verkefni og hafði hann m.a. umsjón
með umfangsmiklum upplýsinga-
kerfum hjá Skýrr. Hann gekk fús
til allra verka sem honum voru falin
og leysti þau jafnan vel og sam-
viskusamlega af hendi. Einar var
jafnframt afar skemmtilegur
starfsfélagi. Hann lá ekki á skoðun-
um sínum og lét ekkert fram hjá
sér fara í þeim miklu breytingum
sem átt hafa sér stað hjá fyrirtæk-
inu undanfarin misseri. Það var
ávallt gaman að setjast niður og
ræða málin með honum. Einar var
rótarýfélagi í Rótarýklúbbi Kópa-
vogs. Fórum við oft saman á fundi í
heimaklúbbum hvor annars. Við
hjónin áttum því láni að fagna að
kynnast Einari og Hrafnhildi enn
betur á ferðalögum og í fögnuðum á
vegum fyrirtækisins. Það voru
skemmtilegar stundir og lifa áfram
í minningunni.
Einar lifði heilsusamlegu líferni
og tamdi sér holla lífshætti. Hann
sinnti áhugamálum sínum af mikl-
um eldmóði og krafti. Sérstaklega
er mér minnisstætt hve honum var
annt um að byggja fjölskyldu sinni
fallegt heimili. Fékk ég oft á tíðum
frásagnir af ýmsum endurbótum og
breytingum sem hann var með í
gangi á húseign sinni í Hraunt-
ungu. Ekki fór á milli mála að í
huga Einars var fjölskyldan ávallt í
fyrirrúmi.
Lífið er erfitt. Það er óumflýjan-
leg staðreynd. Þau skipti sem ég
heimsótti hann á sjúkrahúsið var
rætt um hvaða verkefni hann gæti
tekið sér fyrir hendur meðan hann
væri að sigrast á veikindunum og
jafnframt nauðsyn þess að komast í
tölvusamband við íyrirtækið svo
hann gæti fylgst með því sem fram
færi. Sjúkrahúsdvöl Einars var
stutt, en hann missti ekki vonina.
Einar vildi halda reisn sinni eins
lengi og hann mögulega gat. Hrafn-
hildur stóð sterk við hlið manns
síns og studdi hann af alúð síðustu
ævidagana.
Ég minnist Einars með þakklæti
fyrir samverustundirnar og mikilli
eftirsjá. Ég sendi Hrafnhildi, börn-
um þeirra og öðrum nánum aðstan-
dendum, mínar innilegustu samúð-
arkveðjur. Megi góður guð veita
ykkur styrk til að takast á við fram-
tíðina.
Minningin lifir um góðan dreng.
J. Pálmi Hinriksson.
Kveðja frá Skýrr hf.
I dag kveðjum við góðan vin og
samstarfsfélaga, Einar Pál Jónas-
son. Það er óneitanlega höggvið
stórt skarð í starfsmannahópinn
þegar við sjáum á eftir samstarfsfé-
laga okkar til margra ára falla frá
langt um aldur fram. Upp koma
minningar um samstarf og sam-
skipti við góðan dreng, sem gædd-
ur var ríkum hæfileikum. Við finn-
um til þess hve mikilvægt það er í
lífinu að eignast góða vini og sam-
starfsfélaga.
Einar lauk tölvunarfræði við Há-
skóla íslands árið 1979. Hann réðst
til Skýrr sem kerfisfræðingur í
október 1982 og starfaði þar óslitið
til dauðadags. Einar gegndi mörg-
um trúnaðarstörfum hjá Skýrr,
bæði hvað varðar hönnun og smíði
stórra upplýsingakerfa og yfirum-
sjón með verkefnum. Hann var ráð-
inn yfirkerfisfræðingur árið 1985
og í fyrstu hafði hann umsjón með
upplýsingakerfum fyrir
Tryggingastofnun. Hann tók þátt í
að byggja upp fyrstu útgáfu af
vöruhúsi gagna hjá Skýrr, var sérf-
ræðingur í textaleitarkerfum og
annaðist kennslu, ráðgjöf o.fl. Um
tíma var hann verkefnastjóri yfir
virðisaukaskattskerfi Ríkisskatt-
stjóra og annaðist þjónustu við þau
kerfi, auk þess að hafa umsjón um
ýmsum innri upplýsingakerfum
Skýrr. Er óhætt að segja að Einar
hafi á 17 ára starfsferii komið nærri
mörgum af stærstu og mikilvæg-
ustu verkefnum fyrirtækisins á
hverjum tíma.
Það er mikill fengur hverju fyrir-
tæki að hafa fengið að njóta starf-
skrafta manns eins og Einars. Þar
fóru saman bæði hæfileikar sem
prýða góða og hæfa starfsmenn og
ekki síður hæfileikar í mannlegum
samskiptum. Við vottum eiginkonu,
börnum og öðrum aðstandendum
okkar innilegustu samúð. Megi guð
styrkja ykkur á þessum erfiðu tím-
um. Blessuð sé minning Einars
Páls Jónassonar.
Hreinn Jakobsson.
Lífið er svo hverfult. Allt í einu er
Einar farinn frá okkur, horfinn
sjónum. Hann var athafnasamur
maður, hafði lokið miklu í þessum
heimi en átti líka heilmikið eftir óg-
ert. Við sitjum eftir hnípin, spyrj-
um spurninga sem enginn getur
svarað, við söknum þessa lífsglaða
manns sem var svo fullur orku og
framkvæmdagleði. Glíman við
krabbameinið var snörp og stóð
skamma hríð. Eins og svo oft áður
hafði það betur. Héðan er genginn
góður maður og er haris sárt sakn-
að af breiðum frændgarði og stór-
um vinahópi. Hinn hæsti höfuð-
smiður hefur nú kallað Einar Pál til
annarra og merkari starfa og ósk-
um við honum velfarnaðar á þeirri
braut.
Við vottum Hrafnhildi og böm-
um hennar okkar dýpstu samúð og
vitum að í hjarta sér munu þau
geyma ljúfar minningar um yndis-
legan eiginmann og föður. Hvíli
hann í friði.
Kalliðerkomið,
kominernústundin,
vina skilnaðarviðkvæm stund.
Vinimirkveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(V. Briem.)
Brynja og Kristján.
Skilafrestur
minningargreina
EIGI minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði
ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags-
og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í mið-
vikudags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin
að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Ber-
ist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útfór hefur far-
ið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss
er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær
berist innan hins tiltekna skilafrests.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN INGVI KRISTINSSON,
frá Höfða, S-Þing.,
Hringbraut 92,
Keflavík,
andaðist laugardaginn 30. október á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju á morgun,
föstudaginn 5. nóvember kl. 11.00.
Elísa D. Benediktsdóttir,
Hilmar Þór Karlsson, Pramuran Chaophon Krang,
Kristinn Rúnar Jónsson, Lára Gylfadóttir,
Þórdís Guðfinna Jónsdóttir, Gunnar Rúnar Pétursson,
Gunnar Bragi Jónsson, Bogey Geirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Útför eiginmanns míns, sonar, föður okkar, afa
og bróður,
BÖÐVARS BJÖRGVINSSONAR
símaverkstjóra,
Jöldugróf 22,
Reykjavík,
sem lést af slysförum á Mývatni þriðjudaginn
26. október sl., fer fram frá Áskirkju föstu-
daginn 5. nóvember kl. 15.00.
Þeir, sem vilja minnast hans, vinsamlega látið Landsbjörgu, landssam-
band björgunarsveita, njóta þess.
Anna Nína Stefnisdóttir,
Selma Böðvarsdóttir,
Styrmir Freyr Böðvarsson,
Selma Kristín Böðvarsdóttir,
Regína Böðvarsdóttir,
Stefnir Þór Kristinsson,
Þorvaldur Ægir Harðarson,
Helga H. Gísladóttir,
Paul H. Murphy,
Sigtryggur A. Árnason,
Margrét V. Friðþjófsdóttir,
Guðný H. Helgadóttir,
barnabörn, systkini og fjölskyldur þeirra.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
PÉTURJÓNSSON,
Kirkjuvegi 11,
Keflavík,
varð bráðkvaddur laugardaginn 23. október.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Sveinn Kr. Pétursson, Guðrún Iðunn Jónsdóttir,
Steinunn Pétursdóttir,
Jenný Olga Pétursdóttir, Veigar Már Bóasson,
Kristín Pétursdóttir, Antwan Spierings
og barnabörn.
+
Bróðir okkar og mágur,
JOHN SIGURÐSSON
fyrrv. bankafulltrúi,
Ljósvallagötu 22,
Reykjavík,
andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur þriðjudaginn
2. nóvember.
Ásthildur Sigurðardóttir, Klaus Brandt,
Guðbjörg Sigurðardóttir, John H. Staples,
Hanna Sigurðardóttir, Bjami Bergsson,
Sigurður Sigurðsson, Álfhildur Sigurðardóttir,
Brynhildur Sigurðardóttir, Þráinn Ögmundsson.
+
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
KRISTJÁN EINAR ÞORVARÐARSON
sóknarprestur
er látinn.
Guðrún Lára Magnúsdóttir,
Tómas Arnarson,
Þorvarður Kristjánsson,
Kristrún Kristjánsdóttir,
Ástrós Kristjánsdóttir.
+
Ástkær sonur okkar,
SIGURGEIR STEFÁNSSON,
Ytri-Neslöndum,
verður jarðsunginn frá Reykjahlíðarkirkju
laugardaginn 6. nóvember kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Stefán Axelsson, Kristín Sigurgeirsdóttir.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
STEINDÓR BERG GUNNARSSON,
Hringbraut 50,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstu
daginn 5. nóvember kl. 13.30.
Jóhanna Margrét Steindórsdóttir, Stefán Snorri Stefánsson,
Valgeir Berg Steindórsson, Valdís Sigrún Larsdóttir,
Sigrún Rósa Steindórsdóttir, Jón Þórir Jónsson,
Grétar Már Steindórsson, Nanna Hákonardóttir
og barnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
BJARNI HELGASON,
Garðvangi,
Garði,
verður jarðsunginn frá Útskálakirkju, Garði,
laugardaginn 6. nóvember kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Elísabet Þórhallsdóttir.