Morgunblaðið - 04.11.1999, Síða 74
FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
BORNUM með krabbamein og
systkinum þeirra var síðastliðinn
sunnudag boðið að sjá Töfratívolí
sem sýnt er á íjölum Tjarnarbíós
um þessar mundir. Það var Fjöl-
listahópurinn Hey sem bauð börn-
unum en hann er einmitt flytjandi
verksins. Börnin skemmtu sér
konunglega
enda leikrit-
ið þess eðlis
að þau eru
virkir þátt-
takendur í
sýningunni.
Að sýningu
lokinni voru
börnin leyst
út með gjöf-
um frá Vífil-
felli og Sól-
Viking en
þeir aðilar
styrkja upp-
setningu
Töfratívolís.
Þorri eignaðist marga nýja aðdáendur þótt enginn
skildi hjal hans um reiðmennsku þennan dag.
Fimmtud.ig 4. nov.
OCULUS
Austurstræti 3
Reykjavík, kl. 12-18
Föstud.iv 5. nov.
SPES
Háaleitisbraut 58-60
Reykjavík, kl. 14-18
SILLA MAKE-UP
STÚDÍÓ
Fjarðargötu 13-15
Fírði, Hafnarfirði
kl. 14-18
FÖRÐUNARFRÆÐÍNGUR
NO NAME veitii* ráðleggingar
3
4
- 5
»
7
9
11
13
15
18
17
19
21
22
23
25
27
29
15 LearnToFly UPP umTsæti Rw Ríiters
5 1- ■-
10 Tungubrögð
'4 Higher
3 The Dolphlns Cry
12 lOToTwenty
9 Out Ot Control
7 Can't Change IVIe
iMe r T
8 Stlck'em Up
e're In This Together
Ump Bizkit
Bisími
Creed
Uve
Stone Tempie Pflots
Rage flgainst The Machtne
The Chemical BrotJiers
Supergrass
Chris Cornell
Incubus
QuarasM
IWne Inch Nails
Falling Away From Me bemt^^sætiö Korn
18 Come
Alive
No Distance Lett To Run
17 Open Your Eyes
311
Ellilífeyrisþeginn - p,*
9 vikur á lista 0B,,S
Matis
Biink 182
Hrakfallabálkurinn- flpGS
niöur um 8 sæti
i Bros. Rmx) PrímalScream
Love Uke A Fountain lan Brown
AlexGopher
24 Rottur Sóti Stjörnukisi
Drottn-
ingin
kveður
sér hljóðs
ERLENDAR
Ómar Friðleifsson
skrifar um nýjustu plötu
Mary J. Blige,
Mary.
MARY er heitið á nýjasta diski
Mary J. Blige sem oft hefur verið
nefnd drottning ryþma og blústón-
listarinnar og það ekki að ástæðu-
lausu. Hún hefur gefið út þrjár sól-
óplötur og eina tónleikaplötu sem
allar hafa náð metsölu. Mary hefur
fengið mörg verðlaun fyrir söng
sinn, til dæmis Grammy-verðlaunin
eftirsóttu.
Mary er aðeins 28 ára gömul,
fædd 11. janúar 1971 í New York en
flutti strax til Savannah-borgar í
Georgíu-ríki og dvaldi
þar til sjö ára aldurs,
en þá fluttist hún til
New York og ólst þar
upp í hverfl sem nefnist
Yonkers. Faðir hennar
var djassspilari en
hann fór frá fjölskyld-
unni þegar Mary var
fjögurra ára. Mamma
hennar ól hana upp við
erfiðar aðstæður í
slæmu hverfl. Mary
hefur lifað tímana
tvenna og örið í andliti
hennar sem sést svo vel
á Mary-albúmi hennar
hefur hún aldrei viljað
tjá sig um.
Á Mary semur hún í
félagi við aðra 90% af
öllum lögunum sem er
miklu stærra hlutfall
heldur en á fyrri disk-
um hennar. Heims-
frægt hljómlistarfólk
aðstoðai- hana á plöt-
unni, t.a.m. Elton John,
Lauren Hill, DMX,
Babyface, Eric Clapt-
on, George Michael, NAS, Kc-i
Haily, Aretha Franklin, Jimmy
Jam, Terry Lewis, Chucky Thom-
son, svo nokkrir séu nefndir.
Á Mary eru 15 lög, og m.a. er
dúettinn með George Michael „As“
serri varð vinsæll fyrr á árinu, en
þetta lag er einnig að finna á diski
sem George Michael sendi frá sér.
Þetta lag kom Mary J. Blige upp á
stjömuhimininn í Evrópu en mikil
eftirspum er eftir tónleikum og
eldri diskar hennar seljast eins og
heitar lummui- í Evrópu.
Önnur lög á disknum eru „Ail
that I can say“, rólegt lag líkt og
mörg önnur á þessari skífu Lauren
Hill skrifaði og sá um upptökuna,
en lagið er eitt af vinsælustu lögum
Bandaríkjanna í dag. í laginu
„Sexy“ fær hún aðstoð rapparans
Jadakiss úr grúpunni The Lox. Eitt
af þeim lögum sem á eftir að verða
mjög vinsælt um heim allan er
„Deep Inside“ en þetta er lagið þar
sem Elton John kemur við sögu.
Hann spilar á píanóið lag sem er
eftir hann sjálfan „Benny And The
Jets“ í töluvert breyttri útgáfu og
með öðmm texta, frábært lag sem á
eftir að slá í gegn á vinsældalistum.
„Give Me You“ á einnig mjög
góða möguleika á miklum vinsæld-
um. Lagið er skrifað af söngkon-
unni Diane Warren og sungið stór-
kostlega af Mary J. Blige og sýnir
Aretha Franklin syngur með Mary J.
Blige í einu lagi
að hún er í fremstu röð söngkvenna
í dag. „Not Lookin" hefur sérstaka
sögu á bak við sig. Þetta er lag sem
fjallar um samband hennar við K-C
Haily, söngvara úr Jodeci og nú
KCi-And Jo Jo, en hann syngur
með henni í þessu lagi. Hann syng-
ur þó sinn hluta af laginu í öði-u stú-
diói í öðrum landshluta. Aðspurð
um þetta lag neitar Mary að það lag
sé um þau, en bætir við að hún hafi
ekki viljað hafa hann nálægt sér
þegar lagið var tekið upp því of
mikiar tilímningar séu þeirra á milli
ennþá. „Your Child“ er enn eitt
magnað lag sem fjallar um vinkonu
hennar sem lendir í sérkennilegum
aðstæðum með manni sínum. Lag
sem verður stöðugt betra við hvex-ja
hlustun, eins og má reyndar segja
um alla plötuna. Drengimir Jimmy
Jam og Terry Lewis sömdu og sáu
um upptökuna á laginu „The Love I
Never Had“ sem er gæðalag eins og
við er að búast frá þeim. „Let No
Man Put Asunder" er hins vegar
ekkert annað en gamalt diskólag.
I „Time“ má fínna tóna eftir Stev-
ie Wonder og A1 Green, „Memor-
ies“ og „Beautiful Ones“ sem
Chucky Thompson sá um upptökur
á, en Chucky er góður vinur Mary
og hefur unnið mikið með henni í
gegnum tíðina. Chucky er talin vera
einn af bestu upptökumönnum RB
tónlistarinnai- í dag ásamt mönnum
á borð við babyface,
en sá síðarnefndi sá
einmitt um upptökuna
á laginu „Don’t Waste
your Time“ þar sem
átrúnaðargoð Mary,
sálardrottningin Ai'-
etha Franklin, syngur
með henni. Lagið „I’m
in Love“ er einstak-
lega ljúft.
Sean Pufíy Comps,
eða Puff Daddy, sagði
um Mary J. Blige að
hún syngi jafn vel og
raun ber vitni vegna
þess að hún þekkir
sársauka lífsins betur
en flestir. Puff Daddy
kom Mary á framfæri
á sínum tíma en sagt
hefur verið að hann
hafi gert hana háða
fíkniefnum og líklega
hafi hann gert henni
meira ógagn en gagn.
í dag segir hún þau
samt vini en þó hefur
hún lítið sem ekkert
samband við hann.
Hvort sársauki og lífsreynsla henn-
ar veldur því að hún syngur af
svona miklum krafti og innlifun
verður varla nokktirn tíma svarað,
en eitt er víst að með þessum diski
sínum er hún rétt enn einu sinni að
minna fólk á að hún er og verður
drottning RB-tónlistarinnar.
Mary er metnaðarfullur diskur,
rólegri en síðasti diskur hennar,
„Share My World“ en betri að því
leyti að lögin eru betur skrifuð og
söngur hennar virðist alltaf verða
betri og betri. „Mary“ er gersemi
sem á erindi við alla unnendur góðr-
ar tónlistar og til marks um vin-
sældir Mary seldist diskurinn í
rúmum 300 þúsund eintökum í
Bandaríkjunum fyrstu vikuna í sölu
og er hún önnur mest selda platan í
dag. Á netfanginu mjblige.com má
finna allt um Mary J. Blige fyrir
áhugasama hlustendur.
Reuters
Heimsmeistaramót í akstri fjarstýrðra bíla
Stórir menn stýra litlum bílum
Á myndinni erti frá vinstri: Sigurður Elías-
son ökumaður, Helgi Már Magnússon, liðs-
stjóri og kvikmyndatökumaður, og Sigurð-
ur Kristinsson, ökumaður og Islands-
meistari í þessari grein árið 1998.
EFTIR rúman mánuð eða 7. des-
ember næstkomandi fara þeir
Sigurður Kristinsson og Sigurð-
ur Elíasson úr Smábfiaklúbbi Is-
lands í keppnisferð til Bretlands
til að taka þátt í heimsmeistara-
keppni í akstri fjarstýrðra bfla
innanhúss. Þetta mót er eitt hið
stærsta sinnar tegundar í heim-
inum og er haldið árlega af
BRCA í ýmsum Evrópulöndum. I
þetta sinn er mótið haldið jafn-
hliða stærstu sýningu í Evrópu á
módelum og verður bæði keppn-
in og sýningin í Alexandra Pal-
ace í London. Með í för verður
myndatökumaðurinn og liðs-
stjórinn Helgi Már Magnússon.
Þarna mæta til keppni bestu
ökumenn heims í þessari grein
og er þetta sport í raun langt frá
því að vera leikur eins og oft er
álitið. Það sést best á því að
margir atvinnuökumenn koma
meðai annars til keppninnar frá
Japan, Ástralíu og Banda-
ríkjunum.
Þarna verða sjón-
varpstökumenn og
fréttallð innan geir-
ans og öll úrslit
verða líklegast kom-
in á Netið innan
nokkurra mínútna.
Hægt verður að
fylgjast með undir-
búningi ferðarinnar
á: http://rcbil-
ar.simnet.is.
Islensku ökumenn-
imir sem keppa era
styrktir til ferðarinn-
ar af Aðalskoðun hf.
sem hefur verið
styrktaraðili Islands-
mótsins í akstri fjar-
stýrðra bfla árin
1998 og 1999 og er
þessi keppnisferð nokkurs konar
hápunktur á þessum tveim
keppnistímabilum.