Morgunblaðið - 27.11.1999, Page 17

Morgunblaðið - 27.11.1999, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999 D 17 Þau endurtaka upphafsorð sín um nauðsyn afslöppunar yfir há- tíðarnar og bæta við að ekki sé allt fengið með óhóflegum innkaup- um. „Jólagjafakapphlaupið er fyrir löngu komið út í öfgar,“ segja þau samhljóða. „Sumir virðast jafnvel hættir að geta notið jólaundirbún- ingsins því þeir eyða öllum tíma sínum og peningum í innkaup. Um leið er alið á kröfuhörku barna um dýrar gjafir. Mörg börn hefðu ör- ugglega gott af því að fá bara kerti og spil - svona einu sinni - og læra að meta jólin eftir öðru en gjöfunum. í stað þessa kapphlaups finnst okkur miklu nær að fjölskyldur hugsi dálítið um sjálfar sig og reyni að hafa það rólegt og huggulegt yf- ir jólin. Það ætlum við í það minnsta að gera með því að halda jólin á okkar eigin forsendum,“ segja Erla og Ragnar með tilhlökk- un í svipnum og María Lív í spari- kjólnum brosir út að eyrum til sam- þykkis. Bleikja með ítölsku ívafi Forréttur fyrir 4 ____________400 g bleikjuflök______ 50 g risotto-hrísgrjón (soðin) _______1 msk. mascarpone-ostur_____ 1 msk. parmesan-ostur rifinn ______________1 dl rjómi___________ _______1/2 búnt ferskt estragon____ salt og pipar Hrísgrjónin soðin, rjóminn settur í pott og suðan látin koma upp. Mascarpone-osti og parmesan- ostinum bætt útí, þá hrísgrjónunum og hrært í þar til allt hefur blandast vel saman. Salti og pipar bætt í og að lokum estragoninu. Bleikjan steikt í olíu á roðhliðinni á sjóðandi heitri pönnunni þar til roðið er vel stökkt. Grænmeti: ________Hreinsað frisée-salat__________ ________Vé dl balsamico-edik___________ ________2 msk. extra virgin-olía_______ '/2 rauð paprika (söxuð fínt) ________1 tómatur (saxaður fínt)_______ 1 hvítlauksrif (saxað fínt) Ediki og olíu hellt út á salatið. Papr- ika, tómatur og hvítlaukur létt steikt á pönnu og saltað og piprað. For- réttinum raðað á disk þannig að neðst komi salatið, þá risotto, þar næst bleikjan og tómat- og paprikublandan efst. maukaðar í matvinnsluvél ásamt smjörinu, rjómanum, salti og pipar. Eplasalat: ____________1 grænt epli___________ 100 g lerkisveppir (má nota aðra tegund sveppa) Eplið skrælt og skorið í teninga, steikt uppúr smjöri á pönnu ásamt lerkisveppunum. Kryddað með salti og pipar. Sósa: _____________1 msk. smjör_____________ _____________1 msk. hveiti____________ _________________5 dl vatn____________ 2 kjötteningar (helst lambateningar) ________1 msk. hrútaberjahlaup________ salt og pipar Smjörið brætt í potti, hveiti blandað útí og hrært vel saman. Vatni hellt út í ásamt teningunum og soðið þar til sósan er orðin mátulega þykk og bragðgóð. Hrútaberja- hlaupið sett útí, smakkað til með salti og pipar. Brownies Eftlrréttur fyrir 4 ____________200 g súkkulaði________ _____________200 g smjör__________ _______________4 egg_______________ ______________4 dl sykur___________ ______________4 dl hveiti__________ ________200 g valhnetukjarnar______ ____________2 tsk. lyftiduft_______ vanilludropar 1. Bræðið súkkulaðið og smjörið saman. 2. Þeytið sykur og egg vel saman. 3. Malið valhnetukjarnana gróft. 4. Blandið súkkulaðiblöndunni út f eggjahræruna, þá hveitinu og lyfti- duftinu og síðast hnetunum og vanilludropunum. 5. Setjið í meðalstórt hringform og bakið við 170°C í 20-25 mínútur. Skera má súkkulaðikökuna í ferninga eða hringi. Brownies-kök- ur eru bornar fram heitar með ávaxtasýrópi og góðum ís, t.d. cappuccino-ís. Skreytt með fersk- um ávöxtum. Dvergappelsínusíróp: u.þ.b. 10 dvergappelsínur (kumquat) skornar í sneiðar _ ____________3 msk. sykur___________ 2 dl vatn Allt soðið saman þar til það er orð- ið að þykku sírópi. Hrútaberjalamb með meiru Aðalréttur fyrir 4 800 g lambaframhryggur (lamba _____________prime)_______________ ___________1 msk. sojasósa________ _______1 msk. hrútaberjahlaup_____ 600 g bökunarkartöfiur (ca 3 stórar) 1 msk. parmesan ostur______ _____________2 stór egg___________ _______50 g gouda-ostur (rifinn)__ ___________1/2 hvítlauksrif_______ salt og pipar Hitið sojasósu og hrútaberjahlaup saman og veltið lambakjötinu upp- úr því og brúnið á heitri pönnu á öllum hliðum. Bakið í 200°C heit- um ofni í 15 mín. og látið hvíla í 10 mín. Bakið kartöflurnar í 50 mín. við 180°C. Takið að því búnu innan úr kartöflunum og blandið eggjunum, ostinum, kryddinu og hvítlauknum vel saman við með gaffli. Setjið í form og bakið við 180°C í 20 mín- útur. Baunamauk: 1 meðalstór dós grænar baunir ____________1 tsk. smjör____________ ____________1 msk. rjómi____________ salt og pipar Baunirnar hitaðar í potti og Fallegt og taert kristalsglas með 24 karata gullskreytingu. Glasið er gjöf við öll tækifæri -brúðkaup, afmæli, skírn, útskriftargjöf, jólagjöf, ofl. -Einstakur minjagripur og líklega sá fallegasti. Tilboðsverð: 2 stk. I kassa kr:3.500.- \/le(dc ^rKRISTALL I/ lr f K\nKOf\€<K P fl R S E M #H J R R T fl fl 5 L ff R Þú færð gjafakort Kringlunnar hjá þjónustuboröinu vió skartgripaverslunina Jens á 1. hæð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.