Morgunblaðið - 07.01.2000, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þorsteinn Jónsson og Genealogia Islandorum hyggjast stefna
ÍE og Friðriki Skúlasyni vegna meintra brota á höfundarrétti
Segja bótakröfur nema
himdruðum milljóna
Forráðamenn ÍE segjast ekki
hafa séð neina stefnu
ÞORSTEINN Jónsson ættfræðing-
ur og fyrirtækið Genealogia Island-
orum ehf. hyggjast stefna íslenskri
erfðagreiningu hf. og Friðriki
Skúlasyni tölvufræðingi vegna
meintra brota á höfundarrétti og
nema bótakröfur hundruðum millna
króna.
Þetta kemur fram í fréttatilkynn-
ingu sem send var fjölmiðlum í gær.
Þar segir einnig að stefna verði birt
á næstu dögum.
Kári Stefánsson, forstjóri ÍE,
sagðist í samtali við Morgunblaðið
ekki geta tjáð sig um málið þar sem
hann hefði ekki séð þessa stefnu.
Friðrik Skúlason tók í sama streng.
„Eg hef ekki séð neina stefnu. Eg
hef ekki einu sinni séð þessa frétta-
tilkynningu og á meðan þeir kjósa
að reka sín mál í fjölmiðlum, þá hef
ég ekkert um þetta að segja,“ sagði
Friðrik.
Sakaðir um ólögmæt
afnot af gögnum
Fram hefur komið að íslensk
erfðagreining og Friðrik Skúlason
hafa ákveðið að opna aðgang á Net-
inu að ættfræðigagnagrunni, sem
byggður hefur verið upp á undan-
förnum árum.
I fréttatilkynningu Genealogia Is-
landorum og Þorsteins Jónssonar í
gær segir að mál þetta snúist um
ólögmæt afnot íslenskrar erfða-
greiningar og Friðriks Skúlasonar
af ættfræðigögnum sem Þorsteinn
Jónsson og Genealogia Islandorum
ehf. eigi skýlausan höfundarrétt að.
„Um er að ræða niðjatöl, stéttatöl,
ábúendatöl og ættarbækur. Er þar
um að ræða stærstan hluta útgef-
inna rita um þessi efni hér á landi.
Þessi rit, á annað hundrað talsins,
eru unnin af Þorsteini Jónssyni og
öðrum fræðimönnum upp úr frum-
gögnum. Islensk erfðagreining ehf.
hefur með aðstoð Friðriks Skúlason-
ar og starfsmanna hans slegið lög-
verndaðar upplýsingar sem þar er
að fínna inn í tölvu í ábataskyni, m.a.
til rannsókna á arfgengi sjúkdóma.
Engar tilraunir hafa verið gerðar
til að bæta Genealogia Islandorum
ehf. og Þorsteini Jónssyni það tjón
sem þeir verða óhjákvæmilega fyiir.
Því hafa aðilar falið lögmönnunum
Ragnari Aðalsteinssyni hrl. og Ólafi
Garðarssyni hrl. að undh-búa stefnu
á hendur Islenskri erfðagreiningu
ehf. og Friðriki Skúlasyni,“ segir í
fréttatilkynningunni.
Þar kemur einnig fram að Genea-
logia Islandorum var stofnað sl.
haust og eru hluthafar m.a. Burðar-
ás hf., Sjóvá-almennar hf., Urður,
Verðandi, Skuld ehf. og Hans Peter-
sen hf.
Tvö vinnuslys
í Hafnarfírði
Maður
féll tæpa
4 metra
MAÐUR féll tæpa 4 metra úr
stiga við Kaplahraun í Hafnar-
fírði í gær, þar sem hann var að
setja upp þurrkherbergi fyrir
nýsprautaða bíla í fyrirtækinu
Bílamálun og réttingar. Maður-
inn var fluttur með sjúkrabif-
reið á slysadeild og að sögn lög-
reglunnar í Hafnarfirði lenti
hann á bakinu, en slapp með
minniháttar beinbrot og fékk
að fara heim að lokinni aðgerð.
Annað vinnuslys varð í fyrir-
tækinu Sandtaki við Gjáhellu í
Hafnarflrði er maður fékk
skurð í andlitið er kúbein kast-
aðist í það. Það var vinnufélagi
mannsins sem missti kúbeinið
úr 4 metra hæð og kastaðist
það af jörðinni og í andlit
mannsins. Maðurinn var fluttur
með sjúkrabifreið á slysadeild
og fékk að fara heim að aðgerð
lokinni.
• •
Oflugar
sprenging-
ar í fjölbýl-
ishúsum í
Breiðholti
TVÆR öflugar sprengjur voru
sprengdar í stigagöngum fjölbýl-
ishúsa í Breiðholti í gærkvöld.
Fyrri sprengjan sprakk um kl.
21 í fjögurra hæða fjölbýlishúsi í
Möðrufelli 11, með þeim afleið-
ingum að póstkassar í anddyrinu
splundruðust og þutu í gegnum
rúður sem voru sex metra frá.
„Þetta var rosalegt og það var
eins og maður væri í miðju
stríði," sagði Einar S. Jónsson,
íbúi við Möðrufell 11. „Það lék
allt á reiðiskjálfi uppi hjá mér og
því hefur sprengingin verið mjög
öflug,“ sagði Einar sem býr á
efstu hæðinni. „Það er guðsmildi
að enginn var á ferð þarna þegar
þetta gerðist, það hefði getað
orðið stórslys.“
Ungmenni sáust hlaupa
af vettvangi
Um hálftíma síðar sprakk önn-
ur sprengja í póstkössum við
Kötlufell 9. Þar skemmdust fjórir
póstkassar og rúða brotnaði.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar sáust sex ungmenni
hlaupa frá stigaganginum við
Kötlufell rétt fyrir seinni spreng-
inguna, en verksummerki voru
svipuð á báðum stöðum.
Lögreglan var enn að kanna
verksummerki seint í gærkvöldi.
Morgunblaðið/Sverrir
Póstkassar við Möðrufell 12 í Breiðholti voru illa leiknir
eftir öfluga sprengingu.
Ovenju annasamt
í flugstjórnar-
miðstöðinni
ÓVENJU mikil flugumferð hefur
verið undanfarna daga í íslenska
flugstjórnarsvæðinu og fjöldi flug-
véla sem farið hefur um svæðið ver-
ið nær tvöfalt meiri en á meðaldegi
eða um 300 þotur á dag, að því er
Bergþór Bergþórsson, aðalvarð-
stjóri í flugstjórnarmiðstöðinni á
Reykjavíkurflugvelli, tjáði Morgun-
blaðinu. Háloftavindar skýra aukn-
inguna að miklu leyti en einnig hef-
ur fjöldi flugvéla sem flýgur yfír
Atlantshafið farið vaxandi.
„Það hefur verið nokkuð lífleg
umferð hjá okkur. Það fóru 306 þot-
ur á vesturleið um okkar svæði á
miðvikudag og von var á svipaðri
umferð á fímmtudag. Það hafa milli
200 og 300 vélar farið um svæðið á
dag undanfarnar vikur. í þessari
törn fóru flestar vélar um svæðið
tveimur dögum fyrir jól, 22. desem-
ber, eða 370, en meðaldagur hjá
okkur er um 150-170 flugvélar,“
sagði Bergþór.
Bergþór sagði að 22. desember
sl. hefði verið einn af 10 annasöm-
ustu dögum hvað umferð varðaði í
flugstjórnarmiðstöðinni frá upp-
hafi. Mikill austlægur vindstreng-
ur, með vindhraða um 190 km/klst,
er í háloftunum um 1.000 kílómetra
suður af landinu, eða rétt suður af
íslenska flugstjórnarsvæðinu. Gerir
vindstrengurinn það að verkum að
flugvélar á vesturleið leita norðar
og úr þeim mótvindi sem þær ella
þyrftu að glíma við.
Heimildarmynd um líf
fíkniefnaneytenda
FORVARNARDEILD lögreglunn-
ar, Félagsþjónustan og Marita-for-
varnarstarf, sem er deild innan
Hvítasunnusafnaðarins, hafa nú í
undirbúningi gerð íslenskrai-
fræðslu- og heimildarmyndar um líf
fíkniefnaneytenda á Islandi.
Fyrirhugað er að kvikmyndin
verði tilbúin næsta haust og leysi af
hólmi fjögurra ára norska heimilda-
mynd, sem nú er sýnd í grunnskólum
í tengslum við sameiginlegt forvarn-
arverkefni þessara aðila.
Megin markmið forvarnarverk-
efnisins er að skýra fyrir unglingum
hvernig heimur fíkniefnaneytenda er
í raunveruleikanum, að sögn Karls
Steinars Valssonar aðstoðaryfirlög-
regluþjóns. Hefur hróður verkefnis-
ins borist víða og fengið góðar við-
tökur. Hafa m.a. borist fyrirspurnir
frá Wales um kynningu á því. Er tal-
ið að íslensk heimildarmynd myndi
efla gildi gildi verkefnisins.
■ Blákaldur/Bl
SSfeUR
ÁFÖSTUDÖGUM
Eiturlíf
í áratug
B/2
Frjáls eins
og fuglinn
B/4
Man. United slæm land-
kynning fyrir England / C2
•••••••••••••••••••••••••••••
íslandsmeistararnir töpuðu
sjötta leik sínum / C2
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is