Morgunblaðið - 07.01.2000, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 07.01.2000, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2000 29 UMRÆÐAN Er íbúð alltaf það sama og íbúð? í SÖLUAUGLÝSINGUM eru til góðar íbúðir, vandaðar íbúðir, íbúðir með góðu útsýni, íbúðir með nýjum gluggum o.s.frv. Verðið eru tengt svæðum innan bæjarfélagsins og aldri íbúða, og liggur á bili sem sýnir í hverju til- viki að íbúð er bara íbúð og að verðmunur liggur í útborgunarskilmálum, hvort skipti koma til greina og ýmsu þess háttar. Hvað myndi gerast ef upplýsingar lægju íyrir um að lagnir í íbúðinni væru ekki gerðar til þess að end- ast nema hluta þess tíma sem t.d. veggir og burðarvirki endast. Ekki er út í bláinn að telja hús lifa í 50 til 100 ár, og einhver slík tala um hvort hús er gamalt eða ekki er í huga fólks þegar íbúðir eru skoðað- ar. Og þá gengur fólk út frá því að íbúðin með öllu falli undir þessa ald- ursgreiningu. En er það alltaf svo? Við fengum dæmi hjá Lagnafélaginu ekki alls fyrir löngu, nýr eigandi tók við húsi sem ekki var talið gamalt, enda ekki nema 10-15 ára. En skömmu eftir að nýi eigandinn flutti kom fram leki í hitakerfi, sem olli talsverðum skemmdum inni. Eftir talsvert þras og leit að lausn kom eigandinn til Lagnafélagsins með beiðni um úttekt á hitakerfi vegna leka. I ljós kom að kerfið hafði ekki verið teiknað, meistari var ekki ráð- inn á verkið og úttekt hafði ekki farið fram. Athugun á staðnum var gerð strax og kom þá í ljós að allar pípur voru plastpípur, sem engar upplýs- ingar lágu fyrir um. En eins og þeir vita sem skoðað hafa þá hafa plastpípur þann eiginleika að hleypa í gegnum sig súrefni, sé ekkert að gert. Aukið magn súrefnis í vatni hraðar tæringu málm- hluta. f þetta hús var notað efni, sem ekki gat enst nema lítinn hluta af eðlilegri end- ingu hússins, samt var húsið hús eins og önn- ur. Er hægt að verja grandalausa kaupend- ur? Lagnafélag íslands stóð fyrir að stofnað hefur verið sérstakt gæða- matsráð, sem hefur það hlutverk að opna möguleika fyrir verkkaupa og neytendur, sem telja lagnamálum í eða við sína eign í einhverju áfátt, hvort sem er í hönnun, efnisvali, handverki eða virkni búnaðar, að fá slík álitamál könnuð faglega og á fljótvirkan hátt án mikils tilkostnað- ar. Eitt af því sem gæðamatsráðið at- hugar er að ganga eftir því að fyrir hverja byggingu verði til handbók fyrir lagnakerfi, þar sem fram kem- ur hvaða efni er notað, hvaða meist- ari er á einstökum byggingarhlutum o.s.frv. þannig að fyrir liggi við eig- endaskipti hverju sinni, hvort í við- komandi byggingu er innbyggt eitt- hvað sem menn vita að rýrir notagildi og á eftir að valda kostnaði. Einnig hefur verið rætt um að lausleg skoðun á ákveðnum þáttum, þegar selja á húseign, væri hægt að framkvæma án mikils kostnaðar. Skýrsla um slíka skoðun myndi fylgja með kaupsamningi þegar eig- endaskipti verða. í skýrslunni kæmi Húsnæði Við hjá Lagnafélaginu, segir Egiil Skúli Ingi- bergsson, viljum gera fólki kleift að leggja mat á lagnir íbúðar. fram hver er meistari, hönnuður, samþykktir og athugasemdir um efni, bæði það sem sést og svo sam- kvæmt upplýsingum meistara. Sennilega munu þeir, sem byggja til að selja, alltaf freistast til að nota ódýrasta efni, sem fáanlegt er, sér- staklega ef þeir ætla ekki að reka eignina sjálfir en líka til þess að þeirra kostnaður við sjálfa nýbygg- inguna verði minni. Staðreynd er að vel byggð hús eru dýrari en illa byggð hús, en rekstrar- kostnaður verður minni. Þeir sem kaupa illa byggð hús vita yfirleitt ekki, að hvaða leyti hús er illa byggt, enda útilokað að allir geti verið sérfræðingar á þeim sviðum, en menn verða að geta treyst þeim sem þeir skipta við, til þess að gefa réttar upplýsingar. Enginn kaupir Trabant á verði Benz, þó er hvor um sig bíll, og eng- um bílasölumanni dettur í hug að reyna að pranga Trabant inn á fólk sem er að hugsa um Benz. Því í dag vita allir einhverra hluta vegna að bíll er ekki alltaf sama og bíll. Senni- lega er það vegna þess að ending bíls er skammur miðað við t.d. endingu húss. Við hjá Lagnafélaginu viljum gera fólki kleift að leggja mat á lagnir íbúðar, og er það ekki eðlilegt þegar menn eru að verja verulegum hluta æviteknanna í fjárfestingu í íbúð, að þeir þekki kosti og galla viðkomandi íbúðar, annaðhvort vegna eigin þekkingar eða að þeir hafi aðgang að nauðsynlegri þekkingu til þess að gera sér grein fyrir út í hvað þeir eru að fara, hvort sem það er að kaupa ódýrt og taka á sig viðhaldsvinnu næstu árin eða kaupa dýrara og þurfa ekki að sinna viðhaldi svo neinu nemi. Gæðamatsráð er skipað fulltrúum frá félagsmálaráðuneyti, Félagi fast- eignasala, Neytendasamtökunum og Lagnafélagi Islands. Formaður ráðsins er fulltrúi Lagnafélagsins, Egill Skúli Ingibergsson. Höfundur er rafnmgns- verkfræðingur. UTSALA - UTSALA 60-70% afsláttur Otrúlega lágt verd Dæmi um verð Aður Nú Bómullarpeysa m/rennilás 4.400 1.800 Skyrta 2.900 1.200 Rúllukragabolur 2.600 900 SUnkysett pils og bolur 5.900 1.700 Rody-bolur 2.500 900 Vattcraður jakki 5.500 1.900 llömubuxur 3.800 1.500 llahit-jakki 5.800 2.300 Sflt pils 3.200 1.300 Einnig nrval af heitsuskám og klossum á kr. 1.900 og margt, margt fleira Opið frá kl. 10.00 til 18.00 Síðuinúla 13, sími 5682870, 108 Reykjavík. Egill Skúli Ingibergsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.