Morgunblaðið - 07.01.2000, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2000 31
UMRÆÐAN
Kynferðislegt ofbeldi
gagnvart börnum
VENJAN er sú,
þegar um sakamál er
að ræða, að lögregla
tekur skýrslu af brota-
þola á rannsóknarstigi.
Síðan þarf brotaþoli að
gefa skýrslu að nýju
fyrir dómi, eftir að
ákæra hefur verið gef-
in út. Þetta er í sam-
ræmi við þá megin-
reglu að öll
sönnunargögn skulu
lögð fyrir þann dóm-
ara, sem leggur dóm á
mál, þ. á m. skulu
brotaþoli og önnur
vitni spurð frammi fyr-
ir honum, beint og milliliðalaust.
Þegar barn verður fyrir jafn svl-
virðilegum glæp og kynferðislegu
ofbeldi skaðast sálaj'heill þess svo
að það bíður þess líklega aldrei full-
komlega bætur. Um leið og farið er
að rannsaka slíkt mál bitnar það
óhjákvæmilega á barninu sem oftast
nær er aðalvitni ákæruvaldsins í
málinu. Til þess að draga úr þeim
sársauka, sem þetta veldur barninu,
og til þess að gera því þessa skelfi-
legu lífsreynslu sem léttbærasta er
að mínu áliti alli'a mikilvægast að
það þurfi aðeins einu sinni - undir
rekstri sakamálsins - að rifja hana
upp.
Með þetta sjónarmið í huga gerði
ég það að tillögu minni að vikið yrði
frá þeii'ri venju að lögregla taki
skýrslu af barni sem talið er hafa
orðið fyrir kynferðislegri misnotk-
un. Þess í stað gefi barnið skýrslu
fyrir dómai'a á rannsóknarstigi.
Vegna þess að skýrsla, sem gefin er
fyrir dómara sem hlut-
lausum aðila, hefirr að
öði*u jöfnu ríkara sönn-
unargildi en framburð-
ur fyrir lögreglu á
barnið ekki að þurfa að
mæta að nýju fyrir
dómi, eftir útgáfu
ákæru, nema í algjör-
um undantekningartil-
vikum, svo sem nú er
fyrir mælt í 2. mgr. 48.
gr. laga um meðferð
opinberra mála.
Samhliða því að
barn, sem orðið hefur
fyrir kynferðislegu of-
beldi, þurfi aðeins að
gefa skýrslu í sakamálinu einu sinni
hef ég ætíð lagt á það þunga áherslu
að aðstæður séu þannig að barninu
líði eins vel og kostur er meðan
skýrslan er tekin. Nauðsynlegt er,
ekki síst þegar ung börn eiga í hlut,
að skýrslutakan fari fram á eins
óformlegan hátt og mögulegt er.
Jafnframt tel ég að sem fæstir eigi
að vera viðstaddir hana, þ.e. dómari,
sérfræðingur eða sérhæfður lög-
reglumaður, sem spyr eða aðstoðar
dómara við að spyrja barnið, og loks
réttargæslumaður þess. Æskilegt
er að aðrir, t.d. sækjandi og verj-
andi, séu ekki viðstaddir, heldur eigi
þess kost að fylgjast með því, sem
fram fer, í öðru herbergi.
Þegar mál er orðið að sakamáli
ber - hvort sem okkur, er vinnum að
velferð barna, líkar betur eða vei'r -
að líta til fleiri sjónarmiða en þess er
að framan gi-einir - sjónarmiða sem
þó í raun og veru fara heim og sam-
an við hagsmuni barnanna þegar á
Barnavernd
Það sem skiptir mestu
máli er að allir, sem að
þessum málum koma,
vinni saman með það að
leiðarljósi að upplýsa
þessa glæpi, segir Þór-
hildur Líndal í síðari
grein sinni, jafnframt
því sem velferð barna,
sem orðið hafa fórnar-
lömb, verði sem best
tryggð.
allt er litið. Þannig ber að sjálfsögðu
að leggja allt kapp á að upplýsa brot
af þessu tagi svo að þeir, sem gerst
hafa sekir um þá svívirðu að ráðast
gegn varnarlausum börnum, verði
fundnir sekir og dæmdir. Með því
móti fá ekki aðeins þau börn, sem
hafa orðið fórnarlömb kynferðis-
brota, þá uppreisn, sem þau eiga
skilið, heldur er verið að veita öðr-
um börnum vernd því að ætla má að
refsingar fyrir brot af þessu tagi
fæli aðra frá því að fremja þau.
Með þetta í huga verður ekki að-
eins að búa svo um hnúta að barni
líði eins vel og kostur er, meðan
skýrsla er tekin af því, heldur verð-
ur jafnframt að leggja áherslu á að
Þórhildur Líndal
Sagan endalausa
ÞAÐ er erfítt að
ímynda sér Island á
nýju árþúsundi. Þróun
síðustu ára er svo mikil
tímaskekkja að maður
sér ekki annan kost
vænan en að flytja af
landi brott til lands þar
sem frjálst markaðs-
kerfi ríkir og maður
getur spjarað sig án
fyrirgreiðslu frá ríkis-
valdinu. Astandið á Isl-
andi er orðið svo svart
að ég er viss um að
enginn skilur almenni-
lega hversu alvarlegt
það er í raun og veru.
Ég nefni fyrst aðal-
ástæðu búsetu á landinu öllu, fisk-
inn. Það segir sig sjálft að ef
Evrópusambandið hringdi í forsæt-
isráðherra í dag og sagði honum að
ísland mætti ekki veiða fisk lengur
þar sem kvóti okkar væri seldur
Norðmönnum þá væri forsendan
fyrir búsetu á landinu brostin og
ekkert annað að gera en að flytja
burt. Fiskurinn er kjaminn. Hann er
ástæða þess að landið er byggilegt.
Ég held að íslendingar allir
myndu bókstaflega brjálast ef ofan-
greint símtal yrði að veruleika. En
eins merkilegt og það er, þá heyrist í
fáum nú þegar heil byggðarlög
standa í þessum sporum og leggjast
af vegna heimildaleysis til að fiska.
Afleiðingarnar eru víðtækar.
Okkur, sem í raunveruleikanum
búum og trúum ekki öllu sem okkur
er sagt, er ofboðið. Sjá landsmenn
virkilega ekki í hvað stefnir? Þróun-
in er einföld. Kvótinn er ríkis-
styrkjakerfi. Menn selja sig út á
1.000 kr. per kg. og flytja til Reykja-
víkur og stuðla þar með að þenslu
sem orsakar verðbólgu. Já, lesandi
góður, Baugur er saklaus af verð-
bólgunni. Hún orsakast af eldsneyt-
ishækkun og fiski. Eftir standa
byggðarlögin skuldug upp fyrir haus
með verðlausum fasteignum og
fækkandi íbúum.
Úthlutun svokallaðs
byggðakvóta sýnir best
hversu ógeðfelld stefn-
an er orðin. Fyrir-
greiðslupólitík er fint
orð yfir spillingu. ís-
lendingar em orðnir
svo samdauna slíkri
pólitík að þeir finna
ekkert að henni. Sama
þó að hún stuðli að út-
rýmingu byggðarlaga,
verðbólgu og á endan-
um enn frekari skatta-
hækkunum. Þetta
kjósa íslendingar yfir
sig trekk í trekk.
En aftur að byggða-
kvótanum. Sagan endalausa á vel við
um ruglið sem einkennir úthlutun-
ína. Kvótanum er úthlutað á nokkrar
byggðir. Síðan er hann sameinaður á
nokkrum stöðum og skellt á eina
byggð, oftast á einn aðila. 1/3 fór
meira að segja beint í fang Fjölnis,
fyi-irtækis sem Byggðastofnun á
hlut í. A móti kom svo fyrirtæki sem
á nóg af kvóta fyrir. Sama kvótaríka
fyrirtækið er nú að verða komið með
hendui-nar yfir 2/3 af heildarúthlut-
uninni. Svo má nefna að Fjölnir
sendir fiskinn í Hafnarfjörð til full-
vinnslu, stórt vinnutap á Þingeyri.
En þeir sanna nú ekki einir saman
óréttlætið. Nú hefur spurst út að
ónefndui' aðili sem fékk úthlutað
u.þ.b. 200 tonnum sé búinn að leigja
frá sér hátt í fjórðung fyrir 5.000.000
kr. Þetta fyllir nú algjörlega mælinn.
Ekki var honum einungis úthlutað
meiru en hann þurfti, heldur fékk
hann ríkisstyrk fyrir að leigja við-
bótina frá sér.
Það er kominn tími til aðgerða.
Það þýðir ekki að sitja og vona
áfram. Franskir bændur væru búnir
að framkvæma aðra franska bylt-
ingu ef slíkt óréttlæti hefði riðið yfir
þá, eins og ríður nú yfir þá kvóta-
lausu og kvótalitlu. Vinnandi mönn-
um í fiskveiðiþjóð er bannað að fiska.
Vandamál
/ /
Astandið á Islandi er
orðið svo svart, segir
*
Kristján Ragnar As-
geirsson, að ég er viss
um að enginn skilur al-
mennilega hversu al-
varlegt það er í raun og
veru.
Öfgarnir við að framfylgja banninu
eru þvílíkir að menn eru dæmdir á
sama hátt og afbrotamenn. Sér eng-
inn vitleysuna hérna?
Mér þætti ekkert athugavert við
að menn færu að standa saman og
láta verkin tala. Það er því miður svo
að Alþingi er blint og heyrnarlaust í
þessum málum.
Lifið heil.
Höfundur er nemi við Sam-
vinnuhúskólnnn á Bifröst.
Laugavegi 4, sími 551 4473
Kristján Ragnar
Asgeirsson
málið verði upplýst. Því getur verið
æskilegt að skilja að skýrslutöku í
sakamálinu og hina sérhæfðu með-
ferð, sem bai-nið á rétt til sam-
kvæmt barnaverndarlögum.
Þótt mælt sé fyrir um það í a-lið
74. gr. í lögum um meðferð opin-
berra mála að dómari skuli taka
skýrslu af brotaþola kynferðisbrots,
sem ekki hefur náð 18 ára aldri, er
það misskilningur þegar því er hald-
ið fram að skýrslutaka skuli ávallt
fara fram í dómsal eða dómhúsi. í
reglugerð, sem sett hefur verið á
grundvelli 7. mgr. 59. gr. laganna, er
kveðið á um að skýrslutaka af brota-
þola, yngri en 14 ára, skuli að jafn-
aði fara fram annars staðar en í
dómsal og þá í sérútbúnu húsnæði ef
þess er nokkur kostur.
Slíkt húsnæði er þegar fyrir hendi
hjá Héraðsdómi Reykjavíkur og
stefnt er að því að það verði tekið í
notkun hjá tveimur stærstu héraðs-
dómstólunum utan Reykjavíkur á
þessu ári, þ.e. Héraðsdómi Reykja-
ness í Hafnarfirði og Norðurlands
eystra á Akureyri. Eg tel brýnt að
húsnæði af þessu tagi verði innrétt-
að hjá öllum héraðsdómstólunum
svo að öll börn, hvar sem þau búa á
landinu, getið notið sambærilegrar
aðstöðu að þessu leyti. Rétt er að
vekja athygli á því að hið sérútbúna
húsnæði mun ekki eingöngu nýtast
við skýrslutöku af börnum sem
brotaþolum í kynferðisbrotamálum,
heldur er eðlilegt að skýrsla sé tekin
þar af börnum, sem hafa orðið fóm-
arlömb annars konar brota, svo sem
ofbeldisbrota, eða hafa verið sjónar-
vottar að afbrotum.
Ekkert er því heldur til fyrir-
stöðu, eins og lög um meðferð opin-
berra mála eru úr garði gerð, að
skýrsla af brotaþola sé tekin í sérút-
búnu húsnæði annars staðar en i
húsnæði dómstóla, s.s. í barnahúsi.
Það kæmi t.d. að mínu áliti til greina
ef í hlut eiga ung böm og unnt er að
koma við annars konar meðferð, svo
sem læknisskoðun, samhliða því að
Vinningar í jólahappdrætti
Sjálfsbjargar
Dregið var 31. desember 1999.
Fólksbifreið Toyota Yaris sol free árg. 2000
kr. 1.249.000
28466 29523
Ferðavinningur með Úrval Útsýn að verðmæti
kr. 130.000 2980 17459 34475 38733 45289 50914
5872 17676 35160 39734 45571 53597
7210 21028 35883 44171 45880 57594
7388 22562 36667 44615 47549 58825
16579 24229 38114 45085 48198 59560
Vöruúttekt að eigin vali frá Kringlunni
kr. 30.000
622 9243 21708 30890 43271 52664
625 10116 22047 30944 43505 52733
758 10202 22124 31446 44226 52737
1282 11995 22588 35002 44362 54056
1614 12300 22944 35417 45941 54140
2400 13888 23069 35452 46082 54613
2802 14670 23200 35493 46999 54716
3628 14789 23356 36617 48049 55189
3990 14928 24107 36813 48565 55248
4144 15184 24811 38220 48994 56560
4285 15718 24943 38291 49204 56680
4706 17026 27440 39307 50618 59373
5591 21527 27986 40935 51321
6789 21622 28539 41631 51659
8857 21668 29835 42756 52536
Þökkum fyrir veittan stuðning
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra,
Hátúni 12, Reykjavík, sími 5529133
skýrslutaka fer fram, þannig að
hvort tveggja geti farið fram á sama
stap og sama tíma.
Ég hef átt þess kost að kynna mér
hina sérútbúnu aðstöðu við Héi'aðs-
dóm Reykjavíkur og jafnframt að-
stöðu þá sem fyrir hendi er í barna-
húsi. Það er álit mitt að á báðum
þessum stöðum sé vel séð fyrir því
að börnum, sem gefa skýrslu, geti
liðið sem best. Rétt er að taka fram,
til þess að fyrirbyggja misskilning,
að hvort sem skýrslutaka fer fram í
húsnæði dómstólsins eða bai'nahúsi
er reynt að haga henni á sem óform-
legastan hátt, t.d. eru dómarar á
hvorugum staðnum íklæddir hefð-
bundnum skikkjum.
Ég treysti dómurum fyllilega til
þess að ákveða, að teknu tilliti til all-
ra aðstæðna og að höfðu samráði við
sérfræðinga, hvar skýrsla skuli tek-
in af barni sem talið er að hafi verið
beitt kynferðislegri misnotkun.
Dómarar hafa að mínu áliti sýnt
þessu nýja verkefni sinu verðugan
áhuga, t.d. er nú afráðið að sumir
þeirra afli sér aukinnar menntunar
og þjálfunar á þessu sviði, til viðbót-
ar þeirri reynslu, er þeir hafa óhjá-
kvæmilega sem dómarar við að taka
skýrslu af brotaþolum og vitnum. I
þessu sambandi vil ég leggja
áherslu á að dómari kveðji til sér-
hæfðan kunnáttumann til aðstoðar
við skýrslutöku svo hún skili þeim
árangri sem stefnt er að án þess þó
að gengið sé of nærri barni.
Það, sem skiptir að mínum dómi
mestu máli, er að allir, sem að þess-
um málum koma, vinni saman með
það að leiðarljósi að upplýsa þessa
hörmulegu glæpi jafnframt því sem
velferð þeirra barna, sem orðið hafa
fyrir þeim, verði sem best tryggð. í
þessu efni má enginn einn aðili láta
stjórnast af sérhagsmunum sínum
og þar með skerast úr leik því að hér
er allt of mikið í húfi.
Höfundur er umboðsmaður barna.