Morgunblaðið - 07.01.2000, Síða 33

Morgunblaðið - 07.01.2000, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2000 33 «-4 Alþjóðleg úttekt á nuddi BYLTING hefur átt sér stað í nuddmálum og sjúkranuddmálum hér á landi á undan- fömum áratug. Árið 1987 voru nuddarar löggiltir undir starfs- heitinu sjúkranuddar- ar. Árið 1989 var Nudd- skóli Rafns (síðar Nuddskóli Guðmund- ar) stofnaður. Árið 1992 voru gerð drög að starfsleyfi fyrir sjúkra- nuddara og ákveðið að námið skyldi vera á há- skólastigi. Árið 1993 gerði menntamálaráðu- neytið samkomulag við Félag íslenskra nuddara um náms- braut fyrir nuddara við Fjölbrauta- skólann Armúla. Árið 1996 fór af stað starfshópur í heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytinu um reglugerð- arsmíð um nuddara. I honum sitja fulltrúar frá því ráðuneyti, mennta- málaráðuneytinu, Fjölbrautaskólan- um við Armúla, Félagi íslenskra nuddara/Nuddskóla Islands og Nuddskóla Guðmundar/Félagi ís- lenskra nuddfræðinga. Þar hefur verið rætt um hvort löggilda eigi nuddara/nuddfræðinga rétt eins og sjúkranuddara áður. Ýmislegt mælir með og á móti löggildingu. Það sem mælir með er að ýmsum þykir akkur í að starfandi nuddari sé löggiltur. Það auki virð- ingu fyrir starfi hans. Það auki traust neytenda á stéttinni. Það auki aðgengi nuddara að hinu opinbera og ýmsum möguleikum sem í því fælust. Einnig gæfist hinu opinbera með þessu tækifæri til að hafa aukna stjóm á þessari starfsstétt, hverjir ættu að teljast til hennar og hverjir íyrir utan. Það sem mælir á móti er að fleirl heilbrigðisstéttir hafa verið löggiltar hér á landi en í nokkru öðru þjóð- landi. Sérstök nefnd skipuð heil- brigðisstarfsfólki var stofnuð í kring- um árið 1990 sem benti á þessa ríku tilhneigingu til oflöggildingar. Því hefur heilbrigðis- og tryggingamál- aráðuneytið ekki löggilt neina heil- brigðisstétt allt frá árinu 1991. í öðru lagi er til stétt löggiltra sjúkra- nuddara eins og áður var getið. Margir sjúkranuddarar eru fyrrum nuddarar en fengu löggildingu vegna fyrri starfsreynslu. Reynt hefur ver- ið að auka virðingu fyrir þeirri stétt með því að ákveða að hafa nám henn- ar á háskólastigi, eins og kom fram hér að framan. Er þar verið að miða við að námið sé talið vera á háskól- astigi í Þýskalandi og Kanada. í raun leikur vafi á því á hvaða menntunar- stigi sjúkranuddnám er, ef nákvæm- ur samanburður ætti sér stað á milli þjóðlanda. Sjúkranuddnám er ein- göngu kennt erlendis og er á því sem kallað er, junior college“ stigi og tek- ur um 2-3 ár. Það þýðir seinni 1-2 ár- in á framhaldsskólastigi og fyrstu 1-2 árin á háskólastigi hérlendis. Nudd- nám hérlendis, í tveimur viðamestu skólunum, er um 90% af námi til stú- dentsprófs. Hér er því um skörun að ræða á nuddnámi hérlendis og sjúkr- anuddnámi erlendis. Kennsla í heil- brigðisgreinum er um margt svipuð en þó mun umfangsmeiri í sjúkran- uddnámi. Kennsla í nuddgreinum er síðan sambærileg, að því er best er vitað um þessar mundir. Nýlega tók starfsmaður innan hins opinbera eftir að í rauninni væri þörf á heildarendurskoðun á nudd- námi af óháðum fagaðila og það yrði síðan grundvöllur að endurskoðun á námskrá yfir nudd. Tók ég undir þetta sem skólastjóri nuddskóla. Við nánari umhugsun taldi ég þetta bestu lausnina fyrir stéttina í heild og gæti jafnvel varpað skýrara ljósi á hvort og hvernig nuddnám og sjúkranuddnám skarist. Akvað ég því að skrifa bréf til menntamála- ráðuneytisins dagsett þann 31. ágúst síðastliðinn, sem formaður Félags ís- lenskra nuddfræðinga, þar sem ég sagði meðal annars: „Eg tel að fyrst verði að taka það skref að gera heild- arúttekt á nuddnámi og sjúkranudd- námi á alþjóðlegum vettvangi líkt og ég benti á í nýlegu bréfi til ráðuneyt- Guðmundur Rafn Geirdal anna og fagfélaga á þessum sviðum sem skólastjóri Nuddskóla Guðmundar ... Eg leyfi mér að leggja fram þá tilgátu að líkleg niðurs- taða af faglegri úttekt byggðri á fullnægjandi gögnum yrði sú að nuddnám hérlendis og sjúkranuddnám er- lendis skaraðist veru- lega, bæði hvað varðar menntunarstig, tíma- lengd, námsgreinar, starfsþjálfunarstaði og framtíðar starfsvettv- ang. Ef það myndi Nudd Brýnt er, segir Guð- mundur Rafn Geirdal, að fram fari heildarend- urskoðun á menntunar- skilyrðum í nuddi. reynast rétt finndist mér að eðlilegar ályktanir ættu að vera í þá áttina að hér væri um mjög sviplíkar stéttir að ræða, jafnvel þá sömu. í framhaldi af því gæti verið eðlilegt að álykta sem svo að skoða þyrfti nuddnám hér á landi og núverandi drög að staðli um starfsleyfi sem sjúkranuddari í veru- legu samhengi við hvort annað.“ Sambærilegt bréf var sent til heil- brigðis- og tryggingamálaráðuneyt- isins, landlæknisembættisins, Fjöl- brautaskólans við Armúla, Félags íslenskra nuddara, Félags íslenskra sjúkranuddara og Sjúkranuddarafé- lags íslands til að erindið kæmist til allra helstu aðilanna á þessu sviði. Menntamálaráðuneytið svaraði með bréfi dagsettu þann 30. september 1999 þar sem það þakkaði ábending- arnar og sagðist ætla að senda það ákveðnum aðilum til fróðleiks og um- fjöllunar. Eg hef síðan bent á hvem- ig megi útfæra þetta nánar. Nú hafa málin þróast á þann veg að lagt verður fram frumvarp til laga um réttindi og skyldur heilbrigðis- starfsmanna á Alþingi á aldamóta- vorinu. í því eru lagagreinar um að hægt sé að viðurkenna heilbrigðis- stéttir án þess að löggilding fylgi í kjölfarið. Mest yrði þá miðað við menntunarskilyrði í viðkomandi starfsgrein. Þetta opnar leið fyrir nuddara/nuddfræðinga til að geta orðið viðurkennd heilbrigðisstétt án þess að hætta sé á oflöggildingu og nánast tví-löggildingu á mjög sam- bærilegum stéttum. Því er brýnt að fram fari heildarendurskoðun á menntunarskilyrðum í nuddi, og reyndar einnig sjúkranuddi, með al- þjóðlegum samanburði. Með því ykj- ust líkur á sem bestri þróun fyrir þessar stéttir á nýju árþúsundi. Höfundur er skólastjóri og formaður Félags íslenskra nuddfræðinga. hilips ryksug Philips myndbandstæki stereo H%B ■ Aður 44.900 kr. Áður 59.900 0 kr. Áður 119 _ 59.990 kr. ^,7«.. kr. Áður 59.900 ) kr. Áður 57.401 190 kr. Áður 59.900 kr. Áður 14.990 Ikr. Áður 2.990 Philips rakvél Philco þvottavél 1200 snumnga mlips hárblása Philips sjónvarp 100 riða 23 ABC kaffivél Supertech vekjaraklukka Philco með vottavél urrkara Philco þurrkari, barkalaus Philips útvarpsvekjari Philco kæliskápur □ hirlpool uppþvottavél með geislaspilara Philips hljómt.samstæða micro Sanyo örbylgjuofn r Philips gufustraujárn Philips geislaspila ■:■■■■ ' - >■ V Galaxy stafrænn slmi 7r með númerabirti .1« Áður 3.990 uL uiú eldavélar, gufustraujárn, örbylgjuofna, þurrkara, heimabíómagnara, geislaspilara, hraðsuðukönnur, útvarpstæki, kaffivélar Halló, halló! fleira 'SmM .... 'v Allt að afsláttur af símum 50% afsláttur af skrautsímum 25% afsláttur af þráðlausum Samsung símum Tilboðsverð á Bosch GSM símum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.