Morgunblaðið - 05.02.2000, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Nítján hross drápust í eldsvoða
í Mosfellsbæ
Flest hross-
anna voru
ótryggð
FRETTIR
Morgunblaðið/Júh'us
Það tók slökkvilið Reykjavíkur þijá tíma að ráða niðurlögum eldsins í hesthúsunum í Mosfellsbæ.
Morgunblaðið/Valdimar
Váli frá Nýjabæ, sem komst í úrslit í A-flokki gæðinga á landsmötinu á
Melgerðismelum, drapst í brunanum í gær, en hann var metinn á 1,5
milljónir króna fyrir tveimur árum.
Hæstiréttur dæmir um yfírvinnugreiðslur verslunarmanna
Yfírborgun er utan
sviðs kjarasamninga
HÆSTIRÉTTUR segir, að með yfir-
borgun sé farið út fyrir svið kjara-
samninga, þar sem ákveðin eru lág-
markskjör launþega. í samræmi við
þetta álit réttarins kemst hann að
þeirri niðurstöðu, að tímakaup vegna
yfirvinnu verslunarmanns þurfi ekki
að ná 1,0358% af mánaðarlaunum fyr-
ir dagvinnu, ef þau mánaðarlaun eru
hærri en lágmarkslaunin.
Hæstiréttur dæmdi á fimmtudag í
tveimur samkynja prófmálum um
þetta efni. í málunum kom fram, að
yfirvinna verslunarmannanna
tveggja hefði ekki náð hlutfallinu
1,0358% af mánaðarlaunum fyrir
dagvinnu. Mánaðarlaunin voru nokk-
uð yfir lágmarkslaunum, en verslun-
armennimir töldu sig eiga rétt á sama
yfirvinnuhlutfalli og kveðið var á um í
kjarasamningum. Höfðuðu þeir því
mál á hendur vinnuveitanda sínum og
vildu fá greitt það sem upp á vantaði.
Rýrði ekki rétt mannanna
í dómi Hæstaréttar kemur fram,
að svigrúm einstakra vinnuveitenda
og launþega til að semja um laun og
önnur starfskjör takmarkist við að
þau séu launþegum jafn hagstæð eða
betri en kveðið er á um í kjarasamn-
ingi viðkomandi stéttarfélags. Hins
vegar hefðu vinnusamningar ver-
slunarmannanna tveggja ekki rýrt
rétt þeirra í heild samkvæmt kjara-
samningi, þar sem laun þeirra fyrir
hveija klukkustund í yfirvinnu hefðu
verið lítillega umfram 1,0358% af
lágmarkslaunum samkvæmt kjara-
samningum.
Hæstiréttur sagði, að með yfir-
borgun væri komið út fyrir svið kjara-
samnings, þar sem ákveðin væru
lágmarkskjör launþega í viðkomandi
starfsgrein. Hæstiréttur féllst ekki á
það með verslunarmönnunum, að í
kjarasamningnum fælist, að samn-
ingur um yfirborgun fyrir dagvinnu
leiddi sjálfkrafa til þess að semja yrði
jafnframt um sambærilega yfirborg-
un fyrir yfirvinnu. Var vinnuveita-
ndinn því sýknaður af kröfum versl-
unarmannanna um vangoldin laun
fyrir yfirvinnu.
Sorpa eykur endur-
vinnsluhlutfall um 100%
NÍTJÁN hross drápust í eldsvoða í
hesthúsinu í Blíðubakka í Mosfells-
bæ í gærmorgun og á meðal þeirra
var gæðingurinn Váli frá Nýjabæ,
en hann var metinn á 1,5 milljónir
króna fyrir tveimur árum. Það tók
Slökkvilið Reykjavíkur þrjár
klukkustundir að ráða niðurlögum
eldsins, en tilkynnt var um brunann
klukkan sex. Elías Þórhallsson, eig-
andi flestra hrossanna, sagðist telja
að flest þeirra væru ótryggð, þótt
búfjártryggingar kynnu að bæta
skaða einhverra eigenda. Húsið
væri hins vegar tryggt.
„Ég er bara ekki búinn að átta
mig á þessu ennþá,“ sagði Elías.
„Ég frétti af þessu strax í morgun
(gærmorgun) en treysti mér ekki til
að fara upp í hesthús fyrr en síðdeg-
is. Þetta er alveg rosalegt áfall.“
Stóðhestar undan Hrynjanda
og Orra frá Þúfu
Auk Vála, sem var í úrslitum í A-
flokki gæðinga á landsmótinu á
Melgerðismelum 1998, drápust
mörg tamningahross, þar á meðal
ungur efnilegur reiðhestur, sem
nýlega voru boðnar 1,2 milljónir
króna í. Þá var þarna stóðhestur
undan Hrynjanda, sem metinn var á
um 3 milljónir og ungur og óreynd-
Bæjarstjórastaðan
áHöfn
Rætt við
Albert
Eymunds-
son
FORYSTUMENN framboða
sem eiga fulltrúa í bæjarstjórn
Hornafjarðar hafa óskað eftir
viðræðum við Albert Eymunds-
son, skólastjóra Hafnarskóla,
um að hann taki að sér starf
bæjarstjóra Homafjarðar. Er
stefnt að því að staðfesta ráðn-
ingu Alberts á næsta fundi bæj-
arstjómarinnar, sem er 10.
febrúar.
Garðar Jónsson bæjarstjóri
sagði nýlega starfi sínu lausu.
Albert hefur setið í bæjarstjóm
á Homafirði og var formaður
Sambands sveitarfélaga á
Austurlandi um tíma. Þá er
hann varaþingmaður Sjálf-
stæðisflokksins í Austurlands-
kjördæmi.
Tekinn með
hálft kíló af
hassi
TOLLGÆSLAN á Keflavíkurflug-
velli stöðvaði á miðvikudag 24 ára ís-
lenskan karlmann, sém var að koma
frá Kaupmannahöfn, fyrir að smygla
hálíú kflói af hassi til landsins.
Maðurinn faldi efnið innan á sér
og viðurkenndi við yfirheyrslur að
vera eigandi efnisins.
Maðurinn var handtekinn og flutt-
ur til yfirheyrslu hjá fíkniefnadeild
lögreglunnar í Reykjavík. Hann hef-
ur aldrei áður komið við sögu fíkni-
efnamála.
ur stóðhestur undan Orra frá Þúfu.
Elías sagði að nánast ógjömingur
væri að meta fjárhagslegt tjón
branans en þó mætti gera ráð fyrir
því að verðmæti hrossanna hefði
verið um 15 milljónir króna.
Hesthúsið er tvískipt og kom eld-
urinn upp í austurhlutanum, þar
sem 20 hestar vora geymdir. Þegar
komið var að vora þrír hestar enn á
lífi en aðeins tókst að bjarga einum
þeirra og vora hinir tveir aflífaðir. í
vesturhluta hússins voru 12 hestar
og tókst að bjarga þeim öllum. Mildi
þykir að tekist hafi að bjarga þess-
um 13 hrossum, þar sem mikill
reykur var í húsunum þannig að það
sá ekki handaskil.
Hesthús, sem stendur nálægt því
sem brann, var tæmt til öryggis, en
þar sem vindátt var fremur hag-
stæð var ekki talin hætta á að eldur
eða reykur næði til fleiri húsa á
svæðinu.
Brunahaninn í hesthúsa-
hverfínu var bilaður
Eins og áður sagði var tilkynnt
um branann klukkan sex, en þegar
slökkviliðsmenn áttuðu sig á um-
fangi eldsins var kallað út aukalið.
Mikill reykur stóð út úr húsinu í
byrjun og því gekk illa að ráða við
SORPA stefnir að því að auka endur-
vinnsluhlutfall úrgangs um rúmlega
100% á næstu 5 til 6 áram eða úr 34%
í 78%. Þetta kom fram í samtali
Morgunblaðsins við Ögmund Ein-
arsson, framkvæmdastjóra Sorpu,
en í gær var fundur hjá heilbrigðis-
og umhverfisnefndum aðildarsveit-
arfélaga Sorpu þar sem farið var yfir
stöðu mála.
Ögmundur sagði að ætlunin væri
að ná þessu takmarki með því að
nýta úrgang til jarðgerðar. Heimilis-
sorpi yrði safnað á sama hátt og nú
og fólk yrði hvatt til að að flokka í
óbreytt flokkunarkerfi með viðbót-
aráherslu á flokkun ólífrænna efna,
sem tekin yrðu til sérstakrar með-
höndlunar, s.s. plast, málmar, gler,
hjólbarðar og fleira.
Að sögn Ögmunds verður heimilis-
sorpið tætt og baggað og hlaðið í sér-
staka orkuhleifa, þar sem það verður
lokað inni með mold og torfi. í orku-
hleifunum verður niðurbroti lífræna
úrgangsins stjórnað með hita og
raka, þannig að eftir 5 til 6 ár verður
búið að umbreyta sorpinu í gas og
jarðefni. Ögmundur sagði að gasinu
yrði tappað á geyma og nýtt sem
orkugjafi í rafmangsframleiðslu fyr-
ir Sorpu. Það yrði einnig nýtt á gas-
bfla sem gert væri ráð fyrir að yrðu
komnir á götuna eftir 3 til 4 vikur.
Þegar búið verður að ná þessu
markmiði verður endurvinnsluhlut-
fallið komið í 78%. Ögmundur sagði
að brýn þörf væri á því að sveitar-
félögin samræmdu markmið sín í
umhverfismálum. Hann sagði of litla
áherslu hafa verið lagða á endur-
vinnslu í atvinnulífinu, en að um
helmingur úrgangs kæmi þaðan.
Hann sagði að endurvinnsla fyrir-
tækja væri nánast alfarið í þeirra
höndum og að það færi eftir fjár-
hagslegri hagkvæmni hvað fyrirtæk-
in gerðu mikið í þessum efnum.
eldinn. Þá var branahaninn í hest-
húsahverfinu bilaður og því þurfti
að sækja vatn upp að Hlégarði.
Að sögn varðstjóra slökkviliðsins
er ekki enn ljóst hver upptök elds-
ins voru, en sá sem tilkynnti um
hann sagði að logað hefði útfrá raf-
magnstöflu, sem lá utan á húsinu.
Elías sagði að hann og mágur
hans hefðu byggt hesthúsin á sínum
tíma og að þau væra nú búin að taka
sinn toll. Því auk þess að missa öll
þessi hross nú hefði mágur hans
misst fótinn þegar þeir voru að
byggja húsin, en keyrt var á hann.
Nokkrir vinir Elíasar hafa þegar
opnað bankareikning í Búnaðar-
bankanum í Mosfellsbæ, sem nefn-
ist „söfnun vegna hesthúsanna".
Fyrir þá sem vilja leggja Elíasi lið
er bankanúmerið 315, höfuðbók 13
og reikningsnúmerið 10000.
Vaka birtir fram-
boðslista sinn
Stúlkur
skipa Qögur
efstu sætin
VAKA, félag lýðræðissinnaðra stúd-
enta við Háskóla Islands, kynnti í
gær framboðslista sinn vegna stúd-
entaráðskosninganna í mánuðinum.
Stúlkur skipa fjögur efstu sæti list-
ans.
Að sögn Þórlinds Kjartanssonar,
formanns Vöku, er það einskær til-
vfljun að fjórar stúlkur skipi efstu
sætin. Leitað hafi verið að hæfileika-
ríku fólki til að fara fyrir listanum og
þetta hafi verið niðurstaðan. Telur
Þórlindur þessa skipan einsdæmi í ís-
lenskri póUtík. Listinn verður þannig:
Stúdentaráð:
Inga Lind Karlsdóttir, íslenska,
Hulda Bima Baldursdóttir, við-
skiptafræði, Þorbjörg S. Gunnlaugs-
dóttir, lögfræði, Borghildur Sverris-
dóttir, sálfræði/fjölmiðlaíræði,
Þórarinn Óli Ólafsson, viðskipta-
fræði, Benedikt Ingi Tómasson, um-
hverfis- og byggingarverkfræði, Þor-
geir Gestsson, læknisfræði, María
Björk Ólafsdóttir, líffræði, Gústav
Sigurðsson, hagfræði, Jón Andrés
Valberg, landafræði, Jesse Francis
Ledger, stjómmálafræði/viðskipta-
fræði, Rán Jósepsdóttir, hjúkranar-
fræði, Gunnar Stefánsson, tölvunar-
fræði, Karl Óttar Geirsson,
bókmenntafræði, Jóna Guðný Eyj-
ólfsdóttir, félagsfræði, Bóas Valdórs-
son, sálfræði, Magnús Þór Gylfason,
hagfræði, og Andri Óttarsson, lög-
fræði.
Háskólaráð:
Baldvin Þór Bergsson, stjórnmála-
fræði, Margrét Einarsdóttir, lög-
fræði, Armann Guðmundsson, við-
skiptafræði, Ólafur Rúnar Ólafsson,
lögfræði, Kári Guðjón Hallgrímsson,
iðnaðar- og vélaverkfræði, og Brynj-
ólfur Ægir Sævarsson, viðskipta-
fræði.