Morgunblaðið - 05.02.2000, Page 12

Morgunblaðið - 05.02.2000, Page 12
12 LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Samherjaskipið Akureyrin EA fékk svokallaðan skipstjórakvQta við upphaf kvótakerfísins 1984 Munurinn á aflareynslu og skipstjórakvóta 2.200 tonn Þau voru mörg handtökin um borð í Guðsteini áður en hann hélt til veiða sem Akureyrin EA undir merkjum Samherja. Þorsteinn Vilhelmsson létt sitt ekki eftir liggja við ])á vinnu. Samherji ræður nú yfír afla- heimildum við ísland að verð- mæti 15,7 milljarðar króna. Hjörtur Gíslason rekur hér sögu Samherja. Hefði fyrsta skip fyrirtækisins, Akureyrin, aðeins notið eigin aflareynslu í upphafi hefði hún fengið úthlutað 1,380 þorskígildis- tonnum að núvirði 966 milljónir. Þess í stað fékk hún skipstjórakvóta, 3.577 þorskígildistonn að verðmæti 2,5 milljarðar á núvirði. SAMHERJI hf. er það fyrirtæki, sem mestar aflaheimildir hefur við ís- land. Samkvæmt úthlutun Fiski- stofu í upphafi þessa fiskveiðiárs eru aflaheimildirnar í þorskígildum talið um 22.525 tonn innan lögsögu Islands. Miðað við síðustu hreyfingar á sölu aflahlutdeildar gæti verðmæti þessara heimilda verið nálægt 15,7 milljörðum króna, miðað við að meðalverð á þorskígildiskílói sé 700 krónur. Upphafleg úthlutun til Akureyrarinnar, fyrsta skips Samherja, miðað við aflareynslu Guðsteins eins og skipið hét áður, var 1.380 þorskígildi sem er á verðlagi í dag virði 966 milljóna króna. Akureyrin fékk hins vegar að njóta aflareynslu Þorsteins Vilhelmssonar og áhafnar hans á Kaldbaki EA, þar sem hann hafði flutt sig yfir á Akureyrina ásamt meiri- hluta áhafnar sinnar, árið áður en kvótakerfið kom á. Um nokkur slík tilfelh var að ræða. Fyrir vikið fékk Akureyrin úthlutað 3.577 þorskígild- istonnum, sem miðað við fyrri forsendur er á nú- virði um 2,5 milijarðar króna. Miðað við úthlutaðan kvóta 1984 og á á yfir- standandi fiskveiðiári, má áætla að þorskígild- istonnin 3.577 hefðu verið eitthvað færri nú vegna minni úthlutunar. Engu að síður má þó áætla að af núverandi heimildum sínum hafi Samherji keypt eða náð til sín með sameiningu við önnur íyrirtæki um 19.000 þorskígildistonn- um. Það fer svo eftir því á hvaða tíma aflaheim- ildimar eru keyptar hve mikið hefur bætzt við þær vegna aukins heildarkvóta. Ljóst er að á síðustu þremur árum hafa heimildir í þorski aukizt verulega, en á hinn bóginn er rétt að hafa það í huga að heildarkvóti í þorski hefur mestur verið innan kvótakerfisins um 350.000 tonn, lægstur um 155.000 tonn og er nú um 250.000 tonn. Mikið er rætt um Samherja um þessar mund- ir eftir að slitnað hefur uppúr samstarfi Þor- steins Vilhelmssonar við þá Kristján bróður sinn og frænda sinn Þorstein Má Baldvinsson í stærsta sjávarútvegsíyrirtæki landsins eftir verulegan og vaxandi ágreining um stjómunar- hætti. Sala hans á hlut sínum í Samheija fyrir rúmar 3.000 milljónir króna vekur marga til um- hugsunar, en hann hefur auk þessa fest veruleg- ar fjárhæðir í gegnum eignarhaldsfyrirtæki sitt, Ránarborg, i Hraðfrystihúsinu Gunnvöm, SH og Fiskeldi Eyjafjarðar, svo dæmi séu tekin. Spilað vel úr sínu Ljóst er að þeir Samheija-frænd- ur hafa spilað vel úr sínu frá upphafi kvótakerfisins. Ekkert sjávarút- vegsfyrirtæki á íslandi er meira virði í dag. Ekkert sjávarútvegsfyr- irtæki hefur aflað sér meiri aflaheimilda utan lögsögu okkar. Ekkert slíkt fyrirtæki er með meiri umsvif erlendis. Og þó' var byrjað anzi smátt. Þorsteinn Vilhelmsson lýsir upphafinu svona í viðtalsbókinni Aflakóngar og athafna- menn, sem kom út árið 1987: „Mig dreymdi nú ekki um það á þessum ár- um, að ég yrði útgerðarmaður og eignaðist tog- ara. Við Þorsteinn Már, frændi minn, höfðum reyndar gantast með þá hugmynd í æsku. Um þessar mundir var hann orðinn skipaverkfræð- ingur í Njarðvík og bjó í Reykjavík og keyrði nær daglega fram hjá togaranum Guðsteini, sem lá í Hafnarfirði og var að grotna niður. Eng- inn vildi kaupa skipið. Um haustið 1982 fór það að hvarfla að mér að skella mér út í ævintýrið og það varð að raunveruleika vorið 1983. Við Kristján bróðir og Þorsteinn Már fórum að kanna á hvaða verði við gætum fengið Guð- stein og hvaða möguleika við hefðum til að gera hann út á ísfisk og sigla með aflann. Úttekt sýndi að það var vonlaust og það hefur kannski verið þess vegna, sem enginn vildi kaupa hann. Við vildum þó ekki gefast upp og svo vildi til að frystitogarinn Örvar var þá byijaður veiðar og gekkvel. Þorsteinn Már var einn af þeim, sem hvatti til þess, að hann yrði gerður að frystitogara, þegar verið var að smíða hann í Slippstöðinni og í Ijós kom að hann færi beint undir hamarinn að öðr- um kosti eins og raunin varð um önnur skip á þeim tíma. Höfðum trú á útgerð frystiskipa Fáir höfðu trú á því, að útgerð frystitogara væri möguleg, nema Þorsteinn og þeir Skag- strendingar. Við fórum því að athuga möguleik- ana á því að gera Guðstein út sem frystitogara. Kristján bróðir er lærður vélstjóri. Við fengum hann tO þess að fara eftir áramótin 1983 til að skoða vélina í skipinu og athuga hvemig hún væri á sig komin og hvemig skipið liti út undir skítnum. Við ákváðum að fóma einhveijum pen- ingum í þetta þó að við ættum ekki beint gras af seðlunum. Við fengum lánaðar 200.000 krónur hjá Tryggingamiðstöðinni til þess að við gætum skoðað skipið og launað Kristján, en þeir hafa alltaf reynzt okkur vel. Yrði ekkert úr þessu, ætluðum við að taka þetta á okkur, okkur fannst það þess virði. Kristján fór suður og vann í skip- inu og við reyndum að láta fara leynt með það, hvemig okkur leist á þetta. Við fómm líka yfir það, sem þyrfti að gera fyrir skipið og hvað það kostaði. Eftir þetta allt saman sáum við, að þetta gæti staðið undir sér, og keyrðum á kaupin. Þegar við vomm að útvega okkur fé, fómm við í Landsbankann í Reykjavík. Við gátum auð- vitað ekki keypt skipið nema fá lán og á fundi með Jónasi Haralz, bankastjóra, og Einari Ingvarssyni, kom okkur eiginlega á óvart hve jákvæðir þeir vom, en þeir hafa báðir reynst okkur vel. Án hjálpar Landsbankans hefði þetta auðvitað aldrei tekist. En bankinn átti miklar skuldakröfur á Guðstein og hefur því líklega verið í mun að koma honum í rekstur að nýju. Einhveija trú hafði hann á okkur. Þegar við keyptum Guðstein átti fjöldi aðila mikið fé inni hjá útgerð- inni og við kaupin sömdum við um frið meðan við værum að komast af stað. Við keyptum því hlutafélagið Samheija með húð og hári, skuldum og öllu saman og greidd- um meira að segja vangoldin mannalaun fyrsta sumarið. Akureyrin kostaði tilbúin á veiðar um 149 milljónir króna. Þarna var sem sagt ákveðið í lok apríl að af þessu yrði. Við höfðum fengið loforð frá Akur- eyrarbæ um ábyrgð fyrir 30 milljóna króna láni, láni en ekki gjöf, eins og margir misskildu, sum- ir villandi. Það var fordæmi fyrir því að bærinn gengi í ábyrgðir fyrir fyrirtæki, sem sköpuðu at- vinnu, og á þessum tíma var atvinnuástandið hreint ekki gott. Bærinn hefur því einhvem ávinning í því að aðstoða okkur með þessum hætti og því tóku stjómendur bæjarins okkur mjög vel. Þeir hljóta alla vega að vera sælir með þetta í dag. Þetta var ein leiðin til að tryggja okkur nægilegt fjármagn til kaupanna. Húsin veðsett Skipið var sem sagt falt, enda lítill áhugi hjá öðram á því að kaupa það og þá varð ekki snúið aftur. Konumar studdu okkur, enda þurftum við að tefla á tvær hættur og meðal annars að veðsetja húsin okkar. Ég var þá kominn með fjögur böm og það fimmta á leiðinni, þannig að áhættan var talsverð. Síðan kom að því að segja foreldranum frá þessu. Við Kristján töluðum saman við pabba og mömmu og þá var amma hjá þeim líka. Við sögðum þeim sem sagt að við ætluðum að kaupa togara. Pabba leist ekkert á það og varð eiginlega hinn versti og hélt að við færum á hausinn, misstum allt sem við ættum. Þessi afstaða hans breyttist fljótlega og síðan hafa hann og Baldvin bróðir hans, faðir Þor- steins Más, reynst okkur mjög hjálplegir. Pabbi þekkti erfiðleikana í venjulegri útgerð en ekki til frystiskipa og var því sennilega svartsýnni en ástæða var tdl. Þetta var auðvitað ekki illa meint, hann var bara að hugsa um hag okkar og fram- tíð. Amma og mamma tóku þessu hins vegar vel. Ég stökk sem sagt í land af Kaldbaki með leyfi útgerðarinnar og síðan tók vinna við dag og nótt í Hafnarfirði í Guðsteini og kaupin vora undir- rituð í lok apríl.“ Aflareynsla Þorsteins og áhafnar hans réð miklu Farið var í breytingamar á Akureyrinni árið 1983, áður en nokkram varð ljóst að fiskveiðum við Island yrði stjómað með kvótakerfi frá og með næsta ári. Kvóta var úthlutað á skip í rekstri miðað við aflareynslu þeirra árin 1981 til 1983. Guðsteinn hafði lítið sem ekkert verið gerður út á þessum áram og því hefði hlutur hans orðið afar lítill, eða 1.380 þorskígildistonn auk takmarkaðra möguleika til aukningar í sóknarmarki. Þá kom Samheija til góða, eins og fleiram, regla þess efnis að hefði skipstjóri og meirihluti áhafnar farið af skipi með mikla afla- reynslu yfir á skip með litla aflareynslu áður en kvótakerfið var sett á, mætti hið lakara skip fá sömu reynslu og áhöfnin og skipstjórinn hefðu aflað hinu fyrra skipi. Skip sem mjög litla afla- reynslu höfðu fengu úthlutað ákveðnu hámarki og gátu síðan spreytt sig í sóknar- markinu til að auka hlut sinn. Ljóst er að sá kostur, 1.390 tonnin, hefði sennilega riðið útgerð Akureyrar- innar að fullu, en með því að fá sömu viðmiðun og Þorsteinn og áhöfn hans hafði tryggt Kaldbaki EA, um 3.577 tonn, var útgerðin tryggð, en Kaldbakur var með þeim skipum, sem mesta aflareynslu höfðu. Bæjarútgerð og fleiri skip keypt Útgerð Akureyrinnar gekk mjög vel og skipið skilaði hæsta aflaverðmæti íslenzkra skipa ár eftir ár. En boltinn var byijaður að rúlla. Nokkru eftir að Akureyrin var farin að draga björg í bú, keyptu Samherjafrændumir 40% í Bæjarútgerð Hafnarijarðar, sem átti í miklum rekstrarerfiðleikum og var stofnað um hana hlutafélagið Hvaleyri. Upp úr því keypti Sam- heiji svo bátinn Helga S. frá Keflavík og skipti á honum og togaranum Maí við Hvaleyri. Maí var síðan breytt í frystiskip og hóf veiðar fyrir Sam- heija í lok desember 1986 undir nafninu Mai’- grét EA. Við uppskipti á Hvaleyri skömmu síðar kom togarinn Víðir í hlut Samheija. Á svipuðum tíma hóf Samheiji samstarf við Kristján Jónsson og Co. um kaup og útgerð á raðsmíðaskipi, sem var í smíðum hjá Slippstöð- inni og var það meðai annars gert fyrir atbeina Akureyrarbæjar. Útgerð þess skips, Oddeyrar- innar, hófst í desember 1986 og síðar tók Sam- heiji yfir rekstur niðursuðuverksmiðju K. Jóns- sonar eftir gjaldþrot hennar ásamt KEA og Akureyrarbæ. Samheiji tók allan reksturinn yf- ir síðar og er þar nú unnin rækja undir merkjum Strýtu hf. Mörg skip keypt og seld Um þessar mundir gerast hlutimir hratt, mörg skip era keypt og seld, fyrst og fremst til að afla sér aflahlutdeildar og rúmmetra til að leggja á móti nýsmíði á Baldvin Þorsteinssyni, þegar að henni kom. Fljótlega er keyptur ísfisktogari frá Djúpa- vogi og honum gefið nafnið Hjalteyrin. Hún er síðan seld og togarinn Arinbjöm RÉ keyptur og fær nafnið Hjalteyrin. í kringum 1987 eru Sveinborg og Þorlákur helgi keypt. Síðamefnda skipið var selt fljótlega en Sveinborg hlaut nafn- ið Þorsteinn. Það laskaðist í ís og sökk síðan er verið var að draga það til útlanda í brotajám. 1989 er Söltunarfélag Dalvíkur keypt og því fylgdu skipin Dalborg og Náttfari. Síðan var Heiðrún keypt og seld fljótlega aftur og Dal- borg og Náttfari vora seld síðar. Samheiji stundaði rækjuvinnslu í Söltunarfélaginu þar til á síðasta ári. Á þessu tímabili vora ýmsir smærri bátar keyptir og seldir. Nýsmíði 1992 Árið 1992 kom nýsmíðin Baldvin Þorsteins- son til landsins, glæsilegasta fiskiskip flotans. Þorsteinn Vilhelmsson hættir sem skipstjóri ár- ið 1994 og tekur til starfa hjá fyrirtækinu í landi. Á næstu árum er Oddeyrin seld til Stykkis- hólms, nótaskipið Helga RE keypt og fær nafnið Þorsteinn, togarinn Akraberg keyptur í Fær- eyjum og gerður út þaðan, þýzka útgerðarfyrir- tækið DFU er keypt, en það gerir nú út fjögur skip og loks er Onward Fishing í Skotlandi keypt 1997. Það á eitt skip, sem áður var Hjalt- eyrin og leigir togarann Snæfugl frá Reyðar- firði, en Samheiji á 20% í þeirri útgerð. 1997 sameinast Hrönn hf. á ísafirði, útgerð Guðbjargar ÍS, Samheija og Fiskimjöl og lýsi í Grindavík á sama ári. Guðbjörgin var svo seld til DFU í fyrra og heitir nú Hanover. Þá hafa bæði fyrram skip F & L verið seld, Jón Sigurðsson til dótturfyrirtækis Samheija í Færeyjum og Há- berg tii Þorbjamarins í Grindavík. Um þessar mundir er nótaskipið Aibert keypt frá Grindavík og heitir það nú Oddeyrin, Hrís- eyjan keypt og Stokksnes, sem selt var fljótlega, og loks var Amamúpur, nú Seley, keyptur. Einnig er verið að smíða nýjan frystitogara fyrir Samheija í Noregi. Eftir að hafa selt um 40% hlut sinn í Skagstrendingi í janúar síðastliðnum, keypti Samheiji 30% í Hraðfrystistöð Þórshafn- ar, sem gerir út nótasldpin Neptúnus og Júpít- er. Auk þessa á Samheiji hlut í hlutafélaginu Úthafssjávarfangi með eignarhaldsfélagi Ai- þýðubankans, SR-mjöli og Sfldarvinnslunni. Það rekur fiskvinnslu í New Bedford í Banda- ríkjunum og gerir út eitt skip. Skip Samheija era í dag Akureyrin, Baldvin Þorsteinsson, Víðir, Margrét, Þorsteinn, Odd- eyrin, Seley og Hríseyjan. Auk þess eiga dóttur- félög Samheija fjögur skip í Þýzka- landi, tvö í Færeyjum, tvö í Skotlandi og eitt í Bandarflyunum. Beinar aflaheimildir Samheija við upphaf þessa fiskveiðiárs hér við land era 22.525 þorskígildistonn eða 6,14% heildarinnar. Fyrir utan þetta standa heimildir dótturfélaganna, en þær nema þús- undum tonna. Ljóst er að Samheiji hefur marg- faldað aflaheimildir sínar á 17 áram. Það hefur verið gert með áunninni aflareynslu utan lög- sögu svo sem á Reykjaneshrygg, í Barenthafi, á norsk-íslenzku sfldinni og kolmunna. Það hefur einnig verið gert með kaupum á bátum og skip- um með aflaheimildum og með sameiningu við önnur félög. Ljóst er að þessar aflaheimildir hafa hækkað verulega í verði frá því þær voru keyptar, enda hefur markaðsverð aflahlutdeild- ar hækkað með ólfldndum síðustu árin. Aflaheimild- irnar hafa hækkað í verði Skipstjóra- kvótinn skipti miklu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.