Morgunblaðið - 05.02.2000, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 5. FEB RÚAR 2000 1 7
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Leikskólagjöld á höfuðborgarsvæðinu vdfuH. Almenn Reykjavík M gjöld (kr.)
8 klst. með mat "J 19.400
4 klst. með hressinqu 8.400
gæsluvellir, eitt skipti 100
Kópavogur
8 klst. með mat 21.200
4 klst. með hressinqu 9.200
qæsluvellir, eitt skipti 100
Garðabær
8 klst. með mat 23.280
4 klst. með hressinqu 9.240
qæsluvellir, eitt skipti 50
Hafnarfjörður
8 klst. með mat 19.000
4 klst. með hressinqu 8.400
gæsluvellir, eitt skipti 100
Bessastaðahreppur
8 klst. með mat 22.400
4 klst. með hressinqu 9.800
qæsluvellir, eitt skipti 100
Seltjarnarnes
8 klst. með mat 23.232
4 klst. með hressinqu 10.200
gæsluvellir. eitt skipti 70
Mosfellsbær
8 klst. með mat 19.000
4 klst. með hressinqu 8.300
qæsluvellir, eitt skipti 100
Ódýrast í
Hafnarfirði
og Mos-
fellsbæ
Höfuðborgarsvæðið
ÁTTA klukkustunda vistun á
leikskóla fyrir þá, sem ekki
tilheyra forgangshópi, er dýr-
ust í Garðabæ og á Seltjarnar-
nesi en ódýrust í Hafnarfírði
og Mosfellsbæ.
Vistunin í Hafnarfirði og
Garðabæ kostar 19.000 krón-
ur en í Garðabæ 23.280 kr. Á
Seltjarnamesi er gjaldið
23.232 kr. Hádegisverður er
innifalinn, auk hressinga ár-
degis og síðdegis.
Kortið hér að ofan birtir
samanburð á gjaldtöku sveit-
arfélaganna á höfuðborgar-
svæðinu vegna almennrar
vistunar á leikskóla í 4 og 8
klstog gjöldum vegna komu á
gæsluvelli.
Eingöngu er fjallað um al-
menna gjaldskrá, en ASI
gerði nýlega úttekt á gjald-
skrám, forgangshópar og
voru þær birtar í Morgun-
blaðinu 19. janúar sl.
Ekki er tekið mið af hugs-
anlegum afsláttarkjörum sem
bjóðast á gæsluvöllum í sum-
um sveitarfélaganna.
Hafnfirska flotkvíin var áður
í eigu breska hersins
Þjónustaði
kjarnorku-
kafbáta
Morgunblaðið/Golli
Um 50 til 60 starfsmenn Vélsmiðju Orms og Víglundar vinna í kvínni.
Bræðumir Guðmundur (t.v.) og Eiríkur Ormur Víglunds-
synir, eigendur flotkvíarinnar, fyrir framan portúgalska
skipið, Santa Isabel, sem nú er f slipp. Til að átta sig betur á
stærðarhlutföllum má sjá vörubíl hægra megin.
Hafnarfjöröur
PORTÚGALSKA skipið
Santa Isabel er nú í slipp í flot-
kvínni í ytri höfn Hafnarfjarð-
ar, en flotkvíin, sem nokkuð
hefur verið í fréttum síðan hún
komst við illan leik til íslands
fyrir tveimur árum, á sér
nokkuð merka sögu, því hún
var í eigu breska hersins áður
en hún kom hingað til lands og
þjónaði þá nær eingöngu
kjarnorkukafbátum.
Fólk áttar sig kannski ekki
almennt á því, en flotkvíin er
mikið mannvirki og til marks
um það getur hún þjónað öll-
um skipum íslenska fiskveiði-
flotans, ekkert þeirra er of
stórt.
Kvfin var smíðuð 1968
Santa Isabel vegur 4.000
tonn en kvíin getur lyft rúm-
lega þrefalt meiri þyngd eða
um 13.500 tonnum.
Það er Vélsmiðja Orms og
Víglundar sf. sem á og rekur
kvína og þar eru fremstir í
flokki þeir bræður Guðmund-
ur og Eiríkur Ormur Víg-
lundssynir.
Eiríkur Ormur sagði að kví-
in hefði verið smíðuð árið 1968
og hefði verið í eigu breska
hersins. Hann sagði að þar
sem hún hefði nær eingöngu
þjónað kjamorkukafbátum,
hefði allt viðhald verið mjög
gott og að með kvínni fylgdi
m.a. spjaldskrá, sem hefði að
geyma alla sögu hennar og gíf-
urlegt magn af varahlutum.
Þegar gengið er um kvína
má sjá ýmis ummerki fortíðar,
t.d. skilti sem benda mönnum
á útgönguleiðir ef kjamorku-
slys verður og myndir á veggj-
um sem sýna viðgerðarmenn
fást við skrúfur á kafbátum og
Víða má sjá ummerki um
fortíð flotkvíarinnar. Ut
um þcnnan hlera átti að
flýja ef kjarnorkuslys
yrði um borð í henni.
freigátum hennar hátignar.
Kvíin er ekki bara einn stór
gámur fyrir skip til að koma til
viðgerða, því í báðum hliðum
hennar er ýmiss konar aðstaða
á tveimur hæðum. Eiríkur
Ormur sagði að líklega væm
um 30 herbergi eða káetur í
kvínni en þau væra ekkert not-
uð. Hann sagði að þegar kvíin
hefði verið í Skotlandi, þar sem
hún var þegar hún var í eigu
breska hersins, hefði þessi
aðstaða verið notuð niikið,
bæði fyrir áhafnir kafbátanna,
þegar þeir komu í viðgerð og
einnig fyrir starfsmenn kvíar-
innar.
Eldhús, baðherbergi
og verkstæði
í kvínni era einnig nokkur
eldhús og baðherbergi. Að
sögn Eiríks Orms er aðeins lít-
ill hluti af þessari aðstöðu nýtt-
ur fyrir starfsmenn Vélsmið-
junnar, en um 50 til 60 manns
vinna í kvínni. Hann sagðist
ekki gera ráð fyrir því að þessi
aðstaða yrði nýtt mikið í fram-
tíðinni og bætti því við að mjög
auðvelt væri að týnast þama
inni, þar sem mikið væri um
hlera eða hurðir. Allir hleram-
ir era vatnsheldir, þannig að
kvíin á ekki að geta sokkið, að
hans sögn. Það á alltaf að vera
nægilegt loft í henni til að
halda henni á floti.
I kvínni era einnig smíða- og
raftnagnsverkstæði og eru þau
mikið notuð, enda algengt að
smíða þurfi varahluti í skipin,
sem koma til viðgerðar.
Eiríkur Ormur sagði að síð-
an starfsemin í kvínni hefði
hafist fyrir alvöru, fyrir nokkr-
um vikum, hefði verið nóg að
gera. Fyrst hefði Mælifellið
verið tekið upp og nú væri
portúgalska skipið þar í við-
gerð, en hann sagði að verið
væri að taka það allt í gegn,
málaoggeravið.
Þegar portúgalska skipið,
sem er 90 metra langt og 14,4
metrar á breidd, var tekið upp,
var kvínni sökkt um 6,5 metra
og því síðan siglt inn. Eiríkur
Ormur sagði að hægt væri að
sökkva kvínni mun dýpra eða
um 12 metra og þá er hún 140
metra löng og 19 metra breið.
Hann sagði að mjög öflugur
dælubúnaður væri í kvínni, þar
sem hægt væri að dæla um 300
tonnum af vatni á mínútu.
Sagan þyrnum stráð
Þeir bræður Eiríkur Ormur
og Guðmundur sögðust horfa
með bjartsýni fram á veginn,
þar sem útlitið væri mjög gott,
t.d. væri meira að gera í stóra
kvínni núna, en í þeirri litlu,
sem staðsett er í innri höfn-
inni, en til samanburðar má
geta þess að hún lyftir 3.000
tonnum. Guðmundur sagði það
einnig vera jákvætt að þeir
Góð aðstaða er inni í
kvínni, en þar eru um 30
herbergi, eldhús, baðher-
bergi og verkstæði.
væra í auknum mæli að þjóna
erlendum skipum og sagði
hann aukninguna vera um 20%
á milli ára.
Saga flotkvíarinnar er þym-
um stráð, ef svo má að orði
komast, því þegar hún var flutt
hingað, í apríl 1998, lenti hún í
miklum hrakningum er drátt-
artaug slitnaði og var hún
mánuð á leiðinni í stað viku.
Kvíin laskaðist mikið og m.a.
brotnaði um 350 tonna krani af
henni. Kvíin lá við Norður-
bakka Hafnarfjarðarhafnar
allt þar til í nóvember í fyrra er
hún var flutt út í ytri höfhina.
Eiríkur Ormur sagði að þeg-
ar kvíin hefði verið við Norður-
bakkann hefði verið gert við
hana og m.a. skipt um 100 tonn
af stáli og keyptur nýr krani.
Grafarholtshverfí teygir sig inn á umráðasvæði Skotfélags Reykjavíkur í Leirdal
Skyttur biðja borgaryf-
irvöld um nýja aðstöðu
Grafarholt
SKOTFÉLAG Reykjavíkur
hefur óskað eftir því við borg-
aryfirvöld að félaginu verði
fundin framtíðaraðstaða til
æfinga og keppni í stað Leir-
dals, þar sem uppbygging í
tengslum við Grafarholts-
hverfi stendur fyrir dyram.
Þrjár jarðir í nágrenni borgar-
innar eru til skoðunar, að sögn
Guðmundar Gíslasonar, gjald-
kera Skotfélagsins.
Uppbygging í Grafarholti
mun skerða umráðasvæði fé-
lagsins í Leirdal. Að sögn Guð-
mundar er áætlað að verktak-
ar fari að sækja efni inn á
skotsvæðið í vor auk þess sem
skipulags Grafarholts geri ráð
fyrir að vegur verði lagður um
þveran æfingavöll á svæði
Skotfélagsins.
Guðmundur segir að Skot-
félag Reykjavíkur sé elsta
íþróttafélag landsins, stofnað
1867, þótt starfsemin hafi leg-
ið niðri um hríð á þessari öld.
í Leirdal frá 1950
Árið 1950 fengu borgaryfir-
völd félaginu Leirdal til um-
ráða og frá þeim tíma hafa fé-
lagsmenn staðið fyrir mikilli
uppbyggingu á svæðinu.
í Leirdal hafa félagsmenn
byggt upp þrjá ólympíska
„skeet“-velli, þ.e. velli fyrir
leirdúfuskotfimi, og era tveir
þeirra enn í notkun. Þar hafa
einnig verið reistir þrír upp-
hitaðir tumar utan um vélam-
ar, sem skjóta leirdúfum út á
skotvellina. Þá stendur á
svæðinu þriggja ára gamalt
100 fermetra félagsheimili og
annað nýlegt 55 fermetra
heilsárshús. Þá eru skotmenn
með um 20 fermetra hús þar
sem félagsmenn hlaða riffil-
skot sín og loks er skamm-
byssuhúsið þaðan sem skotið
er með rifflum eða skamm-
byssum út á skotmörk í 25-
500 metra færi. Síðasttalda
byggingin er sú eina, að sögn
Guðmundar, sem félagið
myndi ekki flytja með sér
fengi það nýja aðstöðu.
Félagið var lengi með inni-
aðstöðu í Baldurshaga á Laug-
ardalsvelli en var, að sögn
Guðmundar, vísað þar út þeg-
ar KSÍ tók við rekstri vallar-
ins og æfingaaðstöðu vegna
loftbyssuskotfimi í Laugar-
dalshöll missti félagið í að-
draganda HM í handknattleik
1995.
Guðmundur segir að erindum
félagsins um framtíðarsvæði hafi
ítrekað verið vísað tQ borgar-
verkfræðings. Á fundi hjá borg-
arverkfræðingi í ágúst sL hafi
verið rætt um land á Kjalamesi
en við athugun hafi komið í (jós
að það hentaði ekki því þá yrði
skotið yfir Vesturlandsveginn.
Félagið sendi borgarráði bréf í
framhaldi af fundinum í ágúst og
fól borgarráð framkvæmda-
stjóra íþrótta- og tómstundaráðs
borgarinnar að vinna að máli
Skotfélagsins. Guðmundur segir
að forsvarsmenn félagsins hafi
gengið á fund framkvæmda-
stjóransívikunni.
Þijár jarðir í sigtinu
Til skoðunar er hvort mögu-
legt sé að félagið fái innan-
hússaðstöðu fyrir loftriffils- og
skammbyssuæfingar í kjallara
nýs knattspymuhúss við Vík-
urveg. Ennfremur er til um-
ræðu hvort einhver þriggja
jarða í nágrenni borgarinnar
geti hentað sem æfingasvæði.
Þar er um að ræða land milli
Rauðavatns og Fjárborgar-
innar og jarðimar Sólheima-
kot og Elliðakot. Félagsmönn-
um líst best á Elliðakot en sú
jörð er í einkaeigu. í Sól-
heimakoti hefur borgin látið
félagi hundaræktenda aðstöðu
í té og Guðmundur segir að
e.t.v. þyki svæðið við Fjár-
borgina of nálægt hesthúsun-
umþar.
Guðmundur segir hins veg-
ar að hinum 750 félagsmönn-
um Skotfélagsins þyki að
borgin eigi að taka tillit til
þeirra og þess öíluga starfs
sem félagið heldur uppi. Eftir
lagabreytingu 1998 er það
m.a. farið að þjálfa ungmenni
frá 16 ára aldri í skotfimi og
meðferð skotvopna.
Fjöldi þeirra sem æfir skot-
fimi hefur farið hraðvaxandi
undanfarin 2-3 ár. Á sama
tíma verði sífellt erfiðara að fá
aðgang að landi til að skjóta
gæs og ijúpu meðan þær ver-
tíðir standa yfir. Guðmundur
segir að í Leirdal komi menn
bæði til að æfa sig fyrir fugla-
veiðina og einnig sé vaxandi
hópur sem æfi haglabyssu-
skotfimi sem keppnisíþrótt af
miklum áhuga. Einn félags-
maður, Alfreð Karl Alfreðs-
son, stefnir á þátttöku á Ól-
ympíuleikunum í Sidney.
Áuk svæðisins í Leirdal er
eitt skotsvæði á höfuðborgar-
svæðinu, að sögn Guðmundar.
Það er nýlegt en lítið svæði
Hafnfirðinga í Kapelluhrauni.
Guðmundur segist telja ljóst
að mikið hreinsunarstarf bíði á
skotsvæðinu í Leirdal áður en
farið verður að reisa þar íbúð-
arhverfi. Undanfama hálfa öld
hafi talsvert af blýi saftiast í
jarðveginn og líklega þurfi að
flytja efstu jarðvegslögin burt
eða hreinsa þau. Meðal þess
sem takmarkar möguleika
skotmanna á nýju félagssvæði
era vatnsvemdarsvæðin í ná-
grenni borgarinnar en blým-
engun frá skotsvæði þykir ekki
æskileg í grennd við vatnsból.
Það var fyrir daga þeirrar
þekkingar að svæðið í Leirdal,
steinsnar frá vatnsbólum Reyk-
vfldnga, var fengið skotmönn-
umtilumráða.
Guðmundur segir að á nýju
æfingasvæði verði sjálfsagt
settur jarðvegsdúkur undir
jarðveg í grennd við skotmörk
og gildrur og efstu jarðvegs-
lög fjarlægð eða hreinsuð
reglulega.
Guðmundur segir að víða
erlendis séu högl úr stáli að
leysa blýhögl af hólmi og að
margir íslenskir skotmenn
hafi þegar tekið upp hjá sjálf-
um sér að skipta úr blýi í stál,
jafnt við æfingar sem veiðar.