Morgunblaðið - 05.02.2000, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 05.02.2000, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Eins og fugl- inn Fönix Nýlistasafnið er orðið tvítugt og tveimur árum betur. Margrét Sveinbjörnsdóttir fékk tvo af félagsmönnum Nýlistasafnsins til að ganga með sér um sali safnsins og velta vöngum yfír fortíð, nútíð og framtíð. Morgunblaðið/Kristinn Pétur Örn Friðriksson og Rúrí rýna í röntgenmyndir Ingarafns Steinarssonar af nokkrum merkum verkum í eigu Nýlistasafnsins. RÚRÍ hefur tekið þátt í starfi Ný- listasafnsins frá upphafi. Hún var í undirbúningshóp að stofnun safns- ins og í fyrstu stjórn þess 1978 og sat í stjórn samfellt fram á níunda áratuginn. Pétur Örn Friðriksson, núverandi formaður stjórnar, kom inn í stjórnina árið 1994 og hefur verið formaður í þrjú ár. Sjálfum finnst honum það eiginlega allt of langur tími en bæði leggja þau Pét- ur og Rúrí áherslu á mikilvægi end- urnýjunarinnar. Safnið hafi við- haldið ferskleika sínum með því að fá sífellt nýtt fólk inn í stjórn og með því nýjar hugmyndir og nýja strauma. I Félagi Nýlistasafnsins eru nú tæplega 190 félagar, bæði innlendir og erlendir listamenn. Rúrí tók þátt í ráðstefnu í Stokk- hólmi síðastliðið vor á vegum ungra listamanna sem reka eigin gallerí og verkstæði og miðlaði þar af reynslu Nýlistasafnsins. „Ráðstefn- an var kölluð First European Sem- inar for Artist Run Centers og þar voru tæplega 70 manns frá 32 lista- miðstöðvum sem listamenn reka sjálfir. Þegar ég sagði þeim að Ný- listasafnið hefði verið stofnað af listamönnum, væri orðið þetta gam- alt og væri enn aðalmiðstöð og sýn- ingarvettvangur ungra listamanna fannst þeim það hreint ótrúlegt - að ein stofnun skuli geta lifað og verið það sem kallað er dýnamísk, stöð- ugt í endurnýjun og stöðugt spenn- andi. Venjulega eiga svona stofnan- ir sér einhvern ákveðinn endingar- tíma, hámark kannski tíu ár, svo er það búið og eitthvað annað tekur við. En þessari stofnun hefur tekist að haldast lifandi allan þennan tíma. Hér kemur stöðugt inn nýtt fólk með nýjar hugmyndir og nýtt þrek. Rótgrónari stofnunum hættir til að staðna og annaðhvort lognast út af eða sofna þyrnirósarsvefni,“ segir hún. Listpólitískt ástand „Það sem aðgreinir Nýlistasafnið frá öðrum listamannareknum stofn- unum er að hér eru ekki eingöngu reknir sýningarsalir heldur líka safn,“ segir Rúrí og rifjar upp það listpólitíska ástand sem leiddi til stofnunar Nýlistasafnsins seint á áttunda áratugnum. „Hér voru bara Listasafn Islands og Listasafn al- þýðu, Kjarvalsstaðir voru ekki orðnir að opinberu safni. Vanda- málið var að Listasafn íslands safn- aði ekki nútímalist og hafði ekki gert það nokkuð lengi. Menn sáu að ef ekki yrði að gert ættum við á hættu að það myndaðist gríðarlega stórt gat í íslenskri listasögu. Það þótti okkur ekki viðunandi ástand. Og eins og venjulega hjá okkur listamönnum var viðkvæðið: Ef aðr- ir gera það ekki, þá verðum við að gera það sjálf.“ Hópur listamanna tók sig saman og hóf að undirbúa stofnun Nýlistasafnsins, í upphafi örfáir einstaklingar en svo stækk- aði hópurinn smátt og smátt. Við stofnun safnsins voru sett í lög skilyrði um að félagar gæfu safninu verk við inngöngu og á nokkurra ára fresti. Ekki hefur þó verið gengið hart eftir þessum skil- yrðum, þar sem fljótlega varð ljóst að rými og fjármagn skorti til varð- veislu og viðhalds listaverkaeignar- innar. „Það var líka ákveðið að reyna að koma upp sýningarað- stöðu og gefa ungum og framsækn- um listamönnum kost á að sýna,“ segir Rúrí. Önnur mikilvæg sér- staða Nýlistasafnsins er svo sú að öll verk í eigu þess eru valin af listamönnunum sjálfum en ekki sérfræðingum listastofnana. Lifandi listasafn Nafn Nýlistasafnsins útskýrir hún á þessa leið: „Það kemur þann- ig til að við vorum að leita að ein- hverju sem gæfi til kynna að hér væri ekki verið að safna ákveðnu tímabili, heldur því sem er nýtt á hverjum tíma. Enska þýðingin The Living Art Museum virkaði svo mun betur en The Modern Art Museum - það hefði ekki gengið upp. Mér finnst líka mjög gaman að sjá að The Living Art Museum virð- ist hafa verið sannnefni. Það hefur alltaf verið leitast við að halda því lifandi og fersku,“ segir Rúrí og þakkar það meðal annars örum mannaskiptum í forystusveit safns- ins. „Bæði forstöðumaður Norrænu myndlistarstofnunarinnar og fleiri hafa haft orð á því við mig hvað það sé makalaust að eftir 22 ár sé Nýl- istasafnið ennþá starfandi og mikil miðstöð listamanna, bæði sem safn og sýningarstaður. Safnið er þekkt meðal myndlistarmanna út um all- an heim. Erlendir listamenn bera mikla virðingu fyrir þessum stað og það er mikil eftirspurn eftir að sýna hérna. Húsnæðið er líka mjög að skapi listamanna, vegna þess að hér má negla í veggi og mála og frjáls- ræðið mikið hvað það snertir. Þetta vill stundum brenna við þegar opin- berir aðilar reisa söfn - það er engu líkara en gleymst hafi að þar eigi að sýna annað en málverk sem geta hangið á fyrirfram ákveðnum stöð- um,“ segir hún. „Hér eru mjög sjaldan málverkasýningar og það hefur meira að segja vakið hörð við- brögð, þá sjaldan að það hefur verið gert,“ segir Pétur Örn. Rúrí tekur undir: „Það má segja að hefðbundin málverk, hefðbundinn skúlptúr og grafík sé það sem kemur minnst hingað inn. Safnið hefur einfaldlega einbeitt sér að öðrum hlutum frek- ar.“ Myndlistarmenn algerir vitleysingar í íjármáluni Stjórn Nýlistasafnsins hefur að undanförnu unnið að endurskipu- lagningu á rekstri þess. „Við erum myndlistarmenn, þannig að við er- um algerir vitleysingar í sambandi við rekstur og fjármál," viðurkennir formaðurinn Pétur Örn. „Vegna þess hve fjárhagurinn er naumur höfum við ekki getað verið með nægjanlegt starfslið, svo vinn- an lendir mikið á stjórninni," segir Rúrí. Framan af var allt unnið í sjálfboðavinnu en frá árinu 1993 hefur safnið haft einn launaðan starfskraft, framkvæmdastjóra, sem sér um allan daglegan rekstur safnsins. Ragnheiður Ragnarsdótt- ir hefur gegnt starfi framkvæmda- stjóra frá upphafi en hefur nú látið af störfum og er nú unnið að því að fá nýjan framkvæmdastjóra til safnsins. Bæði eru þau Rúrí og Pétur Örn bjartsýn á framtíð Nýlistasafnsins. „Ég sé ekki ástæðu til annars en að þetta safn haldi áfram að dafna, það er ekki komin nein þreyta í það,“ segir Rúrí. Á ýmsu hefur þó gengið á þeim rúmu tveimur áratugum sem það hefur starfað og húsnæðis- og peningamálin ekki alltaf verið upp á það besta. „í rauninni ættum við að gera fuglinn Fönix að tákni safnsins, því á hverju sem gengur, þá endurfæðist það eftir erfiðleik- ana - Nýló rís alltaf upp úr ösk- unni,“ segir Rúrí og ekki er annað á Pétri að heyra en honum þyki það afbragðsgóð hugmynd. endurgerð frumverksins. Færa safninu að gjöf...“ f SÚM-sal ræður ríkjum Alda Sigurðardóttir, sem gerði sér lítið fyrir og hafði samband við 29 ein- staklinga sem tekið höfðu þátt í að stofna Nýlistasafnið eða komu að starfsemi þess á fyrsta árinu og bað þá um að velja til sýningar eldri verk úr safneigninni eða gefa eða lána önnur verka sinna. Lista- mennirnir brugðust vel við kalli Öldu, sem að auki gaf safninu tvö verk eftir sjálfa sig í tilefni sýning- arinnar. Verk sem listamenn hafa sjálfir valið til varðveislu í yfirlýsingu Öldu segir m.a.: „Að mínu mati er sérstaða safn- eignar Nýlistasafnsins fyrst og fremst sú að þar eru verk sem listamenn hafa sjálfir valið til varð- veislu. Með þessu hafa þeir lagt sitt að máli við listasöguna því að í framtíðinni mun æ meira verða leitað eftir heimildum í þetta safn og saga listarinnar færð í form með því að dusta rykið af hlutum sem þar leynast, þeir dregnir fram í dagsljósið til þess að segja þessa sögu. Mér finnst þetta mikilvægt til mótvægis við þá listasögu sem geymd er í öðrum söfnum og ég held að þótt önnur listasöfn kaupi nú í nokkrum mæli verk af starf- andi myndlistarmönnum sé það ekki síður mikilvægt að þeir haldi áfram að gefa verk sín Nýlista- safninu. Með þessari sýningu vil ég hvetja þá til þess.“ Sýningin stendur til 13. febrúar nk. og er opin kl. 14-18 alla daga nema mánudaga. Samræður við safneign Morgunblaðið/Kristinn Það er einna líkast því að forvörðurinn hafi brugðið sér frú rétt sem allra snöggvast. Á borð- inu má sjá áhöld og efni Benedikts Kristþórsson- ar og á veggnum fyrstu pensildrættina í endur- gerð hans á verki eftir Dieter Roth. í TILEFNI afmælis og aldahvarfa bauð stjórn Nýlistasafnsins fimm ungum listamönnum að gramsa í geymslum þess og draga fram í dagsljósið nokkur af þeim mikla fjölda verka sem þar leynast. Sýn- ingin Samræður við safneign er af- rakstur þessa stefnumóts sýning- arstjóranna við listaverkaeign Nýlistasafnsins og er henni ætlað að vísa í senn á nútíð og fortíð, jafnt til fornar samdrykkju sem spjallrása samtímans. Mikilvægið Iiggur í loftinu Verkin sem Einar Garibaldi Eir- íksson sýnir í forsal sjást ekki sjálf, þar sem þau hafa ekki verið tekin úr umbúðunum sem þau voru flutt í til safnsins. Þau eru lokuð inni í rammgerðum trékössum eða pappahólkum og titlar verkanna eru: Verk nr. 57, Verk nr. 3881, verk nr. 626, óskráð o.s.frv. Enda segir svo í yfirlýsingu sem Einar Garibaldi hefur sett upp á vegg: „Þegar ég hugsa um Nýlistasafnið er listaverkaeignin það síðasta sem mér dettur í hug. Mikilvægi safns- ins er ekki falið í geymslunni. Ég hef engan sérstakan áhuga á að vita hvað er í kössunum. Mikilvægi Nýlistasafnsins ... liggur í loftinu." Til sýningar í Gryfju hefur Sig- urbjörg Eiðsdóttir valið fimm verk fjögurra listakvenna. í hennar yf- irlýsingu segir: „Hver er lifandi líkami safns og hvert er raunveru- legt umfang hans? Verk nr S-141 fannst ekki í geymslunni. í því var, meðal annars, ostur. Ég velti fyrir mér verkum sem vöktu kenndir um nálægð eða hverfulleika eða hversdagleika og fólk. Úr því varð eins konar tilfinningaleg og óná- kvæm skráning í ljósmyndum af fimm verkum í eigu Nýlistasafns- ins.“ Hvort ljósið leiðir eitthvað nýtt í ljós Á ljósaborði í setustofu liggja staflar af röntgenmyndum sem Ingirafn Steinarsson hefur látið taka af nokkrum þekktum og minna þekktum verkum í eigu safnsins. Með því að rýna í þær geta gestir skoðað innri byggingu listaverkanna. Þannig hljóðar yfir- lýsing Ingarafns til skýringar upp- átækinu: „Ég vildi gera tilraun til að varpa nýju ljósi á verk í eigu Nýlistasafnsins. Líklega hefur aldrei verið varpað röntgen „ljósi“ á verkin áður en ég gerði það. Að sýningu lokinni kem ég til með að gefa safninu þessar film- ur sem hér eru til sýnis. Það kemur síðan í Ijós hvort þetta ljós leiðir eitt- hvað nýtt í ljós.“ Grafíkmynd endurgerð í Bjarta sal sýnir Benedikt Kristþórs- son ekki grafík- mynd sem safnið á eftir Dieter Roth, heldur varpar hann mynd af verkinu upp á vegg með hjálp litskyggnuvél- ar og endurgerir það, bæði framhlið þess og bakhlið. Allt efni sem hann notar til endurgerðarinn- ar liggur þar frammi á borði, auk þess sem það er tal- ið upp í smáatriðum á lista sem hangir á veggnum ásamt yf- irlýsingu Benedikts: „... að endurgera verk, „recto verso“ framhlið, bakhlið. Úr safngeymslu yfir í sýningarsal þ.e. frumverk úr safna- eign sem þolir ekki dagsljós. Ljós- fælnir litir, óburðugur pappír, litur á lit ofan, krosssprungið yfirborð. Eigum við að grípa inn í, stöðva eða hægja á eyðingu verksins, hver gefur okkur það leyfi, hver tekur þá ákvörðun? Er það höf- undur verksins, eigandi þess, sýn- ingarstjóri eða forvörðurinn? Tutt- ugu og þrír dagar, tuttugu og tveir litir. Skrá, taka upp á myndband, festa á filmu og mála síðan yfir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.